27.11.1978
Neðri deild: 20. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1005 í B-deild Alþingistíðinda. (707)

106. mál, ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er lagt fram til 1, umr., fjallar um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu. Þessar ráðstafanir miða fyrst og fremst að því að hamla gegn þeirri verðbólguskriðu, sem fylgt hefði ef 14% launahækkun hefði verið hleypt út í hagkerfið hinn 1. des. n.k., og þeim vanda, sem af henni hefði leitt. Jafnframt ber þó að líta á þetta frv. sem lið í þeirri viðleitni ríkisstj. að ná fram varanlegum breytingum og umbótum á sviði efnahagsmála þegar á næsta ári. Meginverkefnið er að freista þess að ná tökum á verðbólgunni, og að því verki er nú unnið í samráði við aðila vinnumarkaðarins. Rétt er að leggja áherslu á það, að til þess að árangur náist á þessu sviði þarf að ríkja gagnkvæmur skilningur milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um nauðsyn slíkra aðgerða.

Þær ráðstafanir, sem ríkisstj. varð að grípa til á fyrstu starfsdögum sínum í sept. s.l., fólu í sér tilraun til þess að rjúfa þann vítahring verðlags og launahækkana sem hagkerfið hefur festst í að undanförnu og haft hefur í för með sér slíka rekstrarerfiðleika í undirstöðuatvinnuvegum að horfði til rekstrarstöðvunar og atvinnubrests. Þar var farið inn á þá braut að draga úr verðbólgu með auknum niðurgreiðslum og lækkun söluskatts af nauðsynjum.

Þrátt fyrir þær stórfelldu niðurfærsluaðgerðir, sem fólust í septemberráðstöfununum, var alla tíð ljóst að þær mundu einar sér ekki duga til þess að hemja í einni svipan þá þungu undiröldu verðbólgu sem valt og veltur í hagkerfinu. Þá þegar var vitað að fram undan væri veruleg verð- og launahækkun hinn 1. des. n.k.

Frá því að gripið var til ráðstafananna í sept. s.l. hefur framvinda efnahagsmála orðið nokkru óhagstæðari en búist var við þegar þær voru undirbúnar. Innflutningsverðlag hefur hækkað talsvert meira en ráð var fyrir gert, en verðlag á útflutningsafurðum okkar hefur hins vegar staðið í stað. Viðskiptakjör þjóðarinnar hafa því versnað talsvert á þessu tímabili, og stafar það fyrst og fremst af lækkun á gengi Bandaríkjadollars sem vegur þungt í okkar útflutningstekjum gagnvart Evrópumyntum sem mestu ráða um verð á innflutningnum. M.a. af þessum sökum er vandinn, sem við er að glíma, nú alvarlegri og stærri í sniðum en ætlað var. Að sama skapi er brýnna að hann verði leystur með skynsamlegum ráðum.

Ríkisstj. er sammála um að brýnasta verkefni hennar sé að móta samræmda stefnu um aðgerðir á öllum sviðum efnahagsmála í því skyni að hamla gegn verðbólgu á næstu missirum. Það þarf að móta og síðan fylgja skarpri aðhaldsstefnu í verðlags- og launamálum, þar sem horft verður til lengri tíma en nokkurra mánaða. En viðnám gegn verðbólgu verður næsta haldlítið ef ekki er jafnframt mótuð samræmd aðhaldsstefna á sviði ríkisfjármála, peningamála, fjárfestingarmála og skattamála. Ríkisstj. hyggst í þessu skyni m.a. beita sér fyrir eftirgreindum aðgerðum:

1. Stefnt verði að því í samráði við aðila vinnumarkaðarins, að verðlag og peningalaun hækki ekki um meira en 5% hinn 1. mars n.k.

2. Leitast verði við að ná svipuðum markmiðum fyrir önnur verðbótatímabil á árinu 1979, þannig að verðbólgan náist niður fyrir 30% í lok ársins.

3. Vísitöluviðmiðun launa verði breytt fyrir 1. mars n.k. að höfðu samráði við fjölmennustu heildarsamtök launafólks. Gert er ráð fyrir því, að vísitölunefnd skili tillögum fyrir 15. febr, n. k. sem unnt verði að byggja á í þessu sambandi. M.a. verður athuguð viðmiðun, viðskiptakjör o.fl. Eins og kunnugt er hefur vísitölunefndin þegar gert ríkisstj. grein fyrir störfum sínum fram til þessa dags og mun hún halda áfram starfi sínu.

4. Vegna þeirra aðgerða, sem frv. þetta gerir ráð fyrir, verða lögð fram nú fyrir áramót frv. til l. um tekjuöflun, og kemur m.a. þar til athugunar hátekjuskattur og veltuskattur á ýmiss konar rekstur. Einnig kemur til athugunar í þessu skyni fjárfestingarskattur og eignarskattur.

Með samræmdri breytingu þeirra fjármálatækja, sem hér hafa verið nefnd, þ.e. með álagningu sérstaks skatts á verðbólgufjárfestingu og með hækkun eignarskatts, sem stefnir að sama marki, mætti koma traustum böndum á verðbólgugróðann. Ég hygg að menn geti verið sammála um, að slíkar aðgerðir séu fyllilega réttlætanlegar.

Rík áhersla verður lögð á að tryggja jafnvægi í ríkisfjármálum á sama grundvelli og gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. fyrir árið 1979. Jafnframt verður að því stefnt, að aukinni fjárþörf ríkissjóðs vegna þeirra aðgerða, sem ríkisstj. hefur gripið til, verði mætt að hluta með niðurskurði rekstrarútgjalda ríkisins. Einn liður í þessari viðleitni felst í því að endurskoða allan ríkisrekstur með aukið aðhald og sparnað í huga. Jafnframt verði skattalög endurskoðuð svo og skattalagaframkvæmd til þess að tryggja aukið réttlæti í skattlagningu og skattamálum. Og beinir skattar af almennum launatekjum, sérstaklega tekjuskattur og sjúkratryggingargjald, verði lækkaðir á næsta ári.

5. Á þessu þingi hyggst ríkisstj. beita sér fyrir breyttri stefnu í framleiðslumálum landbúnaðarins og verða fyrstu frv. um þetta efni lögð fram fyrir næstu áramót. Stefnt verður að því að draga í áföngum úr framleiðslu umfram þarfir, þannig að útflutningsbætur lækki frá því sem nú er.

6. Ríkisstj. mun beita sér fyrir aðhaldssamri stefnu á sviði fjárfestingarmála á næsta ári, og er að því stefnt að heildarfjárfesting á árinu 1979 verði ekki umfram 24–25% af vergri þjóðarframleiðslu. Stefnumörkun á sviði fjárfestingarmála er nú í undirbúningi og er gert ráð fyrir lagafrv. um þau mál innan tíðar. Þar er m.a. gert ráð fyrir því, að fjárfestingum verði beint frá verslunar- og skrifstofubyggingum í tækni- og skipulagsumbætur, m.a. í fiskvinnslu og iðnaði, og að dregið verði úr fjárfestingu í landbúnaði sem leiðir til aukinnar framleiðslu, en áhersla lögð á hagræðingu og uppbyggingu vinnslustöðva landbúnaðarins. Þessari stefnu mun verða fylgt eftir með breytingum á reglum um útlán fjárfestingarlánasjóða og banka.

7. 1 3. gr. þessa frv. eru ákvæði þess efnis, að ríkisstj. muni beita sér fyrir aðgerðum og lagasetningu til ýmissa félagslegra umbóta, sem í kjarabótum jafngildir 3% af verðbótavísitölu þeirri sem gildir fram til 30. nóv. Við undirbúning þeirra mála, sem hér um ræðir og talin eru upp í 7. lið grg., mun ríkisstj. hafa fullt samráð við aðila vinnumarkaðarins, og er lögð áhersla á að aðgerðum og undirbúningi löggjafar verði hraðað svo sem kostur er. Hér er um margvísleg hagsmuna- og réttlætismál að ræða, og má minna á að um mörg af þessum málum er fjallað í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna og meginstefnan í þeim málum er mörkuð þar. Undirbúningur margra þessara mála er þegar hafinn og í sumum tilvikum langt kominn.

Ég mun nú fara örfáum orðum um þær félagslegu umbætur sem hér um ræðir og getið er í grg, frv.

Í fyrsta lagi má telja öryggismál og hollustuhætti á vinnustöðum, en þau mál hafa verið lengi til meðferðar og verið eitt af baráttumálum verkalýðshreyfingarinnar. Í þessum efnum mun ríkisstj. beita sér fyrir því, að hraðað verði þeirri könnun á ástandi vinnustöðva sem nú stendur yfir til undirbúningsaðgerða og löggjafar á þessu sviði. Mun að því stefnt að hraða samningu löggjafar er taki m.a. til öryggismála, aðbúnaðar og vinnuumhverfis svo og um strangt eftirlit með reglum um öryggismál og hollustuhætti á vinnustöðum. Til þess að tryggja að slík löggjöf skili árangri með skjótum hætti þarf jafnframt að sjá fyrir öflun nokkurs lánsfjár til að gera fyrirtækjum kleift að koma við endurbótum á vinnustöðum til þess að fullnægja kröfum um öryggi og aðbúnað. Mun ríkisstj. beita sér fyrir útvegun fjármagns í þessu skyni, sem lánað yrði til fyrirtækja í samráði við viðkomandi verkalýðsfélög til að framkvæma meiri háttar endurbætur á aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi vinnustaða. Þó að vissulega hafi mikið áunnist í þessum efnum á undanförnum árum held ég að við verðum öll að játa að mikið skortir á að þessi mál séu komin á það stig, sem æskilegt er og að þarf að stefna. Ég er þeirrar skoðunar, að umbætur á þessu sviði horfi til sparnaðar, þegar lengra er litið, og muni skila sér aftur í bættu heilbrigðisástandi fólks.

Þau atriði, sem nefnd eru í grg. undir fyrirsögninni: „Veikinda- og slysabætur og uppsagnarákvæði launafólks“, má raunar líta á sem hluta vinnuverndarmála í víðari skilningi, eins og gert er í löggjöf hjá ýmsum grannþjóða okkar. Þessi réttindamál hafa hér á landi m.a. verið háð kjarasamningum, en það er augljóst réttlætismál að félagsleg réttindi sem þessi séu skýrt mótuð í löggjöf.

Stjórnarflokkarnir hafa þegar sett fram meginstefnumið sín í húsnæðismálum í samstarfsyfirlýsingunni, en þar segir svo, með leyfi forseta. „Áhersla verði lögð á félagsleg sjónarmið í húsnæðismálum. Sett verði löggjöf um réttindi leigjenda. Löggjöf um verkamannabústaði verði endurskoðuð. Stefnt verði að því að hækka húsnæðislán og létta fjármagnsbyrði með lengingu lánstíma.“

Þessi mál eru nú öll í undirbúningi. Má m.a. taka fram að samningu laga um réttindi leigjenda mun ljúka á næstu vikum og stefnir ríkisstj. að setningu löggjafar þar um á þessum vetri. Nefnd sú, er fyrrv. félmrh. skipaði á s.l. ári, til endurskoðunar á löggjöf um verkamannabústaði, hefur nú skilað drögum að frv, og mun á næstu vikum unnið að athugun þeirra tillagna, m.a. í samhengi við þá endurskoðun, sem nú stendur yfir að fyrirlagi þessarar ríkisstj., á starfsemi Húsnæðismálastofnunar og íbúðalánamálum almennt.

Ríkisstj. stefnir að því, að aukin áhersla verði lögð á byggingu verkamannabústaða um allt land, og mun beita sér fyrir nýrri löggjöf á þessu sviði í tengslum við heildarendurskoðun húsnæðislánamála. Hér getur vitaskuld ekki orðið um neina skyndilausn að ræða. Málefni lífeyrissjóða og eftirlaun aldraðra eru meðal helstu forgangsverkefna þessarar ríkisstj. Þess má geta, að á næstu vikum mun ríkisstj. leggja fram frv. til l. um almenn eftirlaun fyrir aldraða, en í því felst að eftirlaunaréttur samkv. lögum um eftirlaun aldraðra félaga í stéttarfélögum verði nú gerður almennur og færður þeim eftirlaunaþegum sem ekki hafa þegar betri lífeyrissjóðsréttindi. Þessi eftirlaun munu fylgja launaþróun í landinu.

Frv. það, sem hér um ræðir, felur í sér bráðabirgðaúrlausn í lífeyrismálum sem unnt er að koma á með skjótum hætti, en ríkisstj. hefur jafnframt beitt sér fyrir því, að áfram verði unnið að undirbúningi heildarlöggjafar um nýtt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn. Þótt frv. um almenn eftirlaun til aldraðra sé stórt skref í lífeyrismálum, sem færa mun stórum hópi lífeyrisþega mikla réttarbót, er engu að síður nauðsynlegt að tryggja sem best þau lágmarkskjör, sem almannatryggingakerfið færir lífeyrisþegum með almennum lífeyrisbótum og tekjutryggingu. Því er í II. kafla þessa frv. ákvæði um að lífeyrisbætur skuli hækka jafnmikið og lægstu laun og án tafar, en auk þess er tekjutryggingin svo og hin svonefnda heimilisuppbót tekjutryggingarþega hækkuð sérstaklega og umfram hækkun lægstu launa. Þetta er að mati ríkisstj. nauðsynlegt til að tryggja hag þeirra lífeyrisþega sem lakast eru settir.

Mörg félagsleg umbótamál eru þó enn ótalin. Þar má nefna fæðingarorlof, sem ríkisstj. hyggst taka til endurskoðunar m.a. með setningu löggjafar. Þá hyggst ríkisstj. stuðla að eflingu fræðslumála samtaka launafólks í samráði við verkalýðshreyfinguna.

Eitt þeirra umbótamála, sem ríkisstj. mun beita sér fyrir, er bygging dagvistarheimila, en ætlunin er að talsvert átak verði gert í þeim efnum með aukinni fjárveitingu á næsta ári.

Forfallaþjónusta í landbúnaði hefur lengi verið brýnt hagsmunamál bænda og vill ríkisstj. styðja bændasamtökin til úrbóta í þessu máli.

Þá mun ríkisstj. beita sér fyrir endurskoðun á ávöxtun orlofsfjár í því skyni að tryggja ávöxtun þess betur en hingað til. Þetta mál verður að sjálfsögðu undirbúið í samvinnu við samtök launafólks.

Loks er svo í grg. frv., í þessum 7. lið sem ég hef nú rætt, vikið að sérstökum réttindamálum opinberra starfsmanna. Í því sambandi má minna á að í samræmi við fyrirheit í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna standa nú yfir umræður um samningsréttarmál opinberra starfsmanna.

8. Í peningamálum mun ríkisstj. fylgja mjög aðhaldssamri stefnu. Í þeirri stefnu felst að útlánaþök bankanna og bindiskylda Seðlabankans verði ákveðin þannig, að peningamagn í umferð verði í samræmi við stefnuna í launamálum. Ljóst er að takmörkun útlána og hófleg aukning peningamagns er ein af forsendum þess, að unnt reynist að draga úr verðþenslu.

9. Ríkisstj. mun beita ströngu verðlagsaðhaldi og halda áfram eflingu verðlagseftirlits. Í því sambandi munu reglur verðlagseftirlitsins um hámarksálagningu verða endurskoðaðar og fleiri vörutegundir en nú eru settar undir hámarksákvæði. Til að draga úr verðlagsáhrifum launahækkunarinnar 1. des. hefur ríkisstj. ákveðið að þær verðhækkanir, sem heimilaðar verða eftir 1. des., miðist við 4–4.5% kauphækkun hið mesta. Þetta þýðir m.ö.o. að atvinnurekendur taki á sig um 2% í kauphækkun án þess að fá það til baka í verðhækkun, og ber að skoða þetta sem framlag atvinnurekenda til viðnáms gegn verðbólgu.

Ég hef hér farið nokkrum orðum um nánari tildrög og tilgang þeirra aðgerða, sem frv. gerir ráð fyrir, og jafnframt lýst því í stórum dráttum, hvernig ríkisstj. hyggst fylgja þessum málum eftir á næsta ári. Ég vík þá að einstökum köflum í frv. sjálfu.

Í I. kafla frv. er fjallað um niðurgreiðslu vöruverðs, lækkun skatta lágtekjufólks, félagslegar umbætur og verðbótavísitölu. Þessi kafli frv. skýrir sig að mestu leyti sjálfur. Þar er m.a. gert ráð fyrir að niðurgreiðslur verði enn auknar frá því sem nú er. Einnig segir þar, að ríkisstj. muni beita sér fyrir lækkun skatta og gjalda á lágtekjufólki. Enn fremur hyggst ríkisstj. beita sér fyrir aðgerðum til ýmissa félagslegra umbóta, sem metnar verði til kjarabóta launþega, eins og ég hef nokkuð ítarlega rakið hér. Ákvæðin í I. kafla frv. fela þannig í sér, að til þess að ná árangri í viðureigninni við verðbólguna verða kjör launþega bætt sem svarar 8% af 14% hækkun verðbótavísitölu með öðrum hætti en með beinni launahækkun og er megináherslan lögð á að tryggja kjör lágtekjufólks.

Í sambandi við 4. gr. er rétt að taka fram, að í henni felst að við útreikning verðbóta á hverju verðbótatímabili næsta árs verði beitt samsvarandi reglu og 1. mars n.k. Þannig skal t.d. frá 1. júní 1979 greiða verðbætur á laun samkv. þeirri verðbótavísitölu, er gildir frá 1. mars 1979, að viðbættri þeirri stigatölu er verðbótavísitala reiknuð samkv. ákvæðum kjarasamninga hækkar frá 1. mars til 1. júní 1979 og svo á seinni tímabilum með samsvarandi hætti. Þetta gildir nema því aðeins að öðruvísi sé um samið eða lögum breytt, sbr. ákvæði 3. gr. laga um kjaramál frá því í sept. En þar segir einmitt, með leyfi forseta: „Frá 1. des. 1978 og þar til um annað hefur verið samið skulu grunnlaun og tilhögun verðbóta á laun haldast óbreytt eins og ákveðið er frá 1. sept. 1978 samkv. almennum kjarasamningum, sem gerðir voru á árinu 1977 og á fyrstu fimm mánuðum 1978, og samkv. lögum þessum.“

Í II. kafla frv. eru ákvæði til að tryggja kjör lífeyrisþega og þá sérstaklega hinna tekjulægstu í þeirra hópi með hækkun lífeyrisbóta og sérstakri hækkun tekjutryggingar, eins og ég hef þegar vikið að.

Með tillögum frv. í heild eiga kjör allra hinna lægst launuðu að vera tryggð með viðunandi hætti, jafnframt því sem freistað er viðnáms gegn verðbólgu.

Mér barst í gær bréf frá Verkamannasambandi Íslands um þessa fyrirhuguðu lagasetningu, sem ég get ekki stillt mig um að lesa hér, af því að mér finnst að það verðskuldi að vera geymt í Alþingistíðindum. Það er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Herra forsrh. Ólafur Jóhannesson, Reykjavík.

Á fundi í sambandsstjórn Verkamannasambands Íslands, sem haldinn var hér í Reykjavik í gær, 25. nóv., var hjálögð ályktun samþykkt einróma. Í sambandsstjórn Verkamannasambandsins eiga sæti 19 manns alls staðar að af landinu og enn fremur eru kjörnir 7 varamenn. Til fundarins í gær voru boðaðir bæði aðalmenn og varamenn og sat þorri þeirra fundinn.

Þetta tilkynnist yður hér með.

Virðingarfyllst,

Verkamannasamband Íslands.

Þórir Daníelsson.“

Ályktunin er svo hljóðandi:

„Sambandsstjórn Verkamannasambands Íslands, komin saman til fundar 25. nóv. 1978, ítrekar fyrri yfirlýsingar verkalýðshreyfingarinnar um að hún hafi ávallt verið og sé reiðubúin að meta ýmsar efnahagsráðstafanir, svo sem niðurgreiðslur til lækkunar verðs nauðsynjavara og lækkun skatta af lægri tekjum, fullkomlega til jafns við kauphækkanir. Fundurinn er þeirrar skoðunar, að fyrsta skilyrðið til þess að ná raunhæfum árangri til aukins kaupmáttar launa verkafólks sé að takast megi að draga svo að um munar úr hinni geigvænlegu dýrtíð í landinu. Fundurinn lýsir því stuðningi við efnahagsráðstafanir ríkisstj. 1. sept. s.l. og fyrirhugaðar ráðstafanir 1. des. n.k., en leggur í því sambandi sérstaka áherslu á hin félagslegu réttindamál sem gert er ráð fyrir að lögfest verði á næstu vikum. Framangreindar ráðstafanir eru bráðabirgðaráðstafanir, en fundurinn telur óhjákvæmilegt að ríkisstj. fái starfsfrið til þess að ná árangri í baráttunni við verðbólguna, og vill Verkamannasamband Íslands veita henni lið í því efni.“

Þannig hljóðaði þessi ályktun. Ég verð að segja það, að ég met þann stuðning, sem felst í þessari ályktun, mjög mikils. Það er áreiðanlegt, að þessi ályktun verður ríkisstj. hvati til að vinna af alúð að þeim félagslegu réttindamálum sem frv. gerir ráð fyrir. Hún verður ríkisstj. einnig eggjan sterk að leggja sig alla fram í baráttunni við verðbólguna.

Ef allir landsmenn, ef önnur hagsmunasamtök sýndu samsvarandi skilning yrði róðurinn léttari. Það þurfa allir að viðurkenna og sýna í verki skilning á því, að þeim ber að leggja fram sinn skerf í glímunni við verðbólgudrauginn.

Sennilega munu ýmsir sakna þess og benda á það, að ekki sé vikið neitt sérstaklega að réttindamálum sjómanna í aths. með frv. Það er rétt, að um þá er ekki fjallað sérstaklega. Þar er ekki fjallað sérstaklega um málefni sjómanna. En að sjálfsögðu tekur ýmislegt í hinum félagslegu umbótum til þeirra.

Ég vil geta þess, að það hefur verið komið á framfæri við ríkisstj. óskum sjómanna um umbætur á tilteknum sviðum og þau mál hafa verið rædd í ríkisstj., og sérstaklega hefur þar verið fjallað um að eftirtalin atriði varðandi réttindamál sjómanna þyrftu umbóta við: 1) Aðbúnaður og öryggismál sjómanna. 2) Slysabætur til sjómanna. 3) Endurskoðun löggjafar um lögskráningu sjómanna. Verða öll þessi mál tekin til umfjöllunar í ríkisstj. á næstunni.

Með þeirri stefnu í launa- og verðlagsmálum, sem mörkuð er í þessu frv., ásamt þeirri samræmdu stefnu á öllum sviðum efnahagsmála, sem nú er í mótun og þegar hefur komið fram í fjárlagafrv. að því er ríkisfjármálin varðar og skýrð er frekar í grg. þessa frv., má telja að jöfnuður náist í viðskiptum við útlönd á næsta ári. Þótt hagvöxtur verði minni en að undanförnu ætti atvinna að vera næg, um leið og tækist að draga úr verðbólgu.

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstj. segir m.a., að vinna skuli að gerð þjóðhags- og framkvæmdaáætlunar sem marki stefnuna í atvinnumálum, fjárfestingarmálum, tekjuskiptingu og kjaramálum. Jafnframt verði mörkuð stefna um hjöðnun verðbólgu í áföngum og ráðstafanir ákveðnar sem nauðsynlegar eru í þessu skyni, m.a. endurskoðun á vísitölukerfinu, aðgerðir í skattamálum og mótun nýrrar stefnu í fjárfestingar- og lánamálum. Þær ráðstafanir, sem gripið var til 1. sept. s.l., mörkuðu fyrsta áfanga þessa verks. Með ráðstöfunum þeim, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, er þessu verki fram haldið og í reynd hafinn annar áfangi á þeirri braut að móta og síðan fylgja samræmdri aðhaldsstefnu í launa- og verðlagsmálum í samhengi við heildarstefnuna í skattamálum og efnahagsmálum almennt.

Ég hygg að fæstum blandist hugur um það, að eigi viðunandi árangur að nást í viðnámi gegn verðbólgu þurfa að koma til aðgerðir sem ekki liggja einungis á sviði launa- og verðlagsmála, heldur einnig á öðrum sviðum kjaramála, ásamt aðgerðum á vettvangi peninga- og lánamála, fjármála ríkisins, verðlagsmála og fjárfestingarmála. Viðnámið gegn verðbólgu verður næsta máttlítið nema því sé fylgt eftir á öllum sviðum efnahagsmála.

Ríkisstj. hefur sett sér það meginmarkmið að vinna að hjöðnun verðbólgu í ákveðnum áföngum, og þær aðgerðir, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, eru skref á þeirri leið. Sjálfsagt segja sumir, að það sé stutt skref, og vissulega má það til sanns vegar færa. En það, sem meginmáli skiptir, er að það er skref í rétta átt. Það er ekki alltaf heppilegast að taka stór stökk. Það er ekki hyggilegt að ætla sér að stökkva yfir læk sem er svo breiður að maður nær ekki yfir á bakkann hinum megin og dettur ofan í lækinn. Það getur vel verið, að við verðum á næstunni að láta okkur nægja hinu smáu skrefin, stuttu skrefin í varnaraðgerðum gegn verðbólgu. En ég endurtek, að það, sem mestu máli skiptir, er að skrefin gangi í rétta átt.

Kjarkmenn stökkva, jafnvel þó þeir nái ekki yfir á bakkann hinum megin og detti ofan í. En ég held að það sé hygginna manna háttur að athuga vel áður en slík heljarstökk eru framkvæmd. Það þýðir ekkert að tala um kjark í þessu sambandi. Kjarkur er ekki nóg. Það þarf að beita skynsemi og það þarf að laða menn til samvinnu um þessi mál. Með því móti og með því móti einu er hugsanlegt að árangur náist í þessum efnum. Að því er stefnt með þessu frv. og þeim ráðstöfunum sem það gerir ráð fyrir.

Ég veit að öllum hv. þm. er ljóst að sú lagasetning, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, kemur ekki að gagni nema hún öðlist gildi fyrir mánaðamót. Þess vegna verð ég að fara fram á það við hv. þm. og vænti þess að þeir taki vel þeirri málaleitan, að afgreiðsla fáist á þessu máli fyrir mánaðamót. Til þess að það verði auðveldara legg ég til að þær nefndir í báðum deildum, sem munu fá þetta frv. til meðferðar, vinni saman að athugun þess til þess að flýta fyrir afgreiðslu þess í síðari deild.

Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.