27.11.1978
Neðri deild: 20. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1038 í B-deild Alþingistíðinda. (711)

106. mál, ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Það verður ekki sagt að hæstv. ríkisstj. ætli Alþ. ríflegan tíma til þess að fjalla um þetta frv., sem er lagt fram hér í dag, 27. nóv., og er nú lögð rík áhersla á að þessi óskapnaður verði orðinn að lögum 30. nóv., því að annars segir ríkisstj. að allt fari út í verðlagið eins og hún túlkar það. Það verður þá að segja, að margt hefði mátt athuga betur í sambandi við þetta frv. og margar hefðu upplýsingarnar mátt vera betri en fram komu í ræðu hæstv. forsrh., þegar hann fylgdi þessu frv. úr hlaði í dag.

Við þm. þessarar deildar höfum nú heyrt málsvara ríkisstjórnarflokkanna tala hér í dag, fulltrúa allra þessara þriggja bræðraflokka, en þeir hafa talað hver með sínu nefi. Fyrstur reið á vaðið hæstv. forsrh., sem flutti málið, og margt var andstætt í þeim málflutningi við það sem sá ágæti maður sagði fyrr á þessu ári. En það er kannske ekkert nýtt við þann flokk sem hann stýrir, að hann taki nokkrar veltur og það á skemmri tíma en þessum. En svo kom maður hér í ræðustól, hæstv. viðskrh., og hann breiddi úr blómabeði sínu og dreifði rósum um allan sal. Ég vissi að honum var margt til lista lagt og þó sérstaklega að skrifa í Þjóðviljann, en ég hafði ekki hugmynd um það fyrr en nú hvað hann er mikill blómaræktarmaður, fyrr en hann dreifði þessum rósum um allan þingsalinn. Og svo kom loks sá þriðji, en ekki sá slappasti, úr þessu bræðralagi ríkisstjórnarflokkanna. Hann hafði allt á hornum sér og taldi þetta frv. vera ómögulegt í alla staði. Hann byrjaði ræðu sína á því að segja að frv. væri ómögulegt, það næði alls ekki þeim tilgangi sínum að vinna bug á verðbólgunni, sem er alveg satt og rétt hjá honum, og hann byrjaði á því að tilkynna að hann mundi samt greiða þessu frv. atkv. Svo hellti hann úr skálum reiði sinnar, og hér var þá í ræðustólnum mjög reiður ungur maður. Þegar var af honum mesti móðurinn endurtók hann það sem hann byrjaði á, að hann ætlaði að greiða þessum óskapnaði atkv. sitt og leggja blessun sína yfir þessar aðgerðir. Og hann sagði mjög skynsamlega setningu, þegar hann sagði að þverbrestur væri kominn í stjórnarsamstarfið. Þá urðu flestir hissa. Var ekki þverbrestur í stjórnarsamstarfinu þegar það byrjaði? Og eru ekki brestir í því langs og þvers hvar sem á spýtuna er litið? Þetta var ekki nein sérstök frétt fyrir okkur sem höfum fylgst með heimilislífinu á þeim bæ að undanförnu. Og fulltrúi Alþfl. sagði að fjmrh. væri eini ráðh., — mér skildist að hann væri eini ráðh. fyrir utan Alþfl.-ráðh., hann tók það ekki sérstaklega fram, en sennilega hefur hann átt við það, — sem vildi berjast gegn verðbólgunni. Þetta er sennilega rétt hjá honum, að fjmrh. hefur haft töluverða tilburði í þá átt, en hann hefur orðið fyrir miklu áfalli, hann hefur verið sigraður af hinum, rósameistaranum og fleiri, og hann er flúinn úr landi. Það hefur margur yfirgefið Ísland af minna tilefni en því.

Hv. þm. Alþfl. spurði sjálfan sig og bar spurninguna undir þessa hv. þd. hvort Alþb. væri stjórnhæft. Hann sagði, að þetta hefði getað gengið ef allir sjóðir væru fullir, þá hefði verið hægt að vera með Alþb. svolítinn tíma í stjórn. Þetta er alveg rétt. En þegar er borð fyrir báru eða meira í ríkiskassanum, þá er ósköp eðlilegt að þm. spyrji hvort sá flokkur sé stjórnhæfur, hvort þessi rósaflokkur sé hæfur til þess að teljast til stjórnarflokka. Og ég segi bara: Bragð er að þá barnið finnur.

Einn ráðh. sagði í útvarpinu í gærkvöld, að Morgunblaðið hefði viljað þessa stjórn feiga. Ég er auðvitað ekki kominn hér til þess að tala fyrir Morgunblaðið, en mér finnst mjög ósennilegt að Morgunblaðið vilji endilega berjast fyrir því að þessi stjórn hrökklist frá. Morgunblaðið styður Sjálfstfl. einarðlega og Sjálfstfl. er ekkert að leggja stein í götu þessarar ríkisstj. eða aflífa hana. Ég held að það fari langbest á því, að hún verði sjálfdauð. Það tekur að vísu eitthvað lengri tíma, en hann verður ekkert mjög langur. Ég held að það sé afar mikils virði, þó það kosti atvinnulífið mikið og launþega, að þessir flokkar, sem sigruðu í síðustu kosningum, fái að sýna sig enn betur. Þeir eru að sýna töluvert núna þessa tæpu þrjá mánuði, en það er nauðsynlegt að þeir sýni enn betur hringsnúning sinn frá því sem var fyrir kosningar. Kokhreysti þeirra var ekki svo lítil fyrst eftir kosningasigurinn, að það fer afar vel á því að þeir fái að spreyta sig. (GJG: Hann kom þó útgerðinni í Vestmannaeyjum af stað.) Já, ég skal koma að því á eftir, hver kom útgerðinni í Vestmannaeyjum af stað og líka á Suðurnesjum. Ég ætla að biðja formann Verkamannasambandsins engu að kvíða. Ég skal koma bráðum að því og skýra hvernig ríkisstj. fór að þessu.

Hæstv. forsrh. minntist ekki á hvernig afla ætti fjár til að standa undir ræktun þessara rósa, sem viðskrh. lýsti og Alþfl.-þm. sagði að viðskrh. hefði stolið öllum frá krataráðh. á neðri hæðinni í Arnarhvoli. — Ljótt er að heyra þetta, að þeir skuli vera að stela þessum blómum hver frá öðrum. Ég hélt að þetta væri rósarunnur sem þeir ættu sameiginlega og gætu reynt að skipta á milli sín, en fara ekki í kapp á Alþ. um að eigna sér það sem þeir teldu gott, en hinir ættu að eiga það sem miður færi.

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstj. segir, að ríkisstj. leggi áherslu á að komið verði á traustu samstarfi við fulltrúa launþega, atvinnurekenda og ríkisvalds, sem miði m.a. að því að treysta kaupmátt launatekna, jafna lífskjör og tryggja vinnufrið. Og síðan segir í kaflanum um samstarf við aðila vinnumarkaðarins, að jafnframt verði mörkuð stefna um hjöðnun verðbólgu í áföngum og ráðstafanir ákveðnar, sem nauðsynlegar séu í því skyni, m.a. endurskoðun á vísitölukerfinu. Hæstv. forsrh. minntist ekki á samstarf við atvinnurekendur í sambandi við þetta frv. Mér er sagt, að það hafi ekkert verið rætt við samtök atvinnurekenda. Og ósköp hefur farið lítið fyrir þessari samstarfsnefnd fullskipaðri, en er þeir hafa haft flokksþingin í Alþb. og í krataflokknum, þá hafa þeir rætt við sína menn. Þetta er það faglega samstarf sem þessi ríkisstj. ætlar að hafa við launþegahreyfingum.

Hvernig dettur ríkisstj. í hug að byggja samstarfsyfirlýsingu sína á samstarfi við aðila vinnumarkaðarins og ganga algerlega fram hjá öðrum aðilanum, samtökum atvinnurekenda? Er hægt að búast við því að hægt sé að ná samvinnu og samkomulagi á þann hátt að ræða aðeins við annan aðilann?

Þetta frv. gerir ráð fyrir því, að ríkisstj. sé heimilað að auka niðurgreiðslu vöruverðs frá því, sem hún er í nóv. 1978, sem svarar 3% af verðbótavísitölu þeirri sem gildir fram að 1. des. n. k. Í fjárlagafrv., sem lagt var fram á fyrstu dögum í þessum mánuði, er niðurgreiðsla á vöruverði áætluð 16.3 milljarðar og áætluð aukning niðurgreiðslna í des. tæpir 3.9 milljarðar, sem samkv. þessu koma til með að hækka um a.m.k. 800 millj. Í aths. við fjárlagafrv. segir: „Áætlað er fyrir auknum niðurgreiðslum í des. n.k. samtals 3873 millj., en skipting þeirra niðurgreiðslna á einstaka vöruflokka er óákveðin.“ — Nú vil ég spyrja: Í dag er 27. nóv. og dagur er að kvöldi. Er ekki búið að gera till. um það, hvernig á að skipta þessum niðurgreiðslum á einstaka vöruflokka landbúnaðarafurða, því að það er komið alveg að því að þessar niðurgreiðslur eigi að liggja fyrir? Að slepptu þessu frv. hlýtur slík till. eða ákvörðun að liggja fyrir samkv. fjárlagafrv.

En það er annað sérkennilegt í fjárlagafrv. Það er gert ráð fyrir sérstakri lækkun niðurgreiðslna á árinu 1979 um hvorki meira né minna en 2800 millj. Nú á að hækka niðurgreiðslurnar 1. des. um 4700 millj. Sennilega er það nær 5000 millj. sem ætti að hækka samkv. því sem liggur fyrir í þessu frv. Og það er talið nauðsynlegt að hækka niðurgreiðslur nú 1. des. Hvernig er þá skýrt þetta fyrirbrigði, að það eigi að lækka niðurgreiðslur á árinu 1979 um 2800 millj.? Sá formaður Verkamannasambandsins þetta ekki í fjárlagafrv. áður en hann skrifaði þakkarbréfið? Á kannske að lækka niðurgreiðslurnar eftir 1. jan. sem nemur 2800 millj. kr.? Þetta kom hæstv. forsrh. ekkert inn á, lét eins og þetta væri ekki til og hann hefði ekki séð það í fjárlagafrv. Má vel vera að hann hafi ekki séð það.

Hv. 4, þm. Reykv. gerði bæði 2. og 3. gr. þessa frv. að umræðuefni og skal ég ekki frekar bæta við það. En mikið er það nú í óvissu, hvað í reynd eigi að gera, þrátt fyrir rósalestur viðskrh. í kvöld. Mikið held ég að margt sé óleyst í sambandi við þessi mál.

Það hefur oft komið fram hjá hæstv. ráðh. í þessari ríkisstj. og einstaka stjórnarþm., að þessi ríkisstj. sé aðhaldsstjórn. Hún ætlar að draga saman í framkvæmdum, hún ætlar að beita sérstöku aðhaldi í rekstri ríkisstofnana og í allri eyðslu í þjóðfélaginu. Þeir hafa keppst um að halda fram þessari stefnu, sérstaklega framsóknarmenn og Alþfl.-menn. Alþb.-menn hafa aftur á móti haft færri orð um þennan þáttinn. En þegar við lítum yfir það, sem gerst hefur frá því að þing kom saman í okt., þá er stuðningslið þessarar stjórnar búið að flytja frv. og þáltill. um útgjöld úr ríkissjóði, ekki upp á nokkur hundruð millj. kr., heldur upp á milljarða. Það er aðhaldið sem á að beita. Og þegar ráðh. í ríkisstj. eru spurðir t.d. á hinni svokölluðu „beinu línu“, þá hefur alltaf verið svarið þegar þegar þeir eru spurðir um hvort ríkisstj. eða viðkomandi ráðh. vilji ekki beita sér fyrir þessari og þessari breytingu, sem einhver hefur áhuga á, — þá er alltaf svarið eins og í gærkvöld og eins og hjá menntmrh. fyrir nokkru: Ja, þetta er nú alveg sjálfsagt. Maður þarf nú að athuga það. Við þurfum nú að athuga þetta. Þetta er í endurskoðun. Það er sem sagt tekið undir hvaða kröfu sem er.

Í gærkvöld reyndi heilbrrh. að veita svolítið viðnám. Það hringdi kona og spurði af hverju tryggingarnar borguðu ekki gleraugu. — Gleraugu, já, sagði hann, það getur nú verið ansi dýrt. En það er borgað fyrir þá sem eru heyrnarskertir, með heyrnartæki og þess háttar. Það finnst mér nú óréttlátt, sagði konan. Þá sagði heilbrrh.: Ja, það fer nú ekki saman. Það er nú dálítið mótsagnakennt. — En hann lofaði auðvitað að athuga að borga gleraugun. — Og það er margt sem þarf að borga. Bretar höfðu einu sinni heilbrrh., vinstri krata, hét hann ekki Bevan? Hann var alger andstæða við utanrrh. Hann kom á svona kerfi. M.a. voru greiddar í breska tryggingakerfinu gervitennur. Flestir sjómenn, sem fóru til Austurlanda, komu tannlausir til baka því að þeir seldu gervitennurnar alltaf þar, og hann neyddist til þess að taka þetta út úr kerfinu. Og það er kominn tími til að beita aðhaldi líka í þessum „sósíal“-verkefnum. Ef við meinum það, að við ætlum að halda í, þá verðum við að hafa þrek til þess að gera það. Og það er ekki hægt að standa frammi fyrir hverjum manni sem segir: Ég vil fá þetta, ég vil fá hitt, og segja: Elskan mín, ég skal athuga þetta, þetta kemur. Þetta er allt í nefnd núna, en það kemur seinna. — Stjórn sem svarar öllum með þessum hætti, verður ekki kölluð aðhaldsstjórn, síður en svo. Hún er kölluð stjórn ráðleysis á öllum sviðum.

Ef við lítum á 4. gr. í þessu frv., þá er hér um að ræða um 27.2 milljarða sem þetta kostar, ef á að verða við kröfum Verkamannasambandsins, en mér skilst að það sé búið að taka við stjórn í þessu landi. Það, sem þeir fá aftur í hækkun vinnulauna, eru liðlega 20 milljarðar. Það er nú engin smáupphæð. Ég er ekki alveg með á því, hve stór þáttur ríkisins er í því, en ekki er hann yfir 5 milljarða. 15 milljarðar koma á atvinnureksturinn. Og er þá ekki rétt að athuga örlítið nánar atvinnureksturinn, hvernig hann stendur, hvað hann getur tekið á sig?

Þá held ég að verði ekki komist hjá því að minnast á álagninguna samkv. brbl. þessarar hæstv. ríkisstj. á s.l. hausti, en þá er lagt á einstaklinga í þjóðfélaginu ofan á skattana, sem lagðir eru á samkv. skattalögunum, um 1536 millj. og á félög í landinu um 2197 millj. Ég minnist þess, að forustumenn Alþb., og þá er ekki undanskilinn 1. þm. Austurl., töldu að skattalögin, sem í gildi hafa verið, væru ranglát og skattar væru allt of háir í þessu landi og ef Alþb. mætti ráða yrði skattalögunum breytt og það yrðu sóttir skattar í þær holur, sem ekki kæmu tekjum sínum til skila þannig að hægt væri að leggja á þær skatta. Það er ekkert sótt í þessar holur. Það er bara lagt til viðbótar á þá, sem höfðu skilmerkilega tíundað tekjur sínar og fengið þessa ofboðslega háu skatta á sig og eru í óðaönn að borga þá. Annar stjórnarflokkurinn, Alþfl., taldi að það ætti alfarið að leggja niður tekjuskatt á allar launatekjur og helst tekjuskatt alveg, og hafa margar ræður verið haldnar á síðasta kjörtímabili í þeim anda af þeim fáu mönnum sem Alþfl. átti þá á þingi.

Ef við tökum stétt eins og bændastéttina, þá greiða samkv. þessum brbl. 70.5% af heildarfjölda bænda eitthvað af sköttum samkv. IV. kafla brbl. frá s.l. hausti. Eignarskattsviðauka samkv. 8. gr. greiða 34.2% bænda. Meðaltalsskattur á greiðanda er 25 765 kr. Sérstakan skatt samkv. 10. gr. greiða 60.4% bænda, meðaltalsskattur á greiðanda er 39 106 kr. Og sérstakan tekjuskatt samkv. 9. gr. greiða 0.67% bænda, meðaltalsskattur á greiðanda er 80 237 kr. Mér hefur skilist, þegar stjórnarandstæðingar og þá sérstaklega Alþb. hafa talið á síðustu 4 árum að bændastéttin væri sú stétt í þjóðfélaginu, sem ekki væri aflögufær, og væri sú stétt, sem væri hvað verst á vegi stödd, þá væri ástæða til að létta skattbyrðinni af þeirri stétt, en ekki þyngja hana. En þeir voru ekki búnir að vera nema 6 daga í ríkisstj. þegar þeir ásamt Framsfl. og hinum ágæta og mikla bændaflokki, Alþfl., leggja þessa skatta á bændur landsins. Á sjöunda degi tóku þeir sér hvíld. Og nú er talað um að breyta stefnunni í landbúnaðarmálum. Það er ekki alveg nýtt. Maður hefur heyrt áður á þetta minnst. Það er sennilega gert með því að greiða niður landbúnaðarafurðir. Það er eins og hvati sérstaklega fyrir þær búgreinar að auka framleiðslu sína er þær verða svona ódýrar almenningi. Ég veit ekki hvernig hún tekst í framkvæmd, þegar fram líða stundir, sú stefna Alþb. að tvöfalda dilkakjötsframleiðsluna, flytja ekkert úr landi, en láta allt fara í gegnum magann á Íslendingum sjálfum. Kannske tekst þetta eins og fleira hjá þessum duglegu mönnum.

Það hefur lítið verið minnst á sjávarútveginn. Rósaræktarmaðurinn sagðist ekki tala um sjávarútveg, því að forsrh. hefði gert það svo ítarlega í framsöguræðu sinni. Forsrh. sagði einar tvær setningar um sjávarútveginn. Og það var að það mundi verða athugað síðar. Það var eitthvað í þá áttina. Og nú kem ég að spurningu formanns Verkamannasambandsins. Hvernig var farið að því að koma útgerðinni í Vestmannaeyjum af stað? Og Suðurnesjamenn, mega þeir ekki fylgja með fyrir Karl Steinar a.m.k., félaga þeirra? (GJG: Jú.) Hvað gerði ríkisstj. í því? Fyrrv. ríkisstj. hækkaði viðmiðunarverð Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins. Eftir að formaður Verkamannasambandsins hafði með góðri aðstoð nokkurra herskárra vina sinna stöðvað útflutning á afurðum landsmanna og beitt bæði löglegum og ólöglegum aðferðum til þess að torvelda framleiðslu Íslendinga snemma á s.l. vori, þá hélt auðvitað verðbólgan áfram að vaxa, svo sem var tilgangur þeirra manna, enda fitnuðu þeir mjög vel á þeim tíma eins og ónefnd persóna á fjósbitanum. Framleiðslan hélt áfram sinn vanagang þrátt fyrir það, og veitt voru hagræðingarlán sem fóru sérstaklega á Reykjanes og á Suðvesturland. Og ég get komið inn á það ef menn vilja. Það var úthlutað á annan milljarð í hagræðingarlán, fyrst af gengisbreytingunni í febr., að mig minnir 353 millj. kr., og svo siðar, þegar var gengið endanlega frá því, 11. eða 12. sept., en búið var að ganga frá úthlutun í gegnum Fiskveiðasjóð. Þessir aðilar vissu hvað þeir mundu fá, og það var fjármagn sem lyfti undir að þessi framleiðsla gat haldið áfram með eðlilegum hætti. Aðgerðir, sem núv. ríkisstj. hefur staðið að í þessum efnum, eru þær, að gengi krónunnar var lækkað og þar með fengu fiskvinnslufyrirtækin, bæði þar og annars staðar, meira fyrir sínar útfluttu afurðir, og svo hitt, að birgðirnar, sem voru í landinu, sem eru sennilega eitthvað að þakka Guðmundi J. Guðmundssyni, ef hv. þm. kannast eitthvað við þann mann, voru miklar og stóðu alveg undir hækkun viðmiðunarverðs Verðjöfnunarsjóðs sjávarútvegsins, sem stóðu alveg undir þessari ábyrgð allt fram að gengisbreytingu. Núv. ríkisstj. átti þar engan hluta að máli. Þetta voru birgðir sem sjávarútvegurinn sjálfur átti, og þegar gengishagnaðurinn af þeim birgðum kom, þá varð hann til þess að standa undir því sem samkv. ákvæðum um ráðstöfun gengishagnaðar fer til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins. Hann stóð því við allar sínar skuldbindingar, enda var engin hætta fólgin í því að taka á sig slíka ábyrgð í allt sumar, á meðan Alþfl. og Alþb. voru í pókerspilinu um myndun ríkisstj. Þetta var sama og gullforði fyrir þessum ákvörðunum, enda stóð ekkert á því, að fyrrv. ríkisstj. gerði þetta, og hún gerði það shlj. Þetta er það sem kom útgerðinni í Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum af stað þrátt fyrir góðan vilja formanns Verkamannasambandsins til að stöðva hana.

Við skulum svo líta aðeins á hvernig hagur sjávarútvegsins er. Hefur hann batnað við gengisbreytinguna hvað snertir fiskveiðarnar? Það varð 5% fiskverðshækkun eftir að núv. ríkisstj. tók við, en 17% gengislækkun. Olían hækkaði um rúmlega 10% rétt á eftir. Allur innflutningur hækkar að sama skapi, og fiskiskipaflotinn stendur mun verr að vígi eftir gengisbreytinguna en áður. Og ef við förum eftir því sem sjálf Þjóðhagsstofnunin segir, þá er rekstraráætlun fiskveiða, annarra en loðnuskipa, miðað við verðlag í sept. 1978: Bátar á loðnu bera halla upp á 4 milljarða 218 millj. kr., en endurmetnar afskriftir eru 3913 millj. Það er sem sagt meiri halli en afskriftirnar, eða á fjórða hundrað millj. kr., af bátum á loðnu. En þetta er auðvitað lakasta útkoman í fiskveiðiflotanum. Minni skuttogararnir eru með 209 millj. kr. halla, en þar eru endurmetnar afskriftir tæplega 2600 millj. Stærri skuttogararnir eru með 869 millj. kr. halla, og endurmetnar afskriftir eru enn þá minna eða aðeins 701 millj. Bátar á loðnu eru samkv. þessu yfirliti Þjóðhagsstofnunar með 14.8% halla, minni skuttogararnir með 4% halla og stærri togararnir með 11.2% halla. Samt stóð ekkert á ríkisstj. að bæta sköttum bæði á fiskiskip og fiskvinnslustöðvar, og m.a.s. eru fiskvinnslustöðvar í Vestmannaeyjum og á Reykjanesi ekki undanskildar.

Við skulum líta aðeins á vondu ríkisstj., sem var á undan, sem var alltaf að níðast á verkamönnum og sjómönnum. Frá verði í júní til ágúst 1974 til verðs, sem ákveðið var 1. júní á þessu ári og gilti til 30. sept., var meðalhækkun 287.6%. Þorskurinn hækkaði aðeins minna, eða um 281.2%, og karfi um 328.1%, en mestu máli skiptir meðaltalshækkunin, sem er 287.6%. Kauptaxtar verkamanna á sama tíma hækkuðu um 261.6% og kauptaxtar allra launþega í landinu um 252.2%. Ef við vísum aftur til Þjóðhagsstofnunar, þá er í yfirliti, sem birt er í árlegri úttekt og athugun Hagstofu og Þjóðhagsstofnunar á skattframtölum kvæntra launþega á öllu landinu og tekur einungis til greiddra launa sem og launatengdra hlunninda, en undanskilur allar aðrar tekjur, birtar tekjur sjómanna í hlutfalli við tekjur verkamanna og iðnaðarmanna, hlutfallstölur. Ég tek t.d. töluna 1972 um sjómenn og verkamenn, hún er 117. 1977 er bráðabirgðatala 142. Áætlun í júní, miðað við óbreytt aflamagn, er 129. En áætlun í sept. að óbreyttu aflamagni er 123. Ef við tökum hlutfallstöluna sjómenn, iðnaðarmenn á sama tíma, þá er hún 101, 120 og svo í sept., miðað við óbreytt aflamagn, 112. Þetta er útkoman sem liggur fyrir í sambandi við fiskverð og tekjur sjómanna. Ég vona að hæstv. ríkisstj. hafi hana í huga þegar hún ætlar að fara að kynna sér málefni sjómanna og sjávarútvegs, sem mér skilst að eigi að verða einhvern tíma á næstunni.

Ef við fjöllum aðeins meira um sjávarútveg, þá hefur hæstv. sjútvrh. haldið því fram, að það komi mjög til álita að beita miklu strangari aðgerðum í sambandi við veiðar, jafnvel setja aflakvóta á hvert skip. Hann hefur líka látið það frá sér fara, að það sé full ástæða til þess að stækka ekki fiskiskipaflotann, því að það sé hægt að nýta miðin með minni flota. Þetta er nokkuð annað en ég hélt fram þann tíma sem ég var sjútvrh. Þá hélt ég því fram mjög ákveðið, að fiskiskipaflotinn væri ekki of stór, en hins vegar þyrfti að gera enn frekari ráðstafanir og það kostaði töluvert átak til þess að breyta sókninni á þann veg að það væri sótt í fleiri fiskstofna og með nokkuð öðrum hætti en gert er, þó að breytingar hafi orðið í þá átt á liðnum árum. Fyrrv. ríkisstj. setti mjög strangar reglur í sambandi við innflutning skipa, en hins vegar taldi hún nauðsynlegt að halda áfram skipasmíðum innanlands til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi í þessari iðngrein, sem mundi kosta offjár fyrir samfélagið. Nú er mér sagt, að þrátt fyrir að sjútvrh. telji að það þurfi að minnka fiskiskipaflotann, þá hafi á þessum skamma tíma þegar verið leigð tvö togskip og annað sé komið til landsins eins og af himnum sent. Það tók ekki langan tíma. Ekkert slíkt erindi lá fyrir hjá fyrrv. ríkisstj., hinsvegar lágu fyrir margar beiðnir viðast hvar af landinu sem var neitað. Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. forsrh.: Er það ætlun núv. hæstv. ríkisstj. að breyta hér aftur um og samhliða því sem sjútvrh. stjórnarinnar lýsir yfir að flotinn sé of stór og þurfi að minnka hann sé bætt við nýjum skipum? Og á þetta að halda áfram? Ég held að það verði ekki til þess að bæta afkomu sjávarútvegsins í heild, ef taka á upp þessa stefnu.

Ef ég aðeins minnist á iðnaðinn, þá átti iðnaðurinn sterka talsmenn í fyrrv. stjórnarandstöðu, sem töldu að illa væri búið að honum í tíð fyrrv. ríkisstj. og þar væri ekki á bætandi og gera þyrfti stórátak fyrir iðnaðinn á flestum sviðum. Iðnaðurinn ber sig að öllu leyti illa. Margar greinar iðnaðar telja að afturvirkni skatta á s.l. hausti hafi ekki orðið til þess að bæta stöðu iðnaðarins, þó einhverjir stjórnarliðar telji það kannske vera sérstaklega til inntekta fyrir þessa atvinnugrein að fá skatta upp á nokkur hundruð milljóna.

Ég held að ekki verði heldur komist hjá því að minnast örlítið á verslunina. Nú er tilkynnt og látið í veðri vaka að það eigi að draga úr fjárfestingum í verslun og ýmsum öðrum þjónustugreinum og það eigi sannarlega að herða þar ólina. Nú er verslunin bæði í höndum kaupmanna, einkafyrirtækja og samvinnufélaga. Stjórn Sambands ísl. samvinnufélaga samþykkti ályktun nýlega, þar sem hún vekur athygli yfirvalda á þeim gífurlegu rekstrarerfiðleikum sem verslunin á nú við að búa. Í þessari ályktun stjórnarinnar segir að við fimm gengisfellingar síðan í des. 1972 hafi verslunin orðið fyrir mjög verulegri eignaupptöku sem engin fordæmi séu fyrir annars staðar í þjóðlífinu. Vörubirgðir hafi ekki fengist metnar til endurkaupsverðs og því rýrnað til samræmis við verðminni krónur. Fljótandi gengisskráning hafi einnig rýrt afkomumöguleika atvinnuvegarins, en til viðbótar hafi hinni svokölluðu 30% reglu verið beitt fimm sinnum í kjölfar umræddra gengisbreytinga og það magnað erfiðleika verslunarinnar. Þrívegis hafa leiðréttingar fengist á 30% reglunni, en ávallt mörgum mánuðum síðar. T.d. voru gengisfellingarnar í sept. 1974 og febr. 1975 ekki bættar fyrr en í apríl 1975 og nóv. 1977.

Í nýútkomnu fréttabréfi Sambands ísl. samvinnufélaga, sem heitir Sambandsfréttir, er viðtal við kaupfélagsstjóra Kaupfélags Borgfirðinga, Ólaf Sverrisson. Hann segir að hjá Kaupfélagi Borgfirðinga hafi orðið ákaflega óheppileg þróun í smásöluversluninni, að vísu hafi orðið veruleg söluaukning, sem fyrstu þrjá ársfjórðunga þessa árs næmi 51%, en á hinn bóginn hefði vinnulaunakostnaður hækkað um 67% og færi þó fjarri að verslunarmenn væru of sælir með kjör sín. Og hann segir að á síðasta ári hafi rekstur félagsins skilað 11 millj. kr. tekjuafgangi, en í ár væri spurningin greinilega ekki um það, hvort tækist að ná endunum saman, heldur einungis um hitt, hvað tapið hjá félaginu yrði mikið.

Förum nú frá Borgarnesi til Sauðárkróks og heyrum hvað kaupfélagsstjórinn í Kaupfélagi Skagfirðinga segir. Í smásöluversluninni hjá félaginu telur hann að brúttótekjurnar nægi ekki nema til þess að borga vinnulaunin, og væru þá eftir allir aðrir kostnaðarliðir, svo sem ljós, hiti, húsnæðiskostnaður, fyrningar, vextir og opinber gjöld.

Ef við förum austur í kjördæmi Lúðvíks Jósepssonar, sem Vilmundur kallar guðföður þessarar ríkisstj., þá segir kaupfélagsstjórinn á Egilsstöðum, að í þeim verslunum félagsins, þar sem eingöngu væru seldar dagvörur, næðu brúttótekjurnar rétt því að duga fyrir launakostnaði og væru þá eftir allir aðrir kostnaðarliðir.

Og ekki má gleyma Suðurlandi. Kaupfélagsstjórinn á Hvolsvelli segir að reikna megi með verulegum rekstrarhalla á þessu ári og ef ekki fengjust fram umbætur í málefnum smásöluverslunarinnar væri ekki annað fram undan hjá félaginu en að loka einhverjum verslunargreinum og minnka þannig þjónustuna við viðskiptamenn. Stóran þátt í þessu ætti það, að álagningin hefði verið lækkuð tvisvar á árinu, eftir gengisfellingarnar í febr. og sept. og nú horfðu menn með kvíða fram á hugmyndir um enn frekari hækkun vaxta, sem ekki væri neinn grundvöllur fyrir atvinnurekstur að bera að óbreyttu ástandi.

M.ö.o.: ef við lítum á verslunina, þá voru á s.l. hausti lagðir á hana skattar til viðbótar við þá skatta sem lagðir voru á fyrr á árinu og allir máttu við búa, og þeir nema töluvert hátt í 900 millj., eða um 877 millj. á verslunina og skyldar greinar til viðbótar öllum öðrum sköttum. Nú er ég ekki að kalla hér fram til vitnis kaupmenn, sem flestir aðdáendur þessarar ríkisstj. hafa sennilega lítið dálæti á, heldur tek ég til vitnis samvinnuhreyfinguna, sem þeir vilja allir styðja af heilum hug, og þegar hún ber sig svo illa, þá hlýtur að vera eitthvað svipað með aðra verslun í landinu. Og ef á að halda svo áfram eins og nú er boðað beint og óbeint, að það eigi að skattleggja atvinnureksturinn áfram enn meira en verið hefur, þá held ég að Ólafur Jóhannesson og Framsfl. ætli að ganga af kaupfélögunum dauðum með aðstoð kommúnista og krata, því að ekki geta þeir það einir.

Það er sitt hvað að tala um nauðsyn þess að gera þetta og hitt fyrir almenning í landinu og vera á sífelldu uppboði að bjóða fram það sem menn hafa ekki ráð á því að bjóða eins og ástandið er í þjóðfélaginu. Og ólíkt væri nú ástandið skárra ef Verkamannasambandið hefði ekki brotið niður þau lög sem sett voru til þess að hamla gegn verðbólgu. Þá þyrftu forsvarsmenn þess og annarra launþega úr hópi kommúnista og krata ekki nú að standa að miklu meiri kjaraskerðingu fyrir umbjóðendur sína, eins og þeir verða nú að gera. En hún tekur út yfir allt, hreysti formanns Verkamannasambandsins, að skrifa sérstakt bréf til þess að lýsa fögnuði sínum yfir því, að það væri verið að rýra kaupmátt launa umbjóðenda sinna og ráðast að verkamönnum í landinu og öðrum launþegum. Og ég hef sjaldan lifað áhrifaríkari stund hér í sölum Alþ. en þegar hæstv. forsrh. las upp þetta bréf innilega hrærður og leit til vinar síns, Guðmundar J. Guðmundssonar — þeir eru alveg nýlega orðnir vinir — og ég sá að það munaði engu að báðir færu að vatna músum. En sá, sem ekki var í ræðustólnum, bjargaði sér á því að grípa til dósanna. (Gripið fram í: Það er hátíðleg stund.)

Það verður ekki komist hjá því að minnast nokkuð á síðustu greinina í þessu frv., en það eru bætur almannatrygginga. Bætur almannatrygginga eiga að hækka um það sama sem kaupgjald almennt á að hækka um, rúmlega 6%, en bætur til þeirra, sem tekjutryggingar njóta, eiga að hækka nokkru meira eða um 9%. Ef við lítum á það sem kaupið í raun og veru ætti að hækka um, eða rúmlega 14%, ef við lítum á rósagarð Svavars Gestssonar og berum svo saman hvað gamla fólkið, 67 ára og eldra, nýtur mikillar hlutdeildar í þessari rósarækt, þá nýtur það ekki neitt nálægt því þess sama og þeir sem eru vinnufærir og eru á vinnumarkaðnum. Ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá því minna út úr því en þeir eiga að fá, það þori ég að fullyrða, þótt það liggi ekki glöggt fyrir enn þá. En þegar það liggur fyrir, þá sjáum við fram á að hér er um meira bil að ræða. Og þó að það sé gengið það langt, að uppbætur til tekjutryggingarhafa verði 9%, þá ná þeir ekki því sem þeir þyrftu að ná miðað við þær aðgerðir sem verið er að lofa og þessir aðilar koma ekki til með að njóta.

Hæstv. forsrh. sagði að það væri betra að taka stutt skref en stökkva í einu stökki. Hann var þá að skýra það, að sennilega væri betra að hafa smáskammtalækningar eins og núv. ríkisstj. tók upp í sept. og ætlar að halda áfram. Það verður gaman að sjá hann fara yfir verðbólgufljótið í sínum stuttu skrefum. Kannske hann trúi því, að hann geti gengið á vatninu.

Þessi ríkisstj. hefur haft þrjá mánuði plús það sem fór í viðræðurnar í sumar til þess að mynda einhverja heildarstefnu. Og það er ekki að ástæðulausu sem elsti þm. Alþfl. er þegar orðinn uppgefinn. Fleiri eru það líka, en þora þó ekki annað en hlýða foringjanum, sem vill halda áfram að taka stuttu skrefin með forsrh. í verðbólguvandanum.

En það er eitt sem ekki hefur verið komið inn á hér. Þegar gengið verður svona nærri atvinnulífinu í landinu, öllum helstu greinum atvinnulífsins, og á að skattleggja það með þessum hætti, eins og nú er haft í huga, þá hlýtur það að ske, að atvinnufyrirtækin fari að dragast saman, fari að segja upp starfsfólki. Það verður samdráttur í atvinnulífinu og það verður atvinnuleysi innan ekki langs tíma. Þá sendir sennilega formaður Verkamannasambandsins eitthvert annað bréf en þakkarbréf. Þegar atvinnuleysi er komið verða kratar sem eru í Verkamannasambandinu reiðir. Það hefði því verið hyggilegra að láta faglega afstöðu ráða gerðum sínum og umhyggju fyrir þeim mönnum sem eru innan þessara samtaka, taka á sig fórnir í upphafi og sigrast á þessum vágesti, verðbólgunni, en láta ekki pólitíkina vaða með sig í gönur og fara aðeins eftir því sem kommarnir segja á hverjum tíma, ekki því sem er verkamönnum og öðrum launþegum í landinu fyrir bestu. Það er þetta sem hefði verið affarasælla fyrir forustumenn launþega í landinu, sem tilheyra Alþb. og sumir hverjir tilheyra krötum, að gera í upphafi. Þá væri vandinn kannske minni í ár. Það er engin ástæða til þess, þó að það sitji ríkisstj., sem þessir menn styðja ekki eða við aðrir, að ráðast þannig að málum að spilla fyrir því sem á að geta gengið og á að geta farið vel og er þjóðinni fyrir bestu.

Stjórnmálaflokkar geta barist í kosningum. Þar eru ýmsir ofan á á hverjum tíma, og þó menn verði undir um tíma verða þeir að taka því og bíða eftir betra tækifæri í kosningum, en ekki beita ólöglegum aðgerðum. Þó að ég sé óánægður og telji siðleysi í afturvirkni skatta, þá ætla ég að reyna að borga þá skilmerkilega og alls ekki standa í neinum málaferlum þess vegna. Það er lögleg stjórn í þessu landi, þó hún sé ómöguleg. Maður vonar þó auðvitað að þetta taki af. En þó að ég vilji gjarnan að ríkisstj. sýni betur að hún geti ekki neitt, þá þýðir ekki að beita ólöglegum aðferðum eins og sumir verkalýðsforingjar gerðu snemma á þessu ári. Þeir mega skammast sín mikið fyrir það og eiga eftir að fá heldur betur á baukinn fyrir það þótt síðar verði.