27.11.1978
Neðri deild: 20. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1047 í B-deild Alþingistíðinda. (712)

106. mál, ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Það er ekki nema sjálfsagt að verða við tilmælum hæstv. forsrh. um að halda ekki uppi löngu málþófi af svo litlu tilefni sem framlagt frv. hæstv. ráðh. óneitanlega er.

Vandinn í íslenskum efnahagsmálum er stór, og það er sjálfum flm. vafalaust ljóst, en þetta frv. er ekki þannig vaxið að það sé líklegt til þess að veita neitt annað en stuttan gálgafrest. Hitt er annað mál, að það er sérstök ástæða til þess að samfagna ríkisstj. með þann árangur sem náðst hefur í viðræðum við suma aðila vinnumarkaðarins, að þeir hafa fengist til þess út á loforð hæstv. ríkisstj. um efndir síðar af afsala sér nú þegar mjög verulegum hluta af samningsbundnu kaupi í krónutölu. Þetta staðfestir, svo að ekki verður um villst, að áhrifamikil öfl innan verkalýðshreyfingarinnar hafa að fenginni reynslu sannfærst um það, að við ríkjandi aðstæður í íslenskum efnahagsmálum er ekki íslenskum launþegum í hag að halda áfram óbreyttu sjálfvirku verðbólgukerfi. Samningsbundin kauphækkun í krónutölu er ekki líkleg til þess við ríkjandi aðstæður að koma íslenskum launþegum til góða, þegar kemur að því að rekja samhengi þeirra hluta áfram. M.ö.o.: það er engin trygging fyrir varðveislu kaupmáttar.

Það verður að segja eins og er, að þessi afstaða verkalýðshreyfingarinnar er, svo langt sem hún nær, ábyrg og hróss verð. Hún felur það í sér, að forsvarsmönnum launþega er ljóst að í hagkerfi, sem búið er að búa jafnlengi við of spenntan og þaninn verðbólguboga, 40–50% verðbólgu, við slíkar kringumstæður má ekkert út af bera í ytri skilyrðum til þess að það atvinnuöryggi, sem er fyrsta frumforsenda varðveislu kaupmáttar og varðveislu lífskjara, og fyrsta mál, sem ábyrgir verkalýðsleiðtogar hljóta að láta sig varða, sé ekki í hættu.

Það þarf ekkert að fara í grafgötur um það, að við þetta ástand er hagur atvinnuvega á Íslandi bágur. Það liggja allar upplýsingar fyrir um það, allt frá því að hæstv. núv. ríkisstj. settist á valdastóla með það sem sitt fyrsta verkefni að gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir rekstrarstöðvun atvinnuvega. Þeir atvinnuvegir okkar Íslendinga, sem eru samkeppnisatvinnuvegir og byggja á útflutningi, þola ekki það þjóðfélagsástand, sem við búum við í dag, án þess að lenda raunverulega í alvarlegu rekstrar- og greiðsluþroti á fárra mánaða fresti. Það er ekki heldur hægt til lengdar að gera ráð fyrir því, að hægt sé með einhverjum skammtímamillifærslum af hálfu ríkisstj. að fleyta þeim áfram. Í þessum skilningi er hér um að ræða gálgafrest. Þolinmæði þessarar þjóðar er líka algerlega á þrotum gagnvart þeim stjórnmálamönnum, sem hafa ekki til þess — ég segi: kjark, þrátt fyrir ummæli hæstv. forsrh. áðan, að grípa til þeirra aðgerða sem nánast allir án tillits til stjórnmálaskoðana, án tillits til hagsmunaandstæðna eru samdóma um að eru óhjákvæmilegar.

Það er naumast hægt að nefna þann þátt atvinnurekstrar, að hægt sé að segja að hann búi við þau skilyrði að hann sé aflögufær eins og nú er ástatt. Það er að sjálfsögðu ágreiningslaust um okkar undirstöðuatvinnuveg, sjávarútveg og fiskvinnslu. Það er að sjálfsögðu ágreiningslaust um þann vísi að samkeppnisiðnaði, sem til er í landinu. Það er ágreiningslaust um þann hluta íslensks iðnaðar, sem býr við einhverja samkeppni frá þeim þjóðum, sem þróaðri eru og búa við betri hagstjórn en við. Það er ágreiningslaust að því er varðar t.d. smásöluverslun úti um allt land. Þá fer að sneiðast um gróðalindir sem við ættum að geta nefnt og ættu nú að bera uppi þær stórkostlegu fjármunatilfærslur í þjóðfélaginu sem eiga að duga til þess að fleyta undirstöðuatvinnuvegunum. Ætli það séu einhverjar tuskubúðir hér á Laugaveginum eða einhver sá þjónustuiðnaður, sem býr við það í skjóli götóttrar skattalöggjafar, sem stjórnmálamenn hafa ekki fengist til þess að taka föstum tökum enn, að búa við verulega og augsýnilega glæsilega einkaneyslu, — ekki vegna góðrar afkomu fyrirtækja, heldur vegna þess að þeir hafa vanist því á löngum tíma að geta fært sína einkaneyslu, sín bílakaup, sínar villubyggingar, sínar utanlandsferðir á tiltölulega lítt arðbær og jafnvel ekkert allt of snilldarlega vel rekin fyrirtæki?

En þessir hlutir eru m.a.s. þess eðlis, að það er ekki á dagskrá hér eða nú að ræða með hvaða hætti ætti að ná til þeirra einstöku aðila í þjóðfélaginu til þess að ná af þeim upp í hinar stóru millifærslur, þ.e.a.s. þeirra aðila sem fyrst og fremst hafa kannske getað komið ár sinni vel fyrir borð í þessu tiltölulega spillta aðstöðuþjóðfélagi með því að koma sér upp hagkvæmum samböndum að því er varðar pólitískar styrkveitingar sem hér á þessu landi ganga undir nafninu lán, en eru náttúrlega í eðli sínu, eins og öllum má ljóst vera, í raun og veru óafturkræfir styrkir.

Þess vegna ítreka ég það, að óþarfi er að eyða út af fyrir sig tíma hv. Alþ. til þess að fara mörgum orðum um það frv. sem hér liggur fyrir, því að það snertir í raun og veru svo sáralítið þann vanda sem við er að fást. Það er miklu fremur að hér gefist tilefni til ítarlegrar umr. um allt það sem ekki er að finna í þessu frv., en er aftur á móti að finna meira eða minna almennt orðað í grg. með þessu frv. En einmitt þá staðreynd, hina almennu mótun efnahagsstefnu, sem tengd er þessu frv., er ekki að finna í því. Hana er að finna sem óskalista eða loforðalista í grg. Þetta þýðir það, og þá staðreynd hljótum við að játa, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki getað notað þann tíma, sem henni hefur gefist frá því að hún settist á valdastóla í byrjun sept., til þess að koma frá sér þeirri samræmdu efnahagsstefnu sem þjóðin er að bíða eftir. Hinn almenni loforðalisti þýðir líka að sjálfsögðu, að jafnvel þessi sanngjarna og ábyrga afstaða verkalýðshreyfingarinnar að rétta nú ríkisstj. lið og afsala sér gegn aðeins meira eða minna óljósum loforðum kauphækkun í krónutölu, — hún afsalar sér þessu þrátt fyrir þá staðreynd; að ef farið er niður í saumana á þeim loforðum, þá verður náttúrlega að játa það, að engan veginn liggur ljóst fyrir við óbreyttar aðstæður, hvernig að efndum verður staðið. Það liggur ljóst fyrir, að að svo miklu leyti sem um er að ræða verulega auknar niðurgreiðslur og að svo miklu leyti sem um er að ræða verulega aukin ríkisútgjöld, sem hljóta að birtast í fjárl. vegna félagslegra umbóta, sem heitið er, og í þriðja lagi að svo miklu leyti sem lofað er skattalækkunum, sem hljóta um leið að skerða tekjur ríkissjóðs, þá erum við hér að leggja fram frv., sem raunverulega ræðst ekki um efndir á fyrr en Alþ. fjallar um fjárlög og lánsfjáráætlun og því næst einstök önnur frv., sem hljóta að fylgja og snerta hin veigamestu mál, t.d. framkvæmd breyttrar stefnu í landbúnaðarmálum.

Út af fyrir sig er margt athyglisvert í þessari almennu grg. Það má segja sem svo, að þeir þættir hennar, sem geta talist lýsing á nauðsynlegum aðhaldsaðgerðum, sem stjórnvöld vilja beita sér fyrir gegn verðbólgu, séu sóttir í stefnuskrá Alþfl. í efnahagsmálum. En engu að síður er niðurstaðan sú, að þetta er raunverulega önnur tilraun hæstv. ríkisstj. til þess að orða þá stefnu almennum orðum. Þetta er í raun og veru að mörgu leyti nýr stjórnarsáttmáli til þriggja mánaða, þ.e.a.s. fram að 1. mars n.k.

Hæstv. fyrrv. forsrh., Geir Hallgrímsson, flutti hér mjög ítarlega ræðu áðan og ræddi einstök efnisatriði af mikilli nákvæmni. Hæstv. fyrrv. sjútvrh. var líka ákaflega kokhraustur hér áðan. Hann gerði mikið grín að þessari ráðalausu ríkisstj. Matthías var, eins og Vestfirðingi sómdi, miklum mun skemmtilegri. En ég verð um leið að taka það fram, að hæstv. fyrrv. forsrh. var miklum mun málefnalegri. Hann vék mjög að því, að viðleitni fyrrv. ríkisstj. til þess að ná tökum á verðbólguvandanum hefði í raun og veru strandað á skemmdarverkum verkalýðshreyfingarinnar, og báðir vildu þeir núa fyrrv. stjórnarandstæðingum mjög um nasir að þeir hefðu farið með skrum og blekkingar fyrir kosningar, svo sem hið fræga slagorð um samningana í gildi. Nú er náttúrlega rétt að þeir svari því sem fyrir kosningar fóru með slíkt skrum. Ég mun ekki gera það fyrir þá.

Ég ætla aðeins að rifja það upp fyrir hæstv. fyrrv. sjútvrh., Matthíasi Bjarnasyni, að á kosningafundum fjölmörgum talsins fyrir síðustu kosningar vestur á Fjörðum minnist ég þess ekki að málsvarar Alþfl. hafi farið með loforð eða heitstrengingar um að í því ástandi, sem við blasti að loknum ríkisstjórnarferli hans og samráðh. hans, væri mikið tilefni til skyndilegra kjarabóta eða á nokkurn máta tilefni til þess að gefa slík loforð. Þvert á móti, málflutningur okkar var sá, að úr því sem komið væri yrði sýnilega að grípa til slíkra ráðstafana að komið yrði við kaunin á því sem næst öllum þegnum þessa þjóðfélags. Í mínu minni er það svo, að það hafi fremur vafist fyrir hæstv. fyrrv. sjútvrh. að útskýra hvernig á því stóð, að fráfarandi ríkisstj. mistókst jafnhrapallega og raun bar vitni í glímu sinni við verðbólgudrauginn.

Nú er á það að minna, að á s.l. vetri var að frumkvæði gerði var nákvæmlega það sama og hér liggur fyrir. Það var sett löggjöf sem tók til þessa eina þáttar af öllum þeim sem við er að fást, verðlags- og launamála, og lögbatt þann þátt einan.

Nú er á það að minna, að á s.l. vetri var að frumkvæði fráfarandi ríkisstj. mynduð sérstök verðbólgunefnd. Þar voru kvaddir saman hæfustu sérfræðingar þjóðarinnar til þess að fjalla um þetta vandamál og fulltrúar allra stjórnmálaflokka, og þessi n. sat lengi á rökstólum. Um það er ekki ágreiningur, að samantekt þessarar nefndar, sem er hvað best unnin, samantekt af þessu tagi sem unnin hefur verið um íslensk efnahagsmál og þá úlfakreppu sem við erum í, — það fer ekki milli mála, að niðurstöður þessara sérfræðinga voru þær, að þær voru í raun og veru áfellisdómur yfir efnahagsstefnu fyrrv. ríkisstj. Það er fljótlegt að gera grein fyrir þessu, vegna þess að að sjálfsögðu dettur engum manni í hug að orsaka þeirrar óðaverðbólgu, sem geisar á Íslandi, sé eingöngu að teita til þess eina þáttar sem heitir launamál. Samkv. niðurstöðum þessara sérfræðinga er því haldið fram, að ríkisstj. sjálf hafi látið undir höfuð leggjast að beita þeim aðgerðum sem mönnum, að bestu manna yfirsýn, bar saman um þyrfti að gera að því er varðar stjórn ríkisfjármála, að því er varðar stefnumótun í peninga- og lánsfjármálum, að því er varðar fjárfestingarmál, að því er varðar skattamál, svo aðeins nokkuð sé nefnt. Það kann að vera nokkurt matsatriði, enda er erfitt að meta hver þessara þátta kunni að hafa mest áhrif á það verðbólgustig sem ríkjandi var á tímabili fráfarandi ríkisstj. En það er ekki nokkur vafi á því, að launamálin ein saman koma þar ekki til skýringar nema að sínum hluta.

Það er staðreynd, að fráfarandi ríkisstj. varð að sætta sig við þá niðurstöðu, að henni mistókst gjörsamlega og hrapallega á fjögurra ára ferli sínum að ná þeim markmiðum sem hún þó setti sér í upphafi og lýsti yfir að væru megintakmarkið með stjórnarsamstarfinu. Nú þýðir ekki fyrir sjálfstæðismenn út af fyrir sig að ætla að skýra þessi mistök með því að vísa til þess, að Framsfl. hafi verið mjög ráðríkur í þessu stjórnarsamstarfi. Það er ekki kunnugt að þeir hafi haft tilburði til þess að láta á það reyna. Nú vilja þessir herramenn t.d. mjög halda því fram, að Alþfl.-menn séu undir þá sök seldir að hafa látið undan síga í þessu stjórnarsamstarfi. Þeim er álasað fyrir það kjarkleysi að hafa ekki komið fram þeim stefnumálum sem þeir hins vegar viðurkenna að séu rétt. Ég minnist þess ekki að sjálfstæðismenn hafi í fyrrverandi stjórnarsamstarfi látið á það reyna að koma fram þeim stefnumálum sem þeir viðurkenna í orði kveðnu að eru rétt. Ég minnist þess ekki, að nokkurn tíma hafi komið til slíkra átaka.

Stefna fyrrv. ríkisstj. var röng þegar kemur að ríkisfjármálaþættinum í heild. Þrátt fyrir umskipti til hins betra á seinni hluta stjórnartímabilsins var ríkissjóður rekinn með umtalsverðum halla. Ríkisframkvæmdir og ríkiseyðsla voru fjármögnuð bæði með því að safna og hlaða upp skuldum við Seðlabankann, með því að efna til óhóflegrar útgáfu ríkisskuldabréfa, með því að afnema þær hömlur sem áður höfðu gilt við erlendar lántökur. Í annan stað er alveg ljóst, að fráfarandi ríkisstj. beitti ekki þeim aðhaldsaðgerðum sem sérfræðingar, sem um þetta fjölluðu í verðbólgunefnd, töldu fyrir löngu nauðsynlegar að því er varðaði stjórn peningamála. Hún treysti sér ekki til þess að gripa til raunhæfrar vaxtapólitíkur. Hún treysti sér ekki til þess að afnema það sérkennilega kerfi sem við höfum á bindiskyldu innistæðufjár í Seðlabanka, sem síðan er notað með lágvöxtum til að fjármagna afurðalán atvinnuvega. Henni brást illilega bogalistin að því er varðaði að setja raunverulega og fylgja fram útlánaþaki á lánum viðskiptabanka. Fjárfestingarstefna hennar var því miður öll í molum. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að verðbólgumögnunin sjálf, sem við var að glíma, átti að miklu leyti rót sína að rekja til stefnu stjórnvalda. Og því miður er það svo enn.

Það er komið undir pólitísku mati, hversu hyggilegar aðgerðir fyrrv. ríkisstj. voru að því er varðaði samskipti hennar við aðila vinnumarkaðarins og einhliða lagasetningu sem greip inn í gerða kjarasamninga. Ég er þeirrar skoðunar, að ef fyrrv. ríkisstj. hefði getað fært að því sannfærandi rök, að hún hefði sjálf gert skyldu sína að því er varðaði það sem hún hafði beinlínis á valdi sínu, þ.e.a.s. ef hún hefði sjálf séð til þess, að fjármálastjórn ríkisins væri rekin eins og vera bar og í samræmi við þau yfirlýstu markmið að ná niður verðbólgu, ef fyrrv. ríkisstj. hafði farið eins að í peningamálum, í fjárfestingarmálum og skattamálum, þá hefði hún þar með skapað forsendur fyrir því, að verkalýðshreyfingin hefði tekið betur afskiptum hennar af þeim þætti sem allar ríkisstj. grípa til út úr neyð, ef þeim hefur sjálfum brugðist bogalistin að því er varðar almenna mótun efnahagsmála á öðrum sviðum.

Ég ber ekki blak af þeim mönnum sem segja eitt í stjórnarandstöðu og annað í stjórn. Ég er ekki hér sem málsvari þeirra manna sem héldu því fram, að það væru skilyrði til þess, þegar gengið var til kosninga vorið 1978, að með því einu að skipta um stjórn og menn í stjórnarstólum væri aðhægt að fylgja fram þeirri stefnu að samræma stórhækkun, gífurlega prósentuhækkun kaups í krónutölu og raunverulega aðför að verðbólguvandanum. Það verða aðrir menn að gera en ég. En ég held því fram, að það sé stórkostleg einföldun á staðreyndum málsins að halda því fram í alvöru, að fyrrv. ríkisstj. hafi að því leyti verið saklaus í sinni viðleitni og í góðri trú, að það eitt hafi komið í veg fyrir árangur, að verkalýðshreyfingin var henni óþægur ljár í þúfu.

Ég fullyrði m.ö.o. ósköp einfaldlega, og það er mín niðurstaða og ég tel í raun og veru að ég þurfi ekki að byggja hana á mínu persónulega mati, heldur er það raunverulega sú eina niðurstaða sem lesin verður út úr þeirri samantekt sérfræðinga ríkisstj. sjálfrar, sem hver maður má lesa í skýrslu verðbólgunefndar. Það er mér hins vegar geysimikið furðuefni, að flokkur, sem hefur þau yfirlýstu markmið efst á blaði að draga úr óhóflegum ríkisafskiptum og ríkisumsvifum og renna traustum stoðum undir heilbrigðan atvinnurekstur, — að ríkisstj., sem hefur slík markmið efst á blaði, skuli jafnvel ekki heldur hafa haft kjark til þess að grípa til þeirra aðgerða sem allir dómbærir menn þá voru sammála um að væru frumforsendur ef við ætluðum að gera okkur einhverjar vonir um árangur.

Það skal vera niðurstaða þessara orða minna hér, það er ekki út af fyrir sig miklu fleira að segja um það frv. sem hér liggur fyrir en þetta: Það liggur fyrir með frv. loforðalisti þar sem ríkisstj. heitir því stuðningsmönnum sínum og þeim aðilum í verkalýðshreyfingunni, sem nú hafa raunverulega keypt henni gálgafrest með kaupi sínu, að nú skuli loksins verða algjör umskipti, nú sé hún tilbúin að leggja fram á næstunni þá samræmdu stefnu í efnahagsmálum sem snertir þá aðra þætti sem ríkisstj. sjálf hefur beinlínis vald á og ættu að duga til þess, að hún gæti staðið við loforð sín. Það er hverjum manni í sjálfsvald sett, hvernig hann metur þetta, en tíminn er naumur. Við skulum gera okkur ljóst, að tíminn er ekki lengri en fram að í fyrsta lagi afgreiðslu fjárlaga, því þá fyrst reynir á hvort þau loforð og þær skuldbindingar, sem ríkisstj. hér hefur tekið á sig, rúmast innan ramma þeirra fjárlaga sem verður að skila með mjög verulegum tekjuafgangi, þar sem óhjákvæmilegt er að beita mjög harðneskjulegum niðurskurði bæði í verklegum framkvæmdum á vegum ríkisins og í framlögum til ýmissa bráðnauðsynlegra og aðkallandi félagslegra umbótamála. Í annan stað hlýtur það að koma fram þegar kemur að afgreiðslu lánsfjáráætlunar, sem gera ber reyndar áður en og um leið og fjárlög eru unnin. Og þó er þetta aðeins byrjunin. Það lofar ekki góðu, ef málflutningur ýmissa stjórnarsinna nú ætlar að halda áfram að vera í líkingu við Lísu í Undralandi, ef hann á enn að vera af því taginu, að stjórnmálamönnum sé með einhverjum töfrabrögðum gerlegt að lofa almenningi í þessu landi gulli og grænum skógum, batnandi lífskjörum, hækkandi kaupi, stórkostlegum og dýrum félagslegum umbótum, og samræma þetta annars vegar lækkandi skattheimtu, lækkandi skattbyrði, vaxandi kaupmætti, auknum álögum á atvinnurekstur, sem í öðru orðinu er viðurkennt að er verið að bjarga nærri því frá greiðsluþroti.

Samhengið í þessari grútarbræðsluhagfræði er mér enn sem fyrr hulin ráðgáta, og ég endurtek það, að það er alrangt ef því er haldið fram, að hægt sé að venja þessa þjóð af fíknilyfjaneyslu 50% verðbólgu, sem búið er að venja hana á í 6–7 ár, með einum saman töfraformúlum. Við skulum gera okkur það fullkomlega ljóst, að það verður ekki gert nema með mjög harðneskjulegum aðgerðum. Og það er ekki hægt að benda á neinn þann syndahafur í þessu þjóðfélagi sem hægt er að draga út úr og segja: Hér hafið þið braskaralýðinn, hér hafið þið stórgróðalýðinn, sem einn skal bera byrðarnar. — Það hefur hingað til vafist fyrir mönnum að benda á þennan hóp, og því miður hefur málflutningur af því tagi lítil tengsl við raunveruleikann eins og hann er.

Þeir menn, sem í raun og veru vilja gera sér vonir um að þessari ríkisstj. takist betur til en stjórninni þar á undan og betur til nú í upphafi síns ferils heldur en vinstri stjórninni, sem skildi við í 50% verðbólgu 1974, — þeir stjórnarsinnar verða nú næstu dagana, vikurnar og missirin að gera strangar kröfur til sjálfra sín. Og það er alveg rétt, að það hlýtur að vera svo, að hæstv. forsrh. og ráðh. ríkisstj. og stuðningsmönnum hennar sé það vissulega hvatning til þess að gera nú skyldu sína þegar launþegahreyfingin býður þá kosti sem hún hefur boðið. Og það væri mikil smán og skömm öllum þessum aðilum ef þeir kynnu að verða uppvísir að því innan ekki mjög langs tíma, því tíminn er naumur, að hafa ekki getað staðið við skuldbindingar sínar, þegar slíkar fórnir eru færðar af launþegum.