28.11.1978
Sameinað þing: 28. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1072 í B-deild Alþingistíðinda. (720)

45. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Það er nú orðið alllangt síðan þetta mál var hér á dagskrá og ég hafði þá kvatt mér hljóðs til þess að gera stuttar aths.: annars vegar til þess að leiðrétta nokkuð staðleysur, sem komu fram um afstöðu Sjálfstfl. eða þm. Sjálfstfl. til þessa máls, og svo hins vegar til þess að vekja athygli á áhrifaleysi Alþfl. sem fram kemur í þessari fsp.

Varðandi síðara atriðið er það ekki lengur fréttnæmt og telst ekki til mikilla tíðinda, þar sem það blasir við allri þjóðinni, hversu lítilla áhrifa gætir af hálfu Alþfl. í þessari ríkisstj., en það kemur m.a. fram í þessari fsp., þar sem þeirri spurningu er beint til hæstv.. forsrh. hvort ríkisstj. muni beita sér fyrir því að afnema „kommissarakerfið“. Nú er þetta eitt af þeim málum, sem Alþfl. barðist mjög skelegglega fyrir í kosningabaráttunni, að afnema þetta svokallaða skömmtunarkerfi og „kommissarakerfi“. Ég fyrir mitt leyti var algerlega sammála þeim sjónarmiðum, sem fram komu hjá þeim Alþfl.mönnum fyrir kosningarnar. Maður hefði getað haldið, að þeir hefðu í stjórnarmyndunarviðræðum getað tekið af skarið um það, að breytingar væru gerðar í þá átt sem þeir töluðu um fyrir kosningar. En svo kemur á daginn að þeir hafa engu þar um ráðið og þurfa að bera fram fsp. hér í hv. Sþ., og auðmýking þeirra er alger þegar hæstv. forsrh. svarar þessari spurningu þannig, að málið sé nú til endurskoðunar í nefnd, sem hafi það með höndum að fara yfir lögin um Framkvæmdastofnun ríkisins.

Öllum er þó ljóst, að breyting á „kommissarakerfinu“ ræðst ekki af lagabreytingum. Samkv. ákvæðum þessara laga skal skipa forstjóra þessarar stofnunar af hálfu stjórnar Framkvæmdastofnunar. Ég geri ráð fyrir því, að ef þessi stofnun á að vera áfram, þá sé óhjákvæmilegt að hafa forstjóra við þessa stofnun. Ég held að allir geti verið sammála um það, hvort sem þeim líkar vel við þessa stofnun eða ekki. Siðleysið, sem viðgengst í þessum málum, er hins vegar það, að stjórn þessarar stofnunar hefur ráðið til forstjórastarfa tvo alþm. Það þarf auðvitað enga lagabreytingu til þess að gera breytingu á þessu, heldur einfalda stjórnarákvörðun hjá þessari stofnun, til þess þarf engin lagabreyting að koma.

Sjálfstfl. gagnrýndi á sínum tíma mjög lögin um Framkvæmdastofnun, sem var fyrst og fremst byggt á því, að undir stofnunina var sett hagrannsóknadeild, og svo hinu, að forstjórar þessarar stofnunar skyldu ráðnir af ríkisstj., vera pólitískir „kommissarar“ ríkisstj. Þessu hvoru tveggja hefur verið breytt með lögum. Hins vegar skeði það fyrir 2–3 árum, þegar lagabreytingin var gerð, að ég leyfði mér að bera fram brtt. við lögin beinlínis um það, að þm. væri bannað að taka að sér þessi störf. Það fór fram ákaflega söguleg atkvgr. þá, vegna þess að þessi brtt. var felld með 12:1 1 atkv. Þar réðu úrslitum þeir hv. þm. Sverrir Hermannsson og Tómas Árnason, sem skipa stöður forstjóranna.

Forseti er orðinn óþolinmóður og ég get ekki talað lengur í þessu máli. En ég vil, um leið og ég vek athygli á því, að við þm. Sjálfstfl. höfum margir hverjir beitt okkur einarðlega gegn því að þm. gegndu þessum forstjórastörfum, koma þeirri ábendingu 5 framfæri við Alþfl., að hér er um einfalda ákvörðun stjórnarinnar að ræða, sem þeir geta beitt sér fyrir í stjórnarliðinu sjálfu, þar sem þeir hafa meiri hl. í þessari stjórn núna. Það er einfalt fyrir þá að byrja á því að segja upp hæstv. fjmrh. Tómasi Árnasyni, sem er annar þessara forstjóra.