28.11.1978
Sameinað þing: 28. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í B-deild Alþingistíðinda. (722)

83. mál, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga

Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. félmrh., um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga:

„Hversu mikið skerðist að óbreyttu framlag úr ríkissjóði til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna niðurfellingar söluskatts á matvörur á árunum 1978 og 1979?

Hyggst ríkisstj. bæta sveitarfélögunum þennan tekjumissi og ef svo er með hvaða hætti?“

Þessi fsp. þarfnast ekki mikilla skýringa. Eins og hv. þm. er kunnugt hefur Jöfnunarsjóður sveitarfélaga tekjur af söluskatti. Þegar söluskattur var felldur niður af matvöru rýrðust tekjur Jöfnunarsjóðs að nokkru leyti. Það er þannig ástatt með sveitarfélögin, að þau hafa miklu ótryggari tekjustofna en ríkissjóður í verðbólgu eins og hefur verið hjá okkur núna. Sveitarstjórnarmenn segja gjarnan, að 11% útsvar þýði í raun 7% eftirágreitt útsvar, þegar tekið er tillit til verðbólgunnar. Með tilliti til þess, að sveitarfélögin hafa svo ótrygga tekjustofna sem raun ber vitni, hafa sveitarstjórnarmenn að sjálfsögðu áhyggjur af því, að á sama tíma skerðist jöfnunarsjóðsframlagið til þeirra, sem er eitt af því fáa sem er verðtryggt af tekjustofnum þeirra. Ég hef af þessum ástæðum leyft mér að leggja fram þessa fsp.