28.11.1978
Sameinað þing: 29. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1080 í B-deild Alþingistíðinda. (736)
Umræður utan dagskrár
Kjartan Ólafsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. utanrrh. fyrir svörin, enda þótt efni þeirra hafi verið með þeim hætti að ég telji að það hafi ekki getað lakara verið.
Hæstv. utanrrh. staðfesti hér, að hann hafi í nafni íslenska ríkisins borið fram mótmæli við Bandaríkjastjórn gegn því að hér giltu þær almennu reglur, sem Bandaríkjastjórn hefur sett varðandi herstöðvar sínar vítt um heim, að þar yrði fækkað nokkuð starfsmönnum. Ég vil af hálfu okkar stuðningsmanna Alþb. hér bera fram á Alþ. hin hörðustu mótmæli gegn þessari athöfn hæstv. utanrrh.
Því var einu sinni haldið fram af stuðningsmönnum setu Bandaríkjahers hér á landi, að hér sæti þessi erlendi her af illri nauðsyn, eingöngu af illri nauðsyn til að verja landið gegn utanaðkomandi árás. Nú er svo komið, að það þykir sæma að utanrrh. Íslands gangi með betlistaf fyrir sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavik og biðji fyrir okkar hönd, eins ríkasta þjóðfélags veraldar og best setta, að þessi erlenda ríkisstj., sem hefur her sinn í landinu, verði til þess að skapa okkur þau atvinnutækifæri sem íslensk stjórnvöld á undanförnum árum virðast ekki hafa haft dug í sér til að byggja upp og hafa máske ekki enn.
Það væri ósköp fróðlegt að vita, hversu bænheitur hæstv. utanrrh. kann að hafa verið. Ég vil óska eftir því, að þegar málið kemur hér til framhaldsumr. verði það upplýst, hvaða svör Bandaríkjastjórn hafi gefið við þessum tilmælum.
Hæstv. utanrrh. gerði mikið mál úr því, þegar fram fóru viðræður um myndun núv. ríkisstj., að það færi ekki vel á því, að forsrh. landsins, hver svo sem hann væri, hefði ekki sömu skoðanir í utanríkismálum og meiri hl. innan ríkisstj. Ég hygg að þetta ætti ekki síður að gilda um utanrrh. á hverjum tíma, hver svo sem hann er. Ég vil því að gefnu tilefni og vegna þess að það hefur komið fram, að hæstv. utanrrh. hefur hafið þennan erindrekstur án þess að leggja málið fyrir í ríkisstj. fyrr en að verki loknu, leyfa mér að bera fram þá fsp. til hæstv. forsrh., sem ég vona að hann svari við framhaldsumr., hvort hann telji að það samræmist stefnu ríkisstj. að utanrrh. hennar beri slík tilmæli fram. Og ég vil minna á að hér hafa af ýmsum verið hafðar uppi spár um það, að færi svo að Bandaríkjastjórn ákvæði einn dag að kalla her sinn heim frá Íslandi, þá kynni það að gerast, að íslensk stjórnvöld mundu grátbiðja Bandaríkjastjórn um að láta herinn vera hér kyrran. Ganga hæstv. utanrrh. á fund sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík nú fyrir stuttu bendir því miður til þess, að svo kunni að fara. Ég vil þó vona að þeir menn sitji enn sem flestir hér á hinu háa Alþingi, að menn líti á slíka spá sem illspá. Það er ekki mín spá, en það er ástæða til að bera ugg í brjósti um að sú kunni þróunin að verða þegar slíkir atburðir sem þessir gerast.
Ég vil ljúka máli mínu, herra forseti, með því að segja, að enda þótt risaveldin hafi herstöðvar vítt um heim, sem flestir vilja vera lausir við í þeim þjóðlöndum, sem slíkar herstöðvar sitja uppi, þá er ekki algengt að ríkisstjórn eins ríkis, sem slíkar herstöðvar hefur í landi sínu, fari sérstakan bónarveg að hinu erlenda stórveldi með beiðni um að skapa atvinnutækifæri fyrir þegna landsins. Og það er að mínu viti með öllu ósæmilegt að utanrrh. sjálfstæðs þjóðríkis beri fram slíka beiðni. Ég vil heita á stuðningsmenn og hv. þm. Alþfl. að hugsa sig vel um, áður en þeir hvetja til fleiri slíkra ferðalaga — eða á það kannske að verða einn meginþátturinn í hinni nýju efnahagsstefnu, sem Alþfl. hefur verið að boða, að æ fleiri Íslendingar eigi að eiga afkomu sína undir störfum hjá þeim erlenda her sem í landinu dvelur?