28.11.1978
Neðri deild: 21. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1098 í B-deild Alþingistíðinda. (743)

106. mál, ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls var beint til mín nokkrum spurningum, sem ég vil nú reyna að svara. Í fyrsta lagi spurði hv. 4. þm. Reykv. að því, hvort ekki væri ætlunin að útbýtt yrði til þm. skýrslu vísitölunefndar. Ég hygg að þessari skýrslu hafi þegar verið útbýtt til þm. og þeir hafi fengið að sjá hana. Ég vil í því sambandi vekja athygli á að þarna er ekki um tillögur að tefla, heldur er það skýrsla formanns vísitölunefndar til mín um störf n. Þess vegna er það ranghermi, sem ég hlustaði á í útvarpi í kvöld, að þar var æ ofan í æ talað um tillögur vísitölunefndar. Það er sjálfsagt að hafa það sem sannara reynist í þessu efni og ég vil undirstrika það, að hér er ekki um tillögur að tefla.

Þá talaði hv. 4. þm. Reykv. einnig um 1. gr. frv. og spurði nokkuð um hana og komst reyndar að sömu niðurstöðu og hv. síðasti ræðumaður, frsm. minni hl., að 1. gr. frv. væri óþörf vegna þess að ríkisstj. hefði heimild til niðurgreiðslna og að auka niðurgreiðslur. Mikið rétt, ríkisstj. getur aukið niðurgreiðslur. En þessi lagagrein er nauðsynleg til þess og vegna þess að ef á að taka tillit til þeirra niðurgreiðslna við verðbótavísitölu 1. des., þá verður að koma lagaheimild til. Það er höfuðatriði, sem er í þessari grein, þ.e. 2. mgr., sem felur kauplagsnefnd að ganga frá þeim málum, meta niðurgreiðslurnar, og sjá til þess að þær jafngildi 3% og birta sínar niðurstöður og gera opinberlega grein fyrir því. Þetta var nauðsynlegt að binda í lögum. Og ákvæðið að öðru leyti miðar að því að reyna að girða fyrir, svo sem kostur er, að nokkur tortryggni komist að í þessu sambandi vegna þess að ég hygg að allir menn, sem til þekkja, viðurkenni að kauplagsnefnd og sérstaklega hagstofustjóra sé treystandi, svo vel treystandi sem nokkrum íslenskum embættismanni, til þess að ganga frá þessum málum þannig að það verði ekki tortryggt, að þar ríki nákvæmni í útreikningum öllum. Þess vegna er þetta ákvæði sett og nauðsynlegt.

Hv. 4. þm. Reykv, spurði — og reyndar komu sömu spurningarnar fram hjá hv. frsm. minni hl. — hvort meiningin væri að setja hátekjuskatt, við hvað ætti að miða hann o.s.frv, nánar um þessa skatta. Þar er sannleikurinn sá, að það er ekki búið að taka ákvörðun um þessa tekjuöflun. Það er sérstök skattalaganefnd starfandi að þeim efnum, en bent er í grg. á nokkur skattform og skatta sem verði tekin alveg sérstaklega til skoðunar í sambandi við tekjuöflunina. Það eitt stendur fast, sem sett er að marki í fjárlagafrv., að þannig verði gengið frá fjármálum ríkisins í fjárlagafrv., eftir því sem dauðlegir menn geta séð fyrir, að það verði jöfnuður þar á, sá jöfnuður sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. Þess vegna er ekki á þessu stigi hægt að svara þessu skilmerkilega, af því að eftir er að skoða þetta, og það er sjálfsagt að játa.

Það er fundið að því, að það fylgi ekki með þessu frv. áætlun um hvað þetta muni kosta ríkissjóð, slíkt sé venjulegt um stjfrv. Aðrir menn eru minnugri en ég. Það má vera, að oft hafi slíkt fylgt stjfrv., en misbrestur hygg ég að sé á því að æðimörg dæmi hygg ég að hægt sé að benda á, bæði frá nýrri og eldri tíð, um það, að ítarlegar kostnaðaráætlanir hafi ekki fylgt stjfrv., hvað þá þmfrv., og hefur mönnum þó ekki orðið mörgum hverjum óglatt af því að renna þeim niður. Sjálfsagt skal ég viðurkenna að það er galli að geta ekki alltaf staðið þannig að málum að láta fylgja skilmerkilega grg. um þessi efni með útgjaldafrv. Og mér dettur ekki í hug að halda þeim vörnum uppi fyrir þetta frv., að það sé enga galla hægt á því að finna. En það er hægt að finna skýringar á því, hvers vegna þetta er ekki hægt að segja með ákveðnari hætti á þessu stigi.

Hv. þm. Matthías Bjarnason, sem er reyndar ekki hér í kvöld, en naut þess að vera hér í gærkvöld, einkum á meðan hann var að tala og eftir það, af því að hann var svo ánægður með það, hvernig honum tókst að ræða málið, spurði að því, hvort niðurgreiðslur á einstaka vöruflokka væri búið að ákveða. Þessu er því til að svara, að það er ekki búið að ganga frá því endanlega, en það er búið að gera áætlun um það og Hagstofan og kauplagsnefnd hafa verið að undirbúa það efni og vinna að því. En að sjálfsögðu verður ekki hægt að ganga endanlega frá því fyrr en þetta frv. hefur verið afgreitt. Þá verða að koma til aðilar, sem vinna að þessum málum, tiltekin rn., og segja um það sitt orð, á hvaða vörur niðurgreiðslan komi. En það má þó segja, að það verði á landbúnaðarvörur sem niðurgreiðslan verður aukin.

Þá spurði hann að því, hvort ætlunin væri að breyta reglum um innflutning skipa. Þessu er hægt að svara stutt og laggott: Nei, það er ekki ætlunin, það hefur einmitt verið samþykkt á ríkisstjórnarfundi fyrir ekki alllöngu, að áfram skuli gilda sömu reglur um innflutning skipa og lán til skipakaupa og áður giltu. En eins og allir hv. þm. vita, er engin regla án undantekninga, og þrátt fyrir þessar ströngu reglur — og það ætti fyrrv. sjútvrh. að vera sérstaklega hugstætt, — hefur stundum orðið að gera undantekningar frá þessum reglum og það hefur reyndar verið gert nú nýlega. Það geta verið slíkar ástæður fyrir hendi, atvinnuleysi á einum stað, ef skip ferst eða því um líkt, og það er nú heimild reyndar til undantekningar frá þessum reglum, ef það sé óhjákvæmilegt að víkja frá þeim. En svarið er að sömu reglur gilda áfram.

Þá spurði hv. frsm. minni hl. að því, hvernig ætti að skilja sérstaklega 4. gr. Hann gerði reyndar nokkuð veður út af því og það var gert hér í gær, að þetta frv. væri ekki í því formi sem venjulegt væri. Náttúrlega eru það engin rök út af fyrir sig, því að alltaf er gott að eitthvað breytist, og ekki þarf endilega lagafrv. fremur en annað að vera alltaf í sama sniðinu og verið hefur áður. Það er alltaf eitthvað að gerast nýtt undir sólinni. Það er t.d. ákaflega óvenjulegt, sumir segja að það sé algert einsdæmi, að forseti í þingi afsali sér sínum stóli eða réttara sagt óski eftir því að deild leysi hann frá störfum. Hvað er við þessu að segja? Ekki nokkurn skapaðan hlut, þó að þetta sé óvenjulegt. Þess vegna er ekki heldur neitt við því að segja þó að frv. sé að einhverju leyti óvenjulegt í sniðum. Það er sagt, að 1. gr. sé óþörf. Það hef ég þegar afsannað. (Gripið fram í: Er löggjöfin þá ekki óeðlileg?) Löggjöfin — það er gott að hafa góð lög. En einn vís maður sagði endur fyrir löngu: Góðir embættismenn eru góðum lögum betri. — Það þarf nefnilega að framkvæma lög, og það er ekki sama hvernig á er haldið. Sá hét Vísi-Gísli sem sagði, að góðir embættismenn væru lögum betri.

Það er sagt, að 2. og 3. gr. séu eiginlega ekki lagagr. og það séu engin fordæmi fyrir slík u í íslenskum lögum. Ég held að þeir hv. þm., sem fullyrða slíkt, ættu að fletta lagasafninu og athuga hvort þeir fyndu ekki einhver ákvæði í lögum sem geta verið áþekk þessu. Það er rétt, að þetta eru frekar óvenjuleg lagaákvæði. Það eru ákvæði sem eru kölluð „loforðsparagraf“ eða „loforðsgreinar“ og eru þekktar, og þær er m.a. að finna í okkar merkustu löggjöf, okkar hátíðlegasta plaggi, sjálfri stjórnarskránni. Þar eru slíkar greinar, þannig að þetta byggist á nokkrum misskilningi, það sem sagt er um 2. og 3. gr. Hitt er rétt, að höfuðgreinin í þessu frv. er auðvitað 4. gr., þar sem því er slegið föstu eftir hvaða verðbótavísitölu eigi að greiða laun á tilteknu tímabili. Hv. þm. spurði hvernig ætti að skilja þessa grein. Hana á að skilja þannig, að það er engum skylt að greiða hærri verðbætur á þessu tímabili en segir í þessari grein. Tilvitnunin til 2. gr, í kjaralögunum á að sjálfsögðu við það, að þakið á að gilda áfram. Hins vegar er það einnig svo og í samræmi við tilvitnunina í l. kafla kjaralaganna, að mönnum er heimilt að semja um það hér eftir að greiða hærri vísitölu, alveg eins og þeim er heimilt að semja um það að greiða hærri grunnlaun. Það stendur í 3. gr. laga um kjaramál. Ég þekki ekki satt að segja neitt dæmi um það í löggjöf, nema í nýlega settum lögum í Noregi, að það sé lögð refsing við því að taka á móti hærri launum en kveðið er á um í lögum. En það er gert þar í lögum, svo ströng eru þau. Okkar lagaákvæði um þessi efni hafa mér vitanlega aldrei verið skilin á þvílíka lund, að launagreiðanda væri ekki heimilt að greiða hærri laun, ef hann gæti, og það væri eitthvað athugavert fyrir launamóttakanda að taka á móti hærri launum, ef hann gæti fengið þau. — Þannig á sem sagt að skilja þessa grein, að það er engum skylt að greiða hærri vísitölu á þessu tímabili en segir í þessari 4. gr. En það er ekkert bann við því, að á þessu tímabili sé samið um hærri vísitölugreiðslur né heldur um hærri laun.

Ég held að orðalagið á 3. tölul. í grg., sem auðvitað er ekki lög frekar en annað það sem stendur í grg., sé svo alþekkt í íslenskum lögum að það verði varla misskilið, þar sem segir að vísitöluviðmiðun launa verði breytt fyrir 1. mars 1979 að höfðu samráði við fjölmennustu heildarsamtökin. Hitt skal ég fúslega viðurkenna, að þetta getur verið klaufalegt orðalag: að tala nm fjölmennustu launasamtökin. Það er óákveðið og hefði verið æskilegra að þetta hefði verið almennara, átt er við: að höfðu samráði við launasamtök eftir því sem við verður komið.

Ég held að ég hafi nú svarað þeim spurningum, sem beint var til mín, og ætti kannske ekki að orðlengja þetta mikið, af því að aðaláhugi minn er að fá mál þetta afgreitt. Ég verð þó að bæta aðeins örfáum orðum við.

Ég varð fyrir dálitlum vonbrigðum með nál. minni hl., þ.e.a.s. niðurstöðuna í því. Ég tók svo eftir, að hv. 4. þm. Reykv. hefði sagt að sjálfstæðismenn mundu verða sjálfum sér samkvæmir í stjórnarandstöðu og í ríkisstj. En nú er niðurstaðan sú, að mér skilst, að vera á móti 1. gr. Það er ekki alveg glöggt, hvort þeir ætla að greiða atkv. á móti frv. í heild eða ekki, en þó mátti helst draga þá ályktun af ræðu hv. frsm., að mér fannst. Hafi ég misskilið það, þá er það gott og þá leiðréttist það.

Mér finnst ekki alveg fullkomið samræmi hjá sjálfstæðismönnum við það sem þeir gerðu og ég tók þátt í að gera með þeim í fyrrv. ríkisstj., ef þeir ætla svo að vera á móti þeim ráðstöfunum sem hér er um að tefla. Vissulega var vandinn stór í febr. s.l. En hitt held ég að engum blandist hugur um, að sá bráði vandi, sem blasir við nú 1. des., er stærri. Ég held að það verði ekki deilt um það, að við blasir mjög bráður vandi 1. des. n.k. Það blasir við að óbreyttum lögum að 14.13% fara út í kaupgjald —eða ef það hefði verið gert, sem ég tel sjálfsagt og enginn ágreiningur hefur verið um á milli stjórnarflokkanna út af fyrir sig, að standa við fyrirheit stjórnarsáttmála og auka niðurgreiðslur um 2.5%, þá hefðu samt komið út í kaupgjaldið 11.6%. Hvaða afleiðingar hefði slíkt haft? Það þarf ekki að rekja það með mörgum orðum fyrir hv. þm. Það hefði leitt til rekstrarstöðvunar, a.m.k. ef marka má orð atvinnurekenda sem segjast ekki geta greitt nokkurn skapaðan hlut meira en þeir gera nú. Það hefði þýtt rekstrarstöðvun, það hefði þýtt atvinnuleysi, það hefði innan tíðar þýtt gengisfellingu, og allir vita um þá fylgikvilla sem þeirri leið eru samfara.

Ríkisstj. var því vissulega vandi á höndum. Átti hún að horfa aðgerðalaus á að þetta færi út á kaupgjald og verðlag þó að hún beitti því fyrirheiti, sem hún hafði gefið, að greiða niður 2.5%? Eða átti hún að gera tilraun til þess að afstýra eða draga úr þessum bráða voða? Ég tel að það hafi verið skylda ríkisstj. að beita sér fyrir því að gera ráðstafanir sem drægju úr þessum voða. En jafnframt varð hún að gæta þess að ganga ekki svo langt, að það væri fyrir fram vitað að slíkar ráðstafanir yrðu ekki þolaðar af þeim sem í hlut eiga. Þarna varð hún að finna hinn gullna meðalveg sem er vandfundinn. Og hún varð auk þess að finna þá leið sem allir þrír stjórnarflokkarnir gætu sameinast um. Þetta er ekki létt verk, og auðvitað getur enginn sagt um það á þessari stundu, hvort þetta hafi tekist, að því leyti til að það liggur að sjálfsögðu ekki fyrir neitt fyrirheit um það frá hlutaðeigandi stéttum, að þær muni samþykkja þetta. Við trúum því, við treystum því, af því að við teljum að við hófum ekki farið lengra í þessu en brýnasta nauðsyn krafði, og við höfum reynt að koma með þær ráðstafanir og aðgerðir á móti sem þær meta.

Menn segja: Þetta er of lítið. Það hefði þurft að gera meira. — En þrátt fyrir það — og látum það liggja á milli hluta — held ég að ekki verði deilt um það, að vandinn verður þó minni fyrir atvinnuvegina, fyrir þá sem á þessu tímabili þurfa að glíma við það að reyna að leysa verðbólguvandann með varanlegum úrræðum, varanlegri en þetta er. Þetta er bráðabirgðaráðstöfun, það er engin fjöður dregin yfir það, fyrst og fremst bráðabirgðaráðstöfun. Vandinn verður auðleystari fyrir vikið, og er ekki nokkuð gefandi fyrir það að geta afstýrt því, að vandinn velti upp á sig á þessu tímabili og stækki svo í höndunum á okkur að kúlan springi? Það getur enginn sagt um framtíðina, og ég er ekki sá spámaður að ég geti sagt fyrir um það, hvernig þessar ráðstafanir kunni að gefast. En þær eru gerðar í góðri meiningu og til þess að reyna að ráða fram úr þeim mikla vanda sem ógnar allri íslensku þjóðinni, og ég tel að það hefði verið stórkostlega ámælisvert af ríkisstj. að hafast ekkert að þegar svona stóð á. Henni bar skylda til þess að eiga frumkvæði um aðgerðir í þessu efni og leggja þær fyrir Alþ. En það er Alþ. sem hefur síðasta orðið, og það er Alþ. sem ber ábyrgðina á þeim mótatkv. sem falla gegn þessum ráðstöfunum. Þeir, sem greiða mótatkv. gegn þessum ráðstöfunum, eru þar með að segja að rúmlega 14% eða 11.5% hafi átt að fara út í kaupgjald og verðlag nú. Ég öfunda þá ekki af því hlutskipti. Ég öfunda þá ekki af þeirri ábyrgð. Það er gott ef þeir rísa undir henni.

Það er vissulega svo, og ég hef ekki dregið dul á það í viðtölum mínum við forvígismenn stéttasamtakanna, að það er ekki hægt að gera sumar af þeim félagslegu umbótum, sem þarna er talað um, eins og hendi sé veifað. Það hlýtur að taka nokkurn tíma að koma þeim sumum í kring, og það eru ekki neinar gyllingar og engar blekkingar hafðar í frammi af minni hálfu í því sambandi. Ég hef líka undirstrikað það við þá, að það er vitaskuld ógerningur og það getur enginn látið sér detta það í hug, að hægt sé að mæla það upp á krónu eða eyri eða tug króna að þetta sé nákvæmlega svona, að þetta falli saman. Þetta vil ég líka undirstrika. Ég hef líka undirstrikað það, t.d. í viðræðum við Bandalag háskólamanna, að það er náttúrlega ekki stefnt að því með þessum ráðstöfunum, að þær komi öllum jafnt til góða. Það geta ekki allir notið jafns. Þetta hlýtur mönnum að vera ljóst. En það er einkennilegur hugsunarháttur hjá þeim, sem forsjónin hefur skákað á þann veg í þjóðfélaginu, að þeir hafa betri aðstöðu en aðrir, ef þeir vilja ekki leggja fram að tiltölu við sína getu í baráttu við verðbólguna. Ég held að það ætti öllum að vera ljúft og kært að taka á sig byrðar að tiltölu, færa fórnir að tiltölu, ef menn vilja tala um það í þessu sambandi.

Menn láta gjarnan stór orð falla í svona umr., og það er ekki vert að taka það of hátíðlega. Menn hafa sagt, að þetta væri bitlaust vopn og rangsleitið í baráttunni við verðbólguna. Menn hafa sagt, að þetta frv. væri svikamylla. Ég nota nú lítið orðið siðleysi, en ég veit ekki hvað ég á að kalla siðleysi ef það er ekki siðleysi að viðhafa þessi orð um frv. og ætla svo kannske að gjalda því jáatkv. eða sitja hjá. Það er lítill hugur í þeim mönnum sem ekki vilja berjast með atkv. sínu gegn svikamyllu og því vopni sem þeir telja bitlaust og rangsleitið. Það gerir litla stoð að segja af sér forsetatign í deild.

Það var einu sinni gagnmerkur maður og heiðarlegur hér á Alþ. sem hét Vilmundur Jónsson, landlæknir. Hann kunni að mótmæla. Hann taldi kosningafrestunina 1941 brot á stjórnarskránni. Hann mótmælti með þeim eina heiðarlega og marktæka hætti, sem hægt er að gera á örlagastund. Hann sagði af sér þingmennsku. Það er fordæmi sem getur verið til eftirbreytni fyrir menn í framtíðinni.

Hv. þm. Vilmundur Gylfason viðhafði nokkuð stór orð í ræðu sinni. En það varðar alltaf mestu, að niðurstaðan sé réttileg fundin, og það sem mestu skiptir var það, að hann komst að réttri niðurstöðu. Að vísu voru forsendurnar kannske dálítið skrýtnar, en það skiptir ekki máli. Sögð er sú þjóðsaga um einn gagnmerkasta dómara í sögu Bandaríkjanna og þann sem hefur haft einna mest áhrif á stjórnskipun þeirra, að hann hafi sagt við annan dómara í hæstarétti: „Þetta á að vera niðurstaðan, þú sérð um forsendurnar.“ Og það var kannske ástæða til að ætla, að niðurstaðan hefði verið aðfengin, en forsendurnar hefðu verið frá eigin brjósti.

En hvað um það, aðalatriðið er að sjá rétt og komast að réttri niðurstöðu, þó að forsendurnar geti verið eitthvað skrýtnar. Og ég met það mikils við þennan hv. þm., að hann hefur hugrekki til þess að vera með þessu máli. Það er nefnilega svo með hugrekki og hugrekki og kjark og kjark. Það kannast náttúrlega allir hv. þm. við hina ágætu smásögu Þóris Bergssonar: „Stökkið“, þegar þurfti að sækja lækni og mönnum á heimilinu varð tíðrætt um að hann mundi líklega ekki koma í þessu óveðri. Jón sýslumannssonur fór að segja sögu af því, að hann efaðist um hugrekki læknisins, hann hefði einu sinni guggnað þegar þeir voru að leik voru að mana hvor annan að stökkva yfir gjá. Og Brandi vinnumanni, sem hlustaði á, fannst að það væri lítill dugur í þessum lækni og sagði: „Ég held að ég hefði nú stokkið.“ Svo kemur, eins og menn vita, læknirinn inn úr hríðarkófinu, en þarf á fylgdarmanni að halda það sem eftir er leiðarinnar, og þá varð það fyrir húsbóndanum að benda á Brand vinnumann, en þá ók Brandur sér í herðum og taldi ófært veður og vildi ekki fara út í hríðina. En það var bót í máli, að sýslumaðurinn átti dóttur og hún var tilbúin til þess að fara í karlmannsföt og fylgja lækninum ef á þyrfti að halda.

Þetta er sígilt dæmi og perla um hugrakkan mann í orði, en hugleysingja og heigul í verki. Þar á ég ekki við hv. þm. Vilmund Gylfason, því að hann hefur einmitt sýnt hugrekki í því, að hann fylgir þessu frv. En það gætu kannske einhverjir aðrir tekið þetta til sín sem hafa haft stór orð og þykjast hafa kjark, en brestur svo kjarkinn til þess að gera ráðstafanirnar þegar á hólminn er komið.

Hitt er annað mál, að ég þarf að gera dálitla aths. við ræðu og þó sérstaklega grein hv. þm. Vilmundar Gylfasonar sem birtist í Dagblaðinu í gær, ég held að hann hafi ýjað eitthvað að því sama í ræðu sinni í gær. Hann talaði svo hratt að það var erfitt að fylgjast með straumnum. Hann segir þar, að ég hafi gert samkomulag við Alþfl. um að það skyldu bara greidd 3.6%. Nú vil ég í allri vinsemd biðja hann að benda mér á þann Alþfl.-mann, einn eða fleiri, sem hafa talað við mig um þetta og geta hermt það upp á mig, að ég hafi gert samkomulag um þetta. Ef hann ekki getur það, þá veit hann hvað svona ummæli heita. Ég vil jafnframt fræða hv. þm. á því, að meðan ég veiti forstöðu þessari ríkisstj. mun ég aldrei — aldrei viðhafa þau vinnubrögð að gera samtök eða samkomulag við annan flokkinn án vitundar hins. Það er ekki hægt að viðhafa slík vinnubrögð í þriggja flokka stjórn, það kemur ekki til greina. Og viðvíkjandi því, að ég hafi farið fram hjá mínum flokksmönnum með þetta, þá er það reyndar skröksaga líka, því að ég gerði grein fyrir því, hvað ég teldi rétt og framkvæmanlegt í þessum efnum, á sameiginlegum fundi í framkvæmdanefnd og þingflokki, og það, sem ég taldi þá rétt og framkvæmanlegt, féll nákvæmlega saman við þær till. sem ég gerði til lausnar á þessum vanda. Um þetta eru náttúrlega margir til vitnisburðar. Og það er ekkert óeðlilegt í sjálfu sér, þó að ég kæmist að þessari niðurstöðu, vegna þess að þegar var verið að mynda ríkisstj. í haust, — já, það má segja að það var komið fram á haust þegar það tókst, — þá var einmitt gert ráð fyrir því af þeim sérfræðingum, sem mest var við talað, að vísitalan eða verðbólgan mundi hækka um 9–10 stig. Hitt er rétt, að hagstofustjóri var með heldur hærri spár. Þá var ákveðið að greiða niður 2.5%, en þó hlutu menn að gera ráð fyrir því, að út í kaupgjald og verðlag gætu 1. des. komið 6.–7%. Þetta er rétt að hafa í huga.

Ég skal svo, herra forseti, ekki fjölyrða frekar um þetta. En ég vil aftur skora á hv. þm. að gera grein fyrir því, og það má vera seinna, hvað hann hefur fyrir sér í því, að ég hafi gert samkomulag, en ég skal nú slaka á því: að ég hafi talað við eða einhver Alþfl.-maður hafi talað við mig um 3.6% bætur, og leiði hann þann Alþfl.-mann fram þótt seinna verði. En þetta eru smámunir í sambandi við þetta mál, og ég mundi sakna þess ákaflega mikið, ef minn ágæti vinur, hv. þm. Vilmundur Gylfason, hætti alveg að gefa mér skot öðru hverju.