28.11.1978
Neðri deild: 21. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (746)
106. mál, ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Ég verð að játa að mér var svolítið ómótt í kvöld þegar ég sat hér undir löngum hrósyrðum hæstv. forsrh. En ég hugga mig aftur við það, að hrósið var vissulega tvírætt. Allt um það, hrósflaumi forsrh. mun ég svara síðar í máli mínu.
Erindi mitt í ræðustól er fyrst og fremst að gera grein fyrir því sem annar af tveimur fulltrúum Alþfl. í fjh.- og viðskn., sem hafði það frv, til meðferðar sem nú er að ganga í gegnum 2. umr. hér í hv. d., að við fulltrúar Alþfl. greiddum, því atkv., en létum bóka svofellt í fundargerðabók fjh.- og viðskn., með leyfi forseta:
„Stuðningur okkar við þetta frv. til l. byggist á því, að ef ekkert hefði verið að gert, þá hefði rúmlega 14% hækkun farið út í kaupgjald og verðlag, sem þýtt hefði mikla fiskverðshækkun og gengisfall í kjölfarið. Okkur er þó ljóst að þessar aðgerðir eru ófullnægjandi bráðabirgðaráðstafanir og auk þess óljósar fjármunatilfærslur. Þó er ekki stætt á öðru en styðja þetta frv. til að koma í veg fyrir enn frekari vandræði, sem orðið hefðu ef ekkert hefði verið að gert.“
Undir þetta rita Vilmundur Gylfason og Finnur Torfi Stefánsson.
Að öðru leyti tel ég óþarft að ræða efni þess frv., sem hér liggur fyrir, umfram það sem gert var í gær. Ég vísa að því er sjálfan mig varðar til ræðu sem ég flutti úr þessum stól í d. í gær um þessi efni.
En þó verður ekki hjá því komist að víkja nokkrum orðum m.a. að þeim sem mælti fyrir nál. fjh.- og viðskn., hv. 1. þm. Austurl., Lúðvík Jósepssyni, en hér reyndi hann eitt kraftaverkið enn í efnahagsmálum, þegar hann reyndi að sannfæra deildina um að hér væri ekki um bráðabirgðaráðstafanir að ræða, heldur — að mér skildist — einhverjar heilsteyptustu og langstæðustu ráðstafanir sem efnahags- og hagsagan kynni frá að greina. Það segir sig auðvitað alveg sjálft, og þarf ekki annað en vísa í jafnörugga heimild og hæstv. forsrh., að auðvitað er um bráðabirgðaráðstafanir að ræða. Þetta eru að efni og formi ráðstafanir sem standa til þriggja mánaða, og um það hefur ágreiningurinn staðið. Það var hins vegar athyglisvert, að sennilega allt að 3/4 ræðu hv., 1. þm. Austurl. í dag, þar sem hann var að mæla fyrir nál. og tók raunar fram að hann var jafnframt að lýsa sínum persónulegu skoðunum, fóru í úttekt á og árásum á stöðu Alþfl. í þessu máli. Og mér er ekki grunlaust um að einu sinni til tilbreytingar hafi hv. ræðumaður litið út fyrir fjóra veggi þessarar stofnunar og farið að huga að því, hvernig almenningsálitið í landinu kynni að vera innstillt. Hafi hann gert þetta, þá hygg ég að það hafi valdið honum nokkrum áhyggjum, og ég hygg að þessar áhyggjur hafi orðið þess valdandi, að hann taldi ástæðu til þess að eyða nær öllum ræðutíma sínum í árás á samstarfsflokk sinn, Alþfl., á þá hugmynd Alþfl. að vilja standa að heildstæðum ráðstöfunum sem tækju til alls ársins 1979. Sé hv. 1. þm. Austurl. til tilbreytingar að reyna að þreifa á púlsi almenningsálitsins, sem ég er sannfærður um að hann gerir ekki oft, þá skil ég áhyggjur hans af till. Alþfl. í þessum efnum.
Talsmenn Sjálfstfl. í þessum umr. hafa þóst hafa áhyggjur af því, að Alþfl. sé illa leikinn, að hann komi ekki málum sínum fram sem skyldi. Þeir hafa einnig látist hafa áhyggjur af því, að það væri nokkur tvískinnungur falinn í því að gagnrýna frv., svo sem margir okkar gera, en standa þó ekki í vegi fyrir því að það hljóti afgreiðslu hér á nauðsynlegum degi. Við þessa menn verður að segja það, eins og sagði í bókun sem ég kynnti, að valkostirnir eru einvörðungu tveir. Hinn er sá að sleppa lausri 14% hækkun út í kaupgjald, sem strax færi út í verðlag með tilheyrandi eftirleik, fiskverðshækkun, gengisfalli. Þetta eru efnahagslegar staðreyndir, sem bókstaflega allir, hvar sem þeir annars standa á hinum pólitíska „skala“, eru sammála um. Og ég segi það fyrir mína parta, og svo mun vera um nærstætt allan þingflokk Alþfl., hvað svo sem mönnum finnst um þetta frv., og um það höfum við rætt, þá er ekki stætt á öðru en samþ. það. Á slíku berum við ekki ábyrgð. Sjálfstfl. getur reynt að bera ábyrgð á slíku, en við gerum það ekki þrátt fyrir allt og erum sjálfum okkur — að ég hygg — fullkomlega samhljóma í þessum efnum. Valkostirnir voru aðeins tveir, það var rétt í máli hæstv. forsrh. hér í kvöld. Það er stundum svo, að menn standa frammi fyrir tveimur kostum, hvorugum góðum. En menn verða að velja. Þetta er í stöðunni ábyrgt val; annað var ekki hægt og annað var ekki sæmilegt að gera.
En við sjálfstæðismenn, sem hafa verið að fjalla um málflutning okkar og haft áhyggjur af, vil ég einnig segja þetta: Við í Alþfl. erum að slást við verðbólguna á fleiri vígstöðvum en fram kemur í þessu frv. Allir þm. Alþfl. í þessari d. hafa flutt frv. um raunvexti, sem er bardagi við verðbólguna á þó nokkuð öðru sviði, þó að það frv. gagni auðvitað ekki nema í sambandi við aðrar og heildstæðari efnahagsráðstafanir. Það liggur alveg ljóst fyrir, að Alþfl. stendur allur sem einn að þessu frv.
Skoðanir Lúðvíks Jósepssonar eru þekktar í þessum efnum og hann virðist hafa dregið allan sinn stjórnmálaflokk með sér í þessu máli, þó ég efist um að margir hv. þm. Alþb. hafi oft leitt hugann að vaxtamálum. Framsfl. tekur ekki undir með okkur í þessu máli, af hagsmunástæðum fyrst og fremst, að ég hygg. En Sjálfstfl. þykist gera það. Svo sagði hv. 4. þm. Reykv., Geir Hallgrímsson, form. flokksins. Svo er að skilja á leiðurum þess mikla blaðs, Morgunblaðsins. En hvað gerist? Frv. er komið í n. og þar er það á valdi Sjálfstfl. að hleypa þessu frv. áfram. Ríkisstj. hvorki stendur né fellur með þessu frv., en þetta gætum við gert að lögum ef við næðum höndum saman. Sjálfstfl. virðist hins vegar engan veginn vera heill í þessu máli, og mér er nær að ætla að það gildi um fleiri bardagasvið við verðbólguna en vaxtamálin. Sjálfstfl. gæti, ef hann vildi, hjálpað til að gera þetta frv. að lögum. Það strandar á honum í þessum efnum. Ég þykist vita að ástæðan fyrir því sé sú, að þingflokkurinn sé ekki margbrotinn, heldur margklofinn í þessum efnum. Ég hygg að svo sé um fleiri mál sem að svipuðum markmiðum lúta, og er því afskaplega illt á íhaldið að treysta um þessar mundir. Það segi ég sem sögufróður sósíaldemókrati, að ég dáist sögulega að efnahagsráðstöfunum sem Alþfl. stóð að, þá með heilsteyptari Sjálfstfl. en nú virðist vera. Það var á árinu 1959 og næstu árum þar á eftir. Máli mínu til stuðnings vísa ég í ágætt blaðaviðtal við hv. 11, þm. Reykv., Gunnar Thoroddsen, sem birtist í Vísi nú um helgina. Ég er alfarið sammála því, sem Gunnar sagði þar um þær efnahagsaðgerðir, sem gripið var til á þessum árum, að þessar ráðstafanir voru um margt til fyrirmyndar. En gallinn er bara sá, að þó að Alþfl. hafi bæði stækkað og um margt efalitið batnað frá þeim tíma, þá hefur íhaldið versnað svo mikið, að það bætir þetta ekki nærri því nægjanlega upp. Þetta er vandinn í þessu máli: Vaxtafrv., herrar mínir, er prófsteinn á það, hvað þið getið og hvað þið þorið. Og áður en þið snúið stóru orðunum að Alþfl. ættuð þið að skoða í eigin barm og kanna ykkar eigin margbrotna þingflokk. (Gripið fram í: Þetta kann að lagast.) Það getur vel verið, en aumt er íhaldið nú. (Gripið fram í.) Þetta er ekki tilboð til íhaldsins. Þetta er ósk um það, að það hjálpi til að veita brautargengi í einu tilteknu máli — máli sem ég fyrir mitt leyti er sannfærður um að mun skipta hér sköpum í sambandi við verðbólguþróun. Svo hafa einnig talsmenn Sjálfstfl. talað úr þessum ræðustóli. En þeir guggna þegar á hólminn er komið. — Við höfum ekkert að fela. Við erum að boða sömu vaxtastefnu og við gerðum fyrir kosningar. Við erum ekkert að svíkja eins og þú varst að gera í kjaramálunum núna, Lúðvík.
Það er þetta sem ég held að hv. d. þurfi að velta fyrir sér. Till. okkar eru jafnheildstæðar og þær voru og við erum að berjast á mörgum vígstöðvum. Það frv., sem hér liggur fyrir og er til umr., er ein af þessum vígstöðvum. Vaxtamálin eru einar vígstöðvar. Annars vegar er þar við Alþb. að etja og hins vegar við duglaust íhaldið. Hvorugur kosturinn virðist vera góður. En við stöndum keikir engu að síður.
Gjarnan hafa verið bornar saman þær aðgerðir, sem nú er verið að gera, og febrúarlögin, sem Sjálfstfl. og Framsfl. settu fyrr á þessu ári. Eitt þykir mér þó vanta í þennan samanburð, og það er einfaldlega það, að þegar lögin voru sett í febrúar var verið að setja lög á Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. Það var í fyrsta skipti sem opinberir starfsmenn höfðu haft verkfallsrétt. Það var þess vegna í fyrsta skipti sem ríkisvaldið sat öðrum megin við samningaborðið og samningsaðilinn sat hinum megin við samningaborðið eftir venjulegar kjaradeilur. Nú gerðist það, að ríkisvaldið samdi um tiltekna peningalaunaupphæð sem það átti ekki til, sem það gat ekki staðið við. Þessa samninga hefði ríkisvaldið aldrei átt að gera, en það gerði þá og þurfti að rifta þeim að nokkrum mánuðum liðnum. Það hygg ég að fyrst og fremst hafi reitt almenningsálitið svo til reiði — hæstv. forsrh. notaði hér orð sem hann sagðist að vísu ekki nota oft, og það var siðleysi að þessar aðgerðir voru siðleysi af þessum sökum. Þetta hygg ég að fyrst og fremst hafi orðið valdur að því, að febrúarráðstafanirnar voru svo fyrirlitnar sem þær voru vissulega úti um samfélagið. Og hvað sem má segja um þær ráðstafanir sem nú er verið að gera, þá er grundvallarmunur á þessu tvennu.
Það er óþarfi að fara út í frekari samanburð á þessu. Það er ljóst, hvað gerðist í febrúar, og það er einnig ljóst, hvað hér er verið að leggja til. Því má svo bæta við í framhaldi af ræðum alþb.-manna í gærkvöld, t.a.m. hv. þm. Eðvarðs Sigurðssonar, — þar var fjallað um till. okkar Alþfl.-manna og sagt að við hefðum verið að leggja til að lögbinda kaupið og á það gæti verkalýðshreyfingin aldrei fallist, — að í þeim till., sem við lögðum fram, og eins og fram kom hjá hv. síðasta ræðumanni, þá var gert ráð fyrir að leyfa að kaupið hækkaði fjórum sinnum um 4% í hvert skipti þangað til nýju vísitölukerfi hefði verið komið á. Það er yfirlýst markmið þessarar ríkisstj., að vísitölukerfinu þurfi að breyta. Með þessum hætti er ríkisvaldið að knýja á um að vísitölukerfinu verði breytt í þá veru sem við teljum skynsamlega, að öðrum kosti séu launin bundin með þeim hætti sem hér er lýst, en síðan muni ríkisstj. með öðrum aðgerðum, sem einnig voru skýrðar í þeim hugmyndum sem þið í Alþb. áreiðanlega þekkið, hvernig fara skuli að því að ná verðbólgunni niður fyrir og helst vel niður fyrir 30% markið að gera kjararýrnunina sem allra minnsta. Og þar var fjallað um peningamál, þar var fjallað um stjórn á fjárfestingarmálum, þar var fjallað um skattamál, þar var fjallað um niðurskurð ríkisútgjalda. Auðvitað er ágreiningur á núlli okkar um marga einstaka liði þessara mála. En það er ekki aðalatriðið. Aðalatriðið er að hér var sett fram heildstæð stefna. Ég er sannfærður um það, hvað svo sem hv. þm. Eðvarð Sigurðsson hefur um það að segja, að um þetta hefði náðst og getur enn náðst samstaða við launþegahreyfinguna. Það hvílir á því eingöngu, að hún hafi traust á þeim ráðstöfunum sem hér er verið að leggja út í. Ég er sannfærður um að launþegahreyfingin hefði gefið vinveittri ríkisstj. frest í eitt ár eða átján mánuði til þess að framkvæma slíkt, vegna þess að auðvitað hlýtur að vera litið svo á að það að ná verðbólgunni niður sé kjarabót af sjálfu sér.
Það er tómt mál að tala um þetta. Þetta hefur svo sem verið reifað. En hvað sem þeir Alþb.-menn reyna hér í stórum stíl að gera úr Alþfl. — ég held þeir kalli hann kaupránsflokk vegna þess að hann lagði áherslu á að binda einnig peningalaunin, þá verðlausu seðla sem annars hefðu hækkað að upphæðum, — þá er það skilningur sem ég vil eindregið mótmæla. Við leggjum á það þunga áherslu, að þetta sé ekki nema einn liðurinn í þeim ráðstöfunum sem þurfi að gera. Hins vegar, eins og síðasti ræðumaður sagði, þýðir ekkert að loka augunum. fyrir því, að peningalaunin eru auðvitað stór þáttur í heildardæminu.
Einn þátt til viðbótar við það, sem við höfum lagt á þunga áherslu, vil ég enn leggja á áherslu, og það er það sem við höfum kallað neðanjarðarhagkerfi, þau gríðarlegu skattsvik sem eiga sér stað úti um samfélagið. Einhvern veginn hefur aldrei náðst um það meirihlutasamstarf á Alþ. að skera upp herör gegn þessum vágesti. Einn og einn flokkur hefur haft þetta á stefnuskrá sinni, ein og ein þáltill. hefur verið flutt, en hvernig sem á því stendur hefur aldrei náðst um það samstarf í ríkisstj. að skera upp herör gegn þessu. Svo er ekki enn þrátt fyrir áherslu okkar á þetta s.l. sumar og áfram. Allt samfélagið veit meira og minna hvernig þetta neðanjarðarhagkerfi vinnur. Það vinnur t.a.m. þannig, að einstaklingar skrifa einkaneyslu sína í stórum stíl á rekstur fyrirtækja, húsin sem byggð eru, bílana sem ekið er í, jafnvel matinn sem étinn er. Af þessu ræðst einhver mesti lífskjaramismunur í landinu. Efnahagsskaðinn er kannske ekki verstur, þó vondur sé, heldur hinn sálræni skaði sem af þessu leiðir, vegna þess að reksturinn hefur ekki það traust sem hann ætti að hafa ef heilbrigt væri að staðið.
Ég er að segja þetta í þessu samhengi vegna þess að í till. þeim, sem við höfum lagt fram og Alþb. hefur reynt að gera lítið úr — af misskilningi auðvitað — er það snar þáttur, að gegn þessum svikum verði ráðist og það verði verkefni samstæðrar ríkisstj. að skera upp herör á þeim sviðum sem hér hefur verið lýst. En einhvern veginn er það svo, að þeir vilja heldur lulla með Lúðvík í þriggja mánaða ráðstöfunum. Það segir sig alveg sjálft, að ef við ætlum að hefja stríð 1. mars, 1. júní, 1. sept. og 1. des. af því tagi sem við höfum háð nú undanfarna daga, þá verðum við aldrei færir um að ráðast gegn neðanjarðarhagkerfinu eða öðrum ósóma í efnahagslífi okkar. Ef Lúðvík og aðferðir hans fá að ráða, þá er þetta dæmt til að mistakast og skattsvikin munu dafna áfram í þessu samfélagi. Það er þess vegna rangt, sem fram hefur komið í máli talsmanna Alþb. um þessa hluti, að við séum að leggja til kaupbindingu fyrst og fremst. Við erum að leggja til hjöðnunarstefnu, þar sem hjöðnun launa er aðeins einn þátturinn. En vitaskuld eru launin stór þáttur í öllu dæminu.
Hæstv. forsrh. reyndi að hafa í frammi ögranir í máli sínu, reyndi að biðja mig um að nefna þá Alþfl.-menn sem við sig hefðu talað um 3.6, en ekki 6% í sambandi við þær ráðstafanir, sem hér standa fyrir dyrum. Ég ætla auðvitað ekki að taka slíkum ögrunum og nefna þau nöfn í ræðustól hér á Alþ. Það er alveg ljóst, að Ólafur Jóhannesson forsrh. bar upp í sinni eigin ríkisstj. till. frá Framsfl., þar sem gert var ráð fyrir 3.6% launahækkun. Þetta voru till. hliðstæðar þeim sem við í Alþfl. höfðum þegar lagt fram og þingflokkur okkar hafði skrifað upp á. Ráðh. okkar skýrðu okkur frá þessu og var ómögulegt að skilja það öðruvísi en um þetta væri samkomulag. Síðan hélt Alþb. sinn helgarfund, sem allir vita um og ég hygg að allri d. sé um kunnugt. Ólafur Jóhannesson skipti þá um skoðun og gerðist skyndilega maður launafólksins, að hleypa út meiri launahækkun, en því miður af innstæðulausum ávísunum, eins og öllum er auðvitað kunnugt um.
Þrátt fyrir þær ögranir, sem hæstv. forsrh. hafði hér í frammi er hann óskaði eftir því að ég nefndi hvaða vondir jafnaðarmenn hefðu sést á leynifundum með honum til að gera um það samsæri að launafólkið fengi ekki nema 3.6%, þegar hann af sinni gjafmildi vildi heldur að það fengi 6%, — eins og allir vita eru hann og Lúðvík gjafmildir menn — þá sé ég enga ástæður til að nefna nein nöfn. Þetta var aðdragandinn. Um þetta héldum við að væri samkomulag. Það kom okkur og ég veit mörgum flokksbræðrum hæstv. forsrh. á óvart þegar þessi tala hækkaði með þeim hætti sem hér hefur verið lýst.
Þeim öðrum orðum, sem hæstv. forsrh. hafði um þessi mál, vísa ég alfarið á bug. Við vorum tilbúnir að standa að því, að 3.6% færu út. Ég þarf ekki að skammast mín fyrir að hafa gert það. Þetta voru viðnámsráðstafanir gegn verðbólgu. En því miður fór ekki svo, að það kæmu gjafir af himnum ofan til Ólafs Jóhannessonar og Lúðvíks Jósepssonar.
Kjarni alls þessa máls er sá, að við höfum sett á oddinn viðnámið gegn verðbólgunni. Við viljum standa fyrir því, að samfélagið allt færi fórnir í þessu viðnámi. Við viljum vernda hagsmuni þeirra sem lægst hafa launin. En við viljum standa fyrir því, að það séu færðar fórnir. Þetta höfum við sagt mánuðum saman. Þetta sögðum við fyrir kosningar og þetta segjum við enn. Þetta verkefni skiptir meira máli en önnur verkefni, sem þó þarf auðvitað að vinna. Um þetta er almennt samkomulag, en hins vegar brestur á þegar lýsa skal leiðunum. Við leggjum það á okkur að lýsa leiðunum.
Við vitum hins vegar, að það eru settir upp pólitískir leikþættir hér. Ég veit ekki hvernig hæstv. viðskrh. hefur liðið þegar hann hlýddi á hæstv. forsrh. áðan. Viðskrh. kom sem kunnugt er í pontu hér í gær og lýsti þeim félagspakka sem ég veit að hann meinar og vill, ekki dreg ég góðan vilja hans í efa. Hann var að reyna að sannfæra sjálfan sig og þingheim og sennilega allan almenning um það, að vissulega væri hér um raunhæft metnar kjarabætur að ræða. Í kvöld var svolítið annar tónn í forsrh. Hann sagðist ekki hafa verið að blekkja neinn, ekki blekkja launþegahreyfinguna eða neinn, auðvitað væri erfitt og ekki hægt að meta þetta til kjarabóta þegar í stað. Og hvor er að blekkja? Ég er sannfærður um það, að hæstv. viðskrh. telur sig vera að fara með rétt mál. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað. En einkennilegur er leikþátturinn, sem hér er á svið settur. Auðvitað er því sem næst ógerlegt að meta slíka þætti nákvæmlega til fjár. En svona leikþætti eigum við ekki að setja á svið, við eigum að segja satt. Það hefði verið betur ef allar forsendur þessa frv. hefðu verið byggðar á því að ætla sér frá upphafi að segja satt og engan að blekkja.
Ég er sannfærður um það, ég hef raunar þóst vita það, að hv. 1. þm. Austurl., sem vissulega hefur mikil áhrif á þau efnahagsmál sem hér er verið að setja fram veit lítið um hagfræði. En ég hélt hann hefði meiri pólitíska vitsmuni en mér sýnist öll þessi framsetning segja til um. Bæði ræðan, sem hér var flutt um Alþfl. í dag, og það, sem hér hefur farið fram undanfarið, þykir mér bera vott um litla pólitíska vitsmuni. Þetta eru litlir pólitískir vitsmunir, vegna þess að með þessu frv. og með því, sem í kringum það hefur verið sagt, er gert ráð fyrir að allur almenningur í þessu landi sé skynlausar verur, sem hugsi ekki sé einhverjir spýtukarlar á skákborði stjórnmálanna. Almenningur í þessu landi er viti bornari en svo. Hann veit hvenær 14% eru ekki lengur 14%, heldur verða 6%. Allur almenningur veit þetta og hann verður ekki blekktur. En það breytir ekki hinu, og það var kjarni þessa máls og ástæða fyrir því að ég er að gera grein fyrir afstöðu okkar hér enn, að við viljum engan blekkja með því sem við erum að gera. Við vitum að þetta eru ekki 14%, heldur eru þetta 6%. Og við vitum að fyrir ári voru sömu hlutir kallaðir „kauprán“. Það breytir ekki hinu, að ég hef lýst enn af hverju við ætlum að veita þessu frv. brautargengi. Ástæðan er sú, að af tveimur vondum kostum tökum við þennan til að forða þjóðfélaginu frá enn meiri verðbólguskakkaföllum en annars hefðu orðið, í því viljum við taka þátt. En við biðjumst undan því að vera þátttakendur í sjónarspili, að vera þátttakendur í að blekkja fólk, enda er það svo — guði sé lof — að hvað sem þm. segja og hvernig sem reynt er að telja fólki trú um það að 14% og 6% séu eitt og hið sama, þá er fólkið í þessu landi ekki skynlausar verur.
Markmið okkar í verðbólgumálunum verða og eru metin að verðleikum. Ég er enn og aftur sannfærður um að þær ráðstafanir, sem við höfum verið að leggja til, þó að þær heiti „erfiðar“ á gamaldags pólitísku máli, eru réttar. Þær hafa vaxandi hljómgrunn meðal þessarar þjóðar. Ég bið ykkur, herrar mínir: Hugsið ykkur vel um áður en þið hafnið leiðum okkar alfarið. Ég endurtek það, og beini því einkum til ykkar í Alþb.: Hugsið ykkur vel um áður en þið hafnið okkar leiðum alfarið. Þið eruð búnir að gera mörg mistök allt frá því í vor. Þið eruð búnir að segja hluti sem þið getið ekki staðið við — allt frá því í vor og fram til þessa dags. Það eru enn möguleikar á því, að með okkur megi takast samvinna. Hugsið ykkur vel um — og einkum og sérstaklega þú, hv. 1. þm. Austurl. Hugsaðu þig vel um áður en þú hafnar leiðum okkar alfarið, því að það er ekki loku fyrir það skotið að samvinna megi takast með okkur.