29.11.1978
Neðri deild: 23. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (756)

106. mál, ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Mál þetta hefur verið þæft allmjög undanfarin dægur og e.t.v. er það að bera í bakkafullan lækinn að hafa fleiri orð um það, a.m.k. fyrir þá sem eru andstæðir því, svo rækilega hefur það verið rifið niður að grunni og þá aðallega af þeim, sem samt sem áður hafa greitt atkv. með samþykkt þess. Auk þess held ég að það sé þýðingarlaust fyrir þá, sem aðallega bera það fyrir brjósti og hafa borið það hér fram, hæstv. ríkisstj., að hafa um það fleiri orð, því að upplýst hefur verið úr stjórnarherbúðunum að þeir trúi ekki einu sinni eigin orðum, hvað þá meir. Á það var lögð alveg sérstök áhersla, að hv. yfirráðherra, hv. 1. þm. Austurl., Lúðvík Jósepsson, tryði engu orði af því sem hann sagði í þessu sambandi. Að vísu er fullmikið sagt, að hann trúi engu orði af því sem hann segir sjálfur, en hins vegar allt of mikið sagt, að hann trúi öllu sem hann segir sjálfur.

Við höfum fengið að hlýða á viðhorf stjórnarsinna til þessa máls, og ef ég hef tekið rétt eftir, þá eru viðhorf þeirra til þess, a.m.k. úr röðum Alþfl., með þeim hætti að með ólíkindum er að þeir skuli eftir sem áður ljá því fylgi sitt. Þeir hafa það að afsökun, að þeir séu nauðbeygðir til, þar sem annað verra yrði í boði ef þetta yrði ekki að lögum gert. Og raunar er það svo, að skelfingaróp þeirra og kveinstafir undir stjórnarokinu skera mann inn að hjartarótum. Það er líka mála sannast, að tæplega — a.m.k. kannast ég ekki við það, á þó að vísu ekki langa þingsögu — hefur svo hræmulegt lagafrv. verið lagt fyrir hið háa Alþingi sem þetta. Það er ekki einu sinni lögformlegt að gerð sinni og langt frá því, þar sem sumar greinar þess innihalda frómar óskir og áform og engum af þeim, sem mæla með þessu frv., hefur tekist að gera grein fyrir í hverju stefnuskráratriði þau, sem þarna birtast, eru fólgin.

Frv. ber með sér að ekki eigi að koma til framkvæmda nema hluti af verðbótavísitölu sem átti að koma til framkvæmda 1. des. Það er í raun og veru hið eina sem er hægt með vissu að ganga úr skugga um að felst í þessu frv. Allt annað eru loforð upp í ermina með óljósum orðum og óskilgreinanlegum. Ég kalla að svo sé, þótt hér sé talað berum orðum um niðurgreiðslur, af því sem ekki er gerð nein tilraun til þess að gera grein fyrir því, með hvaða hætti skuli afla þess fjár sem þarf til niðurgreiðslnanna, þannig að allt er þetta á eina bók lært.

Því var lýst yfir af hv. 7. þm. Reykv., að þær ráðstafanir, sem felast í þessu frv., væru gersamlega ónógar, hér væri á ferðinni stríð á þriggja mánaða fresti, í sept., í des. og svo mundi enn verða í mars, algerar bráðabirgðaráðstafanir, sem og felast beinlínis í frv. og orðanna hljóðan sem þar má lesa hér væri um engar heildstæðar ráðstafanir að tefla. Ég er honum hjartanlega sammála. Þetta stjfrv., afgreiðsla þess og málsmeðferð, sýnir það sem hv. þm. staðfestir sjálfur, þverbrest í stjórnarsamstarfinu sem hvað gleggst hefur auðvitað komið fram í máli hans og hv. 11. landsk. þm., Árna Gunnarssonar, og ekki hvað síst stórkostlegum mótmælum hæstv. forseta Ed., Braga Sigurjónssonar, þegar hann sagði af sér forsetastörfum. Í því sambandi vil ég aðeins skjóta því inn í, að það fer nú að verða mál til komið fyrir mig að biðja guð að hjálpa mér, ef varaforsetamennska mín í Nd. verður talin eitthvert samstarfstákn fyrir núv. hæstv. ríkisstj. Ég frábið mér slíkar stöðuúthlutanir, ef svo mætti segja. Ég er fulltrúi Sjálfstfl. í þeirri samvinnu, sem hefur tekist um stjórn þingsins, og annað ekki. Ég vona að það sé enginn misskilningur um þetta. En það kann að vera að hæstv. forseti Ed. hafi eitthvert bréf upp á það, að hann sé eitthvert sérstakt samstarfstákn í stjórnarherbúðunum, og þá er auðvitað lífsspursmál fyrir hann að ganga úr því embætti, sem gefur að skilja.

Hæstv. fjmrh., sem er fjarverandi, virðist enn hafa nokkra tiltrú hjá hv. Alþfl.-mönnum, þar sem því var lýst yfir að hann mundi vera hinn eini af hæstv. ráðh. sem meinar eitthvað með því sem hann segir varðandi baráttuna gegn verðbólgunni. Þá hafa menn það! Úr þessu hlýtur hv. þm. að hafa gengið úr skugga um og þreifað á sjálfur í hinum löngu þrætum og deilum sem hafa átt sér stað meðan unnið var að samningu þessa frv.

Því hefur verið lýst yfir af hv. stjórnarsinnum, að núv. ríkisstj. hafi ekki borið gæfu til að fara réttar leiðir í baráttu sinni við verðbólguna, sem vitaskuld er aðalvandamálið og mál málanna, hún hafi gert stórpólitísk mistök, sem eftir er að súpa seyðið af, og ég er hjartanlega sammála um þetta. En það er sjaldgæft á fyrstu vikum — getum við sagt — stjórnar, að slíkur vitnisburður sé fram borinn af hennar eigin stuðningsmönnum. Þessi orð og yfirlýsingar hafa ekki verið hrakin í þeim umr. sem hér hafa farið fram. Það er ekki einvörðungu hv. 7. þm. Reykv. sem hefur þóst hafa gengið úr skugga um þetta, heldur og ýmsir fleiri úr röðum Alþfl.manna, eins og ég nefndi: hv. 11. landsk., hv. 4. þm. Vestf. og enn fleiri, sem vafalaust eiga eftir að taka til máls um frv., en hefur ekki gefist kostur á því enn, eins og hæstv. forseti Ed., Bragi Sigurjónsson.

Þeirri spurningu veltu menn fyrir sér hér, stjórnarsinnar, hvort Alþb. væri yfirleitt stjórnarhæft, og ef ég tók rétt eftir komust menn eftir vandlega íhugun og glögga rökleiðslu að þeirri niðurstöðu, að svo væri ekki. Þessu er ég líka sammála. En það sem þeir þykjast þurfa að taka til bragðs, þeir sem fordæma þá aðferð sem hér á að viðhafa, sem er gersamlega gagnslaus — og það er rétt hjá þeim, er að fylgja eftir sem áður þessari lagasetningu. Það er með nokkrum ólíkindum og má raunar telja ganga mjög á svig við sjálft þingræðið, vegna þess að menn hafa og sumir alveg nýverið undirritað eiðstaf þess efnis að fara að samvisku sinni og engu öðru. Ef má marka ræðuhöld þeirra, þá fyrirbýður samviska þeim að greiða atkv. með slíkum ólögum sem þessum. Það er vitaskuld hið eina rétta, sem viðkomandi hv. þm. geta gert, að leita eftir stuðningi annars staðar við það mál sem þeir vilja fylgja fram. Og ég er ekki viss um það, eftir að hafa hlustað vandlega á hv. 7. þm. Reykv., að við t.a.m. stöndum mjög fjarri hvor öðrum í áliti okkar á því, hvernig ætti að snúast við þeim miklu vandamálum sem við er að glíma í dag. Og mér er nær að halda að svo sé um flesta mína samflokksmenn. Hann nefndi sem dæmi að við mundum ekki vera viðræðuhæfir um stjórn landsins eftir að hafa gengið úr skugga um það, að við værum ekki tilbúnir til þess að fylgja fram tillögugerð hans um raunvexti. Á þetta hefur vitanlega ekkert reynt, og það er auðvitað út í hött og sýnir ókunnugleika á þingstörfum, ef hann lætur sér til hugar koma að til þess dragi. Hann ætti aðeins að leiða hugann að því, að formaður fjh.- og viðskn., sem þetta mál hefur trúlega með höndum — mig minnir að búið sé að vísa því til n. — er ekki líklegur til að afgreiða það úr þeirri n. þannig að nokkurn tíma gangi um það atkv. En Sjálfstfl. hafði um það forustu í síðustu ríkisstj. að stórauka verðtryggingar og að amla þó a.m.k. í þá átt sem menn tala um þegar þeir ræða um raunvexti. En ég er ekki viss um að allir hafi gert sér fyllstu grein fyrir því, hvað þeir eiga við þegar þeir ræða um raunvexti. Ég kalla það ekki raunvexti að ætla sér á hverjum tíma að æða upp eftir öllum skölum og á eftir verðbólgunni. Og nú stendur þann veg á a.m.k. í okkar þjóðfélagi, að það er gersamlega út í hött að tala um að aðalatvinnuvegir þjóðarinnar geti staðið undir vöxtum sem nálgast óðaverðbólguna, og það væri að sætta sig við óðaverðbólguna að ætla sér að haga sér þannig. Ég tel að það sé óraunhæft að tala um raunvexti fyrr en við höfum náð verðbólgunni verulega niður, um 20–25%, en þá þurfum við líka að gæta þess, að ekki snúist þessi mylla öfugt, þannig að við náum þá raunvöxtum, því að það er lífsspursmál vegna sparifjáreigenda í landinu og alls búskapar okkar. En það er óframkvæmanlegt, eins og staða atvinnuveganna er í dag, að vextir verði t.a.m. 55% af fé. Það er gersamlega þýðingarlaust. Til þess þyrfti gerbreytingu á öllum högum aðalatvinnuveganna. (Gripið fram í: Þú ert alveg sammála Lúðvík?) Ekki segi ég það nú kannske, að ég sé alveg sammála hv. 1. þm. Austurl., en ég vil að þetta komi fram, vegna þess að ég bið þá um að mér verði sýnt fram á annað. Ég þykist alveg kunnugur því, hvernig háttar hjá aðalatvinnuvegum þjóðarinnar, eins og t.a.m. frystiiðnaðinum í landinu, og ég get upplýst að hringinn í kringum landið liggur við borð að sá rekstur stöðvist. Ég þekki til í öðrum atvinnurekstri, sem sæmilega hefur gengið, að vextirnir, hinir óraunhæfu vextir sem gilt hafa, eru að sliga þann atvinnurekstur. Auðvitað kemur margt fleira til í því sambandi. En þannig er þessu háttað, og meðan svo er, þá er þýðingarlaust að ætla að greiða fjármagnskostnað af þeim verðbólgustigum sem við búum við í dag. En að stefnu til erum við sammála um að nálgast raunvextina og ná þeim þegar og ef við, sem við væntanlega gerum, náum einhverjum tökum á verðbólgunni. Þá fyrst er hægt að setja sig í þær stellingar.

Það hefur verið sérkennilegt að hlusta á ýmsa þá útreikninga sem hér hafa átt sér stað. Þó er sem jafnan fyrr hv. 1. þm. Austurl. manna tölugleggstur. Ég tók rétt eftir því, að hann áleit, þar sem rætt er um félagslegar umbætur, að þær mundu kosta 1–2 milljarða, en hann bætti því samt við, sem að líkum lætur, að það væri erfitt að segja um þetta, því að það væri ekkert vitað hvað gert yrði. Þetta veit auðvitað enginn. Og ýmislegt af því, sem talið er hér upp, eru umbætur sem þegar hefur verið samið um í frjálsum samningum á vinnumarkaðinum — fjöldinn af þeim. Ég þykist líka hafa gengið úr skugga um það, að niðurgreiðsla á hverju vísitölustigi kostaði 1700 millj. kr., 1.7 milljarða. Hann ætlar að framkvæma hinar félagslegu umbætur, 3%, fyrir 1–2 milljarða. Það getur alveg eins verið að hann eigi við einn eins og tvo þarna. Þessum útreikningum kem ég ekki heim og saman með neinu móti. Og allt annað, sem hann reiknaði út, var vitaskuld út í hött. En hann margtók það fram, að það væri auðvitað undir því komið hvað yrði gert, hvað miklu fé þyrfti að verja til þess arna. Það lætur að líkum.

Hann sagði mjög merkilega setningu sem ég bókaði sérstaklega hjá mér. Hann sagði að þetta frv. fæli í sér þýðingarmiklar kjarabætur í óeiginlegri merkingu. Það er svo sem auðvitað, það getur hver maður séð, að þarna eru engar kjarabætur á ferðinni í eiginlegri merkingu. Ég nenni nú ekki að velta því fyrir mér, hvað hann raunverulega á við, en á enda og kanta var hann raunar að draga úr þýðingu þessa, þótt hann vildi svo sem í hinu orðinu gera mikið úr því.

Ég verð að segja það, að eftir framkomu forustumanna Verkamannasambandsins vegna fyrri ráðstafana fyrrv. hæstv. ríkisstj. er með ólíkindum að þeim skyldi verða það á að skrifa þakkarbréf á borð við það sem hæstv. forsrh. las upp við 1. umr. málsins. Þeir hefðu betur haft vit á að þegja. Það liggur alveg ljóst fyrir, að viðbrögð þeirra við febrúarlögunum voru ólögleg á margra handa máta. En viðsnúningur þeirra, — ég ætla ekkert að lasta út af fyrir sig að verkalýðshreyfingin sé til viðræðu um að bæta ástandið í okkar erfiðu efnahagsmálum, — en viðsnúningur þeirra gersamlegur nú er þeim til sárrar minnkunar og hlýtur að veikja þá mjög í sinum samtökum.

Menn hafa lítið gert að því að velta fyrir sér og rifja upp hina örstuttu sögu óðaverðbólgunnar sem við búum við. Þess hefur varla verið getið hvaða verðbólgustig var hér á landi 1971, þegar vinstri stjórnin fyrri tók við völdum eða sú í miðið. Menn hafa ekkert minnst á það, hver varð niðurstaðan af störfum vinstri stjórnarinnar 1956–1958, a.m.k, ekki svo að ég tæki eftir. Í desembermánuði 1958 gekk þáv. hæstv, forsrh. á fund Alþýðusambandsþings og fór fram á að gefin væru eftir verðbótastig, en fékk neitun og stjórnin sagði af sér undir þeirri yfirlýsingu hæstv, forsrh. þáv., Hermanns Jónassonar, að hann bæðist lausnar þar sem engin samstaða væri um úrræði innan þeirrar ríkisstj. og holskefla óðaverðbólgu væri skollin yfir.

Árið 1971, þegar vinstri stjórnin önnur tók við völdum, var hér um 10% verðbólga, mjög þolanlegt stig verðbólgu, ef miðað er við það sem þekkist í aðalviðskiptalöndum okkar. En þegar hún hraktist frá völdum eftir þrjú ár er verðbólgustigið 43%, og afleiðingar verka hennar fóru yfir 54% fyrir mitt ár 1975. Þetta er saga sem talar sínu máli og verður ekki hrakin.

Samstjórn Sjálfstfl. og Framsfl. tók ekki nógu föstum tökum á þessum málum, það liggur alveg ljóst fyrir. Það var ekki í tíma tekið aðalráðið, sem er heiftarlegur niðurskurður opinberra framkvæmda, og nú dugar ekkert minna, ef menn vilja í alvöru takast á við verðbólguna, en sársaukafullur niðurskurður allra opinberra framkvæmda og hvar sem því verður við komið. Það liggur ekki allur vandi í launum verkafólks, því fer víðs fjarri, þó að sá þáttur megi ekki eftir liggja heldur. En fyrrv. ríkisstj. tók ekki nógu föstum tökum á þessu. Hjólinu var áfram snúið af allt of miklum hraða, og ég hygg að í ársbyrjun 1977, þegar verkalýðshreyfingin hóf undirbúning að launa- og kjarabaráttunni, hafi þetta verið um seinan. Ég held meira að segja að eftir ófarir núv. ríkisstj. á örskömmum tíma kunni það líka að vera orðið um seinan að hún taki til þeirra ráða sem nauðsynleg eru, vegna þess að fólkið í landinu hefur fyllst vantrú á getu hennar til þess að ráða fram úr vandamálunum, og það er útilokað fyrir eina stjórn í landi að koma nauðsynlegum ráðstöfunum fram nema hafa tiltrú fólksins og velvilja þess að ná þeim fram. En þann veg hefur henni tekist á þessum örskamma tíma, enda staðfest af stjórnarsinnum sjálfum, að það er um seinan og fyrirsjáanlega hefst nýtt stríð innan þriggja mánaða og þá verður vafalaust siglt fyrir öll sker um leið. Það er þegar fjarað undan öllum árum hjá þessari skútu sem ýtt var á flot 1. september.

En játa ber að viðureignin við verðbólguna tókst ekki sem skyldi og er miður fyrir Sjálfstfl., sem margsinnis hafði tekið við slíku búi áður og sýnt að hann er í fullum færum að ráða þar á bót, sbr. sérstaklega eftir vinstri stjórnina fyrri árin 1959 og 1960 og áratuginn þar á eftir. En þó er það svo, að þegar verkalýðshreyfingin hóf kjarabaráttu sína á árinu 1977 stefndi mjög í rétta átt. Þá hafði gífurlegur árangur náðst í baráttunni við verðbólguna og á því ári komst hún um hríð niður í 26%. Ef þá hefðu tekist sættir á vinnumarkaðinum um skynsamlega samninga, þá værum við ekki í þeirri stöðu sem við erum í í dag. En á það vildu þeir ekki hlusta, þeir sem stýrðu pennanum í þakkarbréfinu til hæstv. forsrh. hér á dögunum, enda þótt það liggi ljóst fyrir, að verðbólgan leikur engan grár en hina lægst launuðu. Það var því miður of seint þegar í taumana var tekið með alvarlegum aðgerðum, með febrúarlögunum sem öllum eru í fersku minni. Þó er það svo, að ef það hefði verið haldið við þau ásamt því leyti hvað snerti yfirvinnuna, þá liggur ljóst fyrir að hinn lægst launaði var að kaupmætti til betur settur en hann verður núna eftir að þetta hrófatildur hefur verið sett upp. Og þetta er árangurinn af vasklegri framgöngu þeirra manna sem skrifuðu þakkarbréfið á dögunum!

En það er margt annað sem bæst hefur við af vandamálum. Hinn stórkostlegi vandi, sem velt hefur verið yfir á ríkissjóð, er allur óleystur. Það liggur alveg ljóst fyrir, að eins og fjárlagafrv. var lagt fram var það með milljarða halla, og það þarf engan spámann til þess að segja fyrir um það, að það verður milljarðahalli á ríkisbúskapnum á næsta ári — og þó þeir lengi árið upp í 16 mánuði.

Þetta ber allt að sama brunni. Ásamt því að gá að kaupmætti hinna lægra launuðu var lífsspursmál að taka gersamlega úr sambandi þá rammvitlausu kaupgjaldsvísitölu sem gildir og bein sjálfvirkni er fólgin í, — sjálfvirkni fyrir vaxandi verðbólgu á hverjum tíma. Auðvitað þurfti að gera þetta, en í leiðinni hafa góðar gætur á því, að ekki hrapaði niður kaupmáttur hinna lægra launuðu, og þetta mátti gera með öðrum aðferðum einnig, eins og í skattamálum.

Nú boðar hæstv. ríkisstj. nýjar skattálögur eftir aðfarir sínar á liðnu hausti með afturvirkni skatta. Það er auðvitað ágætt ráð í verðbólgu og verðþenslu að beita skattpíningu, það er alþekkt ráð, en þó því aðeins að haldið sé utan um það fé, sem þann veg safnast upp, og því ekki ausið jafnóðum út í eyðsluhít, eins og nú á að gera og gert er jafnóðum, vegna þess að með þeim hætti er þetta aðeins olía á verðbólgubálið. Allt stefnir þetta í þá átt.

Í frv. og í grg. þess kemur fram, með leyfi forseta: „Leitast verði við að ná svipuðum markmiðum fyrir önnur kaupgjaldsbreytingatímabil á árinu 1979, þannig að verðbólgan náist niður fyrir 30% í lok ársins.“ Ég heyrði ekki betur en hv. 1. þm. Austurl. væri að þrætast á um það úr sæti sínu, að þetta bæri ekki að skilja svo, að menn stefndu að því að ná, eins og segir í fyrri mgr. þarna, að „stefnt verði að því í samráði við aðila vinnumarkaðarins að verðlags- og peningalaunahækkanir 1. mars 1979 verði ekki meiri en 5%“. Ég heyrði ekki betur en hv. 1. þm. Austurl. væri að þrætast á um það í sæti sínu, eins og ég sagði, að þetta bæri ekki að skilja svo. Auðvitað er þetta beinlínis boðað hér, stefnuskráratriði, alveg jafngilt og stefnuskráratriðin í sjálfum lagagr., að það eigi að leita til vinnustéttanna með að halda kauphækkun, peningalaunahækkunum, innan við 5% á hverju þriggja mánaða tímabili árið 1979. Nú liggur það alveg ljóst fyrir, að verðbótavísitalan verður ekki 5% og þar fyrir neðan 1. mars n.k. Hún verður 11–12% a.m.k., ef ekki meir, og þá hefur því verið haldið fram af ýmsum hv. þm. héðan úr ræðustól nú, að þýðingarlaust væri að vega á ný í þennan sama knérunn við vinnustéttirnar. Hv. 11. landsk. þm. tók af skarið um það í ræðu sinni hér í gær, að það væri um tómt mál að tala að Alþfl. léti hafa sig til þessara verka á nýjan leik. En við sjáum hvað setur í því efni.

Það er þverbrestur í þessu stjórnarsamstarfi eftir þriggja mánaða stjórnarsetu, og því er lýst yfir af stjórnarsinnum sjálfum að svo sé komið málum, haft í stórkostlegum hótunum, og upp á þetta horfir landslýðurinn, sem gerði sér vonir um það, það sýndu úrslit þingkosninganna á vori liðnu, að ný ríkisstj. og þá þessi mundi taka þeim tökum á vandamálunum að til viðreisnar horfði. Sannanir liggja fyrir um það nú eftir örskamma hríð, að hún tekur alveg öfugt á þeim málum. Við höfum staðfestingu á því, ekki af fullyrðingum okkar og upplýsingum stjórnarandstöðunnar, heldur úr herbúðum þeirra sjálfra, að svo sé komið málum, þann veg hafi verið haldið á málum. Og einvörðungu af því að þeir sjá engin ráð í bili, þá þykjast þeir til þess neyddir að fylgja fram þessari lagasetningu, — af þeim ástæðum einum, af því að þeir finna engin önnur ráð. En þeir hljóta og þeim ber skylda til þess að reyna að leita eftir þeim innan tíðar og þeir geta ekki lengur búið við þetta. Það heyra allir holhljóminn í þeim málflutningi Alþfl.-manna, að þeir eru stórgagnrýnir á þetta í öllum atriðum og telja það óhæfu eina sem hér er verið að gera. En af því að þeir sjá ekki betri úrræði, þá verða þeir að fallast á þetta og falla um leið frá öllum sinum kosningaloforðum og yfirlýsingum frá því í kosningunum í sumar, sem þeir unnu sinn glæsilega sigur á. Allur almenningur sér og heyrir þennan holhljóm. Þetta er þýðingarlaus spilamennska sem þeir hafa hér í frammi. Ég vil aðeins minna hina ungu menn á það, að Alþfl. hefur unnið með Sjálfstfl. — vann um 12 ára skeið — og allir eru sammála um það, að þá hafi betur tekist til um stjórn þessa lands en á öðrum tímum í sögu þessa lýðveldis. Honum væri nær að athuga það, hvort hann gæti ekki fitjað upp á einhverju slíku stjórnarsamstarfi á nýjan leik sem fært gæti okkur heilbrigðari stjórn í landi en þetta. Að vísu þarf að kjósa til Alþingis einu sinni fyrst, og þá er spurningin hverjar þakkir verða til þessara hv. þm. Alþfl. ef þeir ætla að halda svo frá stefnunni sem raun ber vitni.

Langelsti þingmaður þeirra, hv. þm. Bragi Sigurjónsson, var sá eini sem hafði nokkurn kjark til þess að mótmæla svo undir tók.

Það markar auðvitað enginn málrófssama menn eins og hv. þm. Vilmund Gylfason, þegar hann tætir frv. niður í grunn, en greiðir samt atkv. með því. Það tekur auðvitað enginn mark á slíku, það er ekki hægt, vegna þess að hann ofbýður samvisku sinni að öllu leyti með þeim hætti. Meira að segja er það svo, að það þarf ekkert á atkv. hans að halda til þess að frv. verði að lögum. Þeir, sem hæst hafa talað gegn þessu frv., hefðu þess vegna getað fengið frí frá því að ganga undir þetta jarðarmen, og eins og ég segi, skelfingaróp þeirra undan stjórnarokinu skera mann að hjartarótum. En ef þeir halda að þeir geti blekkt almenning með því, að þeir haldi alveg fram sinni stefnu, eins og þeir lofuðu í kosningunum, þrátt fyrir það að þeir beygja sig undir öll þessi ok, þá er það alger misskilningur. Þá álíta þeir að allur almenningur sé skynlausar skepnur. Það er kannske ástæða til fyrir þá að skrifa ekki skynsemi almennings hátt eftir þau úrslit, sem urðu í kosningunum vor, og allan þann sigur, sem þeir báru úr býtum. Það er a.m.k. vorkunn fyrir mig, en það ætti ekki að vera fyrir þá, heldur ættu þeir að vera fullir af þakklæti og reyna að standa við eitthvað af því sem þeir hafa lofað. Þeir þykjast með þessari afstöðu sinni gera þetta einvörðungu til þess að bjarga andliti Alþb. vegna kosningaloforða þess frá því í vor. Ef refirnir eru til þess skornir af hæstv. forsrh., þá er alveg ljóst að sjálfir hafa þeir þegar í stað tapað andlitinu, glatað því gersamlega. Og eins og ég segi, málróf hér á þingi um að þeir séu heilagir menn sem beri gott skyn á þetta og kunni öll ráðin, en fái ekki að beita þeim, og greiða svo atkv. með þegar til úrslita kemur, slíkt getur ekki orðið nema hin hörmulegasta hneisa sem uppi verður meðan Alþingi stendur.