30.11.1978
Efri deild: 21. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1195 í B-deild Alþingistíðinda. (784)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Ég vil taka fram, að ég lít svo á að það sé ekki búið að ganga frá þessu forsetamáli sem hér hefur verið vakið máls á. Hv. 3. þm. Norðurl. e. hefur sagt af sér forsetastörfum, en samkv. þingsköpum á að fara þannig með það mál, eins og segir í þingsköpum, að ef embættismaður þingsins segir af sér eða leggur niður starf, þá þarf að koma leyfi þd. fyrir því. Það hefur ekki komið enn þá, og ég lít svo á að formlega sé hv. 3. þm. Norðurl. e. því forseti deildarinnar og það sé ekki rétt að deildin sé forsetalaus.
Það er ekkert óeðlilegt að varaforsetar gegni störfum. ef ástæður eru til, og það er vissulega undir þessum kringumstæðum ástæða til þess að varaforsetar gegni störfum meðan ekki er búið að ganga frá þessu máli. Ég hef gert ráð fyrir að það verði gert á fundi deildarinnar n.k. mánudag. Það hefur ekki verið gert vegna þess að það hefur þurft að hafa samráð við fulltrúa þingflokkanna út af þessu máli. Og ég veit að sums staðar verður þetta tekið fyrir á fundum þingflokkanna. En ég hef gert ráðstafanir til þess að málið verði tilbúið til afgreiðslu á mánudaginn kemur.
Það hafa nokkrir kvatt sér hljóðs út af þessu máli. Ég vil mega mælast til þess, að menn verði stuttorðir um þetta, svo að við getum tekið til við dagskrármálið sem fyrst.