30.11.1978
Efri deild: 21. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (790)

Umræður utan dagskrár

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Það skal verða örstutt aths. og meinlaus. Ég vil aðeins þakka hæstv. forseta fyrir þann úrskurð sem nú liggur fyrir. Nú er það ljóst, að hv. þd. hefur þrjá forseta, en ekki tvo, eins og margir hafa haldið og nauðsynlegt var að fá skýran úrskurð um. Hv. 3. landsk. þm. lét það einmitt koma fram í sínu máli, að deildin hefði tvo forseta, en síðan úrskurðaði hæstv. forseti að deildin hefði þrjá, sem rétt er. Hv. 3. landsk. þm. kom svo í ræðustól og sagði úrskurð hæstv. forseta réttan, sem var ágætt og gott þegar menn taka sinnaskiptum á svo skömmum tíma, þegar það er til hins betri og réttari vegar.

Ég vil einnig þakka hæstv. forsrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann gaf í þessu sambandi. Ég hef ekki minnstu löngun til að tefja meðferð máls sem hér er á dagskrá. Ég tel það hins vegar skipta miklu máli, að við umgöngumst þau lög, sem þingið starfar eftir, með réttum hætti og tökum hið fyllsta tillit til þeirra, og satt að segja undraði það mig svo, að ég trúði því ekki, að hv. 3. þm. Norðurl., hæstv, forseta, hefði ekki verið sýnd meiri virðing en svo, að afsagnartilkynning hans hefði ekki verið tekin til greina, heldur hefði málið verið látið eiga sig í marga daga.

Eins og hæstv, forsrh. tók fram hefur það tíðkast, að með kosningu nýs forseta hefur verið litið svo á að samþykki væri veitt til afsagnar þess sem áður var kjörinn forseti. Þegar Jóhann Hafstein varð ráðh. á sínum tíma og Sigurður Bjarnason var kjörinn deildarforseti í stað hans, þá gerðist það samdægurs. Þess vegna var það, að ég hlaut að undrast að slíkur háttur hefði ekki verið á hafður nú. En hæstv. forseti hefur skýrt það mjög glöggt og greinilega, að það er rangt sem bæði ég og ég held allur almenningur í þessu landi hefur haldið, að forseti deildarinnar væri búinn að segja af sér. Málið er aftur þannig, að deildin hefur bæði aðalforseta og tvo varaforseta og ég þakka fyrir þá skýringu.