30.11.1978
Efri deild: 21. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (793)

106. mál, ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu

Frsm. meiri hl. (Jón Helgason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu. N. hélt einn fund sameiginlegan með fjh.- og viðskn. Nd. og komu þar fulltrúar Þjóðhagsstofnunar og fjmrn. og gáfu skýringar við frv. Enn fremur komu til viðtals fulltrúar frá Vinnuveitendasambandinu, Verslunarráði, Alþýðusambandi Íslands og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja.

Eins og ekki kom á óvart voru umsagnir þessara aðila nokkuð misjafnar.

Fulltrúar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja töldu ekki rétt að farið með setningu þessara laga, en lögðu þó áherslu á að þeir yrðu hafðir með í ráðum við setningu laga um þær félagslegu úrbætur sem ríkisstj. mun beita sér fyrir, en á slíkt hefði skort hingað til, að leitað væri til þeirra við slíkar aðstæður. Bentu þeir sérstaklega á að þörf væri breytinga á lögum um lífeyrissjóð þeirra, þar sem nokkur hluti félagsmanna Bandalags starfsmanna ríkis og bæja gæti ekki fengið þar full réttindi. Mestu áherslu lögðu þeir þó á að dregið væri úr fjárfestingu til að halda uppi eðlilegum lífskjörum.

Fulltrúar Alþýðusambands Íslands töldu það tilraunarinnar vert að fara þá leið sem frv. gerir ráð fyrir, enda hefur verið bent á það, að ýmsar lagasetningar, sem samið hefur verið um milli launþega og ríkisvalds, halda gildi sínu þótt breytingar verði á kjarasamningum.

Fulltrúi Verslunarráðsins sagði að heildarlaunagreiðslur atvinnuveganna yrðu 24–27 milljörðum lægri vegna þeirra ráðstafana sem í frv. felast, en samt sem áður sögðust fulltrúar Vinnuveitendasambandsins enga trú hafa á að þetta plagg sé barátta gegn verðbólgu.

Það er ekki nýtt, að skoðanir séu skiptar um aðgerðir í efnahagsmálum, og það er ekki heldur nýtt, að slíkar aðgerðir þurfi að gera, enda þótt alltaf sé verið að tala um að finna þurfi varanlega lausn. Slík lausn virðist torfundin, og ég er hræddur um að það sé nokkuð mikil óskhyggja að vonast eftir því að finna hana. efnahagsmálin eru þess eðlis, að þau hljóta að þurfa að verða til stöðugrar athugunar. Það, sem skiptir mestu máli við þær aðgerðir sem gerðar eru hverju sinni, er að það stefni í rétta átt. En það er ekki hægt að sannfæra mig um að það sé ekki gert þegar dregið er meira en um helming úr snúningi verðbólgunnar að þessu sinni eða úr 14% launahækkun niður í 6%. Það eru þá a.m.k. haldlitlar fullyrðingar þeirra sem halda því fram, að launahækkun sé stærsti verðbólguvaldurinn, ef svo er ekki.

Að vísu heyrist því ýmist haldið fram, að hér sé um að ræða 8% bótalaust kauprán eða verja eigi svo miklu til þeirra ráðstafana sem samkv. frv. eiga að. koma þar á móti, að til þeirra muni þurfa að verja jafnmiklu fjármagni. Hvort tveggja mun þó vera rangt. Í yfirliti frá Þjóðhagsstofnun um kaupmátt kauptaxta og ráðstöfunartekna, sem n. barst, kemur fram að ef ársmeðaltal 1974 er sett 100, þá er kaupmáttur kauptaxta nú 1. des. 101, en ársmeðaltal ráðstöfunartekna ársins 1978 verður 105. Og í spá, sem Þjóðhagsstofnun hefur gert fyrir árið 1979, er talið hægt að draga mjög úr hraða verðbólgunnar á grundvelli aðgerða núv. ríkisstj., enda þótt öllum sé ljóst að til þess að ná því marki þurfi sameiginlegt átak þjóðarinnar allrar. Og þá verður að gæta þess, að kröftunum sé ekki sóað í deilur um leiðir.

Fram undan er afgreiðsla fjárl., en þar hefur markið verið sett um jafnvægi í ríkisbúskapnum fyrstu 16 mánuði starfstíma þessarar ríkisstj. Til þess að ná því hefur m.a. verið ákveðið að draga nokkuð úr fjárfestingu á meðan verið er að ná verðbólgunni niður. Það er sá skattur sem við verðum að greiða verðbólgunni. Vitanlega verður alltaf að gæta fyllstu hagsýni við fjárfestingu, jafnvel þótt aðstæður batni, og þau mistök á því sviði, sem hægt er að benda á, geta orðið okkur þar víti til varnaðar. Hins vegar vil ég vara við að ætla sér að nota slíkan samdrátt í of ríkum mæli til að bæta lífskjör. T.d. má benda á að fyrir það fólk, sem hefur orðið að búa við rafmagnsleysi annan hvern dag hluta af þessu ári, bærir það áreiðanlega lífskjörin að leggja nokkuð í sameiginlegan sjóð til að koma þeim málum í viðunandi horf, því að fátt er nauðsynlegra en næg og örugg raforka. Þennan samdráttaráróður má því ekki reka af of mikilli þröngsýni. Öfgar eru þar hættulegar eins og í öðrum greinum þjóðfélagsmála.

Hæstv. forsrh. hefur gert svo ítarlega grein fyrir efni og aðdraganda þessa frv., að ég sé ekki ástæðu til að ræða það frekar nú þar sem afgreiða þarf þetta mál nú í dag. En meiri hl. fjh.- og viðskn. mælir með því að frv. verði samþ. óbreytt, en einstakir nm. áskilja sér rétt til að gera nánari grein fyrir afstöðu sinni í umr.