30.11.1978
Efri deild: 21. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (795)
106. mál, ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Hv. 2. þm. Norðurl. e. hefur gert mjög glögga grein fyrir afstöðu Sjálfstfl. í hinni snjöllu ræðu sinni og ég hef í sjálfu sér ekki neinu efnislegu við það að bæta. Ég vil einungis taka undir efni ræðu hans. En mig langar til að bera fram litla fsp. til hæstv. forsrh. að gefnu tilefni. Ég sé að í dagblaðinu Vísi er á forsíðu í dag rætt um tillögu um skattabreytingar í ríkisstj. Þar er rætt um að lagt verði á borgara landsins sérstakt 10% ríkisgjald. Um það er að ræða samkv. fregnum blaðsins að leggja eigi niður skyldusparnaðinn sem nú er í gildi, en taka í staðinn upp sérstakt 10% gjald, í stað skyldusparnaðarins komi jafnhár skattur. Skyldusparnaðurinn leggst á tiltekið tekjumark núna með vissum frádrætti, en í þessari fregn er talað um að þetta gjald muni leggjast á brúttótekjur. Þar sem hér er ekki um að ræða formlega fregn frá ríkisstj., en hins vegar fjallað um mikið stórmál, þá þykir mér hlýða í sambandi við afgreiðslu þessa máls að hæstv. forsrh. geri þingheimi grein fyrir því, hvað hér er á ferðinni, hvert sé sannleiksgildi þessa máls, hvort leggja eigi á 10% skatt í staðinn fyrir skyldusparnaðinn og þá á hvaða tekjur slíkur skattur eigi að leggjast.