10.10.1978
Sameinað þing: 1. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (8)

Rannsókn kjörbréfs

Aldursforseti (Oddur Ólafsson):

Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs og er umræðum lokið. Framsögumenn kjördeilda hafa hver fyrir hönd sinnar kjördeildar lagt til að þau kjörbréf, sem deildirnar hafa haft með höndum, verði samþykkt og kosning og kjörgengi þm. tekið gilt. Verða tillögur kjördeildanna bornar upp í einu lagi ef enginn hreyfir mótmælum.