30.11.1978
Neðri deild: 25. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (815)

91. mál, biðlaun alþingismanna

Gunnlaugur Stefánsson:

Forseti. Ég vil taka það fyrst fram, að ég lýsi andstöðu minni við þetta frv. eins og það birtist hér.

Í fyrsta lagi vil ég segja það, að kjörtími alþm. er hámark fjögur ár og þar með er þeim kjörtíma lokið. Fyrir þann tíma hafa hv. þm. þegið eðlilegar launagreiðslur. Þeir þurfa að sækja um nýtt umboð til kjósenda ef þeir hafa hug á endurkjöri til Alþingis. Þeir standa í kosningum jafnfætis þeim frambjóðendum, sem þá keppa einnig um sömu þingsæti. Því tel ég óeðlilegt eftir eðlilega lengd kjörtímabils að hv. þm. þiggi biðlaun. Þess vegna boða ég það hér, að við 2. umr. mun ég bera fram brtt. við frv. um að biðlaunin skuli eingöngu miðast við að kjörtímabil standi skemur en fjögur ár, en ekki verði greidd biðlaun að loknu fjögurra ára kjörtímabili, þ.e. þegar þing stendur skemur en fjögur ár geti hv. þm. notið biðlauna a.m.k. þrjá mánuði, en óþarfi að hafa það sex mánuði fyrir þá sem hafa verið eitthvað lengur en aðrir.

Í öðru lagi vil ég lýsa algerri andstöðu minni við 2. gr. frv., að þetta nái til þeirra sem sátu á þingi á síðasta kjörtímabili, en sitja ekki á þingi núna. Ég spyr hv. formann þfkn., sem er 1. flm. þessa frv.: Af hverju er þetta ekki látið ná allt aftur til 1959? Af hverju er þetta endilega látið ná aftur fyrir síðustu kosningar? Er ekki erfitt að draga mörkin um það, hversu langt aftur þetta eigi að ná? Ég tel raunverulega enga skynsemi í því að fara lengra á þeirri braut að leggja fram hér frv. til l. um ýmiss konar afturvirkni. Ég tel að við ætlum að reyna að miða gildi laga frá Alþ. jafnan við þann dag sem lögin eru undirrituð, nema um sérstakar aðstæður sé að ræða.