30.11.1978
Neðri deild: 25. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1231 í B-deild Alþingistíðinda. (819)

91. mál, biðlaun alþingismanna

Flm. (Garðar Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil ekki nú fremur en áðan hafa neitt sérstaklega hátt um þetta mál. Ég sé ekki ástæðu til þess. Mér finnst þetta vera sanngirnismál miðað við það sem gerist annars staðar í þjóðfélaginu. Og ég er ekkert sérstaklega viðkvæmur fyrir því þó að þetta komi til umr., eins og vikið var að hér áðan, einmitt þá daga sem verið er að afgreiða það mikla frv. sem við höfum verið að glíma við að undanförnu. Það væri ekkert stórmannlegra að vera að draga þetta þangað til einhvern tíma bæri minna á þessu. Það er best að taka þetta þegar að því kemur og standa við það, hvernig sem ástandið er að öðru leyti.

Ég kem hér upp aftur kannske fyrst og fremst vegna þess, að þegar ég gat um fyrirvara tveggja hv. flm. þessa máls, þá vissi ég ekki betur eða hafði ekki tekið eftir öðru en þeir hefðu sams konar fyrirvara, þ.e.a.s. einungis fyrirvara um það báðir að aðeins yrði um þriggja mánaða greiðslu að ræða mest. Ég vil biðja hv. þm. Árna Gunnarsson afsökunar á því að hafa gleymt þessu eða ekki tekið nákvæmlega eftir því, hver fyrirvari hans var. En fyrirvari hans var, auk þessa um þrjá mánuðina, um það, að hann var á móti svokallaðri afturvirkni.

Ég vil benda á það einu sinni enn, að það var shlj. samþykkt fyrrv. þingfararkaupsnefndar á síðasta þingi að þetta væri réttlætismál. Frv. um þeim efni varekki lagt fram og samþykkt ásíðasta þingi, en menn voru sammála um að það yrði gert á næsta þingi. Eins og hv. síðasti ræðumaður sagði hér áðan, þá er ekki nokkur vafi á því, að menn ætluðust til þessa að þeir, sem þá sátu á þingi, féllu undir þessi lög, þegar samþykkt væru. Mér finnst afar einkennilegt þegar hv alþm. standa upp og mótmæla sérstaklega þessari svokölluðu afturvirkni. Þeir eru sem sagt tilbúnir að samþykkja frv. af þessu tagi fyrir sig og þá, sem sitja með þeim á þingi, en ekki fyrir þá sem hurfu af því síðast. Mér finnst þetta ekki ýkja stórmannlegt, ekki síst þegar tekið er tillit til þess að hér er ekki um raunverulega afturvirkni að ræða vegna einróma samþykktar þfkn. frá því í fyrra. Þetta ættu þessir ágætu menn að skilja.

Herra forseti. Ég vil þá að lokum Leggja til að þessu máli verði vísað að lokinni þessari umr. til hv. fjh.- og viðskn.