19.10.1978
Sameinað þing: 5. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í B-deild Alþingistíðinda. (82)
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Stefna sú, sem ríkisstj. mun fylgja fram á þessu þingi, er í stórum dráttum ákveðin í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna frá 1. september s.l. Þó að sú samstarfsyfirlýsing hafi þegar verið kynnt, þykir mér rétt að birta þingheimi meginatriði hennar á formlegan hátt og festa hana þar með í þingtíðindum.
Skipta má samstarfsyfirlýsingunni í tvo meginþætti. Hinn fyrri fjallar um efnahagsmál, en hinn síðari um önnur mál, og kennir þar ýmissa grasa svo sem eðlilegt er. Auk þess má svo segja að samstarfsyfirlýsingunni fylgi eins konar eftirmáli eða viðauki þar sem gert er ráð fyrir endurskoðun hennar á næsta ári, Í þættinum um efnahagsmál er annars vegar fjallað um þau markmið, sem að er stefnt, og hins vegar um leiðir eða aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Þar er í fyrsta lagi lögð áhersla á samráð og samstarf við aðila vinnumarkaðarins. Er þar í raun og veru um að ræða eins konar hornsteina sem samstarfsyfirlýsingin er reist á, og er þar að finna undirstöðu þessa stjórnarsamstarfs.
Í samstarfsyfirlýsingunni segir svo um markmið þessa stjórnarsamstarfs:
„Ríkisstj. telur það höfuðverkefni sitt á næstunni að ráða fram úr þeim mikla vanda, sem við blasir í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar. Hún mun því einbeita sér að því að koma efnahagsmálum á traustan grundvöll og tryggja efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, rekstrargrundvöll atvinnuveganna, fulla atvinnu og treysta kaupmátt launa.
Ríkisstj. mun leggja áherslu á að draga markvisst úr verðbólgunni með því að lækka verðlag og tilkostnað og draga úr víxlhækkunum verðlags og launa og halda heildarumsrifum í þjóðarbúskapnum innan hæfilegra marka. Hún mun leitast við að koma í veg fyrir auðsöfnun í skjóli verðbólgu.
Ríkisstj. mun jafnframt vinna að hagræðingu í ríkisrekstri og á sviði atvinnuvega, með sparnaði og hagkvæmri ráðstöfun fjármagns.
Ríkisstj. mun vinna að félagslegum umbótum. Hún mun leitast við að jafna lífskjör, auka félagslegt réttlæti og uppræta spillingu, misrétti og forréttindi.“
Hér eru meginatriði stjórnarsamstarfsins dregin saman í hnotskurn. Síðan er svo gerð grein fyrir því, hvernig ætlunin er að ná þessum markmiðum, og er þá fyrst vikið að sjálfri forsendu stjórnarsamstarfsins, þ.e. samstarfinu við aðila vinnumarkaðarins. Segir svo um það:
„Ríkisstj. leggur áherslu á að komið verði á traustu samstarfi fulltrúa launþega, atvinnurekenda og ríkisvalds, sem miði m.a. að því að treysta kaupmátt launatekna, jafna lífskjör og tryggja vinnufrið.
Unnið verði að gerð þjóðhags- og framkvæmdaáætlunar, sem marki m.a. stefnu í atvinnuþróun, fjárfestingu, tekjuskiptingu og kjaramálum. Jafnframt verði mörkuð stefna um hjöðnun verðbólgu í áföngum og ráðstafanir ákveðnar, sem nauðsynlegar eru í því skyni, m.a. endurskoðun á vísitölukerfinu, aðgerðir í skattamálum og ný stefna í fjárfestingar- og lánamálum.“
Að sjálfsögðu hafa ríkisstjórnir áður haft það á stefnuskrá sinni að leita eftir samstarfi við aðila vinnumarkaðarins og hafa við þá samráð. Samt held ég að segja megi að hér sé farið inn á nýja braut. Í fyrsta lagi er lagður meiri þungi á þetta atriði en nokkru sinni fyrr, þar sem það er beinlínis gert að forsendu stjórnarsamstarfsins. Í annan stað hefur stjórnin eigi látið hér sitja við orðin tóm. Hún lét það verða sitt fyrsta verk að koma formlegri skipan á þetta samráð við aðila vinnumarkaðarins, og það var fyrst eftir að slíkt samráð hafði átt sér stað að sett voru bráðabirgðalögin um kjaramál frá 8. sept. s.l. Reyndar má segja að til þessa samráðs hafi verið stofnað þegar áður en stjórnin var mynduð og þá alveg sérstaklega við helstu launþegasamtökin. Var einmitt með þeim hætti lagður grundvöllur að ýmsum efnisatriðum stjórnarsáttmálans.
Reynslan ein fær úr því skorið, hvernig til tekst um þetta samráð og hvort það ber tilætlaðan árangur. Auðvitað getur ríkisstj. aldrei skotið sér undan neinni ábyrgð með skírskotun til þessa ákvæðis. En hér er a.m.k. um merkilega tilraun að ræða.
Þessu næst er í yfirlýsingunni fjallað um fyrstu aðgerðir í efnahagsmálum. Segir þar svo:
„Til þess að tryggja rekstur atvinnuveganna, atvinnuöryggi og frið á vinnumarkaði og veita svigrúm til þess að hrinda í framkvæmd nýrri stefnu í efnahagsmálum mun ríkisstj. nú þegar gera eftirgreindar ráðstafanir:
1) Lög um ráðstafanir í efnahagsmálum frá febrúar 1978 og bráðabirgðalög frá maí 1978 verði felld úr gildi. Laun verði greidd samkvæmt þeim kjarasamningum, sem síðast voru gerðir, þó þannig að verðbætur á hærri laun verði sama krónutala og á laun, sem eru 233.000 kr. á mánuði miðað við dagvinnu.
2) Verðlag verði lækkað frá því sem ella hefði orðið, m.a. með niðurgreiðslum og afnámi söluskatts af matvælum, sem samsvarar 10% í vísitölu verðbóta 1. sept. og 1. des. 1978, og komið verði í veg fyrir hvers konar verðlagshækkanir eins og unnt reynist. Ríkisstj. mun leggja skatta á atvinnurekstur, eyðslu, eignir og hátekjur og draga úr útgjöldum ríkissjóðs til þess að standa straum af kostnaði við niðurfærsluna.
3) Til þess að koma í veg fyrir stöðvun atvinnuveganna verði þegar í stað framkvæmd 15% gengislækkun, enda verði áhrif hennar á verðlag greidd niður (sbr. lið 2).
4) Rekstrarafkoma útflutningsatvinnuvega verði bætt um 2–3% af heildartekjum með lækkun vaxta af afurða- og rekstrarlánum og lækkun annars rekstrarkostnaðar.
5) Gengishagnaði af sjávarafurðum verði ráðstafað að hluta í Verðjöfnunarsjóð, að hluta til útgerðar vegna gengistaps og loks til hagræðingar í fiskiðnaði og til þess að leysa sérstök staðbundin vandamál.
6) Verðjöfnunargjald það, sem ákveðið hefur verið af sauðfjárafurðum í ár, verði greitt úr ríkissjóði.“ Heita má að nær allar þessar ráðstafanir hafi þegar verið gerðar. Þegar ríkisstj. var mynduð blasti við fjölþættur vandi í efnahags- og atvinnumálum sem dregist hafði að leysa, þar sem hér sat stjórn sem hafði sagt af sér og gat aðeins sinnt nauðsynlegum afgreiðslustörfum, en ekki markað pólitíska stefnu.
Það var því brýn nauðsyn, að núv. ríkisstj. hefði snör handtök og gripi þegar í stað til ráðstafana er tryggt gætu áframhaldandi rekstur atvinnuvega, atvinnuöryggi og vinnufrið. Þess vegna var strax tekin ákvörðun um nýja gengisskráningu og gefin út brbl. 5. sept. s.l. um ráðstöfun gengismunarsjóðs o.fl. Og þess vegna voru hinn 8. sept. s.l. gefin út brbl, um kjaramál, en í þeim lögum er einmitt að finna flestar þeirra ráðstafana sem í samstarfsyfirlýsingunni eru taldar til hinna fyrstu aðgerða. Þar er t.d. að finna ákvæði um kjarasamninga og um greiðstu verðbóta á laun, og eru þau í samræmi við fyrirheit stjórnarsáttmálans, auk fyrirmæla um bætur almannatrygginga. Í þessum brbl. eru og ákvæði um niðurfærslu vöruverðs og verðlagseftirlit, og eru þau einnig í samræmi við samstarfsyfirlýsinguna. Þá eru og fyrirmæli um tekjuöflun og heimildir til lækkunar ríkisútgjalda til þess að mæta þeim útgjaldaauka og tekjumissi sem stafar af ráðstöfunum til niðurfærslu verðlags.
Þar sem Alþingi mun síðar sérstaklega fjalla um þessi brbl. og þ. á m. um tekjuöflunarákvæði þeirra, skal eigi fjölyrt frekar um þau hér.
Af eðlilegum ástæðum er fjárlagafrumvarp ekki lagt fram í þingbyrjun. Það er að sjálfsögðu bagalegt. En ríkisstj. gat ekki vegna ákvarðana, sem hún tók í upphafi ferils síns og snerta fjárhag ríkissjóðs, annað en endurskoðað það fjárlagafrv. sem lá fyrir í drögum, þegar hún var mynduð. Þeirri meginstefnu verður fylgt af ríkisstj., að ríkisbúskapurinn verði hallalaus í árslok 1979. Við það stefnumark verður að standa. Þær ráðstafanir, sem ríkisstj. varð að grípa til svo að segja strax eftir að hún var mynduð, verður fyrst og fremst að líta á sem bráðabirgðaúrræði. Verður að hafa það í huga við mat á þeim. En ég vil sérstaklega leggja áherslu á að jafnframt því sem óhjákvæmilegt var að gera þessar ráðstafanir á sviði efnahags- og kjaramála þegar í stað vegna brýns aðsteðjandi vanda, þá veita þær um leið nauðsynlegt svigrúm til þess að vinna að og koma í framkvæmd nýrri efnahagsstefnu og þeim framtíðarúrræðum sem samstarfsyfirlýsingin gerir ráð fyrir.
Í samstarfsyfirlýsingunni er einmitt boðuð ný og breytt efnahagsstefna. Um hana segir svo:
„Í því skyni að koma efnahagslífi þjóðarinnar á traustan grundvöll leggur ríkisstj. áherslu á breytta stefnu í efnahagsmálum. Því mun hún beita sér fyrir eftirgreindum aðgerðum:
1) Í samráði við aðila vinnumarkaðarins verði gerð áætlun um hjöðnun verðbólgunnar í ákveðnum áföngum.
2) Skipa skal nefnd fulltrúa launþega, atvinnurekenda og ríkisvalds til endurskoðunar á viðmiðun launa við vísitölu. Lögð verði rík áhersla á að niðurstöður liggi sem fyrst fyrir.
3) Stefnt verði að jöfnun tekju- og eignaskiptingar, m.a. með því að draga úr hækkun hærri launa og með verðbólguskatti.
4) Stefnt verði að jöfnuði í viðskiptum við útlönd á árinu 1979 og dregið úr erlendum lántökum.
5) Mörkuð verði gjörbreytt fjárfestingarstefna. Með samræmdum aðgerðum verði fjárfestingu beint í tæknibúnað, endurskipulagningu og hagræðingu í þjóðfélagslega arðbærum atvinnurekstri. Fjárfesting í landinu verði sett undir stjórn sem marki heildarstefnu í fjárfestingu og setji samræmdar lánareglur fyrir fjárfestingarsjóðina í samráði við ríkisstjórnina.
6) Dregið verði úr fjárfestingu á árinu 1979 og heildarfjármunamyndun verði ákveðin takmörk sett.
7) Aðhald í ríkisbúskap verði stóraukið og áhersla verði lögð á jafnvægi í ríkisfjármálum.
8) Ríkisstj. mun leita eftir samkomulagi við samtök launafólks um skipan launamála fram til 1. des. 1979 á þeim grundvelli að samningarnir frá 1977 verði framlengdir til þess tíma án breytinga á grunnkaupi. Í því sambandi er ríkisstj. reiðubúin til að taka samningsréttarmál opinberra starfsmanna til endurskoðunar, þannig að felld verði niður ákvæði um tímalengd samninga og kjaranefnd.
9) Dregið verði úr verðþenslu með því að takmarka útlán og peningamagn í umferð.
10) Niðurgreiðslu og niðurfærslu verðlags verði áfram haldið 1979 með svipuðum hætti og áformað er í fyrstu aðgerðum 1978.
11) Lögð verði áhersla á að halda ströngu verðlagseftirliti og að verðlagsyfirvöld fylgist með verðlagi nauðsynja í viðskiptalöndum til samanburðar. Leitað verði nýrra leiða til þess að lækka verðlag í landinu. Sérstaklega verði stranglega hamlað gegn verðhækkunum á opinberri þjónustu og slíkum aðilum gert að endurskipuleggja rekstur sinn með tillíti til þess. Gildistöku 8. gr. nýrrar verðlagslöggjafar verði frestað.
Skipulag og rekstur innflutningsverslunarinnar verði tekið til rækilegrar rannsóknar. Stefnt verði að sem hagkvæmustum innflutningi á mikilvægum vörutegundum, m.a. með útboðum. Úttekt verði gerð á rekstri skipafélaga í því skyni að lækka flutningskostnað og þar með almennt vöruverð í landinu.
Fulltrúum neytendasamtaka og samtaka launafólks verði gert kleift að hafa eftirlit með framkvæmd verðlagsmála og veita upplýsingar um lægsta verð á helstu nauðsynjavörum á hverjum tíma.
12) Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins verði efldur til að vinna gegn sveiflum í sjávarútvegi.
13) Skattaeftirlit verði hert og ströng viðurlög sett gegn skattsvikum. Eldri tekjuskattslögum verði breytt með hliðsjón af álagningu skatta á næsta ári og nýafgreidd tekjuskattslög tekin til endurskoðunar.
Sérstakar ráðstafanir verði gerðar til að koma í veg fyrir að einkaneysla sé færð á reikning fyrirtækja.“
Í þessu sambandi má minna á viljayfirlýsingu, sem er að finna annars staðar í málefnasamningnum, þ.e.a.s. að gróði af sölu lands, sem ekki stafar af aðgerðum eiganda, skuli skattlagður.
Það segir sig sjálft, að á hinum stutta starfstíma sínum hefur ríkisstj. ekki getað sinnt þessum framtíðarverkefnum nema að litlu leyti. Þó er þegar hafið undirbúningsstarf að flestu því sem þar er nefnt. Þannig hefur t.d. svokölluð vísitölunefnd verið sett á fót, sbr. 2. tölulið þessa kafla, og hún hefur þegar hafið störf. Ríkisstj. leggur áherslu á að nefnd þessi skili fyrsta áliti um endurskoðun viðmiðunar launa við vísitölu fyrir 20. nóv. n.k., því mikið er í húfi að samkomulag takist um leiðir til þess að draga úr víxlhækkun verðlags og launa og til þess að treysta raunverulegan kaupmátt launa. Endurskoðun vísitölunnar á að vera fyrsta skrefið í þeirri áætlun um hjöðnun verðbólgu í ákveðnum áföngum sem ríkisstj. vill vinna að í samráði við samtök launþega og vinnuveitenda.
Stefnt er að því að ná allsherjar samkomulagi um skipan launamála fram til nóvemberloka 1979 án grunnkaupsbreytinga á því tímabili. Verkefnið er að draga úr verðbólgu, og það tekst ef samstaða næst. Sérstakri ráðherranefnd hefur verið falið að annast hið nána samráð við aðila vinnumarkaðarins um hjöðnun verðbólgu og mótun launamálastefnu, nefnd hefur verið skipuð til endurskoðunar skattamála, sbr. 13. tölulið, og fleira mætti hér sérstaklega tíunda, en því verður sleppt og aðeins endurtekið að undirbúningur er hafinn að framkvæmd flestra þessara fyrirheita. En reynslan verður að skera úr því, hversu skjótt sækist róðurinn og hver eftirtekjan verður. Ég vil ekki vera þar fyrir fram með neinar skrumyfirlýsingar.
Ég vil ekki heldur draga neina dul á það, að fyrstu ráðstafanir ríkisstj. í kjaramálum fela í sér mikinn fjárhagsvanda fyrir ríkissjóð. Ríkisstj. telur að þann vanda verði að leysa, ef tilraunin til þess að rjúfa vítahring verðbólgunnar á að heppnast. Þetta verður mikilvægasta verkefnið á verkefnaskrá þingsins á þessu hausti, því fjárlög fyrir næsta ár verður að afgreiða með greiðsluafgangi til þess að jafna upp þann halla, sem ætla má að verði á þessu ári, og til þess að hamla gegn verðbólgu.
Næsta verkefni á sviði efnahagsmála er undirbúningur Þjóðhags- og framkvæmdaáætlunar til nokkurra næstu ára. Tilgangur þessarar áætlunar verður að marka stefnuna fyrir almennar framfarir í landinu á næstu árum. Hún á að vera umgjörð áætlana á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins: um nýtingu landgæða og fiskstofna, um þróun iðnaðar og orkumála, um opinberar framkvæmdir og þjónustu, um lífeyrismál og húsnæðismál, svo nokkur mikilvæg svið séu nefnd. Öll áform um æskilegar framkvæmdir og aðgerðir á einstökum sviðum verður að meta í heildarsamhengi og takmarkast af framleiðslugetu þjóðarbúsins. Þetta varðar ekki síst stefnumótun af opinberri hálfu í fjárfestingarmálum, þar sem öll áhersla verður lögð á að tryggja í senn hæfileg heildarumsvif og beina fjármagninu til framleiðniaukandi fjárfestingar.
Í öðrum meginþætti samstarfsyfirlýsingarinnar er, eins og fyrr segir, fjallað um málefni atvinnuveganna, byggðamál, utanríkismál og aðra málaflokka. Þar eru ákveðin stefnumörk sett í mörgum og margvíslegum málefnaflokkum. Yrði of langt mál að rekja þau öll og brjóta til mergjar í þessari stefnuræðu. Ég vitna því aðeins nákvæmlega til nokkurra þeirra, en stikla lauslega á öðrum.
Fyrst er vikið að atvinnumálum. Um landbúnað segir: „Stefnt verði að sem hagkvæmustu rekstrarformi og rekstrarstærð búa og að framleiðsla landbúnaðarvara miðist fyrst og fremst við innanlandsmarkað.
Skipuð verði samstarfsnefnd bænda og neytenda sem stuðli að aukinni fjölbreytni í búvöruframleiðslu og til samræmingar óskum neytenda með aukna innanlandsneyslu að marki.
Endurskoðað verði styrkja- og útflutningsbótakerfi landbúnaðarins með það að marki, að greiðslur komi bændum að betri notum en nú er.
Lögunum um Framleiðsluráð landbúnaðarins verði breytt, m.a. á þann hátt að teknir verði upp beinir samningar fulltrúa bænda og ríkisvaldsins um verðlags-, framleiðslu- og önnur hagsmunamál landbúnaðarins. Jafnframt verði Framleiðsluráði veitt heimild til að hafa með verðlagningu áhrif á búvöruframleiðslu í samræmi við markaðsaðstæður.
Rekstrar- og afurðalánum verði breytt þannig að bændur geti fengið laun sín greidd og óhjákvæmilegan rekstrarkostnað svipað og aðrir aðilar fá nú.“
Um fiskveiðar og fiskvinnslu segir:
„Stjórnun fiskveiða og fiskvinnslu verði endurskoðuð og gerð áætlun um sjávarútveg og fiskiðnað. Miðist hún við hagkvæma og arðsama nýtingu fiskistofna án þess að þeim verði stefnt í hættu. Staðbundin vandamál verði tekin til sérstakrar meðferðar og leyst markvisst og skipulega. Útflutningsverðmæti verði aukin með betri nýtingu, aukinni vinnslutækni, meiri fjölbreytni í afla, afurðum og öflugri sölustarfsemi.
Gerð verði úttekt á rekstri útflutningssamtaka í fiskiðnaði, fyrirkomulagi hans og hagkvæmni.“
Um iðnað og orkumál segir:
„Unnið verði að áætlun um íslenska iðnþróun og skipulegri rannsókn á nýrri framleiðslu sem hentar hérlendis. Samkeppnisaðstaða íslensks iðnaðar verði tekin til endurskoðunar og spornað með opinberum aðgerðum gegn óeðlilegri samkeppni erlends iðnaðar, m.a. með frestun tollalækkana. Íslenskum iðnaði verði veitt aukin tækniaðstoð til hagræðingar og framleiðniaukningar og skipuleg markaðsleit og sölustarfsemi efld.
Mörkuð verði ný stefna í orkumálum með það að markmiði að tryggja öllum landsmönnum næga og örugga raforku á sambærilegu verði.
Komið verði á fót einu landsfyrirtæki er annist meginraforkuframleiðslu og raforkuflutning um landið eftir aðalstofnlínum. Fyrirtæki þetta verði í byrjun myndað með samruna Landsvirkjunar, Laxárvirkjunar og orkuöflunarhluta Rafmagnsveitna ríkisins. Það fyrirtæki yfirtaki allar virkjanir í eigu ríkisins og stofnlínur.
Gerð verði áætlun um raforkuþörf og raforkuöflun til næstu 5–10 ára. Í því sambandi verði endurskoðuð framkvæmdaáætlun um Hrauneyjafossvirkjun, málefni Kröfluvirkjunar verði tekin til endurmats og tryggt viðunandi öryggi Vestfjarða og Austurlands í orkumálum.
Viðræðunefnd við erlenda aðila um orkufrekan iðnað verður lögð niður, enda hefur ríkisstj. engin áform um að heimila innstreymi erlends áhættufjármagns í stóriðjufyrirtæki.“
Hér við mætti bæta því ákvæði, sem er á öðrum stað í yfirlýsingunni, að tilteknar orkulindir, þ.e.a.s. djúphiti í jörð og virkjunarréttur fallvatna, skuli vera þjóðareign.
Þegar hefur verið skipuð iðnþróunarnefnd svo og nefnd til að gera tillögur um framkvæmd á fyrirheitum í orkumálum.
Um byggðamál og samgöngur segir:
„Byggðastefnu verði fram haldið með svipuðum þunga og verið hefur. Áhersla verði lögð á hagræðingu og endurskipulagningu atvinnugreina um land allt og lausn staðbundinna vandamála þar sem atvinnuvegir eiga í sérstökum erfiðleikum eða búseta er í hættu.
Skipulag og starfshættir Framkvæmdastofnunar ríkisins og fleiri opinberra aðila verði endurskoðuð til að tryggja sem best þessa stefnu.
Haldið verði áfram að flytja þjónustuþætti hins opinbera út á land og efla þar ýmsa aðra starfsemi í tengslum við það.
Gerðar verði samgönguáætlanir fyrir landið í heild og einstaka landshluta, þar sem samræmdir verði flutningar á landi, sjó og í lofti. Sérstakt átak verði gert til að leggja bundið slitlag á aðalvegi og til endurbóta á vegum í strjálbýli. Áhersla verði lögð á að leysa samgönguerfiðleika staða sem eiga af þeim sökum við vanda að glíma í framleiðstu svo og í félagslegum samskiptum.“
Þá eru í samstarfsyfirlýsingunni ákvæði um tryggingamál, dómsmál, menntamál, húsnæðismál, umhverfismál, atvinnulýðræði, verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og starfshætti Alþingis og um hagræðingu á sviði opinbers rekstrar, svo sem í bankamálum. Þessi mál geri ég ekki sérstaklega að umtalsefni, ekki af því að þau teljist til minni háttar mála. Þau eru þvert á móti flest mjög mikilvæg. En mér sýnist að þar sé í mörgum tilfellum um að ræða framhald fyrri stefnu sem enn hefur ekki náð í áfangastað. Þó er þar einnig um ýmis nýmæli að ræða, en flest eru þau þannig vaxin, að ég býst ekki við að um þau sé eða verði mikill ágreiningur að stefnu til. Auðvitað getur annað orðið uppi á teningnum þegar til nánari útfærslu kemur.
Um utanríkismál er stutt yfirlýsing, en mikilvæg. Hún er svo hljóðandi:
„Þar eð ríkisstjórnarflokkarnir hafa ekki samið um stefnuna í utanríkismálum, verður í þeim efnum fylgt áfram óbreyttri grundvallarstefnu og verður þar á eigi gerð breyting nema samþykki allra ríkisstjórnarflokkanna komi til. Það skal þó tekið fram, að Alþb. er andvígt aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu og dvöl hersins í landinu. Ekki verða heimilaðar nýjar meiri háttar framkvæmdir á yfirráðasvæði varnarliðsins.“
Þessi yfirlýsing skýrir sig sjálf.
Um endurskoðun stjórnarskrárinnar er ákvæði sem ekki ætti að verða ágreiningur um. Þar segir: „Ríkisstj. mun beita sér fyrir því, að nefnd sú, sem stofna ber til þess að fjalla um endurskoðun stjórnarskrár samkvæmt samþykkt Alþingis og samkomulagi þingflokka þar um, ljúki því verki á tilsettum tíma. Jafnhliða fari fram endurskoðun á lögum um kosningar til Alþingis og á lögum um kosningar til sveitarstjórna.“
Þá er í samstarfsyfirlýsingunni ákvæði um skipan nefndar til athugunar á öryggismálum. Þar er um að ræða algert nýmæli og má vera að sumum þyki það allnýstárlegt. En þar er að mínum dómi á margan hátt um merkilegt mál að tefla. Það ákvæði er svohljóðandi:
„Ríkisstj. mun beita sér fyrir því, að sett verði upp nefnd þar sem allir þingflokkar eigi fulltrúa og verði verkefni nefndarinnar að afla gagna og eiga viðræður við innlenda og erlenda aðila til undirbúnings álitsgerðum um öryggismál íslenska lýðveldisins. Nefndin geri ítarlega úttekt á öryggismálum þjóðarinnar, stöðu landsins í heimsátökum, valkostum um öryggisstefnu, núverandi skipan öryggismála og áhrif á íslenskt þjóðlíf svo og framtíð herstöðvanna eftir að herliðið fer og varnir gegn hópum hryðjuverkamanna. Nefndin fjalli einnig um hugmyndir um friðlýsingu, friðargæslu og eftirlit á Norður-Atlantshafi og láti semja yfirlit yfir skipan öryggismála smáríkja í heiminum, einkum eyríkja sem eiga svipaðra hagsmuna að gæta og Íslendingar. Nefndin fái starfskrafta og fé til að sinna verkefnum sínum og til að gefa út álitsgerðir og greinargerðir um afmarkaða þætti í því skyni að stuðla að almennri umræðu.“
Í mörgum löndum starfa sjálfstæðar stofnanir sem fjalla á hlutlægan hátt um utanríkis- og öryggismál. Slík stofnun er okkur Íslendingum ofviða. En ég vil líta á þessa könnunarnefnd í öryggismálum sem vísi að hliðstæðri starfsemi hér.
Þá er að lokum, eins og áður er sagt, eins konar eftirmáli eða viðauki við samstarfsyfirlýsinguna, þar sem segir að stjórnarflokkarnir séu sammála um að taka samstarfsyfirlýsinguna til endurskoðunar á árinu 1979.
Slíkt ákvæði er óvenjulegt í stjórnarsamningi. En þegar allar aðstæður eru virtar tel ég það eðlilegt og skynsamlegt.
Stjórnarmyndunartilraunir stóðu að vísu lengi yfir og nokkrar tilraunir voru gerðar til að mynda samstjórn þeirra flokka sem standa að núverandi ríkisstjórn. Í hverri stjórnarmyndunartilraun var unnið starf sem að gagni kom. Eigi að síður er það staðreynd, að núv. ríkisstj. var mynduð á elleftu stundu, ef svo má segja, og vegna tímaskorts var þess enginn kostur að huga svo vel að ýmsum málefnum sem æskilegt hefði verið. Menn urðu að hrökkva eða stökkva, án þess að ráðrúm gæfist til þeirrar íhugunar og skoðunar, sem ýmsir hefðu kosið, og til að binda ýmsa enda sem við stjórnarmyndun varð að skilja við ófesta. Ég tel það því í alla staði eðlilegt og raunsætt, að ýmsar viljayfirlýsingar stefnuskrárinnar séu teknar til endurskoðunar að fenginni nokkurri reynslu og með hliðsjón af þeim viðhorfum sem þá eru í sjónmáli.
Með þessari stefnuræðu hefur verið útbýtt skrá yfir þau stjórnarfrumvörp, þ.e.a.s. lagafrumvörp, sem einstakir ráðherrar hyggjast flytja á þessu þingi. Ég vísa til þeirrar skrár og sé ekki ástæðu til að lengja stefnuræðu þessa með lestri hennar.
Ég býst við því, að flestir stuðningsmenn þeirra flokka, sem að stjórn þessari standa, ætlist til þess, að ríkisstj. þessara flokka sé umfram allt framfarastjórn. Og vissulega vill þessi ríkisstj. vera framfarastjórn, svo sem mörg ákvæði stefnuskrárinnar bera vitni. Hlutverk þessarar stjórnar verður þó fyrst í stað, að mínum dómi, fyrst og fremst það að vera viðnáms- og aðhaldsstjórn. En ég held ég geti sagt, án þess að það séu innantóm orð, að við viljum stjórna fyrir fólkið og með fólkinu. Gengi þessarar stjórnar er því ekki hvað síst undir því komið, að henni takist að fylgja þeirri leiðarstjörnu. Og menn geta spurt sjálfa sig: Ef þessari stjórn tekst það ekki — hvað þá?
Það segir sig sjálft, að þessi ríkisstjórn, eins og raunar aðrar, hefur störf sín með þeim ásetningi að koma góðu til leiðar. En þrátt fyrir að ýmsu leyti hagstæðar ytri aðstæður og þrátt fyrir það að við ættum að standa sæmilega að vígi þó að eitthvað kunni að blása á móti, þá er því ekki að neita, að við ýmis vandamál er að fást, sum sprottin upp í heimahögum, en önnur utanaðkomandi og síður á okkar valdi. Á bak við margt leiti bíður óvissa. Það er því ekki á mínu færi að spá um framtíðina. Þess vegna fer best á því við upphaf ferðar að stilla öllum fullyrðingum í hóf.
Þessi ríkisstj. ætlar sér ekki þá dul að gera alla ánægða. Ákvarðanir ríkisstjórnar byggjast á samanburði og mati á hagsmunum og valkostum, að sjálfsögðu innan ramma laganna. Þessi ríkisstj. vill öðru framar líta á hagsmuni heildarinnar án þess þó að setja frjálsræði einstaklingsins og athafnaþörf skorður fram yfir það sem þjóðarhagur krefst.
Auðna hlýtur oft að ráða hversu til tekst í framkvæmd og að hve miklu leyti góð áform verða að veruleika. En að sjálfsögðu er það von ríkisstj. að geta stuðlað að því að bæta samfélagið og lífsskilyrði innan þess á ýmsa lund, þannig að íslenskt þjóðfélag megi verða öðrum til fyrirmyndar á sem flestum sviðum. Þess vegna vill ríkisstj. treysta á skilning og velvilja þingmanna og þjóðarinnar.