04.12.1978
Efri deild: 23. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (822)

Kosning forseta deildarinnar í stað Braga Sigurjónssonar

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég mótmæli ekki út af fyrir sig þeirri málsmeðferð sem hér er lögð til. Þó ætla ég að fordæmi þau, sem hæstv. forsrh. gat um er málið var til umr. fyrir skemmstu og hæstv. deildarforseti gerði þá grein fyrir, séu ekki alveg hliðstæð við þessar aðstæður okkar núna og óska. því eftir atkvgr. um þessa tillögu forseta um málsmeðferð, m.a. til þess að geta gert grein fyrir atkv. mínu.