04.12.1978
Efri deild: 23. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1238 í B-deild Alþingistíðinda. (832)
94. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Hér er frv. þetta lagt fram öðru sinni á þingi, kom undir vorið í fyrra og þá eins og til kynningar. Það virðist mér vera góður háttur þegar um er að ræða lagafrv. af þessu tagi, einmitt að gefa ærið tóm til þess að þingmenn geti kynnt sér frv. eins og hér um ræðir og einnig leitað álits sérfróðra manna og þeirra sem eiga hag sinn að verulegu leyti undir þeim atriðum sem lögin fjalla um.
Ég er þeirrar skoðunar, að æskilegt sé að frv. þetta til laga um fuglaveiðar og fuglafriðun verði ekki afgreitt í þeirri mynd sem það nú er, heldur verði enn skipuð n. og með öðrum hætti en hér var gert til þess að fjalla um þessi lög. Ég á ekki sæti í þeirri n. sem fjalla mun um þetta frv., en óska þess við n. að hún taki til ítarlegrar athugunar í fyrsta lagi það, með hvaða hætti staðið er að samningu frv., í öðru lagi þau atriði í frv. sem til þess eru fallin raunverulega að staðfesta í lögum óþolandi ágreiningsatriði sem valdið hafa illdeilum á landi hér árum saman, og í þriðja lagi að hugleiða nú vel hvort ekki sé fremur ástæða til þess að skipa nefnd til þess að semja lagafrv. um skotveiði á Íslandi, þar sem reynt verði að samræma lagaákvæði sem við höfum fyrir og getur að finna í ýmsum lagabálkum, svo sem lögum um skotvopn og sprengiefni, náttúruverndarlögunum, fuglafriðunarlógunum og svo í ýmsum greinum þeirra laga sem lúta að einkaeign á landi.
Í framsöguræðu sinni sagði hæstv. ráðh. frá því, að aðalhvatinn að samningu þessa lagafrv. hefði verið krafa æðarvarpseigenda um það, að eitthvað sérstakt yrði gert til þess að fækka flugvargi eins og svartbak og hrafni, og jafnvel er kjóinn stundum nefndur með. Sem sagt, hvatinn að þessari frv.-smíð er einkaþörf æðarræktarmanna fyrir að vernda eina fuglategund, þar sem æðarfuglinn er, svo honum megi fjölga og arður af honum vaxa, en fækka öðrum fuglategundum sem æðarfuglinum eru hættulegar.
Í þessu frv. virðist mér að alls ekki sé á nokkurn handa máta séð fyrir þörf þeirra manna sem stunda skotveiðar á landi hér sér til yndisauka, skemmtunar og hollustu úti við. Það er að vísu mála sannast, að þegar skipuð var n. til þess að semja þetta frv. voru engin sérstök landssamtök skotveiðimanna starfandi. Síðan gerðist það s.l. vetur, að stofnað var Skotveiðifélag Íslands, félag manna sem áhuga hafa öðru fremur eða a.m.k. jafnframt öðru á þeirri útivistarskemmtun að skjóta þá fugla sem ekki eru friðaðir. Þetta félag setti sér siðgóð lög og siðareglur sem samsvara því sem best gerist meðal siðaðra veiðimanna á Norðurlöndum og þegar eru komnir í þetta félag, að því er ég best veit, u.þ.b. 200 menn hér og þar á landinu.
Ég fékk bréf frá einum hinna áhugasömu skotveiðimanna nú á dögunum úr öðru kjördæmi, og réttlætti sá bréfið til mín með þeirri skoðun sinni, að e.t.v. mundi ég vera einn af sárafáum mönnum á Alþingi sem sjálfur hefði áhuga á því að stunda fuglaveiðar. Þetta bréf vil ég lesa hér, með leyfi forseta, þar sem ég hygg að í flestum greinum komi þar fram aths. íslenskra skotveiðimanna við frv. það sem hér liggur fyrir. Bréfið er svofellt, skrifað í Varmahlíð í Skagafirði 18. f. m.
„Hér með sendi ég nokkrar aths. við frv. til l. um fuglaveiðar og fuglafriðun. Vona ég að viðkomandi lesi bréf þetta og hugleiði efni þess.
Það, sem maður rekur strax augun í við lestur frv. og stingur illilega, er það, að þremenningunum, er endurskoðuðu lögin, er ekki skylt að leita umsagnar veiðimanna, eins það, að í fuglafriðunarnefnd skuli ekki vera gert ráð fyrir neinum fulltrúa veiðimanna, en t.d. fulltrúa úr öfgafélagi því er nefnist Fuglaverndarfélag Íslands, og er það aðallega gert vegna nafns félagsins. Vinnubrögð af þessu tagi eru forkastanleg og sæma ekki hinu háa Alþingi árið 1978. Frv. ber það líka með sér, að þeir, sem mestra hagsmuna eiga að gæta, hafa ekki komið þar nærri.
Sú grein frv., sem ég ætla fyrst og fremst að gera að umræðuefni, er sú 8., en sú grein þarf alvarlegrar endurskoðunar við.“
Síðan kemur gagnrýni á 8. gr., a-lið: „Hvers vegna í ósköpunum eru þar ekki hafðir fuglar eins og hettumáfur og fýll,“ þ.e.a.s. í hópi þeirra sem griðlausir skulu vera? „Hettumáfurinn er alræmdur eggja- og ungaræningi. Hefur honum fjölgað gífurlega hin síðari ár. Hann flæmir kríur frá sínum varplöndum, og ekki mega þær missa neitt af sínu því að þeim hefur fækkað upp á síðkastið og enginn dregur í efa varnarstarf kríunnar við varpið. Fýlnum hefur einnig fjölgað mjög og er hann sífellt að færa sig upp á skaftið. Hann er nú farinn að leggja undir sig heilu fuglabjörgin svo og kletta inn til landsins. Væru þessar tvær fuglategundir færðar í a-lið 8. gr. mundu þeir e.t.v. verða eitthvað meira veiddir, þótt það hefði trúlega ekki áhrif á stofnstærðina.“
Um d-lið segir síðan bréfritari: „Eftir frv. að dæma á nú að gera grágæsina friðhelga að mestu, þrátt fyrir það þótt henni hafi fjölgað mjög seinni árin. Að veiða grágæs er talsvert búsílag og hagsmunir margra í veði nái frv. fram að ganga. Bretar hafa mikið reynt að fá Íslendinga til að friða grágæsina sem mest og nú hefur þeim nánast tekist áróðurinn. Hvers vegna eigum við að alagrágæsina fyrir Bretana á okkar litla gróðri. Það er ekki nóg að reka Breta frá ströndum landsins,“ segir bréfritari. „Hæfilegt er að hefja veiðar 1. sept. eins og reyndar er gert ráð fyrir í frv. Að hafa veiðitímann aðeins til 22. des. er stórfurðulegt. Héðan úr Skagafirði fer grágæsin venjulega um mánaðamótin sept.–okt. og yrði því aðeins hægt að veiða í mánaðartíma og það á þeim tíma sem oftast er mjög erfitt að ná henni. Sunnlendingar geta veitt mánuði lengur og það við betri veiðiskilyrði. Óhætt er að leyfa veiðar á grágæs til 10. maí m.a., vegna þess að fuglar, sem eru að byrja að para sig, halda sig yfirleitt á öðrum stöðum en veitt er á og auk þess auðþekktir.
Það er löngu orðin hefð um allt land að veiða grágæsir á vorin og erfitt mun að rjúfa þá hefð. Heimskulegt er því að setja lög sem ekki yrði farið eftir, því vanvitur lög eru verri en engin lög.
Röksemdafærsla Arnþórs Garðarssonar að mjög fáir hreppar hafi nýtt sér heimild til undanþágu um friðunarákvæði laganna að því er varðar grágæs og því sé ekki ástæða til að lengja veiðitímann, en mjög grunnt hugsuð. Orsökin fyrir því, að ákvæði þessi hafa ekki verið notuð, er einfaldlega sú, að þess hefur ekki verið þörf þar sem vorveiðin er það sterk að veiðar hafa verið stundaðar þrátt fyrir vanvitur lög. Ekki hefur þó verið reynt af valdhöfunum að sporna við veiðum þessum, enda óframkvæmanlegt.“
Enn heldur bréfritari áfram og segir: „Mikið hefur verið rætt og ritað um skynsamlega nýtingu rjúpnastofnsins. Undarlegt er að ekki skuli vera rætt um skynsamlega nýtingu fleiri fuglastofna, t.d. gæsa og anda og jafnvel spóa, tjalds og lóu. Vitað er að þessir fuglar eru allir mikið veiddir erlendis. Það er e.t.v. feimnismál að ræða um þá síðast töldu.
„Erfitt á ég með," segir bréfritari, „að skilja það tangarhald sem svokallaðir æðarræktarbændur, sem reyndar er ekki réttnefni, eru búnir að ná á íslenskum stjórnvöldum. Þeir virðast ná öllu fram sem varðar þeirra hagsmuni. Nú er meiningin að greiða þeim væntanlegt tjón sem haförninn mun e.t.v. valda þeim. Bændur, sem ekki eiga varphólma, mega ekki fá sér æðarfugl í soðið þrátt fyrir það að fuglinn sé e.t.v. alinn upp fyrir þeirra landi og í þeirra fjöru. Þeir mega aðeins ala fuglinn upp fyrir hina fáu útvöldu. Þessu skýt ég hér að til umhugsunar og til að sýna að ekki er aðeins ein hlið á hverju máli.“
Síðan segir hann: „Bréf þetta ætla ég að senda þm. kjördæmisins í þeirri von að þeir taki sjónarmið þau, sem þar koma fram. til athugunar.“
Bréfritari er ágætur veiðimaður og kennari í Skagafirði, og að ýmsu leyti hygg ég að rök þau, sem hann ber Fram, þó ekki verði ég var við kröfu um að menn fái að skjóta mófuglinn, geti talist túlka sjónarmið skotveiðimanna.
Ég vil vekja sérstaka athygli á 2. tölul. 5. gr. lagafrv., þar sem segir: „Öllum íslenskum ríkisborgurum eru fuglaveiðar heimilar í afréttum og almenningum utan landareigna lögbýla, enda geti enginn sannað eignarrétt sinn til þeirra.“
Nú er það svo, að einmitt þetta ákvæði, sem fært var í lög 1954 hefur valdið vaxandi deilum hvert einasta haust milli manna, sem telja sig eiga landið þar sem rjúpnaskytturnar ganga til veiða, og veiðimannanna.
Í tilskipun um veiði á Íslandi frá 1894 var breytt Jónsbókarákvæðum, sem vörðuðu rétt til fuglaveiða á landi, á þá lund sem segir í 3. gr. tilskipunarinnar: „Á afréttum. sem fleiri eiga saman, ber veiði þeim mönnum sem afrétt heyrir til. Á almenningum er veiði öllum mönnum jafnheimil.“
Ef við berum síðan tilskipunina frá 1849 saman við ákvæði Jónsbókar í Landsleiguþætti, þá komumst við að þeirri niðurstöðu að hin konunglega danska tilskipun, sem m.a. miðar að því að stuðla að æðarrækt á Íslandi, er í ákaflega mörgum greinum sniðin eftir danskri veiðilöggjöf sem miðaði að því að tryggja einkarétt stórra landeigenda og aðalsmanna yfir veiði á lendum sínum og jafnvel að gera þeim kleifi að leigja slíkan veiðirétt til einkaafnota af smærri landeigendum.
Þegar lögin um fuglaveiðar og fuglavernd frá 1954 eru sett, er greinilegt að löggjafinn hefur viljað slaka á þessu atriði, og er raunar góðra gjalda vert að þarna er sýnd viðleitni í þá átt til að koma til móts við þörf hins mikla fjölda landleysingja til þess að fá tryggðan almannaeignarréttinn til gæða landsins og vega þannig upp á móti þeirri breytingu á eignarhaldi á landi sem varð við þjóðfélagsbyltinguna á Íslandi.
Þegar lög þau, er frá greinir í Jónsbók, voru sett og raunar síðar, þegar til kemur tilskipunin um veiðar á Íslandi frá 1849, þá er íslenska samfélagið enn þá bændasamfélag. Þá voru Íslendingar ýmist landeigendur ellegar áhangandi landeigendum og áttu hlutdeild í eignarhaldi bænda á landi. Þá er það ljóst af gildandi lögum um veiði á Íslandi, að menn gátu skipst á þessum gagnkvæma rétti. Það gilti einnig um veiði í ám og vötnum, aðar var sameiginlegur réttur. Sá þegn, er um landið fór og þurfti á því að halda að taka fisk úr veiðivatni sér til átu á ferðalagi sínu, átti rétt á slíku. Hið sama gilti að mestu um nytjar annarra matfanga fyrir þann mann er leið átti um landið, að honum var slík taka frjáls, að því tilskildu að hann gengi ekki á hina brýnustu þörf landeiganda eða væri fyrir honum með veiðivélar sínar eða annað slíkt.
Ég er þeirrar skoðunar, að ef við setjum nú enn lög um fuglaveiðar á landi hér og tökumst ekki á við þennan óleysta vanda sem ég gerði grein fyrir að okkur er á höndum í sambandi við 2. tölul. 5. gr., þá vinnum við illa. Ég hygg að við verðum að kveða ljósum orðum á um rétt þegnanna til þess að fara um landið til þess að stunda löglegar fuglaveiðar. Í því sambandi vil ég raunar geta þess, að ég tel að það sé orðið meira en tímabært að við kveðum á ljósum orðum um almannaréttinn til þess að njóta útivistargæða þessa blessaða lands okkar.
Svo ég nefni dæmi um það, með hvaða hætti lögin eru framkvæmd að því leyti sem lýtur að 2. tölul. 5. gr., kom nú á þessu hausti landeigandi nokkur í mínu kjördæmi að tveimur þorpsbúum uppi á háheiði þar sem þeir voru við rjúpnaveiðar, hafði með sér lögregluþjón, tjáði þeim að hann ætti eyðibýli nokkurt þarna á heiðinni, þeir væru í landi þess eyðibýlis og þess vegna væri þeim óheimil þarna rjúpnaveiði. Nú var það svo, að þeir vildu ekki úrtakslaust véfengja orð bónda um það, að þarna ætti hann eyðibýli og jafnvel að þeir væru í landi þess eyðibýlis. En þeir töldu hann ekki geta sannað fyrir sér eignarrétt sinn á eyðibýlinu og enn þá síður landamerki þessa eyðibýlis, og milli þeirra sló í brýnu, þó hóflega, því ekki hef ég heyrt þess getið, að kært hafi verið undan meiðyrðum. En í framkvæmdinni er þetta eigi að síður þannig, að meintur landeigandinn getur kvatt með sér lögregluþjón upp á afrétti, heiðar og almenninga til þess að knýja fram sjónarmið sin án dómsúrskurðar upp á það að honum beri þessi réttur.
Ég er ekki tilbúinn á þessu stigi að bera fram neinar till. um það, með hvaða hætti við getum komið á sætt milli þeirra, sem eiga land, og hinna, sem ekki eiga land, um það hvar draga eigi línuna, hvað við eigum að kalla almenninga í þessu tilliti, hvar réttur hins landlausa borgarbúa á að taka við og hvar réttur landeigandans eigi að reisa honum skorður. En ég er efalaus um það, að við verðum að fá skýr og ljós ákvæði um þetta, vegna þess að ella eigum við á hættu að það hvessi í rimmunni um þennan rétt milli landeigenda annars vegar og fólksins úr bæjunum hins vegar sem vill stunda fuglaveiðar á hálendinu okkar.
Ég tel að það sé meira en tímabært að víð gerum okkur grein fyrir því, að veiðiskapur, eins og hann er stundaður af mestri kurteisi og mestri tillitssemi og lögum samkv., er æskileg íþrótt til þess að fá menn til útivistar til að kynnast landinn. Við skulum gera okkur grein fyrir því, að þeir menn, sem leita sér í því skemmtunar og heilbrigði að fara um fjalllendi okkar frá miðjum október og fram undir jól, hvernig sem viðrar, í leit að veiðifangi, það eru menn sem kynnast býsna vel landinu okkar, læra að búa sig út í veður þess og fara um það, að mínu viti menn til þess fallnir að þykja vænt um landið sitt, þeir, sem þannig eyða tíma sínum fremur heldur en að leita til suðrænna landa ljúfari skemmtunarforma.
Í frv, eru ákvæði, sem varða alfriðun á fuglum. víða umdeilanleg og einnig ákvæði sem snerta friðunartíma. Í aths. með frv. kemur í ljós að óskilgreindur og óskýrður ágreiningur er milli eina sérfræðingsins, líffræðingsins, sem fjallar um þetta lagafrv., og annarra aðila um mikilvæg atriði. Ég er fremur þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt sé, áður en enn einu sinni er kveðið á um verndun rjúpunnar sem nú er farið að kalla stundum þingrjúpu, að krefja sérfræðinginn Arnþór Garðarsson um skýringu á þeirri staðhæfingu sem hér kemur fram í frv., að rjúpunni fækki ekki við það að vera veidd, að rjúpnastofninn sé í engri hættu af skotum veiðimanna. Mér er það ljóst, að fræðilega hefur fuglafræðingurinn rétt fyrir sér, að viðkoma rjúpnastofnsins er slík, að þótt miklu fleiri rjúpur væru skotnar en nú er við eðlilegar aðstæður, þá mundi ekki muna ýkjamikið um það. Eðlilegt er, ef við miðum við jafnvægi í stofninum, að hverjar tvær rjúpur, sem lífa af vetur, jafnt veður sem skotaveiði, verði orðnar að 14–16 rjúpum miðað við eðlilega viðkomu að hausti. Eðlileg afföll stofnsins yrðu þá með þeim hætti, ef þetta blessaða land okkar á ekki beinlínis að vera þakið í rjúpu, að af þessum 14–16 rjúpum. sem þar væru að hausti, féllu 12–14 um veturinn fyrir veðrum eða skotum. En þetta er ekki svona einfalt í raun og veru. Hvað svo sem veldur, og um það standa enn þá deilur, hvort það eru sjúkdómar í stofninum, að hve miklu leyti veður veldur á vorin í rjúpnavarpinu þegar um það er að ræða að ungarnir koma tiltölulega sprækir úr eggjunum, að þeir fái rétta næringu fyrstu dagana eftir að þeir koma úr eggjunum. — hvað sem veldur, þá er það ekki svona. Rjúpnastofninn okkar virðist vera miklu viðkvæmari en stofnar skyldra hænsnfugla á Norðurlöndum, villtra veiðifugla. Meðan svo er ástatt, að rjúpnastofninn virðist jafnvel þurrkast út í sumum héruðum. sums staðar á Norður- og Austurlandi, í tilteknum árum, eða verða a.m.k. mjög lítið af rjúpum þar, þá finnst mér að til greina kæmi að koma friðunarmálunum í það horf að jafnvel væri hægt að setja á skyndifriðun, algera friðun á þessum fuglum í einum landshluta, þó að leyft yrði að veiða þá í öðrum. svo sem nú er ástatt hér á Suðvesturlandi þar sem allmikið virðist vera af rjúpum.
Ég get ekki sætt mig við þá röksemdafærslu fyrir aukinni friðun á ýmsum andategundum, þ. á m. stokkönd, rauðhöfðaönd og urtönd, að ekki sé æskilegt að leyfa veiði á þessum andategundum eftir að rjúpnaveiðitíma lýkur vegna þess að mjög mikið sé skotið af þessum öndum inn til landsins og því hætta á að rjúpa yrði veidd á ólöglegum tíma, í jan., febr. og mars, í blóra við andaveiðina. Eftir því sem ég kemst næst og veit engin dæmi um annað, þó að ég hafi spurt grannt eftir því, þá eru andategundir þessar hvergi veiddar inn til landsins á veturna af þeirri skiljanlegu ástæðu, að þá eru ekki endurnar þar, þá eru þessar endur frammi við sjóinn og taka þar sína næringu þar sem heiðarvötn og mýraflákar, þar sem þær ella ná í grastegundir og rætur, sem þær nærast á, eru þá frosin og endurnar eiga ekki annarra kosta völ en að lífa á fjörugróðri á þeim tíma. Hér er um að ræða eina af fjölmörgum staðhæfingum í fylgiskjölum þessa frv. sem alls ekki fá staðist.
Þar sem bréfritari sá úr Skagafirði, sem ég las upp eftir áðan, víkur að friðun á gæs og gæsategundum vil ég bæta því við, að ég tel að til greina komi að leyfð yrði hér á landi veiði á farfuglum sem hafa hér viðkomu á leið til Grænlands og Jan Mayen, svo sem blesgæsinni, eða Anser albitros, helsingjanum, en þessar tegundir hafa hér viðkomu bæði haust og vor á leið til varpstöðva og frá þeim. en eru síðan veiddar í mjög ríkum mæli á Bretlandseyjum. Suður-Frakklandi, Spáni, Ítalíu og Suður-Þýskalandi að vetrinum til.
Ég ítreka það sem ég áður sagði, að ég vil gjarnan reyna að koma því til leiðar, að það verði látið bíða að lögfesta þetta frv., því verði vísað til ríkisstj, með beiðni um að fulltrúum veiðimanna verði bætt í hóp þeirra sérfræðinga, sem fjalla um samningu frv., og tekið verði ríkara tillit til þeirra og þarfa þeirra heldur en hér er gert. Þetta frv. virðist mér, eins og hin fyrri frv. sem samþ. hafa verið, fyrst og fremst miða að því að vernda menn og málleysingja fyrir skotóðum mönnum, en alls ekki ætlað neitt rými fyrir rétt þeirra manna sem fara um landið að lögum til eðlilegra fuglaveiða. Ef ekki er tekið tillit til þess, að slíkir menn eru til hér, hafa stofnað með sér öflugt og fjölmennt félag og eru líklegir til þess að stuðla að góðum siðum í sambandi við veiðiskap hér, þá tel ég illa af stað farið. Og ég tel alls ekki fráleitt að við athugum möguleika á því að koma þessum skotveiðimálum fyrir á svipaða lund og gert hefur verið í Danmörku, Finnlandi og Noregi, eftir því sem ég best veit, þar sem leyfi til þess að eiga byssu og kaupa byssu fylgir ekki sjálfvirkt leyfi til þess að stunda veiðiskap með þessum tækjum. heldur verða eigendur þessara skotvopna að gangast undir ákveðin allströng próf sem lúta að því, hvort þeir séu hæfir til þess að stunda veiðar með siðgóðum hætti. Þeir eru auk þess látnir borga til hins opinbera allháa upphæð í veiðileyfi. Fénu, sem inn kemur, er síðan varið til þess að hafa eftirlit með veiðunum og til þess að rannsaka veiðidýrastofnana, þannig að veiðimennirnir eru sjálfir látnir rísa undir þessu. Mætti vel segja mér að slíkt gæti hentað vel á landi hér, samtímis því að með þeim hætti yrði töluverðri ábyrgð komið yfir á veiðimennina, því í þriðja lagi er tekið fé úr þessum sameiginlegan veiðisjóði til þess að stofna svokallaðan tryggingarsjóð veiðimanna. Úr þeim sjóði eru goldnar bætur fyrir þau spjöll, sem veiðimenn kunna að valda, og kostnaður við að hafa uppi á þeim þegar þeir týnast í víðlendum skógum Skandinavíu. Hér verðum við að kosta töluverðu fé til þess að leita uppi rjúpnaskyttur, stundum uppi á öræfunum, og auk þess til þess að hjálpa þeim ef þeir verða fyrir slysum og meiðast við iðju sína.
Ég vil ekki leggja til neitt um það á þessu stigi málsins, að við förum að heimila veiði síðsumars á þeim fuglategundum hér á landi, mófuglunum, sem héðan fljúga til Þýskalands, Frakklands og Bretlandseyja og eru veiddir þar í stórum stíl, svo sem eins og hrossagaukurinn okkar, mýrasnípan, lóan eða spóinn. Sjálfur mundi ég ekki treysta mér til að skjóta þessa fugla, og ég vil að við íhugum það frá hinu siðferðilega sjónarmiði, hvort slíkt væri fært. En hitt er ljóst, að alfriðun hina ýmsu fuglategunda, sem hér um ræðir, er ekki gömul í íslenskri löggjöf.
Ef við víkjum að álftinni t.d., sem sannanlega veldur talsverðu tjóni ekki aðeins á gróðri á köldum vorum, þegar hún leggst á tún og nýgræðing, heldur einnig á veiðivötnum okkar, þar sem þessi hálslangi fugl liggur á því lúalagi að súpa hrogn laxa og silunga á grynningum að haustinu, þá hefur þessi fugl ekki notið friðunar í líkingu við það sem nú gerist hér á landi nema síðan 1918, er fuglinn kolféll frostaveturinn mikla, hefur líklega fengið lungnabólgu eins og selurinn. Svo mikið er víst, að það var ekki eingöngu af fæðuskorti sem fuglinn féll þennan vetur. En nú veldur þessi fugl töluverðu tjóni. Hvort okkur tekst í hugskoti okkar sjálfra eð~ gagnvart almenningi að höggva nokkuð á hina rómantísku þræði sem vefa honum nú óvígisstakk veit ég ekki, en ég held að við ættum að taka til mjög alvarlegrar athugunar hvort ekki væri rétt að gera ráðstafanir til þess, að þeir menn sem það vildu, fækkuðu þessum fugli nokkuð með eðlilegum hætti. Ég veit að viðhorf manna til fugla eru tilfinningalegs eðlis og ákaflega misjafnt að því er lýtur að álftinni. Roskinn Breiðfirðing þekki ég hér í bæ sem sagt hefur um álftina: „Ljótur fugl og leiðinlegur álftin, flýgur aftur á bak gargandi og veifar halanum.“
En í Jónsbók er gert ráð fyrir því, að fjölmargir þeirra fugla, sem nú eru friðaðir og hafa verið friðaðir kynslóðum saman, séu veiddir. Í 5. kapítula 10. málsgr. þess kafla Jónsbókar sem kveður á um það, hvað veiða má á annars manns jörðu, segir: „En hver annarra, sem fugla veiðir eða tekur egg undan á annars jörðu, bæti fugla eða egg og landnám þeim er á jörðu býr, utan rétt til að veiða á annars jörðu hverjum er vill örnu, hrafna, smyrla, lær, spóa og alla smáfugla, þá er eigi fljóta á vatni, nema rjúpur.“
Í tilskipun um veiði á Íslandi er einnig gert ráð fyrir því, að mófugl sé veiddur, utan hvað enn er kveðið á um einkarétt konungs til fálkaveiða eða veiða á völum. Til skilningsauka fyrir hv. þm. skal það tekið fram, að lær, sem leyfilegt er samkv. Jónsbók að veiða á annars manns landi, er fleirtöluorð af fuglsnafninn ló, en svo hét lóa þá. Fleirtölumyndunin verður sem sagt — til enn þá nánari skilgreiningar fyrir alþingismenn — á sama hátt og fló verður flær í fleirtölu, og mætti maður þá gjarnan, svo sem til undirstrikunar máli sínu, viðhafa gömlu fleirtölumyndina þegar kveðið verður á um það, hvað skjóta má á annars manns landi.
Ég vil sem sagt vara við því að samþ. þetta frv. til l. um fuglaveiðar og fuglafriðun í þeirri mynd sem það nú er og óska þess eindregið að menntmn., er fær þetta mál til meðferðar, velji heldur þann kostinn að seinka málinu dálítið með því að vísa því aftur til ríkisstj. með beiðni um að skipuð verði annars konar nefnd, þar sem m.a. verði kveðið á um það, að þar eigi í sæti sérfræðingar tilnefndir af Skotveiðifélagi Íslands eða öðrum þeim aðilum. sem stunda skotveiði á landi hér, og tekið verði til athugunar hvort ekki sé fremur rétt að setja heildarlöggjöf um skotveiði þar sem þessi mál verði leyst öll í einu. Aðeins í þessu sambandi vil ég geta þess, að Gaukur Jörundsson prófessor hefur gert ítarlegan samanburð á breytingum á löggjöf um friðun veiðidýra á landi hér og er prýðilega til þess bær að veita fræðilega aðstoð um hvað eina það er lýtur að réttinum til veiði í tengslum við eignarréttinn.
Herra forseti. Meira hef ég ekki um þetta mál að segja í bili.