04.12.1978
Neðri deild: 26. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í B-deild Alþingistíðinda. (841)

99. mál, söluskattur

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég vil lýsa fylgi mínu við þetta frv, um afnám söluskatts á rekavið. Ég vil hins vegar segja það, að það er ekki oft sem maður heyrir hv, þm. úr öðrum kjördæmum taka upp hanskann fyrir íbúa Árneshrepps eða íbúa annarra kjördæma. Þó ég geri ráð fyrir því að hv. þm. þekki þar nokkuð til, þá held ég að hann hafi ekki kynnst því sem þar hefur gerst á síðustu árum.a.m.k. þóttu mér ummæli hans ekki bera þess vott.

Það er alveg rétt, að fyrir Árneshrepp mætti vitanlega gera miklu meira en verið hefur, en við þm. Vestf. höfum þó æðioft hugsað til Árneshrepps í þeim opinberu framkvæmdum sem almennt er gengist fyrir. Vil ég nefna t.d. vegamál og Árneshreppsáætlun sem hefur gerbreytt öllum landbúnaði í Árneshreppi. Vil ég benda hv. þm. á að skreppa þangað norður og sjá býlin eins og þau líta nú út. Rafmagn er komið í Árneshrepp, og fleira þess háttar mætti nefna.

Hv. þm. nefndi sérstaklega hafnargerð. Hafnargerð í Norðurfirði er á hafnaáætlun og er að mati heimamanna það hafnarstæði sem þeir vilja helst fá. Ég geri varla ráð fyrir því, að hv. þm. ætlist til þess að þrjár hafnir verði byggðar í Árneshreppi, — ég trúi því varla. (SkA: Jú, jú, jú.) Jú, jú, jú, segir hv, þm. Ætli það yrði þá ekki ærið bólgin hafnaáætlun, ef við ætluðum um land allt að byggja þrjár hafnir fyrir 200 íbúa eða jafnvel innan við það? Ég held að Árneshreppsbúar ætlist ekki til slíks og mundu líta á það sem yfirboð.

Ég vil jafnframt upplýsa, að á þingi 1975–1976 flutti ég till. til þál. um samræmingu á álagningu söluskatts og yfirleitt í skattamálum almennt af þeirri ástæðu sem kemur fram í grg. með þessu frv., að mjög er þörf á slíkri samræmingu og ljóst að söluskattur, t.d. á það sem hér um ræðir, rekavið, er ekki lagður á í ýmsum öðrum kjördæmum landsins. Mér er ekki kunnugt um að slíkur söluskattur sé á lagður t.d. á Norðurlandi eystra.

Ég get hins vegar upplýst að sá söluskattur, sem á var lagður 1975, mun ekki hafa verið innheimtur af neinum krafti, enda um aðgerð að ræða sem áreiðanlega var mjög vafasöm, Ég tel að t.d. hafi ekki í Strandasýslu verið gengið eftir greiðslu söluskatts af rekavið sem lagður var á fyrir 1975. Hins vegar mun ríkisskattstjóri hafa úrskurðað, að söluskatt yrði og ætti að greiða af þessari framleiðslu, rekaviðnum. og hefur hann verið á lagður síðan. En ég tel mjög tímabært að létta þessu af, ekki síst vegna þeirrar samræmingar, sem sjálfsögð er á þessu sviði, en ekki hefur úr orðið þrátt fyrir loforð á þinginu 1975–1976 um breytingar þar á.

Ég vildi láta þetta koma hér fram um leið og ég þakka að vissu leyti umhyggju hv. þm. fyrir Árneshreppsbúum, en mótmæli jafnframt að til þeirra hafi ekki oft verið hugsað og mikið þar gert.