04.12.1978
Neðri deild: 26. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1257 í B-deild Alþingistíðinda. (842)
99. mál, söluskattur
Flm. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Aðeins örfá orð út af því sem hv. 4. þm. Vesturl. sagði. Ég vil leiðrétta að það séu liðin svo 3 ár að þm. Vestf. hafi ekkert gert í sambandi við þessa söluskattsálagningu. Framkvæmdin var með þeim hæfi, að í árslok 1975 fengu þessir aðilar flestir tilkynningu um þessa söluskattsálagningu. Þessi álagning var svo kærð. Kæran gekk í gegnum hið þunglamalega kerfi okkar, og það er ekki fyrr en á s.l. sumri sem ríkisskattanefnd kveður upp þann úrskurð að þessi söluskattsálagning sé lögum samkv. Þá fyrst gríp ég til þess ráðs að flytja hér frv., þar sem fjmrh. sagðist ekki hafa heimild til þess að fella þetta niður nema þá í sérstökum tilfellum. En þá hafði alltaf verið hægt að halda áfram þessari söluskattsálagningu. Því er þetta fyrsta tækifærið sem gefst til þess að fá leiðréttingu.
Að öðru leyti ætla ég að bæta við það sem hv. 2. þm. Vestf. sagði. Margt er ógert í Árneshreppi, það er hárrétt hjá hv. 4, þm. Vesturl. En það hefur líka margt verið gert. Stærsta átakið á síðustu árum er lagning rafmagns frá samveitu. — Það er mikil ánægja fyrir okkur þm. Vestfirðinga að fá jafngóðan liðsauka úr öðrum kjördæmum sem við vissulega metum í baráttunni fyrir þennan afskekkta hrepp sem og aðrar afskekktar byggðir á landinu.