05.12.1978
Sameinað þing: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1281 í B-deild Alþingistíðinda. (869)
98. mál, raungildi olíustyrks
Fyrirspyrjandi (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Á þskj. 109 hef ég leyft mér ásamt hv, þm. Kjartani Ólafssyni að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. viðskrh.:
„Hver hefur þróun hins svokallaða olíustyrks orðið miðað við raungildi frá árinu 1974 til ársins í ár svo og miðað við fjárlagafrv. 1979? Hvaða hlutfall er hér um að ræða sé annars vegar miðað við olíunotkun og hins vegar við hitaveitu á þessum árum?“
Um þessa fsp. þarf aðeins örfá orð.
Árið 1974, þegar olíuverðshækkunin mikla skall á og 1% í söluskatti var á lagt til jöfnunar fyrir þá sem þessi alda skall á af fullum þunga, var verð lítra af olíu í mars það ár 11.50 kr. og olíustyrkur á einstakling 7200 kr. á ári. Nú er olíulítrinn í u.þ.b. 50 kr. og olíustyrkur á einstakling 10 500 kr. Þessar einföldu tölur segja vitanlega ekki allt um þetta, og því er hér sérstaklega spurt um raungildi þessa styrks og samanburð á annars vegar olíunotkun og hins vegar hitaveitu.
Nú er öllum ljóst að mikil hækkun á olíu er fyrirsjáanleg nú á næstunni, og hún skellur auðvitað af fullum þunga á því fólki sem enn býr við olíukyndingu eina. Enn er óvíst hver áhrif þeirrar hækkunar muni verða. Í ljósi talna í fjárlögum nú og í fjárlagafrv. næsta árs er nauðsyn að fá, áður en þetta mál verður afgreitt, annað hvort frá hæstv. ríkisstj. eða þá úr fjvn. allnákvæma úttekt og upplýsingar um raungildi olíustyrksins.
Í aths. með fjárlagafrv. nú segir svo, með leyfi hæstv. forseta.
„Styrkur vegna olíunotkunar til húshitunar. Styrkur þessi er áætlaður 680 millj. kr. eða 176 millj. kr. lægri en í fjárlögum 1978. Gert er ráð fyrir að styrkþegum fækki úr 64 þús. í 60 þús. og greitt verði 10 500 kr. á mann eins og á árinu 1978. Að öðru leyti skýrist lækkunin með því, að reiknað er með lægri styrk til rafveitna, dísilstöðva og heimavistarskóla sem nemur 34 millj. kr. og enn fremur að á árinu 1978 var gert ráð fyrir 100 millj. kr. lið vegna vanáætlunar 1977“.
Um þessa vanáætlun kann ég ekki neina skýringu og veit ekki hvað veldur. En hvert svo sem hið fræðilega útreiknaða svar verður, sem hæstv. viðskrh. mun flytja hér á eftir, án efa frá skýrsluspekingum okkar, þá er ljóst að hér þarf á verulega bragarbót. Ég vil því biðja hæstv. ráðh. að svara því í leiðinni, hverra tillagna hans eða hæstv. ríkisstj. um lagfæringu hér á er að vænta varðandi fjárlög næsta árs eða hvort ætlunin er að fjvn. sjái þar alfarið um einhverja leiðréttingu.