05.12.1978
Sameinað þing: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1286 í B-deild Alþingistíðinda. (876)

98. mál, raungildi olíustyrks

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Þessar umr. og upplýsingar um olíustyrk eru ein staðreyndin enn í sambandi við erfiðari aðstöðu til búsetu úti á landi en í Reykjavík og nágrenni sem erfitt er að sætta sig við. Ég vil taka undir með hv. þm. Halldóri Ásgrímssyni um hið háa verð á raforku til húsahitunar sem er staðreynd. Þennan aðstöðumun verður að jafna og væri nauðsynlegt að fyrir lægju skýrar tölur um þetta verð.

Í þessu sambandi vil ég vekja sérstaka athygli á því, að vissulega er þörf á að sameinast um aukna leit og virkjun jarðvarmans og að hefja framkvæmdir við fjarhitun með ódýru rafmagni á þeim svæðum þar sem jarðhiti er ekki fyrir hendi. Ég vil leyfa mér að skora á hæstv. ríkisstj. og alþm. að taka rösklega til hendi í þessum málum, eins og raunar hefur verið gert í hitaveituframkvæmdum víða til þessa. Ég tel að þarna sé ein besta fjárfestingin í okkar landi og ekki síst til að jafna aðstöðumun og létta af þjóðinni því sem við eigum í vændum. eins og fram hefur komið, í síhækkandi olíuverði.