05.12.1978
Sameinað þing: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (878)
336. mál, störf byggðanefndar
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Spurt er: „Hvað líður störfum byggðanefndar, sem kosin var á Alþ. 18. apríl 1973?
a. Hefur n. lokið störfum og ef svo er hvenær má vænta þess að nál. verði birt?
b. Hver voru laun nm. og hver annars kostnaður við störf nefndarinnar?“
Svar: Byggðanefnd hefur ekki enn lokið störfum. Skv. upplýsingum frá formanni nefndarinnar eru drög að lokaskýrslu hennar væntanleg nú í byrjun þessa mánaðar. Fallist nefndin á drögin mundi álit hennar væntanlega liggja fyrir um áramótin.
Ekki hafa verið inntar af hendi neinar greiðslur vegna nefndarstarfanna frá því sem getið er í skýrslunni um stjórnir, nefndir og ráð ríkisins á árinu 1976, sem út var gefin í okt. 1977. Þar kemur fram að 7 nm. hafi samtals verið greidd þóknun sem nemur 325 þús. kr., en sérfræðikostnaður við störf nefndarinnar hafi numið 1 millj. 175 þús. kr. og þóknun og kostnaður því samtals numið 1.5 millj. kr. Hefur Byggðasjóður staðið straum af kostnaði við störf nefndarinnar í samræmi við það sem segir í þál. frá 13. apríl 1973 sem skipan nefndarinnar var byggð á.
Með þessu tel ég mig hafa svarað fsp. hv. þm., en vil jafnframt minna á að 9. des. 1973 svaraði þáv. forsrh. fsp. um störf nefndarinnar og í janúar 1974 var dreift á Alþingi skýrslu um störf hennar.