05.12.1978
Sameinað þing: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (879)

336. mál, störf byggðanefndar

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Mér þykir nú miklu miður að formaður n., hæstv. ráðh. Steingrímur Hermannsson, skuli ekki vera viðstaddur þessar umr. Ég vil aðeins taka það fram út af þessari fsp., að á vinstristjórnarárunum, þegar þessi n, var sett á laggirnar, þá starfaði hún að mínu viti mjög vel og vann að ýmsum sérmálum sem hún tók út úr sem brýnstu mál og við einstakir nm. fluttum þau hér inn á Alþingi. Eftir að hæstv. fyrrv. ríkisstj. tók við völdum strjáluðust fundir mjög, og fór svo að við nm. vissum í rauninni ekki um það, hvort við vorum í þessari n. eða ekki, enda hafði formaður það við orð, og sú stefna ríkti ekki hér í landi, að áraði til funda af þessu tagi. Í n. hafa vissulega verið nokkrar deilur um verksvið hennar, hvað hún skyldi gera. Sumir okkar nm. vildu flytja meira af brýnustu úrbótamálum og geyma okkur þá frekar þann lið sem laut að hinni almennu stefnumörkun. En þegar kom að hinni almennu stefnumörkun er ekki því að leyna heldur, að þar urðu deildar meiningar um hvaða markmið skyldi setja. Við fengum svo frá formanni n. send frumdrög seinni hluta s.l. vetrar, en á það hefur hins vegar verið bent nokkrum sinnum í n. og reyndar viðar, að svokölluð byggðadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins hafi í raun tekið að nokkru leyti þetta ómak af okkur nm. og hafi tekið að sér þau verkefni sem okkur var falið að vinna að. Við höfðum nokkurt samráð við þessa byggðadeild á þeim fáu fundum, sem haldnir voru eftir að hún var stofnuð, einum eða tveimur, að mig minnir. Ég sem sagt harma það, að formaður n. skuli ekki vera hér til þess að svara ásamt okkur hinum til saka fyrir það, hversu hægt hér hefur gengið, og útskýra það, hvers vegna ekkert liggur fyrir enn þá um það, hvenær n. ætlar sér að skila eða hverju n. ætlar að skila af sér.