06.12.1978
Efri deild: 24. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1308 í B-deild Alþingistíðinda. (904)
80. mál, sala notaðra lausafjármuna
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr. er að vissu leyti athyglisvert með tilliti til þeirra atburða sem hafa verið að gerast í ýmsum viðskiptum í sambandi við bílasölu, eins og hv. flm. minntist á í ræðu sinni. Þeir atburðir gefa vissulega tilefni til þess, að menn íhugi hvort á einhvern hátt væri hægt að setja einhvern betri varnagla í sambandi við slík viðskipti, þannig að þau gætu farið fram með meira öryggi en nú virðist eiga sér stað. Hins vegar vil ég lýsa þeirri skoðun minni, að ég held að það sé nokkuð hæpið að fara að setja jafnalmenna löggjöf og hér er lagt til í sambandi við sölu notaðs varnings og þá sérstaklega lausafjár, með umfangsmiklum ákvæðum og þar til heyrandi eftirliti.
Persónulega er mér kunnugt að í því bæjarfélagi, þar sem ég á heimili eru nokkrir aðilar sem hafa að atvinnu að vera slíkir lausafjármiðlarar. Þessir aðilar eru flestir aldraðir menn sem hafa snúið sér að þessari atvinnu. Og ég verð að segja það, að mér finnst að þurfi að hafa mikla gát á því að fara ekki að gera þessa starfsemi slíkra aðila, þar sem í fæstum tilfellum er um að ræða miklar upphæðir eða mikil umsvif, — gera slíka miðlunarstarfsemi það umfangsmikla og margbrotna að henni fari að fylgja ýmiss konar skýrslugerð með tilheyrandi skriffinnsku.
Við höfum allir reynslu af því, að þegar slíkt fyrirkomulag upphefst, þó að hugsað sé í upphafi að það eigi að vera einfalt í framkvæmd og án mikillar fyrirhafnar fyrir hlutaðeigendur, þá er reynslan sú, að það eru alltaf gerðar meiri kröfur um nánari sundurliðun, meiri og gleggri skýrslur og kvaðir og skriffinnsku sem slíkum fyrirmælum tilheyra, ekki síst ef þau koma frá opinberum aðilum. Þess vegna er mér mjög til efs að lagasetning, sem felst í frv. eins og þessu, yrði til eins mikilla bóta og hagræðingar og ég efast ekki um að vakir fyrir hv. flm.
Í grg., sem fylgir þessu frv., verður flm. mjög tíðrætt um að hann hafi kynnt sér hvernig farið er með þessi málefni í Noregi. Hann lagði einnig í framsöguræðu sinni ríka áherslu á það, að hann teldi að það væri hentugt fyrir okkur Íslendinga að fara að fordæmi frænda okkar, Norðmanna, um að hafa lagaákvæði um viðskipti eins og þeir hefðu hjá sér. Ég er hv. flm. sammála um það, að við mættum gjarnan sem slíkir líta til grannþjóða okkar og þá kannske sérstaklega á Norðurlöndum, sem við teljum okkur skyldastar og höfum hvað nánust samskipti við um ýmislegt sem snertir almenn viðskipti. Ég vil í allri vinsemd leyfa mér að fara fram á það við hv. flm. þessa frv., að hann verði til viðtals um annaðhvort að styðja eða vera meðflm. að tillögu eða lagafrv. um það, að við reynum að samhæfa löggjöf okkar Íslendinga í viðskiptum almennt þannig að við kæmumst á svipað „plan“ — ef ég má nota það orð — og gengur og gerist hjá nágrannaþjóðunum. En það er langt frá því að við getum talist jafningjar þeirra að því er þessi mál snertir. Ég vil nefna hvernig háttað er hjá nágrannaþjóðum okkar um verslunarálagningu. Ég vil nefna hvernig háttað er um verðlagseftirlit og verðlagsmál. Verðlagseftirlit er búið að afnema fyrir löngu á Norðurlöndunum vegna þess að það þykir ekki ná tilgangi sínum. Ég er alveg viss um að við mundum ekki veita launafólki betri kjarabætur til viðbótar við þær miklu kjarabætur, sem er verið að veita launafólki núna, heldur en ef við sýndum rögg og afnæmum verðlagseftirlit með öllu. Ég vil nefna gjaldeyrislöggjöf okkar og meðferð mála í því sambandi. Og að síðustu vil ég nefna ákvæði um almenna vegferð fjármagns í þessu landi. Þessi tvö atriði: gjaldeyrislöggjöfin og almenn vegferð fjármagns í okkar þjóðfélagi, eru með slíkum endemum að menn í nágrannalöndum, á Norðurlöndunum, í Noregi, sem mest er vísað til í grg. þessa frv., hrista hausinn, hvar í flokki sem þeir eru, hvort þeir eru í Verkamannaflokknum eða Sósíalistaflokknum, að ég tali nú ekki um ef þeir eru eitthvað meira til hægri. Þeir hrista bara höfuðið yfir að þessi ósköp geti átt sér stað, að við séum eins fornaldarlegir og við erum í framkvæmd þessara mála hér í okkar ágæta landi.
Herra forseti. Hér tel ég að sé verðugt og mikið verk að vinna, og ég fór í ræðustól í þeim tilgangi að minnast eilítið á þessi mál. Ég held að það væri gott að við þm. reyndum að sameinast um það að hefja eins konar vakningaröldu. Við gætum þá kallað að þetta væri t.a.m. svipað og þegar ungmennafélagshreyfingin náði hingað — kom hún ekki frá Noregi? Ég vonast til að ég, sem er mjög fylgjandi breytingum til hins betra í þeim málum sem ég var að nefna og snerta almenn viðskipti, — að ég og hv. 3. þm. Austurl., flm. þessa frv., getum þá átt gott samstarf. Þegar við leggjum báðir hönd á plóginn í einlægni, þá efast ég ekki um að við munum ná jákvæðum árangri.