06.12.1978
Neðri deild: 27. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (921)

91. mál, biðlaun alþingismanna

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Eins og fram kom raunar við 1. umr. þessa máls gerði ég fyrirvara um eitt atriði í sambandi við það frv. sem hér er nú til umr. um biðlaun til handa alþm. Fyrirvari minn er eingöngu við efnisgrein frv., 1. gr., og ég tel rétt, í ljósi þess, að hér er verið að fara að nokkru inn á nýjar brautir, og með það í huga, sem sífellt er verið að tjá þingheimi, að nú skuli gæta sparnaðar og ítrasta aðhalds, að þessi biðlaun takmarkist við þrjá mánuði.

Ég tel að þriggja mánaða biðlaun séu sanngirnismál, þannig að menn hafi einhvern umþóttunartíma til að leita nýrra starfa. Þar sem þetta mál var einnig til umr. hér í fyrra, þá finnst mér eðlilegt og í senn líka sanngjarnt að þau lög, sem nú kunna að verða samþykkt, taki einnig til þeirra sem áttu sæti á síðasta þingi, taki ekki aðeins til okkar sem eigum mislanga setu fyrir höndum á þingi.

Það er auðvitað alla tíð og ævinlega matsatriði, hve lengi og hvort skuli greiða biðlaun. Þar er engin regla einhlít. Alþm. bera gjarnan kjarastöðu sína saman við stöðu opinberra starfsmanna. En hjá íslenska ríkinu eru um þetta fastar reglur, reglur um biðlaun. Það gildir þar í fyrsta lagi um þá sem eru æviráðnir, að ef staða þeirra er t.d. lögð niður, þá njóta þeir biðlauna í 6 mánuði, hafi þeir unnið hjá ríkinu skemur en 15 ár. Hafi þeir unnið hjá ríkinu lengur en 15 ár, þá njóta þeir biðlauna í 12 mánuði. Um s.l. áramót var t.d. lögð niður lóranstöðin á Reynisfjalli við Vík í Mýrdal, og eftir þeim upplýsingum sem ég hef, þá hafa allir starfsmenn þar notið biðlauna í 12 mánuði, enda allir, að mér skilst, unnið þar lengur en 15 ár. Þessi æviráðningarregla getur hins vegar ekki átt við um alþm. Ef menn eru ráðnir með venjulegum hætti til ríkisins, þ.e.a.s. samkv. samningi, og hafa aðeins þriggja mánaða venjulegan uppsagnarfrest, þá er sá uppsagnarfrestur, yfirleitt notaður og kemur því yfirleitt ekki til biðlauna, en í því tilviki að biðlaun væru greidd, þá mundu þau þar vera greidd í þrjá mánuði. Má því segja að það sé hin almenna regla.

Í nokkrar stöður hjá ríkinu er hins vegar ráðið til fjögurra ára, svo sem stöðu þjóðleikhússtjóra og nokkrar aðrar stöður, og á það hefur ekki reynt enn þá, hvort biðlaun skuli greidd í slíkum tilvikum, en skoðun launamáladeildar fjmrn. mun hins vegar sú, að þar skapist að öðru jöfnu ekki réttur til biðlauna. Þá mun það regla, að bæjarstjórar, sem ráðnir eru til fjögurra ára og eiga starf sitt undir úrslitum kosninga, njóta ýmist biðlauna í þrjá mánuði eða sex, að ég hygg hvarvetna um land. En á öldinni sem leið voru menn ekki að velta fyrir sér þremur eða sex mánuðum, því að þegar Grímur skáld Thomsen kom heim til Íslands eftir að hafa starfað í dönsku utanríkisþjónustunni í 30 ár og gerðist bóndi á Bessastöðum og raunar alþm. líka, þá naut hann biðlauna í 5 ár. Þessu er skotið hér inn meira til gamans. Þetta þætti líklega óþarfa örlæti nú á dögum.

Ég tel sem sagt, herra forseti, að það sé rétt að biðlaun alþm. takmarkist við þrjá mánuði, eins og má segja að sé hin almenna regla hjá ríkinu þegar ekki er um æviráðningu að ræða, og því hef ég leyft mér að flytja brtt. við 1. gr. frv. sem er svo hljóðandi, með leyfi forseta:

„Alþm., sem setið hefur á Alþ. eitt kjörtímabil eða lengur, á rétt á biðlaunum. Biðlaun skal greiða í þrjá mánuði.“