07.12.1978
Sameinað þing: 32. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1368 í B-deild Alþingistíðinda. (937)

Umræður utan dagskrár

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Ég vil láta þá skoðun í ljós, að mér þykir Alþingi ekki vera vettvangur til þess að láta í ljós álit á bókum, hvort þær eru góðar eða slæmar. Til þess eru dagblöð t.d. ætluð. Fólk getur um slíkt skrifað blaðagreinar, en Alþ. er ekki og á ekki að vera vettvangur þess.

Það er með mat á svona bókum, að það getur auðvitað aldrei verið algilt. Hv. þm. Ragnhildi Helgadóttur getur þótt bók vera góð sem hv. þm. Svövu Jakobsdóttur þykir vera vond — og öfugt. Það er auðvitað enginn algildur dómur um þetta til. Þetta er ævinlega smekksatriði. Það hygg ég að sé kjarni málsins. Satt að segja mislíkaði mér sú tilhneiging, sem mér þótti kenna í máli fyrirspyrjanda um þetta efni, að finnast vera til einhver algildur mælikvarði á það, hvort bækur séu góðar eða slæmar.

Það er skoðun mín satt að segja, að alltaf sé ósmekklegt að nugga sér utan í Krist, hvort sem það er gert úr ræðustól á Alþ. eða annars staðar. Túlkanir af því tagi, sem eru í þessari bók sem Þórarinn Eldjárn hefur þýtt á íslensku og hér er til umr., eru auðvitað ekki nýjar af nálinni, gríski rithöfundurinn Kazantzakis skrifaði t.d. bók fyrir 20 árum eða svo um ævi Krists, sem vakti mikla hneykslun, en aðdáun margra. Efnisþráðurinn gekk m.a. út á það, að Kristur hefði verið mennskur maður, ástfanginn af Maríu Magdalenu og að því kominn að guggna og gefast upp í garðinum Getsemane þegar bjargvættur mannkyns, Júdas Ískaríot, kom og kyssti hann og var þar með valdur að því að Kristur guggnaði ekki, heldur fórnaði sér fyrir mannkynið og heiminn. Söguskoðun Kazantzakis þótti auðvitað mörgum ákaflega ósmekkleg. Aðrir voru fullir aðdáunar. Ég hygg að það hafi gerst með þessa skáldsögu, að hún hafi unnið sér sess meðal sígildra bókmennta. Með þessu er ég að engu að spá um hvað framtíðin kunni að bera í skauti sér um þá bók sem hér er til umr. Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttur hefur auðvitað hinn fyllsta rétt til að fyllast viðbjóði við að lesa þessa bók, en Svava Jakobsdóttir hefur líka hinn fyllsta rétt til að þykja þetta vera góðar bókmenntir. Þeir, sem að þessari bókaútgáfu standa, hafa hinn fyllsta rétt til að sækja um styrki til menningarstofnana til þess að aðstoða sig við útgáfuna.

Ég verð að segja það líka, að í máli fyrirspyrjanda mislíkaði mér mjög — hvað sem menn vilja kalla það — það sem mér þótti vera ritskoðunartilhneiging sem þarna gætti mjög verulega. Ég er þeirrar skoðunar, að Alþ. eigi ekki að hafa áhyggjur af góðum bókum eða vondum bókum. Góðar bækur lifa og vondar bækur dæma sig sjálfar. Alþ. þarf engar áhyggjur að hafa af því. Ef þetta er vond bók verður henni ekki haldið að börnum, a.m.k. ekki af þeim sem þykir hún vera vond. Ef einhverjum finnst það vera smekklegt, rétt eða fagurt að halda þessari bók að börnum, þá er það þeirra heilagur réttur að gera svo. Það er raunverulega aðeins til einn samnefnari fyrir dómara í málum af þessu tagi, og það er auðvitað ekki hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir og ekki heldur hv. þm. Svava Jakobsdóttir. Þessi samnefnari er fólkið og tíminn. Þessi samnefnari einn getur dæmt um það, hvort bækur séu góðar eða vondar, hvort bækur séu smekklegar eða ósmekklegar.

Ég vil endurtaka það, að mér líkaði mjög miður — og ég segi enn: hvað sem menn vilja kalla það — það sem er ritskoðunartilhneiging í máli málshefjanda. Höfundur bókarinnar er vissulega ekki hér til að svara fyrir sig og útskýra, ef þyrfti að spyrja hann. Þýðandi bókarinnar er ekki heldur hér til að útskýra eða svara spurningum. Vettvangur fyrir skoðanaskipti af þessu tagi, sem auðvitað geta þjónað menningarlegum tilgangi, á ekki að vera Alþingi. Vettvangurinn á að vera dagblöð, þar sem hv. þm. Ragnhildi Helgadóttur er auðvitað frjálst að þykja bækur vondar og hv. þm. Svövu Jakobsdóttur jafnfrjálst að þykja bækur góðar.

Ég endurtek það enn og aftur að tíminn og fólkið samanlagt getur eitt dæmt um gildi bóka, en Alþ. er rangur umræðuvettvangur rétt eftir að bók hefur komið út.