07.12.1978
Sameinað þing: 32. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1372 í B-deild Alþingistíðinda. (939)
Umræður utan dagskrár
Kjartan Ólafsson:
Herra forseti. Ég hef ekki átt lengi sæti á hinu háa Alþingi, en það verð ég að segja, að þetta eru furðulegustu umr. sem hér hafa farið fram þann stutta tíma sem ég hef getað skemmt mér við að sitja undir umr.
Ég hafði eiginlega ekki hugsað mér að taka til máls, en gat þó ekki látið það hjá líða eftir síðari ræðu hv. 5. þm. Reykv. Ég veit ekki hvort ég skil það rétt, að ég sé staddur á Alþingi Íslendinga árið 1978. Ég gæti miklu frekar álitið eftir málflutningi hv. 5. þm. Reykv. að dæma, að þar talaði dómari frá tíma rannsóknaréttarins hjá kaþólsku kirkjunni á 17. öld suður í Evrópu, eða kannske að maður væri staddur í nútímanum, en á allt öðrum stað í heiminum, kannske á fundi hjá Æðsta ráðinu í Moskvu. (Gripið fram í: Þar liði þér vel.) Ég hygg, að hvað sem líður skoðunum hv. 5. þm. Vesturl. á því, hvernig mér liði á fundum í Æðsta ráðinu í Moskvu, þá sé enginn vafi á því, að bæði honum og hv. 5. þm. Reykv. liði þar langtum betur, a.m.k. þegar höfð eru í huga þau viðhorf sem fram komu í málflutningi þm. Ragnhildar Helgadóttur áðan.
Það er alkunna, að það eru býsna miklir valdamenn í veröldinni sem kenna sig við kommúnisma, og þeir eru sífellt að vara við hættunni af þeim mönnum sem hafi vald á orðsins list, eins og hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir talar um. Þessir menn geti verið svo hættulegir, þeir noti orðsins list til illra verka, eins og hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir orðaði þetta áðan. Þetta er nákvæmlega sami málflutningurinn.
Hvaðan kemur hv. þm. vald til þess að leyfa sér að halda því fram héðan úr þessum ræðustól, að hún hafi eitthvert umboð til þess að túlka það, hvort þessi bók eða hin eigi að fá að birtast hér í landi okkar vegna þess að hún innihaldi skoðanir? Mega ekki allar skoðanir koma fram? (Gripið fram í: Þetta er ráðstöfun á almannafé.) Ráðstöfun á almannafé, einmitt. Það á sem sagt að setja um það reglur fyrir þessa norrænu þýðingarmiðstöð, að hún megi aðeins veita styrk til útgáfu á bókum sem hafa ákveðnar skoðanir, en henni sé bannað að veita styrk til bóka sem hafa einhverjar aðrar skoðanir. Það á ekki lengur að spyrja um listrænt gildi, heldur á að spyrja um skoðanir.
Hv. þm. Friðrik Sophusson talaði um að þessi höfundur mundi vera kommúnisti. Ég hef ekki hugmynd um það. Ég þekki ekki þennan höfund, hef ekkert eftir hann lesið, hvorki þessa bók né aðrar. En ég vil hins vegar slá því föstu, að ef Alþingi Íslendinga ætlar að fara að gera ráðstafanir í þá átt að segja: Við vitum ekki fé til að bók komi út af því að hún inniheldur þessa eða hina skoðun, af því að í henni er kommúnismi, af því að í henni er kristindómur, af því að í henni er kapítalismi eða af því að í henni er heiðindómur, þá skal hver og einn gæta að sjálfum sér, því að sá, sem kann að hafa vald í dag til að banna slíkt, kann að hafa misst það á morgun og það bitnaði á honum sjálfum. Ég vil vænta þess, að þeim fari fækkandi í þessu landi sem leyfa sér að halda fram kenningum af þessu tagi. Við skulum veita fjármagn, að svo miklu leyti sem við höfum getu til, til hverrar þeirrar bókar sem vel er skrifuð, sem á eitthvert listrænt erindi, hvort sem við persónulega erum sammála þeim skoðunum, sem þar koma fram, eða ekki.
Valdamenn kommúnismans í veröldinni hafa verið að reyna að koma sér upp heilögum mönnum. Það hefur ekki mátt fjalla um þessa menn: Nei, nei, nei, heilagir menn. Það má ekki skrifa um þá nema eftir ákveðinni forskrift. Á að fara þannig með Jesú Krist, að það sé aðeins ein opinber túlkun eða ef hv. þm. Ragnhildi Helgadóttur þóknast ekki að kannast við myndina af sögupersónunni Kristi í einhverri bók, þá eigi að banna bókina eða þá megi alls ekki veita til hennar fé? (RH: Hver er að tala um að banna?) Ég vil ætlast til þess að það séu leidd rök að því, að bókin sé að einhverju leyti slæm, burt séð frá þeim skoðunum sem koma fram í henni, ef á að halda hér uppi gagnrýni á þessa fjárveitingu. Ég get ekki gert ráð fyrir því, enda þótt ég hafi ekki lesið þessa bók, að þarna sé um eitthvert sorprit að ræða. Ég hef verið þeirrar ánægju aðnjótandi að lesa bækur frá þýðanda þessarar bókar, Þórarni Eldjárn, og það þarf meira en lítið til að sannfæra mig um að jafnágætt og efnilegt ungt skáld og þar er á ferð, sem ég vona að hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir geti viðurkennt með mér, fari að eyða tíma sínum í að þýða sorprit. Mér þykir slíkt ekki líklegt. Ég held að það sé harla ólíklegt. Ég óttast a.m.k. ekki, að unglingar á Íslandi bíði tjón á tungu sinni við það að lesa það sem þessi maður lætur frá sér fara á voru máli.
Það er ekki ástæða til að hafa um þetta mörg orð í viðbót, en það er kannske að ýmsu leyti gott af umr. að þessu tagi fari hér fram, þótt maður hefði ekki átt von á því þegar mörgum mikilvægum verkefnum er hér að sinna. En ég verð að segja, að það fer þó ekki hjá því — held ég — að það sé þarft að þeir einstaklingar, hvort sem þeir sitja hér á hinu háa Alþingi eða annars staðar í þjóðfélaginu, sem reynast hafa skoðanir á borð við þær sem fram hafa komið hjá hv. þm. Ragnhildi Helgadóttur, auglýsi þær skoðanir sem rækilegast þannig að menn geti lært að varast þær.