23.10.1978
Sameinað þing: 6. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (95)

Umræður utan dagskrár

Fjmrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég vissi ekki af því fyrr en eftir hádegið, að ég þyrfti að svara hér fsp. utan dagskrár, þannig að ég hef því miður ekki haft þann tíma til undirbúnings sem hefði verið æskilegur. En ég skal reyna að svara spurningunni eins glögglega og mér er unnt.

Ég vil þá fyrst geta þess, að í 42. gr. stjórnarskrárinnar er gert ráð fyrir að þegar þing kemur saman skuli leggja fyrir það fjárlagafrv. Ég mun síðar gera nánari grein fyrir því, hvers vegna dráttur hefur orðið á því. Ég hef raunar þegar gert það að nokkru. En það er stefnt að því, að fjárlagafrv. verði lagt fyrir Alþingi helst í þessum mánuði. Það hefur oft komið fyrir áður, að fjárlagafrv. hefur ekki verið lagt fyrir þingið alveg í upphafi þess, og mun ég síðar rekja þau mál nánar. Þó hygg ég að það hafi ekki komið fyrir síðan 1961, ef ég man rétt.

Eins og hér kom fram hjá fyrirspyrjanda, hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni, voru í samningaviðræðum, þegar núv. ríkisstj. var mynduð, höfð margháttuð samráð við fulltrúa launþegasamtakanna og aðila vinnumarkaðarins um stefnuna í efnahagsmálum, og í samstarfsyfirlýsingu ríkisstj.-flokkanna eru nokkur ákvæði sem varða sérstaklega ríkisbúskapinn, og að sjálfsögðu verður byggt á þessari stefnu í fjárlagafrv. Ég veit að hv. þm. er það ljóst, að ekki er við hæfi að ræða einstök atriði fjárlagafrv. fyrr en það er lagt fyrir Alþingi. Það er sú samkoma sem fyrst fær að sjá fjárlagafrv. á eftir ríkisstj. og þess vegna ekki ástæða til þess að gera það við neina aðra aðila. Hins vegar er öðru máli að gegna um stefnumarkandi mál sem varða fjárlagafrv. Í því efni gerði ég nokkra grein fyrir helstu þáttunum í ræðu þeirri sem ég flutti hér s.l. fimmtudag í umr. um stefnuræðu hæstv. forsrh. Ég kom þar inn á ýmis atriði sem ég sé ekki ástæðu til að endurtaka hér. Sá stutti tími, sem ríkisstj. hefur starfað, hefur verið mikill annatími, ekki síst í fjmrn., vegna þess að ríkisstj. tók þegar á fyrstu dögum margvíslegar ákvarðanir sem hafa mikil áhrif á fjárlagafrv. í ýmsum efnum og ríkisbúskapinn á næsta ári.

Varðandi það, sem spurt var um hér af hv. fyrirspyrjanda, þá vil ég geta þess, að á fyrsta fundi, sem haldinn var í samráðs- og samstarfsnefnd fulltrúa launþega, atvinnurekenda og ríkisvalds sl. föstudag, sem var fyrst og fremst fundur til þess að ræða nánar um þessi samráð, hvernig þeim skyldi hagað, gerði ég að umræðuefni stefnuna í fjárl. sem ætti að nota alveg sérstaklega sem hagstjórnartæki í baráttunni gegn verðbólgunni. Það hafa nú verið teknar upp í fjmrn. nótur um þessar viðræður eða þennan fund. Ég held að það sé langeinfaldast fyrir mig að lesa upp það sem var skrifað af þessum fundi, sem ég sagði frá, varðandi fjárlagagerðina og fjárl. Ég vil með leyfi hæstv. forseta lesa þetta hér upp, því að það skýrir í raun og veru það sem um er spurt.

„Verðbólgan er aðalvandamál okkar,“ sagði ráðh., „og til hennar mætti rekja helstu vandamál efnahagslífsins, svo sem lánsfjárkreppu og erfiðleika útflutningsatvinnuveganna. Fjmrh. kvað fjárl. eitt af þeim tækjum sem nota mætti í baráttunni gegn verðbógunni. Reka þyrfti ríkisbúskapinn þannig að hann yrði að vera í jafnvægi næstu 16 mánuði. Skuld ríkissjóðs við Seðlabankann kvað hann munu vera um 30 milljarða kr., en hefði verið 15 milljarðar í ársbyrjun. Þessa þróun yrði að stöðva og stefna að því að greiða niður þessar skuldir sem að verulegum hluta til eru erlendar skuldir eins og kunnugt er. Draga yrði úr framkvæmdum, en þó án þess að stofna atvinnuástandi í hættu. Hann kvað beina skatta hafa verið notaða til að afla fjár til niðurgreiðslna á verðlagi, m.a. vegna þess að þeir væru öfugt við óbeinu skattana ekki inni í vísitölunni. Notkun óbeinna skatta til tekjuöflunar leiddi nú sjálfkrafa til hækkunar kaupgjalds og verðtags. Fjmrh. kvaðst hafa viljað kynna nefndinni stefnuna í fjárlagafrv., en út í einstök atriði væri ekki unnt að fara“ — af ástæðum sem ég hef þegar gert grein fyrir.

Þessi samráð samráðsnefndarinnar munu fara þannig fram, að það verða viðræður við einstök félög eða samtök innan vinnumarkaðarins, og síðast í morgun var fundur með fulltrúum BSRB um samskipti ríkisvaldsins og launamanna og þátt í henni tóku ráðh. Svavar Gestsson, hæstv. viðskrh., hæstv. sjútvrh. Kjartan Jóhannsson og ég. Á þeim fundi var m.a. skipst á skoðunum um stefnuna í fjárfestingarmálum og fjármálum ríkisins og samhengi þessara mála við kjaramálin.

Þetta eru þau atriði sem ég get upplýst hv. fyrirspyrjanda um hvað gerst hefur sérstaklega í þessum málum varðandi samráðin. En ég vil taka það fram, að það hefur verið annasamt í sambandi við fjárlagaundirbúninginn og mörg fleiri störf, sem ríkisstj. hefur haft með höndum þann stutta tíma sem hún hefur setið, þ. á m. að koma á ýmsum nefndum, svo sem samráðsnefndinni og fleiri nefndum sem fjalla m.a. um þessi þýðingarmiklu samráð.