11.12.1978
Neðri deild: 29. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (955)

125. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 147 legg ég fram frv. til l. um breyt. á l. nr. 101/1966, um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörum o.fl., og er þetta stjfrv. Megintilgangurinn með frv. er að veita Framleiðsluráði landbúnaðarins heimildir til þess að grípa til ákveðinna aðgerða, sem ég mun ræða nánar síðar, í því skyni að hamla gegn þeirri umframframleiðslu sem ískyggileg er orðin á landbúnaðarafurðum. Frv. þetta byggist efnislega á till. svokallaðrar sjömannanefndar, sem fyrst og fremst var skipuð fulltrúum bænda, og á samþykktum, sem gerðar voru á Stéttarsambandsþingi s.l. haust, en ég mun nánar koma að frv. síðar. Mér þykir hins vegar rétt í upphafi að gera nokkra grein fyrir stöðu þessara mála og m.a. þeirri stefnu, sem ákveðið hefur landbúnaðarframleiðsluna undanfarna áratugi. Er þá rétt að nefna þau lög, sem mest áhrif hafa haft á framleiðslu landbúnaðarafurða.

Ég hygg að óhætt sé að segja, að afurðasölulögin frá 1934 hafi markað tímamót í íslenskri landbúnaðarsögu. Þá var komið föstu skipulagi á afurðamál bænda og lagður grunnur að því söluskipulagi sem enn er búið við á þessu sviði. Árið 1947 voru síðan lög um Framleiðsluráð landbúnaðarins samþykkt, og hafa þau að stofni til staðið óbreytt frá þeim tíma eða í 31 ár. Hafa verður í huga að þegar þessi lög voru samþykkt var skortur á vissum landbúnaðarafurðum, einkum smjöri sem þá var iðulega flutt inn erlendis frá. Einnig höfðu þá fjárpestirnar herjað og annað slagið var skortur á kindakjöti. Með framleiðsluráðslögunum var komið fastri skipan á verðlagsmál landbúnaðarins og sett ákveðin verðviðmiðun, þ.e.a.s. við tekjur verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna. Þessi lög ásamt jarðræktarlögunum, sem sett voru 1945, hafa eins og fyrr segir mótað hina raunverulegu landbúnaðarstefnu Íslendinga síðustu áratugina. Ákvæði þeirra eiga það öll sameiginlegt að vera framleiðsluhvetjandi, og vísa ég til þess sem ég sagði áðan um það ástand sem var í landbúnaðarframleiðslunni þegar þau voru sett. Í þessum lögum er m.ö.o. ekki gert ráð fyrir stjórntækjum sem beita má til hömlunar í landbúnaðarframleiðslu.

Árið 1960 var bætt inn í framleiðsluráðslöggjöfina ákvæði um ábyrgð ríkissjóðs vegna útflutnings landbúnaðarafurða. Nemur sú verðtrygging allt að 10% af heildarverðmæti landbúnaðarafurða til framleiðenda. Ákvæðin um útflutningsbætur eru hluti af tekjutryggingu bændastéttarinnar, en þau hafa einnig reynst vera framleiðsluhvetjandi því að jafnhliða þeim var ekki séð fyrir heimildum til framleiðsluhamlandi aðgerða. Þetta hafa forustumenn bænda reyndar fyrir löngu gert sér ljóst og hafa hvatt til þess ítrekað, að lögfest yrðu ákvæði sem heimiluðu hamlandi aðgerðir ef um offramleiðslu yrði að ræða.

Árið 1972 lagði þáv. hæstv. landbrh., Halldór E. Sigurðsson, fram frv. til l. um breyt. á framleiðsluráðslögunum. Gerði það frv. ráð fyrir heimildum til hömlunar gegn umframframleiðslu, m.a. töku fóðurbætisgjalds. Þetta frv. náði sem kunnugt er ekki fram að ganga og hefur ekki síðan verið samstaða um lögfestingu slíkra ákvæða.

Þetta er í stórum dráttum sá lagalegi rammi, sem mest áhrif hefur á þróun landbúnaðarframleiðslunnar og eins og áður sagði hefur mótað landbúnaðarstefnuna undanfarna áratugi.

Mér þykir síðan rétt að gera stuttlega grein fyrir þróun framleiðslunnar og þróun útflutnings landbúnaðarafurða.

Kindakjöt var flutt út árlega í nokkru magni allt frá aldamótum og fram til 1940. Á stríðsárunum var útflutningurinn minni, og á árunum 1948–1956 var hann flest árin lítill og sum engin. Gætti þar áhrifa niðurskurðar af völdum fjárpestanna, sem þá herjuðu á sauðfjárstofninn. Árið 1957 hefst útflutningur kindakjöts aftur að nokkru marki, og voru þá flutt út 2340 tonn eða 28% af heildarframleiðslunni. Útflutningur kindakjöts hefur verið öll árin síðan. Miklar sveiflur hafa þó verið í magni. Árið 1965 voru aðeins flutt út 18% framleiðslunnar, en mestur hefur útflutningurinn orðið 1968, eða 44%. Frá árinu 1970 hefur útflutningur kindakjöts verið nokkuð jafn má segja, 24–29% 1970–1975, en fer eftir það vaxandi, verður 1977 34%, 1978 33% og 1979 er áætlað að útflutningurinn þurfi að verða 35% heildarframleiðslunnar. Rétt er að vekja athygli á því, eins og fram kom í þessum tölum, að útflutningur kindakjöts hefur síðan 1970 og fram til 1975–1976 verið lægra hlutfall af heildarframleiðslu hvers árs en var oft áður, t.d. 1968 eins og ég nefndi. Það er því ekki aukið magn eingöngu, nema síðustu 3–4 árin, sem valdið hefur erfiðleikum með útflutning, heldur einnig verðþróun innanlands og erlendis, eins og nánar verður vikið að síðar.

Um mjólkina er það að segja, að útflutningur mjólkurafurða hefur verið nokkur allt frá 1934, en oft mjög lítill. Árið 1959 var reyndar skortur á mjólkurafurðum og var þá flutt inn nokkurt magn smjörs. Síðan 1961 hafa mjólkurafurðir verið fluttar út á hverju ári, en mjög misjafnlega mikið og ráða árstíðasveiflur þar miklu um. 1977 tekur mjólkurframleiðslan mikið stökk og fer umframmagnið þá úr 6.1% í 18.4%. Má vafalítið rekja það stökk að hluta til lækkandi kjarnfóðursverðs. Nánari upplýsingar um mjólkurframleiðsluna má að sjálfsögðu finna í skýrslum um þennan útflutning, en ég vil þó geta þess, að flest árin frá 1960 og fram til 1976 hefur mjólkurframleiðsla umfram notkun innanlands verið á bilinu frá 4 upp í 9%, að undanteknum tveimur árum, 1964 og 1965, þegar framleiðslan var á fyrra árinu 14.4% meiri, en á síðara árinu 20% meiri. Hins vegar tekur hún stökk 1977, eins og fyrr er nefnt, og verður þá 18.4%. Líkur eru til þess nú, að umframframleiðsla mjólkurafurða verði um 24%. Að öllum líkindum er þessi umframframleiðsla mjólkurafurða mesta vandamálið sem nú blasir við landbúnaðarframleiðslunni. Veldur þar m.a., að erfitt er að selja sumar mjólkurafurðir — eins og t.d. smjör — úr landi fyrir verð sem viðunandi getur talist. Ég tel rétt að fara nokkrum orðum um þetta mikla vandamál.

Innvegin mjólk á verðlagsárinu 1977–1978 varð 117.8 millj. lítra, en er áætluð á því verðlagsári, sem nú er hafið, 123.6 millj. lítra. Er það 5% aukning. Af þessari framleiðslu verða u.þ.b. 67 millj. lítra að fara í vinnslu. Af því er áætlað að á verðlagsárinu 1978–1979 megi auka nokkuð framleiðslu osta, þannig að vinna megi úr u.þ.b. 24–25 millj. lítra. Afgangs eru þá um 39 millj. lítra sem ekki verður annað við gert en framleiða smjör.

Þetta er mjög alvarlegt mál, þar sem smjörbirgðir í landinu eru nú um 1400 tonn, og það er ársneysla okkar Íslendinga. Líkur eru því til þess að smjörbirgðir, ef ekkert er að gert, vaxi á yfirstandandi verðlagsári og geti orðið allt að 2000 tonn í lok ágúst næsta ár. Þess er svo jafnframt rétt að geta, að smjör, eins og ég sagði og hv. þm. munu þekkja, er illseljanlegt úr landi. Markaður er naumast enginn fyrir það. Skásta verð, sem nefnt hefur verið, er í kringum 300 kr. hvert kg, og er það að sjálfsögðu ekki nema brot af framleiðsluverði, rúml. 10%.

Fram til ársins 1960 voru ekki greiddar bætur á útfluttar landbúnaðarafurðir. Fengu bændur þá aðeins greitt útflutningsverðið fyrir þær afurðir sem fluttar voru út, og útflutningsverðið réð að miklu leyti verðinu innanlands. Á þeim árum var afkoma bænda því mjög ótrygg. Tekjuskerðing þeirra var tilfinnanleg þegar verðfall varð á kjöti erlendis. Með setningu framleiðsluráðslaganna fékkst heimild til þess að jafna slíkan halla eða áföll meðal bænda með töku verðjöfnunargjalds. Útflutningsbæturnar eru öryggisventill eða tekjutrygging fyrir bændastéttina þegar framleiðslan fer fram yfir innlendar þarfir og ekki fæst fullt verð erlendis fyrir útfluttar afurðir. — En útflutningsbætur voru ákveðnar 1960, eins og fyrr segir, og komu til framkvæmda 1961.

Fyrstu árin eftir að ákvæðin um útflutningsbætur tóku gildi námu bæturnar 2–3% heildarverðmætis landbúnaðarafurða, en fóru síðan vaxandi. Þegar kemur fram undir 1964 til 1965 voru þær orðnar um 9.6%, en fara svo í fyrsta sinn fram yfir 10% 1965–1966 og verða 10.2%. Haldast þær síðan nokkurn veginn þannig fram til 1970, eru að vísu nokkru meiri 1969 og 1970, eða 10.5%. Síðan fer þörfin fyrir útflutningsbætur minnkandi þar til á verðlagsárinu 1977–1978, að þörfin fer aftur upp fyrir 10%, og verða þá 11.2%, 1977 og 13.3% 1978, og ef bæta á allan útflutninginn á því verðlagsári, sem nú er hafið, má ætla að þörfin geti orðið 15% á árinu 1979.

Þegar farið hefur verið fram úr 10% hefur það, sem umfram er verið bætt með því að ráðstafa því sem kalla mætti inneign frá fyrri verðlagsárum, þegar ekki var notuð að fullu 10% heimildin. Þannig var það öll árin þar til í ár. Þá var engin slík inneign fyrir hendi. Því ákvað Framleiðsluráð landbúnaðarins á s.l. vori að nota heimild til að leggja á 1300 millj. kr. verðjöfnunargjald. Þetta er að sjálfsögðu gert til þess að jafna þessa byrði á meðal bænda, þannig að þeir beri ekki meiri tekjuskerðingu sem lenda í útflutningi með afurðir sínar. Eins og kunnugt er hefur náðst samkomulag um að endurgreiða að þessu sinni þetta viðbótarverðjöfnunargjald.

Eins og áður er að vikið hefur útflutningur kindakjöts verið mjög sveiflukenndur og byggist á framleiðslu umfram innanlandssölu. Árum saman var Bretland helsti markaður okkar fyrir kindakjöt, en útflutningi þangað er nú með öllu hætt. Einnig var nokkuð af saltkjöti selt til Noregs á fyrri árum.

Með inngöngu Íslands í Fríverslunarbandalagið náðust samningar við Norðmenn og Svía um tollfrjálsan kvóta fyrir dilkakjöt. Í Noregi og Svíþjóð fékkst þessi kvóti með samþykki sölusamtaka bænda, sem hafa á hendi sölu kjötsins. Ekki er því um að ræða samkeppni við þarlenda bændur, heldur aðeins fyllt upp í vöntun. Verð það, sem fæst fyrir kjötið í þessum löndum, er í samræmi við markaðsverð þar. Niðurgreiðslur hafa verið auknar í báðum þessum löndun undanfarin ár, auk þess sem æðiströng verðstöðvun hefur verið. Norðmenn stefna að því að verða sjálfum sér nógir með kindakjöt. Í því skyni greiðir norska ríkið verulegar fjárhæðir með þessari framleiðslu, m.a. með framleiðslustyrkjum. Af þessum ástæðum hefur verð á íslensku kindakjöti ekki hækkað eins mikið og verðlag almennt í þessum löndum.

Þá kaupa Færeyingar töluvert magn af kindakjöti og má heita að við séum einir um innflutning á kjöti þangað. Útflutningur á kindakjötsframleiðslunni árið 1977 skiptist annars þannig: Til Noregs voru flutt út 2800 tonn, til Færeyja 650, til Svíþjóðar 650 og til Danmerkur 600 tonn, eða samtals 4700 tonn.

Í Danmörku og öðrum Efnahagsbandalagslöndum erum við í harðri samkeppni við Nýsjálendinga, sem flytja þangað um hundraðfalt meira magn af kjöti en við. Þeir eru ráðandi hvað verðlag á frystu kjöti snertir. Gæði íslenska kjötsins er gjarnan borin saman við gæði nýsjálenska kjötsins, en þau eru af mörgum talin svipuð, þótt okkur þyki kannske erfitt að trúa því. Af þessari ástæðu eru litlar líkur til þess, að reikna megi með hærra verði en Nýsjálendingar fá. Þó er talið að með mikilli auglýsinga- og kynningarstarfsemi megi skapa íslenska kjötinu einhverja sérstöðu á takmörkuðum mörkuðum, þannig að nokkru hærra verð kunni að fást fyrir það, m.a. með tilliti til þess, að magnið af íslenska kjötinu er mjög lítið borið saman við það nýsjálenska.

Á árinu 1977 var stofnuð markaðsnefnd landbúnaðarins, þ.e. samstarfsnefnd landbrn., bændasamtakanna og sölusamtaka bænda um markaðskönnun fyrir íslenskar landbúnaðarafurðir. Nefndin hefur unnið mikið starf og mun bráðlega skila skýrslu. Á s.l. hausti gerði markaðsnefndin tilraun með útflutning á ófrosnu kjöti til nokkurra landa: Frakklands, Þýskalands, Danmerkur og Bandaríkjanna. Af þessum tilraunum hefur fengist mikilvæg reynsla og alls staðar eru gæði kjötsins viðurkennd. Við ýmsa erfiðleika er hins vegar að etja og við ríkjandi aðstæður fæst ekki viðunandi verð á þessum mörkuðum. T.d. er nú um 20% innflutningstollur á öllu kjöti sem flutt er til Efnahagsbandalagslandanna. Í Frakklandi er auk þess tekinn sérstakur verndartollur, sem er breytilegur og notaður til verndar innlendri framleiðslu. Ég tel þó mikilvægt að markaðsnefndin vinni áfram að athugun þessara mála og reynt verði að fá hagstæðari kjör fyrir íslenska búvöru í þessum löndum. Það er mjög mikilvægt, að sem hagstæðast verð fáist fyrir útflutninginn, þannig að þörfin fyrir útflutningsbætur fari minnkandi. Einnig er að sjálfsögðu nauðsynlegt að leggja rækt við innlendan markað, sem er raunar langmikilvægastur í þessu sambandi.

Hvað mjólkurvörur varðar hefur síðustu árin aðallega verið fluttur út ostur. Fer hann einkum til Bandaríkjanna, Svíþjóðar og Þýskalands. Hagstæðast verð fæst fyrir svonefndan óðalsost, sem fluttur er til Bandaríkjanna, en þó er það verð aðeins 45–50% af heildsöluverðinu innanlands. Framleiðslugeta mjólkurbúanna fyrir þá tegund er takmörkuð enn sem komið er. Úr því bætist væntanlega með byggingu nýs mjólkurbús á Akureyri á þessu og næsta ári.

Frá árinu 1970 hefur verð það, sem fæst erlendis fyrir kindakjöt og mjólkurafurðir, stöðugt farið lækkandi í hlutfalli við verðlag á þessari framleiðslu hér innanlands. Árið 1970 fengust um 89% innlenda heildsöluverðsins fyrir kindakjöt í Svíþjóð, en aðeins um 42% á síðasta ári. Um ostinn er svipaða sögu að segja. Eins og ég nefndi áðan er verðið á óðalsosti um 45% heildsöluverðs. Þó eru bundnar nokkrar vonir við að þetta verð kunni að hækka í Bandaríkjunum.

Rétt er að taka fram, að ástæðan fyrir þessari þróun er ekki sú, að íslensk landbúnaðarframleiðsla þyki lakari en sambærilegar vörur erlendis. Þvert á móti eru gæðin viðurkennd undantekningarlítið og talin fyllilega sambærileg við hliðstæða framleiðslu á erlendum mörkuðum. Þessu ræður, eins og ég sagði áðan, fyrst og fremst óhagstæð verðlagsþróun og sú staðreynd, að erlend ríki greiða mjög niður landbúnaðarafurðir sínar, mörg hver ekki minna en við, og veita bændum ýmiss konar vernd með aðflutningstollum.

Menn hér þekkja að sjálfsögðu þá verðbólguþróun sem verið hefur. Hún á þarna stóran þátt í. Verðlag hér hefur hækkað um 460% frá 1970 til 1977 á sama tíma og hækkun innan Efnahagsbandalagsins hefur orðið um 80% og í Bandaríkjunum um 45%.

Eins og fyrr segir er innlendi markaðurinn fyrir landbúnaðarvörur sá langmikilvægasti og nauðsynlegt að leggja aukna rækt við hann.

Frá árinu 1960 hefur dregið jafnt og þétt úr neyslu nýmjólkur. Mjólkurmagn á íbúa árið 1960 var 338 lítrar, en 247 lítrar á síðasta ári. Neysla ýmissa annarra landbúnaðarafurða er einnig mjög sveiflukennd frá ári til árs og eru áhrif niðurgreiðslna þar greinileg. Áhrif sveiflna í niðurgreiðslum eru mest í smjörneyslunni, en einnig mjög mikil í kindakjötssölu.

Til fróðleiks vil ég geta þess, að niðurgreiðslur á hvern íbúa voru 1966 17800 kr., hækkuðu 1967 upp í 24365 kr., lækka síðan aftur árið eftir í 15000, þá í 12000, síðan í 10800 1970, hækka svo upp í 23900 1971 og eru nokkuð svipaðar fram til 1976, að þær falla að nýju niður og þá í 15800 kr. á hvern íbúa, 1977 í 11344 og 1978 í 12500, en hafa nú aftur verið hækkaðar mjög og eru líklega eftir síðustu hækkun einhvers staðar í kringum 29000 kr. á hvern íbúa. Áberandi er að smjörneyslan hefur nokkuð sveiflast með þessu, en hins vegar virðist sérstaklega eftirtektarvert, að neyslan dregst verulega saman með minnkandi niðurgreiðslum og hún eykst hins vegar ekki að nýju jafnmikið þótt niðurgreiðslur séu auknar og verð lækki. Áreiðanlega er ákaflega mikilvægt fyrir sölu landbúnaðarafurða að niðurgreiðslur séu sæmilega fastar frá ári til árs, en ekki svo sveiflukenndar sem ég hef nú rakið.

Í því frv., sem hér er lagt fram, er m.a. gert ráð fyrir að heimta kjarnfóðurgjald af innfluttu kjarnfóðri. Þykir mér því rétt að gera nokkra grein fyrir notkun kjarnfóðurs hér á landi undanfarin ár. Mjög augljós fylgni er á milli kjarnfóðurverðs og framleiðslumagns mjólkur. Eftir því sem þetta kjarnfóðurverð hefur lækkað sem hlutfall af mjólkurverði hefur kjarnfóðurnotkunin aukist og að sjálfsögðu einnig mjólkurframleiðslan.

Fóðurbætiskaup frá 1971 eru rakin í grg. með frv. Þau hafa aukist frá 1971 úr um tæplega 60 þús. tonnum í rúmlega 71 þús. tonn 1977. Einnig kemur fram í grg., að árið 1951 fékkst fyrir andvirði eins lítra af mjólk 1.1 kg af fóðurbæti, 1961 fæst 1.03 kg af fóðurbæti, 1971 fæst 1.38 kg af fóðurbæti fyrir andvirði eins lítra af mjólk, en 1978 hins vegar 2.11 kg af fóðurbæti fyrir andvirði eins lítra af mjólk. Og þegar þess er gætt, að í vel reknu búi má fá allt að 21/2 lítra af mjólk fyrir 1 kg af fóðurbæti, liggur í hlutarins eðli að það er ákaflega eðlilegt fyrir bændur að auka fóðurbætisnotkunina við þessar aðstæður til þess að drýgja tekjur sínar.

Mestur hluti þess kjarnfóðurs, sem flutt er til landsins, kemur frá Danmörku og er frá löndum Efnahagsbandalagsins. Í því sambandi verður að hafa í huga, að niðurgreiðslur og útflutningsbætur á landbúnaðarafurðir hafa verið mjög miklar og farið vaxandi í löndum Efnahagsbandalagsins á síðustu árum. Í okt. s.I. var verð á kjarnfóðri til danskra bænda frá verksmiðju í Danmörku 1150 danskar kr. tonnið, en útflutningsverð á sama magni var 855 danskar kr., þannig að útflutningsbætur í Danmörku eru 295 danskar kr. á tonnið eða 25.6%. Þetta er að sjálfsögðu einnig umhugsunarefni í sambandi við rekstur grasmjöls- og graskögglaverksmiðja okkar, sem hafa orðið að keppa við þennan innflutta fóðurbæti sem svo mjög er greiddur niður í Efnahagsbandalagslöndunum.

Ég tel engan vafa á því, að auk hagstæðs tíðarfars megi rekja aukna mjólkurframleiðslu að verulega leyti til vaxandi fóðurbætisgjafar á undanförnum árum, því kúafjöldi hefur ekki aukist svo teljandi sé.

Ekki er ákveðið hvaða gjald verður tekið af fóðurbæti, en rætt hefur verið um 30%. Nokkuð er erfitt að gera sér grein fyrir því, hvaða tekjuskerðing hjá bændum fylgir slíku gjaldi, og fer það að sjálfsögðu eftir því, hve mikla mjólk þeir fá fyrir hvert kg af fóðurbæti. Staðreyndin er þó sú, að fóðurbætir er ofnotaður nú á fjölmörgum búum og mjög vafasamt að slíkt gjald hafi þó nokkra teljandi tekjuskerðingu í för með sér, ef þeir bændur draga úr fóðurbætisnotkun.

En til fróðleiks get ég slegið upp annarri hlið af þessari mynd, sem sýnir hve vafasöm slík fóðurbætisgjöf er þegar umframframleiðsla mjólkur fer til smjörvinnslu. Til að framleiða 1 kg af smjöri þarf 21 lítra af mjólk, en ef fóðurbætir er notaður má telja líklegt að a.m.k. þurfi um 10 kg af fóðurbæti til þess að framleiða þá mjólk. Þessi 10 kg kosta nú um 800 kr., en fyrir 1 kg af smjöri fæst í útflutningi í besta lagi um 300 kr. Þótt við gefum nú aðrar 300 kr. fyrir undanrennuna, þá er samt aðeins um 600 kr. verðmætissköpun að ræða, en fóðurbætirinn einn í þessu skyni kostar um 800 kr. Þá er ekki talinn vinnslukostnaður á smjörinu. Mjög er því vafasamt að bóndinn fengi nokkuð í sinn hlut þótt valinn væri sá kostur að greiða eingöngu afurðaverð fyrir slíka umframframleiðslu.

Ég tel þá rétt að fara nokkrum orðum um frv. sjálft og gera ekki síst grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið frá tillögum sjömannanefndar.

Í 1. gr. frv. er gert ráð fyrir auknum verkefnum Framleiðsluráðs, fyrst og fremst í áætlanagerð og stefnumörkun fram í tímann fyrir landbúnaðarframleiðsluna. Þar eru ekki breytingar gerðar á áliti sjömannanefndar, nema hvað í 2. og 5. lið hefur verið bætt inn setningum sem tengja starfsemi Framleiðsluráðs betur en áður var þeirri stefnu um málefni landbúnaðarins sem Alþ. ákveður hverju sinni, eins og segir í 2. lið 1. gr. Svipað orðalag er í 5. lið þessarar greinar. Vísar það til þess, að ég tel nauðsynlegt að Alþ. ákveði stefnu í landbúnaðarmálum, og er undirbúningur að tillögugerð um slíkt þegar hafin. Geri ég ráð fyrir að þáltill. verði lögð fram á Alþ. síðar í vetur.

Aðalefni þessa frv. felst í 2. gr. Þar eru þær heimildir sem farið er fram á að Framleiðsluráðið fái til þess að hamla gegn umframframleiðslu í landbúnaði. Í a-lið er veitt heimild til að ákveða mismunandi verð á búvöru til framleiðenda. Þarna er bæði um heimild að ræða til þess að ákveða mismunandi útborgun á búvöru og einnig að ákveða mismunandi verð með framleiðslugjaldi á búvöru, eins og sjömannanefndin leggur reyndar til í till. sinni um reglugerð sem byggðist á þessu ákvæði. Eins og fram kemur í fylgiriti með frv., áliti sjömannanefndar, gerir nefndin ráð fyrir að 2% gjald verði tekið af afurðum af 400 ærgilda bústærð og minni, síðan 4% af 401–600 ærgildum, 6% af 601–800 ærgildum og 8% þar yfir, en hjá framleiðendum utan lögbýla verði framleiðslugjaldið hinsvegar 10%.

Í b-lið þessa frv. er farið fram á heimild til að leggja sérstakt gjald á allt innflutt kjarnfóður. Þarna er sú breyting frá till. sjömannanefndar, að fellt er niður ákvæði þess efnis, að þó væri aðeins heimilt að taka slíkt gjald af kjarnfóðri ef áætlanir Framleiðsluráðs sýndu að útflutningsbætur nægðu ekki til verðjöfnunar.

Í c-lið er ákvæði um ráðstöfun fjármagnsins, og er það í samræmi við till. sjömannanefndar. Þó hefur þar verið felld út heimild til að endurgreiða fóðurbætisgjaldið að hluta. Vil ég beina því til hv. landbn., að það þyrfti að athuga. Má vera að rétt sé að hafa slíka heimild þegar um sérstakar aðstæður er að ræða, t.d. kalár og annað sem getur valdið verulegum vandræðum á ákveðnum svæðum landsins.

Þá vil ég geta þess, að inn í frv., í c-lið, hefur verið sett ákvæði sem segir: „Gjöld þessi skulu ekki leiða til hækkunar á verði búvöru, sem sexmannanefnd ákveður, enda sé fjármagninu ráðstafað að öllu leyti til framleiðenda búvöru.“

Almennt séð gerir c-liður 2. gr. ráð fyrir því, að þeim upphæðum, sem innheimtust, verði ráðstafað til þess: 1) Að koma í veg fyrir óeðlilega tekjuskerðingu af þessum ástæðum, sem vitanlega verður einhver. 2) Að greiða bændum beinlínis fyrir að draga úr framleiðslunni. Tel ég það ákvæði mjög mikilvægt. Sú leið hefur verið farin víða erlendis og reynst vel og tel ég sjálfsagt að reyna hana hér. 3) Að hluta til verðjöfnunar, ef útflutningsbætur hrökkva ekki til, sem tvímælalaust verður fyrstu árin því nokkurn tíma tekur að snúa við þeirri þróun sem verið hefur undanfarin ár í landbúnaðarframleiðslunni. Þá er í þessari grein einnig nefnt að nota megi hluta af fjármagninu til þess að jafna flutningskostnað á fóðurbæti um landið. Það tel ég sanngirnismál, ekki síst þar sem nokkur dráttur mun verða á því að graskögglaverksmiðjur verði reistar norðanlands.

Þá vil ég geta þess, að í till. sjömannanefndar var ákvæði þar sem gert var ráð fyrir að heimild landbrn. þyrfti til búvöruframleiðslu utan lögbýla. Þetta ákvæði hefur verið fellt út úr frv. Hins vegar vil ég leggja áherslu á að það mál þarf að athuga. Ég tel að sporna megi gegn slíkri framleiðslu með því framleiðslugjaldi sem gert er ráð fyrir.

Þetta eru meginatriði þessa frv.

Um áhrif þessara aðgerða hefur verið töluvert rætt og sýnist þar sitt hverjum. Ýmsir telja að fóðurbætisgjald muni ekki ná tilætluðum árangri nógu hratt. Vel má vera að gjaldið þurfi að vera nokkuð hátt til þess að ná tilætluðum árangri. En ég hygg að engum dyljist, að eftir því sem fóðurbætir verður hærri í verði verður óhagkvæmara að nota hann til viðbótarframleiðslu á mjólk, sérstaklega þegar notkunin er orðin jafnmikil og viða er og því afurðir minni en mest er unnt að ná fram. Einnig hafa tölur undanfarinna ára sýnt mjög glöggt, eins og ég nefndi áðan, að ákveðin fylgni er á milli fóðurbætisverðs annars vegar og mjólkurframleiðslunnar hins vegar. Enginn vafi er á því samkv. þeim tölum, að úr fóðurbætisnotkun hefur dregið þegar hlutfallið á milli fóðurbætisverðs og mjólkurverðs hefur orðið óhagstæðara.

Nefndar hafa verið aðrar leiðir, m.a. skömmtun á fóðurbæti. Sú leið var vandlega athuguð af sjömannanefnd, sem taldi að kerfið, sem set ja þyrfti á fót til þess að koma á slíkri skömmtun og fylgjast með framkvæmd hennar, yrði mjög viðamikið og væri á ýmsan máta unnt að fara fram hjá því. Ég er þeirrar skoðunar, að æskilegt sé að losna við skömmtun. Þó má vel vera að grípa verði til einhverra innflutningstakmarkana, ef fóðurbætisgjaldið dugar ekki til, en ég tel tvímælalaust að það beri að reyna fyrst. Í þessu sambandi má geta þess, að Norðmenn leyfa ekki frjálsan innflutning á fóðurbæti til Noregs. Þar fer ríkiseinkasala með innflutning á fóðurbæti og verðleggur hann í eðlilegu hlutfalli við mjólkurverðið.

Um framleiðslugjaldið, sem stundum hefur verið nefnt kvótakerfi, skal ég ekki fara mörgum orðum. Ég held að vafalaust sé, að bændur muni hugsa sig um þegar stighækkandi gjald er lagt á framleiðsluna. Þar er ákveðin sú meginstefna, að þeir, sem stærri búin hafa, beri meiri byrðar af þessum samdrætti en hinir, sem hafa minni búin. Um það má að sjálfsögðu deila, en ég vil þó leyfa mér að halda því fram, að annað samræmist ekki þeirri stefnu í byggðamálum, sem við höfum fylgt. Að leggja jafnt gjald á öll búin mundi tvímælalaust leiða til meiri byggðaröskunar. Mér er ljóst að einhver byggðaröskun getur fylgt þeim aðgerðum, sem hér er stefnt að, en með þessu móti er dregið úr þeim áhrifum.

Að lokum vil ég leggja áherslu á að menn verða að minnast þess, að landbúnaðurinn er að sjálfsögðu ekki annað en einn hlekkur í stórri keðju. Fyrir hvern bónda í sveit hygg ég að u.þ.b. þrír aðrir hafi atvinnu, bæði við aðföng landbúnaðarins og að sjálfsögðu ekki síst og raunar fyrst og fremst við þann iðnað, sem á landbúnaðinum byggist. Sumt af þeim iðnaði er með þeim álitlegasta sem við höfum, eins og t.d. skinnaiðnaðurinn og ullariðnaðurinn, þó skinnaiðnaðurinn beri líklega af eins og nú er. En margt bendir til þess, að íslenska ullin eigi mikla framtíð fyrir sér á ágætum mörkuðum. Vitanlega verður að skoða þetta þegar stefnt er að samdrætti í grundvallarframleiðslunni.

Ég vil jafnframt segja að það, sem hér er lagt til, eru nánast fyrstu aðgerðir til þess að snúa þeirri langtímaþróun við, sem verið hefur undanfarna áratugi. Ég tel þýðingarmest í þessu sambandi að marka hið fyrsta langtímastefnu í framleiðslumálum landbúnaðarins og reyndar í landbúnaðarmálunum almennt. Ég tel þrjá þætti mikilvægasta í því sambandi:

1. Að tryggja bændum tekjur, sem eru sambærilegar við það sem aðrar stéttir í þjóðfélaginu hafa.

2. Að miða framleiðsluna sem næst við innanlandsþarfir, en taka þá jafnframt tillit til þarfa þess iðnaðar sem á landbúnaðinum byggist, en einnig leggja áherslu á, samfara slíku, að auka fjölbreytni í landbúnaðarframleiðslu.

3. Að tengja landbúnaðarstefnuna þeirri byggðastefnu sem við viljum fylgja.

Ég geri mér grein fyrir því, að erfitt er að ná þessum markmiðum öllum. Hætt er við að slíkum aðgerðum fylgi einhver fækkun í bændastétt, sem reyndar hefur verið undanfarin ár. En þá tel ég að beita verði opinberum aðgerðum til þess að koma í veg fyrir að sú fækkun verði í sumum hinum afskekktu byggðum, þar sem strjálbýli er orðið mikið og byggðin er í hættu og vaxandi hættu við hvert býli sem úr leik fer. Þetta er ekki síður mikið mál fyrir þéttbýliskjarnana á slíkum svæðum, sem byggjast mjög á sveitunum sem í kring eru. Þetta er því margþætt vandamál.

Ég legg áherslu á, að ekki er eðlilegt að bændastéttin ein beri þær byrðar sem þessu fylgja. Í þessu sambandi tel ég jafnframt, að fljótlega þurfti að grípa til annarra aðgerða, sem hamla gegn framleiðsluaukningu. Ýmsar tillögur lútandi að þessu eru í áliti sjömannanefndar, sem fylgir frv., í 8 liðum. Sumar þær tillögur eru þegar í athugun hjá landbrn., eins og t.d. sú fyrsta, að gera úttekt á búskaparaðstöðu um landið, sem sjömannanefnd telur vera grundvallaratriði til þess að skipuleggja megi landbúnaðarframleiðsluna og framkvæma þá langtímastefnu sem ég hef nefnt. Einnig eru þar tillögur um aukna fjölbreytni í landbúnaðarframleiðslunni, sem eru í athugun. Ég mun fljótlega kalla sérfræðinga til að athuga þær. Þá eru þar einnig tillögur um breytingar á styrkjakerfi og lánareglum Stofnlánadeildar.

Þetta er tvímælalaust mjög mikilvægt. Þessa þætti, eins og raunar fjölmarga aðra, t.d. starfsemi Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Búnaðarfélags Íslands o.fl., verður að sjálfsögðu að samræma þeirri langtímastefnu sem við viljum hafa á sviði landbúnaðarins. Ég hef því undirbúið frv. um nokkra breytingu á því styrkjakerfi, sem nú er, þar sem farið verður fram á heimild til að nota það fjármagn til að ná markmiðum eins og ég nefndi áðan. Áhersla verður lögð á að draga úr ráðstöfun slíks fjármagns í landbúnaði þar sem um framleiðsluaukningu yrði að ræða.

Það eru því fjölmargar aðgerðir sem þessu verða að fylgja. Þetta er fyrsta viðleitni til að snúa við margra áratuga þróun, eins og ég hef margnefnt. Mjög er mikilvægt, að þessar heimildir fáist skjótt. Ég leyfi mér því að fara fram á það við þá hv. n., landbn., sem fær málið til meðferðar, að hún hraði störfum sínum. Ég legg á það ríka áherslu, að þær heimildir, sem farið er fram á, verði samþ. fyrir áramótin. Kveðja verður saman fulltrúafund Stéttarsambands bænda, og yrði það gert strax eftir áramót, til að ákveða útfærslu og framkvæmd þeirra heimilda, sem hér er farið fram á.

Herra forseti. Ég læt svo lokið þessari framsögu minni fyrir frv. og geri að till. minni, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. landbn. að lokinni þessari umr.