11.12.1978
Neðri deild: 29. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1406 í B-deild Alþingistíðinda. (958)

125. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Ég vil vekja athygli á því að það frv., sem liggur hér fyrir til umr., er frv. sem bændasamtökin í landinu hafa óskað eftir að yrði flutt og lögfest og hafa lagt ríka áherslu á að yrði lögfest helst fyrir jól.

Mér þykir miður að hv. 2. þm. Norðurl. v. skuli ekki vera hér í fundarsal, vegna þess að ég ætlaði að gera nokkrar aths. við ræðu hans og mun gera það þó að það verði í styttra máli en hefði annars orðið vegna þess að við eigum báðir sæti í þeirri n., sem fær þetta frv. til umfjöllunar.

Hv. þm. sagði að bændur þyrftu að fjalla um þetta mál frekar en orðið er. Ég vil benda á það í því sambandi, að nál. sjömannanefndar, sem þetta frv. er að flestu leyti byggt á, hefur verið rætt nú um nokkurt skeið á bændafundum og þetta álit var samþykkt á Stéttarsambandsfundi í lok ágústmánaðar, sem haldinn var á Akureyri, með flestum atkv., held ég, gegn fjórum. Það ætti því ekki að þurfa að tefja þetta mál af þeirri ástæðu, að bændur séu út af fyrir sig ekki búnir að ræða þetta mál.

Hv. þm. las upp tillögu sem hann sagði að væri tillaga Eyfirðinga. Ég kannast ekki við að þessi till., eins og hún er orðuð, hafi verið samþykkt á fundi hjá Eyfirðingum. Ég hygg að það sé dálítill misskilningur í þessu, þessi till. hafi verið samþ. annars staðar. En þar sem mér hefur ekki borist till. í hendur vil ég ekki ræða það mál frekar þó ég raunar viti hvaðan hún er. Hins vegar var lesin upp tillaga á fjölmennum fundi, sem haldinn var s.l. miðvikudagskvöld á Hótel KEA á Akureyri, og mun hún vera eitthvað í þessa átt, en henni var vísað frá á þeim fundi vegna þess að fundurinn hefði verið boðaður með þeim fyrirvara að ekki mundu vera samþ. neinar tillögur eða neinar ályktanir gerðar á þeim fundi. En það var tilkynnt þar, að Búnaðarsamband Eyfirðinga mundi halda fund, þegar þetta frv. lægi fyrir Alþ., og mundi þá fjalla um málið.

Hv. þm. Pálmi Jónsson var að tala um ostabirgðirnar, sem væru í landinu. Þær voru um síðustu mánaðamót um 1400 tonn eins og smjörbirgðirnar. En það verður að líta á það varðandi ostabirgðirnar, að þær verða alltaf að vera verulegar, vegna þess að osturinn þarf að bíða meðan hann gerjast. Ég vil því ekki segja hvað þetta er mikið umfram það sem er venjulegt, en ég hygg að það sé ekki óeðlilegt, þó að til séu 500, 600 til 700 tonn, eitthvað á því bili, vegna þess að það tekur dálítinn tíma áður en osturinn er söluhæf vara.

Þm. gat um að aðalvandamálið væri í sambandi við mjólkurframleiðsluna. Það er auðvitað rétt, að það er engin leið að flyt ja smjör út og sel ja það, en ég vil benda á það, að við fáum t.d. ekki miklu verra verð fyrir óðalsost nú heldur en t.d. fyrir kindakjötið á erlendum mörkuðum, og líkur eru fyrir því, eða a.m.k. búa Norðmenn við það verð á Bandaríkjamarkaði, ef við framleiddum nokkurt magn af þessum osti, að við gætum fengið verulega hærra verð en við fáum í dag eða allt upp í 60% af framleiðslukostnaðinum. Ég vil að þetta komi hér fram, vegna þess að það mátti heyra á máli hv. þm. Pálma Jónssonar, að ekki væri hægt að selja þessar vörur með sæmilegum árangri. Miðað við það sem gerist nú á erlendum mörkuðum í sambandi við landbúnaðarvörur yfirleitt er þetta ekki miklu verra.

Frv., sem hér liggur fyrir, er í sjálfu sér einungis rammafrv. Það eru heimildir í 2. gr., sem bændasamtökunum eru gefnar um mismunandi leiðir til þess að hafa áhrif á framleiðsluna. Eins og frv. er úr garði gert, eru það bændasamtökin ein, sem hafa það í höndum sínum, ef þetta frv. verður samþ., hvaða leið verður valin til þess að ná settu marki. Það gefur auga leið, að engin leið, sem til greina kemur, er góð eða þægileg fyrir bændur. Menn verða að athuga það, að sé miðað við að breyta landbúnaðarstefnunni, þá hljóta bændur að verða fyrir verulegum tekjumissi, og enn fremur felst í þessu líka hálfgerð eignaupptaka hjá bændum, ef þeir neyðast til þess að draga verulega úr framleiðslu. Þetta skulu menn athuga. Ég gat ekki skilið annað á ræðum manna um þessi mál, bæði hér og annars staðar, en mönnum sé það ekki ljóst, að t.d. ef mjólkurmagnið minnkar hlýtur framleiðslukostnaðurinn að aukast. Menn þurfa ekki að blekkja sjálfan sig. Það hlýtur að verða.

Þau markmið, sem felast í nál. sjömannanefndar, eru að reyna að draga úr framleiðslu landbúnaðarvaranna með því móti þó að fækka bændum ekki eða lítið og þeir haldi svipuðum tekjum. Ég er nú ákaflega hræddur um að ef þarf að draga verulega úr framleiðslu, þá muni reynslan sýna að erfitt verði að ná hinum markmiðunum.

Það er margt, sem hlýtur að koma í hugann þegar menn standa frammi fyrir því að þurfa að breyta þessari stefnu. Það hlýtur að koma upp í hugann, hvað af því muni leiða. Ég held t.d. að áður en gengið er frá því að breyta landbúnaðarstefnunni þurfi í sjálfu sér að gera úttekt á því, hvernig það mundi koma út fyrir fólk sem hefur vinnu við iðnað og ýmis önnur störf í sambandi við landbúnaðarframleiðsluna. Ég er ekki viss um að mönnum sé það yfirleitt ljóst, enda hefur umr. öll, sem hefur farið fram um þessi mál að undanförnu, verið ákaflega neikvæð fyrir bændur, og eins og menn hafi jafnvel litið fram hjá því, að þarna er ekki verið að ræða eingöngu um hag bænda, heldur allra þeirra sem hafa vinnu í sambandi við þessa framleiðslu. Nú liggur það t.d. fyrir, að það er hægt að geta stóra hluti í sambandi við fataframleiðslu úr skinnum og það er enginn vandi að selja þær vörur. Fyrir þær er nógur markaður. En það vantar fyrst og fremst fjármagn til þess að nýta þá möguleika, sem þarna eru fyrir hendi.

Það er alveg það sama um ullina. Á síðasta ári eða fyrri hluta þessa árs syrti ögn í álinn í sambandi við ullariðnaðinn í bili. Sovétríkin, sem hafa verið stór kaupandi að þessum vörum, drógu að sér höndina, en þá kemur bara í ljós, þegar farið er að kanna þetta annars staðar, að markaðir opnast víða fyrir þessa vöru, m.a.s. betri markaðir, hærra verð. Eftir því sem þessi framleiðsla þróast, eftir því fær ullin okkar meiri og betri umsagnir. Ég var einmitt að frétta það fyrir helgina, að maður, sem var að koma frá Bandaríkjunum og fengist við sölu á þessum vörum, hafði þetta eftir söluaðilum í Bandaríkjunum: Við teljum íslensku ullina ekki í 1. flokki, heldur þar fyrir ofan. Þetta er alveg sérstök vara og þið verðið að passa ykkur á því að blanda hana ekki, a.m.k. ekki um of, og merkja hana sérstaklega til þess að hún haldi þeim sessi sem hún hefur öðlast á markaðinum í Bandaríkjunum. — Þess vegna hlýtur að þurfa, um leið og þessi nýja stefna í landbúnaðarmálum er mótuð, að láta kanna til hvers þetta mundi leiða í sambandi við t.d. iðnaðinn og þá möguleika sem við höfum tengda honum.

Hv. þm. Pálmi Jónsson sagði að markaðsnefndin hefði ekki náð umtalsverðum árangri í markaðsleit sinni. Þétta er sjálfsagt alveg rétt. En hvað segir þetta okkur? Þetta segir okkur í raun og veru, að það, sem borið var á Samband ísl. samvinnufélaga í sambandi við markaðsleit, hafi ekki verið á rökum reist. Hins vegar get ég tekið undir það með hv. þm. Pálma Jónssyni, að full ástæða er til þess að gera enn meira í þessum málum. Það hefur verið gert, en má þó sjálfsagt gera meira. Mér er kunnugt um að ráðh. í síðustu ríkisstj. voru að athuga þessi mál, en það er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að gera meira en gert hefur verið. Ég vil taka undir það með hv. þm. Pálma Jónssyni, að á meðan við erum í þessari stöðu sé full ástæða til þess að athuga mjög náið hvort ekki er hægt að fá betri markaði fyrir þessar vörur en nú er. Það kom t.d. í ljós í Frakklandi, að ef við hefðum getað komið kjötinu okkar að án þess að borga toll þar, þá hefði verðið orðið betra en við getum fengið fyrir það annars staðar. En við höfum getað komið kjöti t.d. til Noregs án þess að borga toll, þó að það sé ekki hagstætt vegna þess að Norðmenn borga niður eigin framleiðslu og við verðum að keppa við þetta niðurgreidda verð þar.

Hv. þm. Pálmi Jónsson sagði að hann væri á móti refsiskatti, en síðar í ræðunni, þegar hann talaði um þessa till. sem hann sagði að væri komin frá Eyfirðingum, að vísu má segja að hann hafi ekki tjáð sig beinlínis um þá till., kom í ljós að hann vildi a.m.k. kanna hvernig þessi till., sem hann las hér upp, mundi verka. Við erum sammála um eitt, og bændur eru yfirleitt sammála um það, að gera þurfi eitthvað í þessum málum eins og er. En menn eru að vísu ekki sammála um hvað eigi að gera. Það er kannske vegna þess að þegar menn fara að íhuga þessi mál og setja sér einhverjar ákveðnar reglur, þá kemur í ljós að þær koma ákaflega misjafnlega út.

Í þessu sambandi ætla ég að nefna eitt dæmi af ákaflega mörgum, sem hafa komið upp í hugann varðandi þetta. Tvö bú norður í Eyjafirði eru með svipaða framleiðslu, um 1200 ærgilda bú. Á báðum heimilunum vinna fjölskyldurnar við þetta eingöngu. Á öðru búinu hefur það verið þannig mörg ár, að þrír aðilar eru skráðir bændur, — þetta er félagsbú, — en hinum megin er aðeins einn skráður. En ef ætti að fara nákvæmlega eftir útfærslunni miðað við nál. sjömenninganna, þá mundi skatturinn á öðru búinu verða 600 þús., en á hinu 1.5 millj. Þetta kemur svona út vegna þess að rekstrarformið er annað. Þessu og ýmsu öðru eru bændur nú órólegir út af, og auðvitað verður að sníða þessa annmarka af, vegna þess að í sjálfu sér er þarna fjölskyldurekstur og jafnmargir aðilar á báðum búunum. Þannig mun þetta koma út líka ef við förum að athuga þetta á fleiri sviðum. En þarna er framkvæmd sem verður að taka til athugunar, og það fer mjög eftir því, hvernig reglugerðin mun verða og hvernig bændasamtökin sjálf taka á þessum málum um útfærsluna.

Ég vil endurtaka það sem ég sagði áðan, að þetta er aðeins rammalöggjöf, en bændurnir sjálfir geta valið um leiðir í þessum efnum. Við getum svo auðvitað deilt um það hér á Alþ., hvort eigi að hafa frv. svona rúmt. Það er hægt að deila um það, og bændurnir hafa deilt um það. En ég hygg að að mjög athuguðu máli muni koma í ljós að skynsamlegt sé að hafa þessar heimildir rúmar, en ekki að Alþ. fari að segja fyrir um þær leiðir eða velja eina leið t.d., sem ætti eingöngu að nota í þessu efni, sem svo e.t.v. bændurnir, þegar upp væri staðið og búið að athuga þetta, gætu ekki komið sér saman um, — eða vilja hv. þm. taka þá ábyrgð á sig?

Hv. þm. Pálmi Jónsson sagði, að útilokað væri að lögfesta þetta eða það gengi í gegnum þingið fyrir jól. Það er auðvitað alveg ljóst, að það er óhugsandi ef þm. eru ekki sammála um að koma málinu fram. En það er ekki óhugsandi, langt í frá, ef þm. eru sammála um að koma málinu fram fyrir jól. Ég vil ekkert fullyrða um það, hvort það skiptir ákaflega miklu máli, ég er ekki dómbær um það, en ég legg áherslu á að bændasamtökunum er mjög í mun að þessu máli sé flýtt.

Hv. þm. Pálmi Jónsson talaði um að það færi alltaf stærri og stærri hluti af verðinu í vinnslu- og dreifingarkostnað. Ég athugaði þessi mál svolítið þegar ég fór um Norðurlönd á s.l. sumri. Það kom í ljós, að íslenskir bændur fá stærri hlut af verðinu en t.d. bændur á Norðurlöndum — og ég tala nú ekki um ef við lítum vestur fyrir haf, þar sem bændurnir fá ekki nema um þriðjung af því verði sem neytandinn verður að gefa fyrir vöruna. En miðað við þetta eins og var í haust, þá fengu bændur t.d. yfir 70% af verði sauðfjárafurða til neytenda. Þó að það hafi verið og sé talað um að þessi kostnaður sé mikill, þá er raunin samt þessi.

Hv. þm. Árni Gunnarsson spurði um það, hvað mundi verða um kjötmagnið t.d. ef bændur færu að ganga á nautgripastofn sinn. Ef verður farið að slátra kúnum í stórum stíl, þá hlýtur það kjöt að koma á markað, það gefur auga leið. Þetta er líka vandamál. Ef bændur þurfa að fara að fækka sínu, bæði kúm og kindum, þá verður miklu meira af kjöti á markaðnum á meðan það gengur yfir, og þá hlýtur samfélagið að verða að taka þátt í því, annars yrðu þessar byrðar óbærilegar.

Ég ætla ekki að hafa þetta meira nú, þar sem þetta frv. kemur, eins og ég sagði, í þá n. sem ég á sæti í. Ég vil bara undirstrika það enn og aftur, að Alþ. er ekki að velja þarna um leiðir, það er bændanna, nema við viljum þrengja þetta frá því sem er í frv. Afstaða manna til þess kemur í ljós við þessa umr. og svo í landbn., en þá kemur það betur í ljós hvernig menn vilja standa að þessum málum. Ég vonast fyrst og fremst til þess að það náist samstaða um aðgerðir, ekki síst vegna þess að þetta er komið frá bændum og þeir óska eftir því að eitthvað sé gert í málinu, en þetta er ekki frv. annarra en þeirra.