13.12.1978
Efri deild: 26. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1496 í B-deild Alþingistíðinda. (980)
126. mál, Seðlabanki Íslands
Eyjólfur K. Jónsson:
Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs eingöngu til þess að þakka hæstv. ráðh. fyrir þau svör, sem hann gaf mér, og sérstaklega fyrir það, hvað hann undirstrikaði rækilega, eins og ég gerði hér áður, að þetta skref mætti ekki leiða til þess að aukið yrði á erlendar skuldbindingar. Í frumræðu sinni gat hann þess raunar, að hugmyndin væri sú, að ríkið greiddi upp skuldir sínar við Seðlabankann með innlendum peningum í staðinn fyrir þær skuldbindingar sem þarna yrðu millifærðar. Auðvitað er það ágætisleið, ef ríkið hefur þá peninga undir höndum, og önnur leið er auðvitað til. (Viðskrh.: Bindiskyldan yrði notuð sem mótvægi á móti ríkissjóði). Já, já, ég held að ég skilji þetta rétt. T.d. gæti ríkið aukið sparibréfaútgáfu sína o.s.frv. og náð peningum til sín. En ég fer ekki ofan af því, að hið eina heilbrigða í þessi er auðvitað að fólkið fái sjálft að spara eftir sömu reglum og aftur er lánað út.
Ég er auðvitað sammála hæstv. ráðh. um það, að við eigum ekki um aldur og ævi að binda fjármálakerfi okkar við eitthvert alþjóðlegt fjármálakerfi með þeim hætti að við höfum ekki einhverja mynt. En við skulum horfast í augu við það, að myntkerfi okkar og fjármálakerfi er, svo að ég endurtaki það, hrunið. Við verðum að gera ráðstafanir til að reyna að rétta það við. Ég tel eðlilegast að þegar við höfum komist yfir þennan ólgusjó, sem vonandi verður fyrr en síðar, þá tækjum við upp íslenska mynt og íslenskt myntheiti, tækjum upp gömlu mörkina og aura, vegna þess að við höfum ekkert með neina kóngapeninga að gera. Það er eðlilegt að Danir, Norðmenn og Svíar hafi sínar kórónur, en við eigum auðvitað að hafa okkar gamla myntheiti ef út í myntbreytingu er á annað borð farið. En það er síðari tíma mál.
Aðalatriðið er að það er eðlilegt, eins og nú háttar og hefur kannske verið það um langt skeið, að útvegurinn hafi sitt fjármagn í þeirri mynt sem hann selur sínar vörur í. Það er engum hollt og síst útflutningsframleiðslunni, að þannig sé á málum haldið að afurðalán séu í óraunhæfum peningum og síðan er knúin fram gengisfelling og peningunum þá skipt upp, kannske eftir algerlega óeðlilegum reglum. Ég tek auðvitað undir það, sem hv. þm. Ágúst Einarsson sagði, að þá væri auðvitað gengismunarsjóður og allt slíkt úr sögunni. Ef gengisbreyting eða gengissig er, þá fær auðvitað útflytjandinn hið nýja gengi þegar hann flytur vöru sína út. Það er hið eina eðlilega og heilbrigða í þessu efni.
Þó að ég geti ekki á þessari stundu lýst endanlega stuðningi við þetta frv., af því að ég þarf að fá miklu frekari skýringar, þá held ég að þetta sé örugglega rétt braut. Ég þakka sérstaklega fyrir það, að við, sem erum í fjh.- og viðskn., fáum strax í fyrramálið mjög rækilegar upplýsingar. Ég vona að þær nægi til að sannfæra mig um það, að hér eigi ekki að íþyngja okkur með auknum erlendum skuldbindingum, hvorki beint né óbeint. En ég vil hafa allan fyrirvara á um það og fá skýrar yfirlýsingar Seðlabanka í því efni, t.d. með hliðsjón af því að þegar ég skrifaði grein mína í sumar, sem ég minntist á áðan, þá fékk ég kveðju frá einum aðalspekingi Seðlabankans á þá leið, að þetta væru ekki sérlega gáfulegar hugmyndir sem fram væru bornar. En Seðlabankinn virðist ætla að gera þær að sínum núna, og ég vil þá fá að vita að það sé verið að gera hlutina með þeim hætti að ekki sé til að auka á verðbólgu og erfiðleika, heldur að peningarnir komi innanlands frá og þá auðvitað helst beint frá fólkinu — því fólki sem vill spara í verðtryggðri mynt. Ef mönnum er mjög illa við að reikningarnir séu gengistryggðir, þá mættu þeir auðvitað vera verðtryggðir með einhverjum öðrum hætti, en eðlilegast er auðvitað að þeir séu í sömu myntinni og útvegurinn svo aftur borgar þegar þar að kemur. — En ég fagna þessari umr.