13.12.1978
Efri deild: 26. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1499 í B-deild Alþingistíðinda. (983)
133. mál, vörugjald
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Hér er spurning um hvernig með á að fara framlög til byggingar heimila fyrir það fólk sem hefur notið góðs af þessum sérmerkta stofni. Ég tel að það sé ekki afgerandi að fá til þess markaðan tekjustofn ef — og á það legg ég áherslu — eðlilega er að málinu staðið í fjárveitingum. Ótti minn er einmitt bundinn því, að það verði ekki staðið eðlilega að fjárveitingum í þessum efnum, ef dæma má eftir ýmsum þeim sjóðum sem áður hafa haft markaða tekjustofna og hafa síðan misst þá og verið teknir beint inn í fjárlög. Það var áðan minnst á Styrktarsjóð fatlaðra. Ég vil aðeins upplýsa það, að samkv. fjárlögum var framlag til Styrktarsjóðs fatlaðra á árinu 1973, þ.e.a.s. árið eftir að þetta gjald var afnumið sem sérstakur tekjustofn, 3 millj. 250 þús. Í fjárl. þessa árs, 6 árum síðar, með þeirri þróun sem allir þekkja í verðlagsmálum, er þetta framlag 7 millj. kr., þ.e.a.s. Styrktarsjóður fatlaðra hefur aðeins rúmlega tvöfaldast frá því að þessi fasti tekjustofn til hans var felldur niður. Það er þessi þróun sem ég óttast að verði varðandi þann sjóð sem við ræðum um hér, Styrktarsjóð vangefinna.
Nú er það svo, að þótt margt hafi verið aðhafst í þessum efnum, þá eru mörg verkefni sem bíða. Ég bendi á það, að 1976, þegar upphæðin var 35 millj. í fjárl. eftir þessum markaða tekjustofni, var Styrktarsjóður vangefinna kominn í algert þrot. Það var útilokað að byrja á nokkurri nýrri framkvæmd fyrir vangefna á því ári. Hins vegar var gert mikið átak í sambandi við eflingu þess sjóðs á árinu 1977 með hækkun hins markaða tekjustofns, þannig að upphæðin hækkaði úr 35 millj. í 105 millj., og fyrir það ber sannarlega að þakka hæstv. síðustu ríkisstj., sem ég þakka annars ekki mjög margt. Síðan var það aftur á árinu 1978, að þá var enn betur gert. Þá var upphæðin hækkuð úr 105 millj. í 150 millj. Ég vek athygli á því, að nú, þegar þessu er breytt og upphæðin ákveðin í fjárl., er upphæðin sú sama. Hún er ákveðin núna í frv. 150 millj. Það má segja að okkar í fjvn. sé að breyta, en við höfum líka fyrirmæli um það að breyta sem allra minnst frá fjárlagafrv. og hljótum að taka nokkurt tillit til þess.
Nú halda menn kannske að þegar þetta átak var gert 1977 og aftur 1978, þá hafi það nægt til þess að eðlilegt væri að hægja á núna, en það er sannarlega ekki. Ég ætla aðeins að benda á það, að ef ég notaði raungildisregluna og miðaði við þá almennu stefnu fjárl., sem boðuð er í frv., þ.e.a.s. 12% niðurskurð verklegra framkvæmda, því að hér er eingöngu um verklegar framkvæmdir að ræða, þá ætti upphæðin í fjárlagafrv. núna að vera í kringum 175 millj. kr. minnst, en er 150 millj.
Ég vil þá rétt aðeins fara yfir það, — ekki að það sé gert vegna þess að fólk viti ekki almennt um það, heldur til hollrar upprifjunar fyrir fólk, —hvað er í gangi og hvað þarf að gera í þessum efnum. Ég veit að hæstv. fjmrh. er þetta mál mætavel kunnugt, svo vel hafa aðilar honum tengdir staðið að þessu máli og reyndar höfðu forustu og frumkvæði um það í upphafi. En ég bendi á nokkur dæmi.
Ég er alfarið á móti því að stækka Kópavogshælið. Það á ekki að stækka það, það á ekki að fjölga vistmönnum þar, það á að stefna að fækkun vistmanna þar. Hins vegar þarf að bæta aðstöðu þar mikið. Þar vantar mikið á að aðstaða sé enn þá nægilega góð. Til þess átti að verja nokkrum milljónatugum á þessu ári. Það var hins vegar ekki ráðist í það. Með velvilja hæstv. félmrh. fengum við austur á land nokkra upphæð af því óráðstafaða fé sem þar var núna, en það hlýtur að koma niður á okkur á næsta ári. Í Tjaldanesi þarf að gera átak nú. Það er alveg óumflýjanlegt á næsta ári að gera þar visst átak sem kostar töluverðar upphæðir, þó að ég hafi ekki um það nákvæma áætlun. Sama er að segja um Skálatún. Þó að þar væri bætt úr brýnustu þörf í fyrra með vissum bráðabirgðaaðgerðum þarf þar viðbót og bætta aðstöðu einnig. Um Sólheima í Grímsnesi ræði ég ekki. Um það er mikil spurning hvað þar á við að gera, en ef menn ætla að reka þar áfram heimili af svipaðri stærð og nú er, þá er ljóst að til þurfa að koma miklar endurbætur á því húsnæði, sem þar er, og viðhót einnig.
Ég bendi á það í leiðinni, að úr Styrktarsjóði vangefinna fór allmikið fé á sínum tíma til bygginganna í Lyngási og Bjarkarási. Nú er sem betur fer þannig komið að skólahúsnæðið í Lyngási er á fjárlögum undir liðnum skólaframkvæmdir fyrir þroskahömluð börn. Til þeirrar framkvæmdar verður varið á næsta ári, að ég vona, allsæmilegri upphæð, þannig að unnt sé að fara þar allmyndarlega af stað.
En þegar suðvesturhorninu er sleppt, þá er landsbyggðin — utan þessa horns — öll eftir. Á sínum tíma gleymdist hún viljandi, því að þá var uppi sú kenning á landi hér, að öllu þessu fólki ætti að safna á eitt hæli. Til þess fengu menn danskan sérfræðing, sem fann það út að þetta land væri svo lítið og þjóðin það fámenn að eitt hæli ætti hér að gilda. Það var ekki fyrr en fyrir fáum árum að þessari kenningu var endanlega hnekkt, menn hættu að trúa á þessa kenningu. Undantekning var gerð með Sólborg á Akureyri. Sólborgarmenn rufu þennan vítahring, sá danski gat víst fallist á að eitt lítið heimili mætti vera þar. Það var svo ekki fyrr en með tillöguflutningi okkar hv. 2. þm. Austurl., Vilhjálms Hjálmarssonar, að farið var að athuga fyrir alvöru með vistheimili fyrir vangefna í öðrum landshlutum.
Af því að ég minntist á Sólborg á Akureyri, þá er viðbótin þar nú á lokastigi á næsta ári, en nokkra milljónatugi þarf til þess að sú bygging komist í það horf sem hún þarf í að vera til að fullnægja kröfum fyrir þá vistmenn sem þar eru nú. Þar er ekki um neina fjölgun að ræða frá því sem nú er.
Austur á Egilsstöðum er verið að byggja heimili. Það verður að tryggja starfrækslu þess á árinu 1980. Ef það ætti að takast, þá þyrftum við á næsta ári að fá nærfellt heildarupphæðinni núna til þess að það væri alveg tryggt. Sú bygging er það dýr. Ég vil benda á varðandi það heimili sem þar er verið að reisa að þar er þó farið næst þeim nútímahugmyndum sem nú eru efstar á baugi með öðrum þjóðum um það, hvernig slík heimili skuli upp byggð, og við fögnum því að geta fært þetta í það horf sem menn telja nú að sé rétt, að hælastefnan, innilokunarstefnan sé sem sagt á undanhaldi, en heimilastefnan og viss tengsl við heimili þessa fólks og viss tengsl þeirra við umhverfið, bæði í sambandi við skóla og vinnustaði, komi í staðinn fyrir þá innilokunarstefnu sem hér ríkti.
Ég tel alveg óhjákvæmilegt samkv. þeim undirbúningi, sem Vestfirðingar hafa og séra Gunnar Björnsson fræðir mig um að þurfi að gera þar á næsta ári, að þá þurfi að fara af stað þar.
Á Suðurlandi hefur verið tekin upp bráðabirgðalausn í þessum efnum.
Á Vesturlandi er málið enn í undirbúningi, en ljóst að þar þarf visst átak að gera.
Ég veit að allt snertir þetta spurninguna um heildarstefnu í þessum málum. Ég skal ekki orðlengja um það frekar hér eða tefja umr. um þetta mál í heild. Ég veit að n. er í þessu máli. Hún starfar vel og vinnur að því að ný heildarlög verði sett um þetta. Ég vildi einungis vekja athygli á þessu máli, að hér er um mikla fjárþörf að ræða sem ég ber vissan ótta í brjósti um að verði ekki sinnt nægilega vel ef þessi markaði tekjustofn verður felldur niður. Ég bendi á það í sambandi við þetta, að í Nd. er nú til umr og umfjöllunar frv. um Framkvæmdasjóð öryrkja, flutt af hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, þar sem einmitt er farið inn á markaða tekjustofna. Hér er auðvitað ekki samræmi í. Fyrir það, sem þar er ráð fyrir gert, er full þörf — svo sannarlega, en þessi mál þarf þá að skoða öll í heild og ákveða hvernig með á að fara. Ég vil skora á hæstv. fjmrh. í sambandi við þetta að beita sér fyrir því, að í öllum þeim þrengingum, sem við erum nú í fjvn., höfum við a.m.k. heimild til þess að halda raungildi þessa markaða tekjustofns í fjárlagafrv. Auðvitað förum við okkar fram að dálitlu leyti án þess að spyrja hann leyfis, það er annað mál. En það er ákaflega gott og æskilegt veganesti fyrir fjvn., ef hæstv. fjmrh. lýsir því yfir að í þessu efni styðji hann þá stefnu sem ég aðhyllist að þessu leyti og ég veit að fjvn.-menn yfirleitt eru meðmæltir, að hér þurfi í raun og veru a.m.k. að vera sama upphæð að raungildi og var á næsta ári og sé það þó ekkert of í lagt. Þetta fólk heimtar ekkert sjálft, aðrir verða að sækja rétt þess, og það er þeim mun meiri skylda sem á okkur hvílir varðandi þetta fólk. Því vona ég að það, sem verið er að gera núna með þessu, verði ekki til þess að lækka framlög til þessara mála í framtíðinni, miklu fremur til þess að hinn félagslegi skilningur okkar á jafnrétti þessa fólks við aðra aukist svo verulega að við sjáum til þess, að ekki bara raungildið haldist, heldur að við aukum framlög til þessara mála nægilega vel til þess að þetta fólk þurfi ekki lengur að vera á þeim útigangi sem það hefur lengst af verið á Íslandi.