23.10.1978
Sameinað þing: 6. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Gils Guðmundsson):

Það hafa þegar þrír hv. alþm. kvatt sér hljóðs utan dagskrár til viðbótar þeim sem þegar hafa talað. Með tilliti til þess, að fundir verða í Sþ. á morgun og Sþ. mun þá hafa allrúman tíma, en deildum var ætlaður tími í dag, þá vil ég nú beina því til þeirra hv. þm., sem þegar hafa kvatt sér hljóðs, hvort þeir geti ekki fallist á það, að við frestum þessari umr. þar til á fundi á morgun. (Gripið fram í: Nei.). Ef mönnum finnst það ekki sanngjarnt, þá get ég hugsað mér að gefa orðið einum stjórnarandstöðu þm. þeirra sem þegar hafa kvatt sér hljóðs, ef hann getur lokið sér af á tiltölulega stuttum tíma, og þá væri nokkuð jafnt á komið með stjórnarliðum og stjórnarandstæðingum, en almennri umr. utan dagskrár yrði að öðru leyti frestað þar til á morgun þegar Sþ. hefur rúman tíma til umráða. Gæti þetta ekki orðið að samkomulagi?