13.12.1978
Neðri deild: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í B-deild Alþingistíðinda. (994)
37. mál, meðferð opinberra mála
Flm. (Finnur Torfi Stefánsson):
Herra forseti. Á síðustu árum hefur rannsókn sakamála vakið mjög mikla athygli meðal almennings og verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum og manna á meðal. Í tengslum við þetta hefur athygli manna beinst að starfsemi dómstóla og rannsóknaraðila í landinu. Hefur margt komið í ljós sem menn hafa talið þörf á að breyta, enda hafa komið fram á Alþ. ýmis lagafrv. að þessum efnum lútandi og sum hafa þegar verið gerð að lögum.
Það er athyglisvert, að það, sem hingað til hefur verið gert varðandi þessi mál, lýtur fyrst og fremst að starfsemi rannsóknaraðila. Hins vegar hefur minni athygli verið beint að stöðu sakborninganna í íslenskum rétti. En satt að segja er engu síður tilefni til þess að gaumgæfa hvort íslenskum lögum sé ekki í ýmsum hlutum ábótavant hvað varðar réttarstöðu sakbornings við rannsókn sakamála. Það hefur vakið athygli margra manna, að gæsluvarðhaldi er hér beitt mjög ótæpilega. Það eru ýmis dæmi um að menn sem síðan reyndust saklausir, hafa verið dæmdir í gæsluvarðhald og látnir sitja inni langan tíma. Það eru líka dæmi um það, að menn hafa setið í gæsluvarðhaldi í langan tíma eftir að þeir höfðu játað sakir. Það hefur líka vakið athygli margra, að réttargæslumenn virðast um margt eiga dálítið örðugt uppdráttar með að sinna störfum sínum og hlutverki sínu fyrir skjólstæðinga sína.
Nú er það auðvitað grundvallarregla í íslenskum rétti, að grunaður maður er saklaus þangað til annað sannast, og meðferð hans meðan á rannsókn máls stendur á auðvitað við það að miðast, að hann er saklaus og á ekki að þurfa að sæta mjög miklum réttarskerðingum fyrir það eitt að vera grunaður.
Þetta frv., sem ég hef leyft mér að flytja, lýtur að þrem meginefnisatriðum sem varða þessi mál, þ.e.a.s. réttarstöðu sakbornings. Í fyrsta lagi er um það að tefla að þrengja heimildir dómstóla til þess að dæma menn í gæsluvarðhald. Í öðru lagi er frv. ætlað að gera grunuðum mönnum kleift að hagnýta sér þjónustu löglærðra réttargæslumanna án tillits til efnahags, þ.e.a.s. menn þurfi ekki að fara á mis við slíka þjónustu jafnvel þótt efnahagur þeirra kunni að vera bágur. Í þriðja lagi er hér fjallað um að þjónusta hins löglærða réttargæslumanns nýtist sakborningi til hins ítrasta — hann hafi fullt gagn af þeirri þjónustu. Ég ætla nú að fjalla um þessi þrjú efnisatriði hvert á eftir öðru.
Í lögum um meðferð opinberra mála, nr. 74 frá 1974, er í 1. tölul. 67. gr. ákvæði um að gæsluvarðhaldi skuli að jafnaði beita ef ætla má að sökunautur muni torvelda rannsókn málsins ef hann hefur óskert frelsi sitt, svo sem með því að afmá merki eftir brotið eða merki er í sambandi við það standa, skjóta undan munum eða öðrum gögnum, er brotið varða, hafa áhrif á vitni eða samseka. Það má sjá af þessari heimild, að hún er ákaflega víðtæk. Það er nánast unnt að fullyrða að samkv. þessari heimild er hægt að setja hvern þann mann, sem grunur fellur á, í gæsluvarðhald um lengri eða skemmri tíma. Heimildin er svo víðtæk, að segja má, að litlar eða engar hömlur séu á notkun hennar. Það eitt þarf að liggja fyrir, að maðurinn sé grunaður.
Það eru ekki til neinar tölulegar upplýsingar um tíðni gæsluvarðhaldsúrskurða eða um lengd þeirra, en kunnugir menn vita að gæsluvarðhaldi er beitt og hefur verið beitt í mjög ríkum mæli af íslenskum dómstólum. Og þess eru mörg dæmi, eins og ég nefndi fyrr, að menn, sem síðar reyndust saklausir, þurftu að sitja inni í gæsluvarðhaldi við frekar harðan kost, en aðbúnaður gæsluvarðhaldsfanga er lélegur hér — þeir eru einangraðir og oft við lélegar aðstæður. Það hefur, eins og ég gat um áður, líka iðulega gerst, að sakborningar hafa játað á sig sök, en þurft að sitja áfram í gæsluvarðhaldi eftir sem áður. Gefur auga leið, að mjög mikil freisting er fyrir rannsóknaraðila og dómara að nota gæsluvarðhaldið í raun sem tæki til þess að knýja fram játningu. Strangar kröfur eru gerðar af íslenskum dómstólum þegar á að fara að dæma menn, að fyrir liggi nokkuð skýrt sannað að um sök sé að ræða, og mjög mikið lagt upp úr því að fá játningu. Þetta síðastnefnda er auðvitað einkenni rannsóknarréttarins gamla, enda er réttarfar okkar mjög mótað af sjónarmiðum rannsóknarréttar og mikið lagt upp úr játningunni. Mörgum er alls ekki grunlaust um að á Íslandi sé gæsluvarðhaldinu beitt sem tæki til þess að knýja fram játningu.
Í raun og veru skapar þetta ástand ákaflega mikla réttaróvissu fyrir hinn almenna borgara í landinu, því að það er vel hugsanlegt, og raunar eru um það dæmi, að menn beri óvini sína af illfýsi sökum og komi þeim þar með í gæsluvarðhald, þar sem þeim er kannske haldið mánuðum saman. Það eru nýleg dæmi um að þetta hafi gerst, þar sem óréttmætar sakargiftir leiddu til þess, að mönnum var haldið langtímum saman í gæsluvarðhaldi. Það er skoðun mín, að þessi skipan mála sé í raun og veru alls ósæmandi þeim grundvallarsjónarmiðum um mannréttindi og stöðu borgaranna gagnvart lögunum sem við fylgjum öll. Það er við þetta að bæta að mjög orkar tvímælis að gæsluvarðhaldsvist, sérstaklega löng gæsluvarðhaldsvist, þjóni raunverulegum rannsóknarsjónarmiðum. Það er margsannað, að sakborningur, sem haldið hefur verið lengi í einangrun í gæsluvarðhaldsvist, missir smátt og smátt allt þrek og innan ótrúlega skamms tíma gerist hann fús til þess að játa á sig ýmsa hluti og segja ýmislegt sem hann mundi alls ekki segja ef hann hefði fulla heilsu og full skilyrði til þess að vanda framburð sinn. Það er alls ekki óalgengt að gæsluvarðhaldsfangar játi á sig sakir sem þeir hafa aldrei komið nálægt, til þess eins að sleppa úr gæsluvarðhaldi. Þar með er gæsluvarðhaldið farið að vinna gegn sjónarmiðum rannsóknarinnar. Þá er gæsluvarðhaldsvistin farin að hafa þær afleiðingar, að rannsóknin fer á villigötur og stríðir gegn þeim markmiðum sem allir eru auðvitað að reyna að ná í málinu, sem er að leiða hið sanna fram.
Ég tel ekki ástæðu til þess að fjölyrða mikið um þetta. Ég hygg að allur þingheimur hljóti að vera mér sammála um að það er brýn nauðsyn að taka á þessu máli og þrengja heimildir dómstóla til að beita gæsluvarðhaldi. Í þessu frv. er sú leið farin að leggja til að felld verði niður sú hin almenna heimild til að úrskurða gæsluvarðhaldsvist, sem er í 1. tölul. 67. gr. laganna frá 1974. Eftir sem áður eru í þessari grein ýmis önnur ákvæði sem heimila gæsluvarðhaldsvistina. Þá upptalningu sé ég ekki ástæðu til þess að þylja upp, en ég lít svo á að í þeirri upptalningu og í þeim liðum, öðrum töluliðum þessarar greinar, séu í rauninni alveg fullnægjandi heimildir fyrir dómstóla til þess að hagnýta sér gæsluvarðhaldsúrskurði í rannsóknarskyni. Ég tel að dómstólar þurfi ekki á meira að halda í þessu efni.
Í annan stað, eins og ég gat um áðan, fjallar þetta frv. um hagnýtingu sakborninga á þjónustu löglærðra réttargæslumanna. Samkv. lögum nr. 74 frá 1974, 3. mgr. 81. gr., er sakborningi ætíð heimilt að ráða sér réttargæslumenn á eigin kostnað. Það er hið almenna ákvæði. Í ákveðnum tilvikum á hann einnig rétt á að fá sér skipaðan réttargæslumann, en í skipuninni felst að kostnaður við réttargæslumanninn er greiddur úr opinberum sjóði. Það er aðalþýðing skipunarinnar. Ef réttargæslumaður er skipaður sakborningi, þá greiðir ríkissjóður kostnaðinn, að öðrum kosti verður sakborningur að gera það sjálfur. Samkv. 1. tölul. 2. mgr. 80. gr. laganna frá 1974 skal skipa sökunaut réttargæslumann eftir ósk hans meðan hann situr í gæsluvarðhaldi. Það er við þetta að athuga, að þessi réttur verður ekki virkur fyrr en við uppkvaðningu gæsluvarðhaldsúrskurðar. Meðan á rannsókn málsins stendur fram að því að gæsluvarðhald er úrskurðað kemur þessi heimild ekki til. Þann tíma, sem er oft mjög mikilvægur tími í rannsókn málsins, á sakborningur ekki rétt á að fá sér skipaðan réttargæslumann. Þó er ákvæði í 4. mgr. 80. gr. laga nr. 74 frá 1974, sbr. 14. gr. laga nr. 107 frá 1976, þar sem er heimilað að skipa sakborningi réttargæslumann við rannsókn málsins, á sakborningur ekki rétt á að fá sér skipaðan réttargæslumann. Þó er ákvæði í 4. mgr. laga nr. 107 frá 1976, þar sem er heimilað að skipa sakborningi réttargæslumann við rannsókn máls hjá rannsóknarlögreglu, þ.e.a.s. áður en úrskurður um gæsluvarðhald er kveðinn upp, og þetta byggist á mati dómarans á þörfum sakbornings. Þessi breyting í lögum nr. 107 frá 1976 var skref í rétta átt, en náði of skammt vegna þess að þar er aðeins um heimild að ræða og veltur á mati dómarans hvort á að nota heimildina. Á þessu er sá ókostur, að mjög mikið veltur á því, hvort dómara berist í raun og veru beiðni eða upplýsingar frá sökunautnum um að hann telji sig hafa þörf á réttargæslumanni. Þetta er sérstaklega bagalegt þegar er um handtekna menn að ræða sem ekki geta gætt þess sjálfir að dómara berist slíkar upplýsingar eða slík beiðni.
Það, sem ég legg til í þessu frv., er að taka algerlega hreina línu í þessu frv., er að taka algerlega hreina línu í þessu máli, sem er sú, að sakborningur eigi alltaf frá því að hann er handtekinn rétt á skipuðum réttargæslumanni og þurfi ekki að koma til neitt mat dómara í því efni —þessi réttur hans verði algerlega skýr og ótvíræður. Um þetta fjallar 1. gr. frv. Ég leyfi mér að lesa hana. Hún hljóðar svo:
„Við 61. gr. laga nr. 74 1974 bætist ný mgr., svo hljóðandi:
Handtekinn maður á rétt á skipuðum réttargæslumanni þegar eftir handtöku og ber þeim, er handtöku framkvæmir, að skýra honum frá þessum rétti. Réttargæslumaður ber skyldur og réttindi sem verjandi eftir 86. gr. Handteknum manni er heimilt eftir handtöku að hafa samband við ættingja eða aðra vandamenn, nema sérstök ástæða sé til að ætla að það muni torvelda rannsókn málsins.“
Hér er lagt til að upp verði tekið alveg skýrt ákvæði um það, að handtekinn maður eigi ávallt rétt á þessum skipaða réttargæslumanni. Enn fremur er þess getið sérstaklega, að þeim, sem handtöku framkvæmir, sé skylt að upplýsa viðkomandi um þennan rétt, þannig að þar fari ekkert á milli mála. Það er enn fremur í þessu ákvæði tekið fram, sem ekki hefur verið ótvírætt hingað til og er ekki ótvírætt nú, að handteknum manni sé heimilt eftir handtöku að hafa samband við ættingja og vini og aðra vandamenn, nema sérstök ástæða sé til að ætla að það muni torvelda rannsókn málsins. Þetta er sjálfsagt. Það er aldeilis sjálfsagt að handtekinn maður geti látið vini sína og vandamenn vita, hvernig mál hans standa, og þurfi ekki að halda ættingjum sínum í óvissu.
Í þriðja lagi er um það að ræða í frv. að breyta réttarstöðu verjenda eða réttargæslumanna. Það er auðvitað grundvallaratriði til þess að sakborningur geti haft gagn af réttargæslumanni sínum, að hann geti rætt við hann í einrúmi. Hann á að hafa ótvíræðan rétt til þess. Þetta er raunar meginreglan samkv. núgildandi lögum, en það eru takmarkanir á þeirri meginreglu sem draga mjög úr gildi hennar. Samkv. 3. mgr. 86. gr. laga nr. 74 frá 1974 getur dómari meinað sakborningi í gæsluvarðhaldi og verjanda hans að ræða saman einslega, ef hann telur hættu á að rannsókn torveldist fyrir það. Hvenær sem dómari telur hættu á að rannsókn torveldist við það, að sakborningur ræði einslega við réttargæslumann sinn, getur hann bannað slíkt. Þetta er ákaflega víðtæk heimild í raun og veru, dómari getur nánast bannað það hvenær sem honum sýnist. Og á sömu forsendu getur dómari neitað verjanda um að vera viðstaddur prófun sökunauts, þ.e.a.s. þegar sökunautur er tekinn fyrir rétt eða yfirheyrður. Þessar takmarkanir eru það víðtækar, að þær geta auðveldlega komið alveg í veg fyrir að sakborningur hafi gagn af réttargæslumanni sínum. Þess vegna er í þessu frv. lagt til að þessu verði breytt. Greinin hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„3. málsl. 1. mgr. 86. gr. laga nr. 74 1974 orðist svo: Verjanda er heimilt að tala við sökunaut einslega, þegar hann er í gæslu, nema dómari hafi sérstakt tilefni til að telja hættu á, að rannsókn torveldist fyrir það.
Í 4. málsl. sömu mgr. falli niður orðin: „enda þyki dómara það hættulaust vegna rannsóknar málsins“. Hér er gert ráð fyrir því að til þess að dómari geti meinað sakborningi að ræða einslega við réttargæslumann sinn þurfi hann að tilgreina sérstakt tilefni til þess. Það er sem sagt lagt til að þrengja hina víðtæku heimild. Dómarinn getur átt kost á því að meina þetta samráð, en hann þarf að tilgreina sérstakt tilefni til þess. Þá er enn fremur lagt til að verjandi, sem skipaður er áður en rannsókn er lokið, hafi ávallt rétt til að vera viðstaddur prófun sökunauts. Það er ekki hægt að hugsa sér nein tilvik þar sem dómari getur haft ástæðu til þess að meina verjanda að vera viðstaddur yfirheyrslur og prófun á sökunaut, þar eru þó alltaf einhverjir viðstaddir. Þess vegna er lagt til að þetta verði fellt niður.
Ég tel að það, sem er mikilvægast í þessu frv., sé breytingin á ákvæðunum um gæsluvarðhald, en auðvitað tengist þetta allt saman. Tilgangurinn er sá, eins og ég gat um í upphafi, að reyna að koma fram nokkrum bótum á réttarstöðu sakborninga, en því miður hafa verið brotalamir á því hingað til.