13.12.1978
Neðri deild: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1523 í B-deild Alþingistíðinda. (995)
37. mál, meðferð opinberra mála
Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ég tek undir það með hv. flm. þessa frv., að hér er hreyft mjög mikilvægu máli. Að sjálfsögðu ber okkur skylda til að gæta réttar sakborningsins, og rétt er það sem hann sagði, að sérhver er saklaus þangað til sekt hans er sönnuð. Hins vegar er hér einnig um viðkvæmt mál að ræða að því leyti, að þess verður að gæta að hindra ekki skjóta meðferð slíkra mála sem þessara.
Ég vil vekja athygli á því, að gæsluvarðhald er ávallt háð úrskurði dómara — dómari verður að heimila slíkt. Við verðum að ætla að dómari sé hlutlaus aðili í þessu sambandi. Einnig má vekja athygli á því, að dómarar hafa iðulega hafnað óskum um gæsluvarðhald, t.d. alveg nýlega.
Flm. minntist réttilega á það, að stundum hafa sakborningar setið í gæsluvarðhaldi lengur en e.t.v. má þykja eðlilegt með tilliti til þess að þeir hafi játað sekt sína. Að sjálfsögðu er það þá í tengslum við víðtækari rannsókn málsins. Dómari hefur þá komist að þeirri niðurstöðu, að það gæti torveldað slíka rannsókn ef sakborningur gengi laus.
Annars ætla ég alls ekki að ræða málið efnislega. Ég nefni aðeins stuttlega kosti og galla þess að þrengja það form sem nú er. Mér finnst alveg sjálfsagt að athuga málið. Ég vil því fyrst og fremst fara þess á leit, að frv. fái meðferð hjá réttarfarsnefnd, sem er fastanefnd á vegum dómsmrn.