10.10.1979
Sameinað þing: 1. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Forseti Íslands setur þingið

Þessir menn skipuðu þingið:

1. Albert Guðmundsson, 1. þm. Reykv.

2. Alexander Stefánsson, 5. þm. Vesturl.

3. Árni Gunnarsson, 11. landsk. þm.

4. Benedikt Gröndal, 3. þm. Reykv.

5. Björn Jónsson, 1. landsk. þm.

6. Bragi Níelsson, 8. landsk. þm.

7. Bragi Sigurjónsson, 3. þm. Norðurl. e.

8. Eðvarð Sigurðsson, 6. þm. Reykv.

9. Eggert Haukdal, 1. þm. Suðurl.

10. Eiður Guðnason, 3. þm. Vesturl.

11. Einar Ágústsson, 9. þm. Reykv.

12. Ellert B. Schram, 8. þm. Reykv.

13. Eyjólfur K. Jónsson, 5. þm. Norðurl. v.

14. Finnur Torfi Stefánsson, 2. landsk. þm.

15. Friðjón Þórðarson, 2. þm. Vesturl.

16. Friðrik Sophusson, 5. landsk. þm.

17. Garðar Sigurðsson, 3. þm. Suðurl.

18. Geir Gunnarsson, 10. landsk. þm.

19. Geir Hallgrímsson, 4, þm. Reykv.

20. Gils Guðmundsson, 3. þm. Reykn.

21. Guðmundur Karlsson, 5. þm. Suðurl.

22. Gunnar Thoroddsen, 11. þm. Reykv.

23. Gunnlaugur Stefánsson, 4. landsk. þm.

24. Halldór E. Sigurðsson, 1. þm. Vesturl.

25. Helgi F. Seljan, 3. þm. Austurl.

26. Hjörleifur Guttormsson, 6. landsk. þm.

27. Ingvar Gíslason, 1. þm. Norðurl. e.

28. Jóhanna Sigurðardóttir, 12. þm. Reykv.

29. Jón Helgason, 6. þm. Suðurl.

30. Jón G. Sólnes, 2. þm. Norðurl. e.

31. Jónas Árnason, 4. þm. Vesturl.

32. Jósef H. Þorgeirsson, 7, landsk. þm.

33. Karl Steinar Guðnason, 5. þm. Reykn.

34. Kjartan Jóhannsson, 2. þm. Reykn.

35. Kjartan Ólafsson, 3. þm. Vestf.

36. Lárus Jónsson, 6. þm. Norðurl. e.

37. Lúðvík Jósepsson, 1. þm. Austurl.

38. Magnús H. Magnússon, 4. þm. Suðurl.

39. Matthías Bjarnason, 1. þm. Vestf.

40. Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn.

41. Oddur Ólafsson, 4. þm. Reykn.

42. Ólafur G. Einarsson, 9. landsk. þm.

43. Ólafur Ragnar Grímsson, 3. landsk. þm.

44. Ólafur Jóhannesson, 1. þm. Norðurl. v.

45. Páll Pétursson, 4. þm. Norðurl. v.

46. Pálmi Jónsson, 2. þm. Norðurl. v.

47. Ragnar Arnalds, 3. þm. Norðurl. v.

48. Ragnhildur Helgadóttir, 5. þm. Reykv.

49. Sighvatur Björgvinsson, 4. þm. Vestf.

50. Stefán Jónsson, 4. þm. Norðurl. e.

51. Stefán Valgeirsson, 5. þm. Norðurl. e.

52. Steingrímur Hermannsson, 2. þm. Vestf.

53. Svava Jakobsdóttir, 10. þm. Reykv.

54. Svavar Gestsson, 2. þm. Reykv.

55. Sverrir Hermannsson, 5. þm. Austurl.

56. Tómas Árnason, 4. þm. Austurl.

57. Vilhjálmur Hjálmarsson, 2. þm. Austurl.

58. Vilmundur Gylfason, 7. þm. Reykv.

59. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, 5. þm. Vestf.

60. Þórarinn Sigurjónsson, 2. þm. Suðurl.

Forseti Íslands setur þingið.

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn): Hinn 12. sept. s.l. var gefið út svofellt bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt till. forsrh., að Alþingi skuli koma saman til fundar miðvikudaginn 10. okt. 1979. Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni sem hefst kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 12. sept. 1979.

Kristján Eldjárn.

Ólafur Jóhannesson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til fundar miðvikudaginn 10. okt. 1979.“

Samkvæmt bréfi því, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því að Alþingi Íslendinga er sett.

Ég býð yður öll velkomin til þings og læt þá ósk og von í ljós, að störf yðar verði árangursrík til góðs fyrir land og þjóð.

Að svo mæltu bið ég þingheim að minnast fósturjarðarinnar með því að rísa úr sætum.

[Þingmenn risu úr sætum og forsrh., Ólafur Jóhannesson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ — Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta sameinaðs þings hefur farið fram, og bið ég aldursforseta, Odd Ólafsson, 4. þm. Reykn., að ganga til forsetastóls.