16.10.1979
Neðri deild: 2. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í B-deild Alþingistíðinda. (36)
Sætaskipun
Forseti (Árni Gunnarsson):
Þá er nefndakjöri lokið og verður tekið til við að hluta um sæti. Á fundi deildarinnar í gær var gerð við það aths. og raunar við þingsköpin sjálf þegar hugmynd kom fram um að leita afbrigða frá þingsköpum og óska eftir frestun á því að hluta um sæti. Ég hef á milli funda rætt þetta mál við ýmsa þm. og fer ekki leynt með það, að langflestir, sem ég hef rætt við, kjósa að sætaskipan verði óbreytt þann stutta tíma sem við eigum eftir að sitja í þessum sal. Það liggja mjög gild rök að því að leita afbrigða þar eð hér er eingöngu um frestun að ræða sem bæði er til hagræðis fyrir þm. sjálfa og starfsfólk þingsins ekki síst. Það er ótvíræð heimild í þingsköpum til að leita afbrigða í tilviki sem þessu og fordæmi eru allnokkur. Ég vil því á þessari stundu fara þess á leit við hv. Nd., að hún veiti afbrigði til þess að fresta því að hér verði hlutað um sæti.