16.10.1979
Sameinað þing: 3. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (48)
Tilkynning frá ríkisstjórninni og umræða um hana
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Nú þegar þingflokkur Alþfl. hefur sprengt fráfarandi stjórn og raðað sér í ráðherrastóla hér til beggja handa er þörf á því að þjóðin fái skýr svör við þeirri spurningu, hver beri ábyrgð á þessari stjórn. Í umboði hverra starfar hún? Er þetta meirihlutastjórn eða minnihlutastjórn? Sérstaklega er þetta brýnt eftir hinar furðulegu yfirlýsingar formanns Sjálfstfl., Geirs Hallgrímssonar, áðan.
Kjarni málsins er þessi: Áður en minnihlutastjórn er mynduð eða utanþingsstjórn er það föst venja í stjórnskipun okkar að gengið er úr skugga um að ekki sé unnt að mynda meirihlutastjórn. Í því tilvíki, sem hér um ræðir, hefur einn af formönnum stjórnmálaflokkanna myndað stjórn án þess að aðrir hafi fengið tækifæri til að reyna. Geir Hallgrímsson tók það sérstaklega fram áðan, að með ákveðnum viðbrögðum sínum og síns flokks hefðu þm. Sjálfstfl. komið í veg fyrir að reynt yrði að mynda nýja vinstri stjórn. Stjórnin var mynduð með stuðningi Alþfl. og Sjálfstfl. í óslitnu framhaldi þess að önnur stjórn fór frá, og þessi nýja stjórn er því bersýnilega meirihlutastjórn þessara tveggja flokka. Allar tilraunir Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstfl., til þess að láta líta svo út að Sjálfstfl. beri takmarkaða ábyrgð á gerðum þessarar stjórnar, eins og hann var að reyna áðan, eru því augljós fjarstæða. Ef eitthvað væri hæft í þeirri fullyrðingu Geirs Hallgrímssonar væri þessi stjórn ekki mynduð með þingræðislegum hætti. Þá hefðu aðrir flokkar áður átt rétt á að gera tilraun til myndunar meirihlutastjórnar. En það fengu þeir ekki. Þetta er því meirihlutastjórn tveggja flokka, Alþfl. og Sjálfstfl. Sérhver stjórnarathöfn verður á ábyrgð þeirra beggja, og Sjálfstfl. getur á engan hátt skotið sér undan því að hann ber fulla ábyrgð á stefnu og störfum þessarar stjórnar. Hitt er svo allt annað mál, að Sjálfstfl. hefur fengið Alþfl. til að kyngja því að ráðh. Alþfl. skuli sitja í stólum sínum án þess að gera neitt það sem máli skipti. Þeir eiga sem sagt að sitja aðgerðalitlir og hafa sig sem minnst í frammi meðan Sjálfstfl. er að tína af þeim atkv. Hefur nokkur ríkisstj. á Íslandi lagst svo lágt að undirgangast slíka afarkosti? Þeir eru dýru verði keyptir þessir sex ráðherrastólar sem Alþfl. hefur nú höndlað, og engum getur dulist eftir ræðu Geirs Hallgrímssonar áðan hvar húsbóndavaldið er raunverulega að finna.
En hvers vegna er þá þessi furðulega staða komin upp með öllum sínum þversögnum? Skýringin er fyrst og fremst sú, að síðan Alþfl. vann sinn stóra sigur í seinustu kosningum hafa forustumenn hans engan veginn getað gert það upp við sig hvort þeir ættu að halla sér til hægri eða vinstri. Þegar fráfarandi stjórn var mynduð var hópur þm. Alþfl. frá byrjun í stjórnarandstöðu, reiðubúinn að nota hvert tækifæri sem gæfist til þess að eitra samstarf stjórnarflokkanna. Það var öllum kunnugt að þessi hópur undir forustu Vilmundar Gylfasonar vildi samstarf við Sjálfstfl., enda sjálfir greinilegir afturhaldsmenn í flestum málum; m.a. áberandi óvinveittir samtökum verkalýðshreyfingar og bænda. Það eru þessir menn sem nú hafa orðið ofan á í Alþfl. Það er engin tilviljun að hinir þrír nýju ráðh. í stjórninni voru allir meðal áköfustu andstæðinga fyrri stjórnar. Það verður sem sagt að játa að hægri öflin hafa náð undirtökunum í íslenskum stjórnmálum og hlutverk þessarar stjórnar er það eitt að undirbúa jarðveginn fyrir ódulbúna íhaldsstjórn.
Þeir, sem ferðinni ráða í Alþfl., virðast láta sér í léttu rúmi liggja þótt ábyrgðarlaust framferði þeirra hljóti fyrst og fremst að verða vatn á myllu Sjálfstfl. og sérstaklega til stórtjóns fyrir Alþfl. Þetta sjá allir nema þeir sjálfir. Þeir sjá það eitt og hugsa um það eitt að klekkja á aðalandstæðingi sínum, vinstri öflunum í landinu.
Til þess að verja gerðir sínar og afsaka þær fyrir landsmönnum hafa forustumenn Alþfl. gripið til þess ráðs að básúna það út, hvenær sem færi hefur gefist, að ekki hafi verið unnt að ná samkomulagi í ríkisstj. um eitt eða neitt, m.a. ekki um fjárlög, lánsfjáráætlun og þjóðhagsáætlun. Sannleikurinn er sá, að seinustu þrjár vikurnar áður en stjórnarsamstarfinu var slitið var sérlega friðsælt á fundum ríkisstj. og engin sjáanleg merki þess að samstarf flokkanna hefði runnið sitt skeið á enda. Fjárlagafrv. fór í prentun upp úr miðjum sept., nokkru eftir að flokkarnir höfðu náð samkomulagi um nýja tekjuöflun fyrir ríkissjóð til að tryggja hallalausan ríkisbúskap. Öllum var ljóst að ákvörðunin um þessa tekjuöflun var ekki síður miðuð við afkomu ríkissjóðs og efnahagsgetu á árinu 1980. Vissulega urðu talsverð átök um fjárlagafrv., eins og ávallt hlýtur að verða, og ekki vorum við Alþb.-menn ánægðir með niðurstöðuna, töldum mörgu ábótavant og höfðum ýmsa fyrirvara. Fjárlagafrv. átti eftir 10 vikna rækilega meðferð í fjvn., og ekki datt okkur annað í hug en að látið yrði á reyna um samkomulag fyrir 2. og 3. umr. á Alþingi. Þjóðhagsáætlun hafði aldrei verið rædd í ríkisstj., hvað þá meira, og er það því meira en lítil ósvífni að vitna til hennar sem tilefnis til stjórnarslita. Lánsfjáráætlun var hins vegar algerlega ósamin, eftir því sem ég best veit, hvað þá að hún hefði verið rædd, og er það bersýnilega til að kóróna alla vitleysuna í málflutningi Alþfl. að ætla að rökstyðja frumhlaup sitt með tilvísun til áætlunar sem ekki var orðin til.
Vissulega hefur verðbólgan verið aftur á uppleið seinustu mánuði, eins og forustumenn Alþfl. hafa bent á. Verðþróunin var á hraðri niðurleið á fyrstu 8–9 mánuðum þessa stjórnarsamstarfs vegna efnahagsaðgerða ríkisstj. 1. sept. og 1. des. í fyrra. Verðbólgan varð talsvert minni fyrstu 12 mánuði fráfarandi stjórnar en var einu ári áður, eða 42% í samanburði við 50% verðbólgu á seinasta 12 mánaða stjórnartímabili ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar, en það skal játað að þróunin varð heldur til hins verra á s.l. sumri. Hvers vegna? Ein helsta ástæðan var hin gífurlega olíuverðshækkun sem hlaut óhjákvæmilega að hafa sín áhrif, bein og óbein, á öllum sviðum efnahagsmála og óháð því hvaða ríkisstj. var við völd. Ekkert getur afsakað að menn gefist upp og fórni höndum þótt slíkan vanda beri að garði. Önnur augljós skýring á vaxandi verðbólgu eru hinar miklu vaxtahækkanir sem Alþfl. knúði fram á s.l. vetri með aðstoð Framsfl. og í óþökk okkar Alþb.-manna. Stóraukin vaxtaútgjöld í öllum rekstri hafa hvarvetna brotið sér braut inn í verðmyndunarkerfið með hækkandi verði á hvers konar þjónustu, innlendri iðnaðarframleiðslu og landbúnaðarvörum og með gengissigi Seðlabankans, sem rökstutt hefur verið með auknum vaxtaútgjöldum sjávarútvegs og fiskvinnslu.
Það fór ekkert leynt að ágreiningur var um stefnuna í vaxtamálum á s.l. vetri, og við Alþb.-menn vöruðum sterklega við því, hverjar afleiðingar þessi ofstækisstefna í vaxtamálum gæti haft til að ýta undir verðbólgu. Það var einmitt kjarninn í málamiðlun stjórnarflokkanna á s.l. vetri að Alþfl. fékk ráðið vaxtastefnunni, en okkur Alþb.-mönnum tókst að koma í veg fyrir stórfellda skerðingu á kjörum launafólks í landinu sem mikið kapp var lagt á að þvinga fram. En þegar afleiðingarnar af rangri stefnu í vaxtamálum verða til þess að örva verðbólguþróun um nokkur prósentustig ásamt ýmsum öðrum samverkandi ástæðum, eins og ég áðan nefndi, er það einmitt flokkurinn sem mest ábyrgð ber á vaxandi verðbólgu sem yfirgefur stjórnina og kennir öðrum um.
Ég nefndi það áðan að harður slagur hefði staðið um það í tíð fráfarandi stjórnar að verja kjör launafólks. Svo hörð var þessi rimma á s.l. vetri að við lá að stjórnin færi frá, eins og mörgum er enn í fersku minni. Það var varnarsigur okkar Alþb.-manna að till. Alþfl. um sjálfvirka kjaraskerðingaraðferð, sem hefði lækkað kaupmátt launa um 20–30% á skömmum tíma, náði ekki fram að ganga. Á Íslandi þarf ekki, ef minnka á kaupmátt launa, að lækka beinlínis krónutölu launanna með lögum, eins og gert var stundum hér áður fyrr. Það nægir að kippa verðbótavísitölu úr sambandi. Þá lækka launin af sjálfu sér. Tillögur Alþfl. í þessa átt, sem komu raunar fyrst fram áður en stjórnin var mynduð á s.l. sumri, náðu aldrei fram að ganga, enda hreinræktaðar íhaldshugmyndir. En eftir að þessi aðför að lífskjörum láglaunafólks tókst ekki vegna andspyrnu Alþb. hefur þeim Alþfl.-mönnum orðið býsna tíðrætt um að efnahagslögin á s.l. vetri hafi orðið gagnsminni en til stóð, eða svo að notuð séu orð eins af þm. Alþfl., Eiðs Guðnasonar, á stjórnmálafundi á Hótel Sögu fyrir nokkrum dögum, en hann sagði: Efnahagslögin voru með því marki brennd að það var búið að taka úr þeim tennurnar að mestu leyti. — Þetta var vissulega hárrétt hjá Eiði Guðnasyni. Við Alþb.-menn drógum tennurnar úr þessu frv. — vígtennurnar sem áttu að höggva og naga niður launakjör þess fólks sem minnst ber úr býtum í þjóðfélagi okkar. Hinu tókst okkur ekki að koma fram vegna tregðu samstarfsflokkanna, að í efnahagslögunum væru þeir jaxlar sem brutt gætu niður gróða milliliða og skattsvikara, sem eitt hefði skipt verulegu máli í viðureigninni við þann vanda sem við er að fást.
Í efnahagslögunum eru ákvæði sem draga úr kaupmætti launa eða auka kaupmátt launa eftir því hvernig viðskiptakjörum er háttað á hverjum tíma. Þetta er eðlileg regla sem skapar nauðsynlegan sveigjanleika í efnahagskerfi landsins, enda fullur skilningur á því innan verkalýðshreyfingarinnar að óvenjulegar hækkanir á innfluttum hráefnum gefi ekki tilefni til sjálfkrafa kauphækkunar hér innanlands. En af þessari ástæðu hefur kaupmáttur launa minnkað lítils háttar á seinustu mánuðum vegna gífurlegra olíuverðshækkana. Á því er þó allur munurinn, eins og hvert mannsbarn getur skilið, hvort slakað er til um 3–4 prósentustig vegna óvæntra áfalla sem við verðum fyrir utan úr heimi, þegar auk þess er um samið að þessum prósentum verði tafarlaust skilað þegar viðskiptakjörin batna aftur, eða hvort hitt verður ofan á, að verðbótavísitala sé beinlínis tekin úr sambandi að meira eða minna leyti, eins og allt kapp er lagt á af hægri öflunum, en afleiðing þess yrði örugglega 20–30% kjaraskerðing á nokkuð skömmum tíma.
Í komandi kosningum verður bersýnilega kosið um það framar öðru, hvort menn trúa því eða trúa því ekki að töfraráðið í glímunni við verðbólguna sé að lækka laun fólksins um 20–30%. Því miður eru ótrúlega margir sem trúa þessu. Margir eru fljótir að gleyma og muna ekki lengur að þetta er sama töfraráðið og Sjálfstfl. beitti sér fyrir veturinn 1974–1975, þegar hægri stjórnin var mynduð eftir kosningarnar 1974. Þá var kaupgjaldsvísitalan tekin úr sambandi og kaupmáttur launa hrapaði um 25–30% á skömmum tíma, en verðbólguskriðan æddi þó áfram af fullum þunga eftir sem áður, eins og flestum er í fersku minni, og var áfram milli 40 og 50% einu ári síðar þrátt fyrir að kaupgjaldsvísitala væri ekki í sambandi.
Við Alþb.-menn höfðum leyft okkur að vona að forustumenn Alþfl. hefðu lært af reynslunni. Þeir slógu mjög á vinstri strengi fyrir seinustu alþingiskosningar og töluðu fagurlega um kjarasáttmála. En eftir kosningar breyttist tónninn. Í staðinn fyrir kjarasáttmála kom krafa um kauprán, og aftur varð bændastéttin helsti skotspónn Alþfl. Þeir höfðu ekkert lært síðan viðreisnarstjórnina sálugu dagaði uppi fyrir 8 árum og fáir þekktu lengur muninn á Alþfl. og Sjálfstfl. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Í komandi kosningum verður kosið um mörg örlagarík mál. Um það verður kosið, hvort breytt verður um stefnu í atvinnumálum og sérstaklega iðnaðarmálum. Friðrik Sophusson, þm. Sjálfstfl., boðaði í útvarpsþætti s.l. sunnudagskvöld að flokkur hans hefði uppi áform um miklar stóriðjuframkvæmdir erlendra manna á næstu árum ef flokkur hans kæmist aftur í forustuaðstöðu. Í þessu máli sem öðrum eru skörp skil milli Sjálfstfl. annars vegar og hins vegar Alþb., sem mótað hefur fjölbreytta, íslenska atvinnustefnu og leggur áherslu á að atvinnurekstur á Íslandi sé í höndum landsmanna sjálfra. Kosningarnar snúast um það, hvort íhaldsöflin fá aðstöðu til þess að skera niður félagslegar framkvæmdir í mennta- og heilbrigðismálum eða stöðva brýnar umbætur í samgöngumálum, t.d. með því að rýra stórlega fyrirhugaðar framkvæmdir samkv. vegáætlun. En umfram allt snúast næstu kosningar um það, hvort glímunni við verðbólguna verður snúið upp í stórfellda aðför að launakjörum almennings í landinu eða hvort ráðist er gegn verðbólgu með samræmdum aðgerðum á mörgum vígstöðvum samtímis, m.a. með aðgerðum í verðlags- og vaxtamálum, hagræðingu í atvinnulífi og harðri atlögu gegn því mikla og dýra milliliðabákni sem þjóðin er nú látin standa undir.
Í næstu kosningum eru línur óvenjulega ljósar og skýrar. Annars vegar er Sjálfstfl. með harðvítuga íhaldsstefnu og stefnir á hreinan meiri hl. Hins vegar Alþb., flokkur félagshyggju og jafnaðarstefnu, þ.e. sósíalískur flokkur, sem nú er orðinn ótvíræðara forustuafl vinstri manna en nokkru sinni fyrr og hefur verið í stöðugri sókn allan þennan áratug. Gervistjórn Alþfl. og Sjálfstfl., sem nú hefur tekið við og ætlar lítið annað að gera en að velgja stólana og taka við kaupinu sínu næstu tvo mánuði, skiptir að sjálfsögðu engu máli til eða frá. Hitt skiptir öllu, að fólkið í landinu skynji yfirvofandi hættu, verji hagsmuni sína og tryggi ótvíræðan vinstri sigur í næstu kosningum.