16.10.1979
Sameinað þing: 3. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (51)

Tilkynning frá ríkisstjórninni og umræða um hana

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Sú meginstaðreynd blasir nú við í íslenskum stjórnmálum og þjóðmálum að þriðja vinstri stjórnin frá lýðveldistöku hefur hrökklast frá völdum með ósköpum. Banamein þeirra allra hefur verið hið sama: óstjórn og upplausn í efnahagsmálum vegna sundurlyndis og hatrammra innri deilna.

Athyglisvert er að öngþveitið, sem hver vinstri stjórn skilur eftir sig, er illvígara og illkynjaðra við hvern víðskilnað þeirra. Hermann Jónasson, forsrh. fyrstu vinstri stjórnarinnar, talaði um að hún skildi eftir sig óðaverðbólgu sem engin samstaða væri um að berjast gegn innan stjórnarflokkanna. Sá efnahagsvandi var þó barnaleikur hjá því verðbólgumeti sem ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar skildi eftir sig 1974, en verðbólgan fór yfir 50% á því ári. Nú blasir sú staðreynd við að ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar, þriðja vinstri stjórnin, hefur sett enn þá geigvænlegra verðbólgumet eftir aðeins eins árs setu, eða nálægt 50–60% eftir því sem opinberar skýrslur greina, og þetta hefur hún gert með fullri ábyrgð loforðameistaranna úr Alþfl. frá síðustu kosningum.

Ég er þeirrar skoðunar, að verðbólga á Íslandi hafi orðið að altæku, illkynja þjóðarmeini á árunum 1973–1974. Verðbólga sem nemur allt að 50% á ári eða meira er í eðli sínu allt annar og illkynjaðri sjúkdómur en verðbólgustig eins og menn eiga að venjast í nágrannalöndunum. Maður, sem veit að 1000 kr., sem hann hefur í höndum í upphafi árs, verða e.t.v. 500 kr. eftir rúmt ár, hlýtur að vera haldinn þeirri hugsun fyrst og síðast að forða sér undan slíku verðbólgubáli. Í slíku ástandi kemst ekki heilbrigð efnahagsstjórn að. Þá ríkir í þjóðlífinu kaupæði, fjárfestingaræði, eyðsluæði og lántökuæði. Siðferðileg og efnahagsleg upplausn fylgir í kjölfarið þegar tímar líða fram.

Það allra alvarlegasta við þetta ástand er hversu lengi það hefur staðið yfir, með einu stuttu hléi á síðari hluta þessa áratugs, og það fer hríðversnandi. Verðbólgan æðir áfram. En hvað skal taka til bragðs? Einu má slá föstu: Þessi altæki, illkynja sjúkdómur verður ekki læknaður án sársauka og fórna og hann verður ekki læknaður með smáskammtalækningum og plástrum frá degi til dags.

Athyglisvert er að allar vinstri stjórnir, sem setið hafa, hafa fylgt sömu stefnu í meginatriðum í efnahagsmálum. Þær hafa beitt alls konar höftum: verðlagshöftum og gjaldeyrishöftum. Þær hafa beitt umfangsmiklum niðurgreiðslum og millifærslum. Þær hafa beitt gífurlegum skattaálögum og þanið út ríkisbáknið Þær hafa notað ótrúlegustu meðul og úrræði til þess að fara í kringum og falsa vísitöluna og notað vald hver öðrum fremur til ákvörðunar á kaupi og kjörum. Í stuttu máli hafa úrræði þeirra fyrst og fremst verið aukin ríkisafskipti af efnahagslífinu í óteljandi myndum og daglegar smáskammtalækningar.

Við sjálfstæðismenn viljum gerbreytta stefnu. Við viljum, að fólkið í landinu hafi meiri áhrif á daglega stjórn efnahagsmálanna með minni ríkisafskiptum, og snúa við blaðinu í baráttunni við verðbólguna, m.a. með því að skera niður ríkisútgjöld, afnema tekjuskatt á almennar launatekjur, afnema verðlags- og gjaldeyrishöft, aðskilja verðtryggingu sparifjár og útlána frá vöxtum og lækka sjálfa vextina, svo nokkuð sé nefnt.

Ég sagði áðan að það illkynja verðbólgubál, sem við búum við, verði ekki slökkt án sársauka og fórna, en stefnan í kjaramálum verður að miðast við verndun kaupmáttar láglaunafólks, því ekkert fólk í þessu landi er verr leikið af verðbólgunni en það.

Við sjálfstæðismenn höfum birt ítarlega stefnuskrá, eftir síðasta landsfund Sjálfstfl. Þar er skýrum orðum kveðið á um samræmdar aðgerðir gegn verðbólguvandanum. Ég vil leggja áherslu á að í tengslum við þær samræmdu aðgerðir til þess að kveða niður verðbólguna er mikilvægt að auka trú fólks á íslenskan gjaldmiðil að nýju.

Ég flutti um það till. fyrir nokkrum þingum að skipt verði um gjaldmiðil og krónan hundraðfölduð. Nú er þessi hugmynd komin í lög frá Alþingi. Þessi aðgerð er nýstárleg hér á landi til þess að hvetja til allsherjarhreingerningar í íslenskum efnahagsmálum. Hún stendur þó og fellur með því að aðrar einbeittar verðbólguaðgerðir nái fram að ganga.

Herra forseti. Kosningar eru nú ákveðnar fyrstu helgina í desember. Ýmsir hafa gert því skóna að ekki væri unnt að hafa kosningar á þessum árstíma, einkum væri slíkt vandkvæðum bundið úti um land. Auðvitað er þessi árstími ekki óskastund til kosninga. Staðreyndin er þó sú, að enginn meiri hluti er á Alþ. til þess að kljást við þau miklu vandamál sem við blasa. Það er því þjóðarnauðsyn að kosningar fári fram sem fyrst svo að Alþ. geti tekist á við vandann. Sjálfstfl. hefur því valið þá leið til þingrofs sem ein tryggir kosningar fyrst í desember og afstýrir kosningum í janúar eða febrúar, sem yrði sýnu verri kostur. Þá hefur Sjálfstfl. lagt til að kosningalögunum verði breytt þannig að fólk, m.a. í dreifbýli, geti kosið utankjörstaðar í nokkrar vikur og atkv. tekin gild þó viðkomandi kjósandi sé í heimabyggð sinni á kjördegi. Þannig geta menn tryggt sér fyrirframþátttöku í kosningunum þrátt fyrir hugsanlegt illviðri á kjördögum, sem nú er ætlunin að séu tveir í sama skyni. Þetta er auðveld og einföld breyting á tilhögun kosninga sem gerir þá viðbáru Framsóknar og Alþb. nánast broslega að ekki sé hægt að kjósa á Íslandi við nútímaaðstæður nema sex mánuði á ári.

Ég vil að lokum láta í ljós þá von að eftir kosningar, sem nú eru ákveðnar, verði mál þjóðarinnar tekin föstum tökum. Þjóðin hefur reynslu af samsteypustjórnum, sérstaklega vinstri stjórnum. Hvernig væri að fela nú einum flokki, Sjálfstfl., ábyrgðina næsta kjörtímabil? Þetta ætti fólk, sem kosið hefur flokka andstæðinga Sjálfstfl. á undanförnum árum, að hugleiða þegar að kjörborðinu verður gengið.