16.10.1979
Sameinað þing: 3. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í B-deild Alþingistíðinda. (55)

Tilkynning frá ríkisstjórninni og umræða um hana

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Óvenjulegar aðstæður hafa nú skapast í íslenskum stjórnmálum. Vinstri stjórn hefur mistekist að kljást við efnahagsvandann, hún hefur hætt störfum og kosningar eru fram undan í byrjun desembermánaðar. Að þessu leyti eiga Íslendingar við svipaðan vanda að etja og flestar nágrannaþjóðir, þar sem kosningar og stjórnarmyndanir eru tíðar. Menn leita ráða gegn þeirri efnahagskreppu sem nú hrjáir mestan hluta hins vestræna heims, og í lýðræðisþjóðfélögum jafngildir það leit að mönnum sem kunna ráð.

Menn deila hart um hvað hafi orðið síðustu stjórn að aldurtila. Verkalýðshreyfingin hafði bundið við það miklar vonir að þeirri stjórn mætti takast að hrinda í framkvæmd mörgum og margvíslegum baráttumálum verkalýðshreyfingarinnar og vernda kjör hinna lægst launuðu. En því miður varð fljótlega ljóst að grundvöllur samstarfs var býsna götóttur, enda skoðanir mjög skiptar um hvaða leiðir skyldi fara til baráttu gegn verðbólgunni.

Alþfl. bauð hvorki gull né græna skóga í síðustu kosningabaráttu. Þvert á móti lagði hann áherslu á að almenningur yrði að búa sig undir erfiða tíma á meðan verðbólgan væri kveðin niður. En þegar flokkurinn lagði fram frv. sitt um efnahagsmál fyrir rúmu ári voru þeir allt of margir sem heldur vildu láta reka á reiðanum, töldu verðbólguna betri en strangar efnahagsráðstafanir sem snert hefðu alla landsmenn um einhvern tíma. Það var rétt eins og þessir menn væru í látlausri kosningabaráttu.

Láglaunafólkið í Verkamannasambandi Íslands lagði sitt af mörkum svo baráttan mætti leiða til sigurs. En hvað gerðist? Hálaunahópar klufu sig út úr. Þeir gerðu kröfur í anda þrýstihópa, fengu sínu framgengt og settu allt á annan endann í þjóðfélaginu. Ábyrgð þeirra er mikil.

Alþfl. lagði áherslu á kjarasáttmála. Samráð við verkalýðshreyfinguna hefur sjaldan verið óhöndulegra. Auk margvíslegra efnahagsráðstafana vildi Alþfl. að vísitölukerfið yrði endurskoðað og því breytt svo að það hætti að mæla ráðh. 118 þús. kr. hækkun á meðan verkamaður fékk 18 þús. kr. hækkun. Langflestum tillögum Alþfl. var varpað fyrir róðan, og menn geta spurt sjálfa sig hvers vegna.

Þegar flokknum var ljóst að verðbólgan æddi óheft áfram taldi hann sig ekki geta setið lengur í ríkisstj. Hann hafði hvað eftir annað gefið eftir til að halda ríkisstj. saman, og mælirinn fylltist. Alþfl.-menn gátu ekki séð á eftir fleiri tillögum sínum í ruslakörfuna, sem jafngilti svikum við kjósendur.

Í verkalýðshreyfingunni eru fleiri og fleiri að gera sér ljóst að gömlu aðferðirnar duga ekki lengur. Það verður að snúa við blaðinu, beita nýjum ráðum. Þeir, sem þannig hugsa, eiga oft erfitt uppdráttar í baráttunni gegn staðnaðri hugsun og skoðunum. Þeir verða oft fyrir höfðum ádeilum. En staðreynd er það engu að síður að innan verkalýðshreyfingarinnar hefur tekist góð samvinna með hinum frjálslyndari öflum sem telja krónutöluhækkun ekki lengur tryggingu fyrir kaupmætti launa. Ég er sannfærður um að ef t.d. fulltrúar Alþb. úr verkalýðshreyfingunni hefðu átt sæti í síðustu ríkisstj. hefði ekki farið eins og fór.

En mig langar nú að víkja að þætti Sjálfstfl. í því stjórnmálastríði sem háð hefur verið og magnast að mun á næstu vikum og mánuðum. Í stjórnarandstöðu hefur Sjálfstfl. verið vitamáttlaus. Hann hefur ekki lagt fram neinar raunhæfar tillögur um úrbætur í efnahagsmálum, aðeins tönnlast á frjálshyggjuhugtakinu sem fáir skilja nema þeir sem yfir fjármagninu ráða, þ.e.a.s. þeir ríku. Flokkurinn og einstakir fulltrúar hans hafa verið sjálfum sér ósamkvæmir, þingflokkurinn margklofinn og hatrömm innri átök einkennt allt starf hans. Þetta er flokkurinn sem gerir kröfur til þess að fá meiri hl. þm. í næstu kosningum án þess að hafa til þess unnið á nokkurn hátt, — eða hver yrði stefna meirihlutastjórnar Sjálfstfl.? Ef frjálshyggjuhugsjónin verður ofan á verður fjármagnið leitt til þeirra valda er verkalýðshreyfingin mun stórlega líða fyrir. Og hvert leiddi síðasta ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar þjóðina? Menn hafa kannske gleymt því, að verðbólgan var nærri 50% þegar hún lét af völdum. Þá var atvinnuleysi í landinu og þá einkum á Suðurnesjum, þar sem frystihúsin höfðu hætt starfrækslu. Þá kunni Sjálfstfl. engin ráð við verðbólgu. Þá horfðu þeir í gaupnir sér ef verkafólk krafðist fullrar atvinnu. Engar sjáanlegar breytingar hafa orðið sem benda til þess að hið ósamstæða lið hafi fundið ráð eða geti hugsanlega náð samstöðu um að beita þeim hafi þau á annað borð fundist. Ég vil í þessu sambandi spyrja hlustendur: Hver eru ráð Sjálfstfl.? Hver eru heit hans og loforð? Hvar eru baráttumál hans eftir 13 mánaða stjórnarandstöðu? Hvaða breytingar hafa orðið á Sjálfstfl. frá síðustu ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar sem tryggja skárri árangur í baráttunni við verðbólguna? Hvernig er komið forustu Sjálfstfl. sjálfs? Er Sjálfstfl. sá bjargvættur sem Íslendingar geta treyst? Ég vona að menn velti þessum spurningum fyrir sér, og ég veit að niðurstaðan verður sú, að flokkurinn hefur engin þau tilþrif sýnt að hann verði hæfari en áður til að fara með stjórn þessa lands.

Alþfl. hefur æ ofan í æ bent á að engin ráð eru til í baráttunni við verðbólguna og efnahagsóreiðuna önnur en þau að jafna kjör í landinu og að almenningur taki á sig þá erfiðleika sem búast má við ef ráðist er gegn meinvættinum. Menn geta barið hausnum við steininn endalaust og talið sér trú um að hægt sé að fleyta þjóðarskútunni á innistæðulausum ávísunum eða hægt sé að halda fullum framkvæmdahraða hins opinbera og einstaklinga með erlendum lántökum, að hægt sé að kaupa alla hluti á lægra verði en þeir raunverulega kosta. Það kemur að því að reikningnum verður lokað og skuldarar sóttir til saka. Ef farið hefði verið að ráðum Alþfl. fyrir rúmu ári væri staðan önnur. Það er enn þá tími til að fara að ráðum hans.

Við skulum umfram allt muna að spor Sjálfstfl. hræða. Spor hans eru atvinnuleysi og óreiða. Spor hans markast af ástmegi braskaranna, verðbólgunni. Erfiðleikarnir nú stafa af því, að vinstri flokkunum hefur ekki tekist að ná samkomulagi um að þurrka út spor Sjálfstfl. Því heldur vitleysan áfram. Því æðir verðbólgan áfram.

Nú göngum við jafnaðarmenn gunnreifir til kosninganna. Við höfum sverð sannfæringarinnar að vopni. Við höfum trúna á nauðsyn þess að berjast fyrir betra þjóðfélagi, fyrir velferðarþjóðfélagi jafnaðarstefnunnar.

Góðir hlustendur. Munið það — og munið það vel, að Alþfl. er eini valkosturinn gegn vitleysunni.