16.10.1979
Sameinað þing: 3. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í B-deild Alþingistíðinda. (56)
Tilkynning frá ríkisstjórninni og umræða um hana
Fjmrh. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson sagði áðan að það væri sérstakt áhugamál okkar Alþfl.-manna að skera niður framkvæmdir. Það er ekki rétt. Hins vegar erum við Alþfl.-menn andvígir stjórnarháttum eins og þegar t.d. eru auknar erlendar lántökur til Grundartanga umfram heimildir Alþingis um 50%, eins og hv. þm. gerði í sumar í ráðherratíð sinni. Það er athyglisvert fyrir þá stóriðjumenn í Alþb. að hann gerir ráð fyrir að auka erlendar lántökur vegna þessarar sömu verksmiðju um 140% á næsta ári.
Þá sagði hv. þm. að með því að slíta stjórnarsamstarfinu værum við að stefna í hættu þeim félagsmálum sem hæstv. heilbr.- og félmrh.- og trmrh. hefur undirbúið. Þetta eru sömu málin og Alþb.-menn komu í veg fyrir að afgreidd yrðu á síðasta þingi. Þessum málum verður ekki stefnt í hættu. Félmrh. mun leggja síðustu hönd á þau og leggja þau fyrir næsta þing, sem kemur saman að loknum kosningum, og þá reynir á hvort vilji er á Alþ. að afgreiða málin í vetur.
Stjórnmálaumræður á Íslandi falla eftir hefðbundnum farvegi. Menn tileinka sér enn það meiningarlitla karp sem að mestu fer fyrir ofan garð og neðan hjá öllum almenningi. Það skiptir ekki máli hversu lengi slíkar umr. standa. Þær hafa raunar staðið nær óslitið í fjölmiðlum og á þingfundum um áraraðir og þjóðin verður aldrei neinu nær. Ég ætla því að leiða slíkan málflutning hjá mér, karpið, andsvörin og hinar persónulegu dylgjur og ásakanir um óheilindi og illar hvatir. Menn úr ólíkum stjórnmálaflokkum hafa ávallt þurft að vinna meira og minna saman og svo mun enn verða. Brigsl um svik, um að vilja svipta fólk atvinnunni, matbjörginni, eða jafnvel ásakanir um landráð, eins og t.d. hafa verið bornar á okkur Alþfl.-menn, breyta engu um að átök stjórnmála eru um markmið og leiðir, en ekki barátta myrkurs og ljóss. Enginn maður bætir spönn við hæð sína með því að svívirða aðra, jafnvel ekki þótt leiðir manna skilji um sinn vegna þess að skoðanir þeirra fara ekki saman. Í stað þess að taka þátt í slíkum leik, þegar stjórnmálamenn láta skaphitann verða drengskapnum yfirsterkari, vildi ég fá að beina máli mínu til landsmanna, frá þeim stjórnmálamönnum, sem hér deila hver við annan, og til kjósenda. Okkur alþm. ber að standa kjósendum reikningsskap gerða okkar. Fyrir þeim ber okkur að skýra athafnir okkar í eins ljósu og einföldu máli og við getum.
Hinn almenni kjósandi spyr margs þessa dagana: Hvers vegna tók Alþfl. þá ákvörðun að hætta stjórnarsamstarfi? Hvers vegna valdi hann þennan tíma til þess? Hvers vegna var ekki reynt betur? Á þeim fáu mínútum, sem ég hef hér til ráðstöfunar, ætla ég að reyna að svara þessum spurningum.
Áratugurinn 1970–1980 er hvorki áratugur Ólafs Jóhannessonar, Geirs Hallgrímssonar, Lúðvíks Jósepssonar né nokkurs annars manns, hvað sem hver segir. Áratugurinn 1970–1980 er áratugur óðaverðbólgunnar — tímabil þar sem dýrtíðin hefur grafið undan stoðum okkar litla samfélags, ekki aðeins í efnahagsmálum þjóðarbúsins í heild, heldur í afkomumálum hverrar einustu fjölskyldu í landinu. Vegna dýrtíðarinnar höfum við dregist aftur úr nálægum þjóðum í aðbúnaði og afkomu. Vegna dýrtíðarinnar hafa félagslegar umbætur að engu orðið í höndunum á okkur. Vegna dýrtíðarinnar hefur samkennd og samábyrgð okkar fámennu þjóðar breyst í kapphlaup þar sem hver treður skóinn niður af þeim næsta. Vegna dýrtíðarinnar hafa hvers konar óheilbrigðir samskiptahættir vaxið hröðum skrefum og siðgæðismat þjóðarinnar brenglast. Vegna dýrtíðarinnar hefur bilið stöðugt farið breikkandi milli annars vegar smælingjanna og hins vegar forréttindahópanna sem geta ávallt velt byrðunum af sér yfir á aðra. Dýrtíðin er okkar höfuðandstæðingur. Ef við getum ekki unnið bug á henni mun okkur hvergi verða neitt ágengt, hvað sem við reynum og hvar sem við reynum.
Í síðustu kosningabaráttu börðumst við Alþfl.-menn fyrir því að byggð yrði víglína gegn dýrtíðinni, reist girðing gegn frekari framsókn hennar. Það töldum við vera slíkt meginviðfangsefni að flestöll önnur hlytu að hverfa í skuggann. Eins og hygginn bóndi, sem hyggst verja land sitt ágangi, vissum við að slík girðing yrði ekki traust nema hún hvíldi á mörgum styrkum stoðum. Enginn bóndi hengir girðingu sína á einn staur. Hann veit að þótt sá eini staur kunni að vera sterkur hangir girðingin niðri og veitir enga vörn ef allir hinir staurarnir liggja flatir og enginn vill reisa þá við. Sú girðing, sem við Alþfl.-menn vildum reisa sem varnarlíru, þurfti því að byggjast á samræmdri aðhaldsstefnu í ríkisfjármálum, þ. á m. í skattamálum, í fjárfestingarmálum, á aðhaldi í erlendum lántökum, á aðhaldi í peningamálum, á raunvöxtum, á raunverulegri stefnumörkun í verðlagsmálum og launamálum. Með samræmdri stefnu í öllum þessum málaflokkum gátum við reist viðnám við verðbólgu. Með einn þáttinn stjórnlausan, annan óafgreiddan, þann þriðja óvísan og svo koll af kolli mundi haldið áfram á sömu óheillabraut.
Í samræmi við stefnu okkar lögðum við þrívegis fram á s.l. vetri tillögur um gerð slíkrar samræmdrar efnahagsstefnu. Það gerðum við í nóvembermánuði s.l., það gerðum við í desembermánuði s.l. og það gerðum við í janúar og febrúarmánuði s.l. En eins og mönnum er í fersku minni höfðum við ekki erindi sem erfiði. Ýmist fengust tillögur okkar ekki afgreiddar eða þeim var harðlega neitað og engar gagntillögur komu í staðinn. Þegar frv. þáv. hæstv. forsrh. Ólafs Jóhannessonar um stjórn efnahagsmála fékkst loks samþ. var það allt slævt og sundrað, og Þjóðviljinn birti greinaflokk við hlið leiðara um hvernig eitt atriðið af öðru í tillögum Alþfl.manna hefði ýmist verið skotið niður, slævt eða ónýtt. Og Þjóðviljinn hrósaði Alþb. sérstaklega fyrir að hafa gert þetta án þess að geta sett neitt í staðinn.
Nú hefur reynslan dæmt. Í þjóðhagsáætlun er spáð að verðbólgan, sem var í fyrra 38%, verði nú 55%. Og dýrtíðin hefur eyðilagt hvert stefnumið okkar á fætur öðru. Ríkissjóður hefur gerst botnlaust verðbólguhít. Til þess að fylla þá hít höfum við þurft að leggja á 19 nýja skatta. Skuldasöfnun erlendis hefur farið 40% fram yfir heimildir Alþ., og á næsta ári hefðu erlendar lántökur stefnt í milli 90 og 100 milljarða kr., sem hefði þýtt nettóaukningu á erlendum skuldum þjóðarinnar um 45–60 þús. millj. kr. Og góðu umbótamálin, sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa viljað fá fram, hafa orðið að engu í höndunum á okkur í þessari óðaverðbólgu.
Góðir hlustendur. Þeir ykkar, sem muna málflutning okkar Alþfl.-manna á s.l. vetri, muna að við sögðum þá að ef till. okkar yrðu ekki samþ., mundi svona fara. Við vöruðum við. Reynslan hefur nú staðfest að viðvaranir okkar voru réttar. Lengi vel vonuðum við að menn mundu læra af reynslunni, tileinka sér breytta starfshætti. Það gerðu þáv. hæstv. forsrh. og Framsfl. hægt og hikandi, enda eru þeir nú að flytja gömlu till. okkar síðan í fyrra, einu ári of seint. En þriðji stjórnarflokkurinn, Alþb., hafði því miður ekkert lært og engu gleymt, og í þriggja flokka ríkisstj. þarf þrjá til þess að framkvæma mál.
Góðir hlustendur. Við Alþfl.-menn trúðum á þá stefnu sem við boðuðum í síðustu kosningum. Mjög margir ykkar trúðu á þá stefnu með okkur og veittu okkur styrk til þess að koma henni fram, og við höfum á Alþ. sýnt fram á það, ekki einu sinni, heldur fjórum sinnum, að þessa stefnu er hægt að framkvæma. Aftur og aftur höfum við barist fyrir henni. Aftur og aftur hefur sú barátta orðið árangurslaus, vegna þess að á Alþingi Íslendinga sitja 60 þm., en þm. Alþfl. eru 14. Við skorumst ekki undan ábyrgðinni. Við berum eins og aðrir stjórnarflokkar ábyrgð á því sem gerst hefur á s.l. ári. Við vorum reiðubúnir til þess að axla þá ábyrgð svo lengi sem við töldum okkur sjá einhverja von um að okkur mundi verða ágengt til réttrar og betri áttar, en hver tilraun á fætur annarri hefur farið út um þúfur. Alþfl. trúði því ekki lengur að það væri von til þess að hægt væri að breyta stefnu og starfsháttum fyrrv. ríkisstj. Og hvað eiga menn þá að gera?
Hingað til hafa flestir stjórnmálamenn tekið þá ákvörðun við þær aðstæður að sitja á meðan sætt er í valdastólunum, uns annaðhvort verkalýðshreyfingin eða kjósendur hafa sparkað burt þeim valdastólum. Þetta vildum við ekki, vegna þess að um leið og við vorum búnir að missa trúna, búnir að missa vonina um að við gætum náð till. okkar fram, hefðum við ekki bara verið að svíkja kjósendur okkar með því að halda áfram, heldur hefðum við verið að svíkja okkur sjálfa. Það er drengilegt, það er heiðarlegt og það er karlmannlegt að segja þjóðinni sannleikann við slíkar aðstæður og áfrýja ágreiningnum til hennar.
Góðir Íslendingar. Það er illt verk að blekkja aðra, en þó verst að blekkja sjálfan sig. Málflutningur eins og sá, sem Alþb. iðkar, er til þess gerður að fá fólk til þess að ástunda sjálfsblekkingar gegn betri vitund. Dýrtíðin og afleiðingar hennar hafa breytt hugsunarhætti of margra Íslendinga og margir lifa í samræmi við lífsreglur Svartaskóla: Bjargi sér hver sem bjargað getur, því hið illa höndlar þann sem síðastur er. — Við þessar aðstæður hefur Alþb. því miður farið út á þá braut að ýta undir þau frumskógalögmál sem hætt er við að taki völdin þegar þjóðfélagið tekur að loga í slíkum innbyrðisátökum hagsmunahópa. Krefjist einhver einhvers kemur Alþb. á vettvang og býður betur. Biðji einhver um eitthvað kemur Alþb. og segir: Ekki biðja, heldur heimta. — Heimti einhver eitthvað kemur Alþb. og segir: Ekki heimta, heldur taka. — Taki einhver eitthvað kemur Alþb. og segir: Ekki taka, heldur hrifsa. — Slíkar starfsaðferðir skila e.t.v. tímabundnum árangri í kosningum, en þegar fram í sækir verður uppskeran tap: tap fyrir fólkið, tap fyrir sambúð og samskipti fámennrar þjóðar í harðbýlu landi. Þetta vitum við öll. Rödd skynseminnar segir okkur þetta, og ef við föllum fyrir þeirri freistni að hrópa svo hátt að við yfirgnæfum rödd okkar eigin skynsemi, þá erum við að ástunda vísvitandi sjálfsblekkingu.
Ákvörðun þingflokks Alþb. um að láta þessu stjórnarsamstarfi lokið er örlagarík. Ég veit ekki hvaða áhrif hún hefur fyrir akkur þm. Alþfl., hvort við verðum hér fleiri eða færri að kosningum loknum og hverjir okkar, sem nú eru hér, eiga hingað afturkvæmt, enda skiptir það ekki meginmáli. Meginatriðið er, að með því að áfrýja ósamkomulagi og samstöðuleysi stjórnmálamannanna til þjóðarinnar og biðja hana að úrskurða ættum við að geta hrist ærlega upp í þeim pólitísku atvinnukörpurum sem setið hafa við völd í þessu landi í bráðum heilan áratug án þess að gera sér ljóst að áframhaldandi dýrtíð og stjórnleysi mun leiða okkar litla land svo langt út í foraðið að ekki verður aftur snúið.