16.10.1979
Sameinað þing: 3. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í B-deild Alþingistíðinda. (57)
Tilkynning frá ríkisstjórninni og umræða um hana
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Það sem af er þessari umr. sýnist hún dæmigerð fyrir það ábyrgðarleysi sem fráfarandi stjórnarflokkar hafa sýnt undanfarið ár í stjórn landsmála, ef stjórn skyldi kalla. Þá ber umr. og vott um þá sérstæðu óvild sem ríkir á milli þessara þriggja flokka, einkum þó á milli Alþfl. og Alþb. Framsfl. hefur allan tímann vafrað á milli hinna tveggja, ýmist hallað sér að stefnu Alþb. í þessu málinu eða Alþfl. í hinu og kallað sáttastarf, en hefur í raun verið að leita að stefnu sem ekki hefur fundist. Með þeim hætti hefur Framsfl. haft forustu á einhverju mesta óstjórnartímabili sem yfir þessa þjóð hefur gengið. Þessu tímabili er nú vonandi að ljúka.
Ástæða er til að ætla að menn sjái nú í gegnum þær blekkingar sem beitt var í kosningunum í fyrra. Það er illt verk að blekkja aðra, sagði hæstv. fjmrh. hér áðan, og það eru orð að sönnu. Kjósendum var í fyrra lofað því af hálfu fráfarandi stjórnarflokka sem þeir ekki gátu staðið við. Þannig hafa þessir flokkar brugðist kjósendum sínum. Fyrir það verður kvittað í næstu kosningum.
Hæstv. dómsmrh. sagði í ræðu sinni í dag: Ákvæði voru í stjórnarsáttmála sem aldrei var ætlunin að standa við. — Þarna hafa menn það umbúðalaust. Og svo reynir hæstv. dómsmrh. að hvítþvo sig og flokk sinn og skella allri skuldinni á hv. þm. Lúðvík Jósepsson og Ólaf Jóhannesson! Auðvitað eiga þessir þm. sinn þátt í vitleysunni, en sjálfur arkitekt kosningasigurs Alþfl. verður að viðurkenna þátt sinn í því hrófatildri sem þessir flokkar komu á eftir síðustu kosningar og kölluðu ríkisstj., nema þá fleiri en hæstv. núv. forsrh. hafi reynst bláeygir á þeim tíma.
Hér ganga nú klögumálin á víxl. Hvers vegna? Jú, auðvitað reyna stjórnarflokkarnir fráfarandi að kenna hver öðrum um ófarirnar í landsstjórnamálum, því að ekki komast þeir hjá því að viðurkenna að allt hefur farið á aðra lund en lofað var. Reynir nú hver sem betur getur að koma ósómanum yfir á hinn.
Ég ætla ekki við þetta tækifæri að rekja sérstaklega feril síðustu vinstri stjórnar, til þess er enginn tími nú, en það mun verða gert á næstu vikum á öðrum vettvangi. En allur ferill stjórnarinnar er með slíkum endemum að til þeirra atburða, sem nú hafa orðið, hlaut að draga fyrr en síðar. En spurning var aðeins hver hlypi fyrstur frá borði. Það hlaup vann Alþfl. Hann var líklegastur til þess frá upphafi. Enginn hefur meiri æfingu í ýmiss konar upphlaupum en hann.
Hér er reynt að gera mikið mál úr því að Sjálfstfl. skuli hafa samþykkt að verja minnihlutastjórn Alþfl. vantrausti. Talað er um að með þessu hafi flokkurinn tekið á sig ábyrgð á öllum stjórnarathöfnum Alþfl.-ráðh. þær fáu vikur sem þeir sitja og jafnvel ábyrgð á ráðh. sjálfum. Slíkt er hinn mesti misskilningur. En flokkurinn tekur á sig ábyrgð á því, að þessi stjórn varð til, til þess að tryggt verði að kosningar fari fram eigi síðar en 2. og 3. des. n.k. Um það var alger eining í Sjálfstfl., að þjóðarnauðsyn væri að kosningar færu fram sem allra fyrst, allt annað væri ábyrgðarleysi. Um hitt var aftur á móti deilt, hvort það markmið næðist ekki með neinu öðru móti en því að leiða krata inn í hvert rn. Slíkt þarf engan að undra að um sé deilt og er ekki í sjálfu sér tilefni til neinna málalenginga hér. En best sýnist mér fara á því að leifarnar af þessari ólánsstjórn sitji til kosninga, eins og hv. þm. Geir Hallgrímsson orðaði það fyrr í dag. Það undirstrikar betur en annað að Sjálfstfl. hefur hér hvergi komið nærri. Jafnframt hefur verið tryggt að þann tíma, sem stjórnin situr, verður ekki framhald á óhæfuverkum.
Furðulegur er sá málflutningur Framsóknar og Alþb. að ábyrgðarleysi sé að efna til kosninga í desember. Hrakspár þeirra um válynd veður á þessum árstíma kunna að rætast. En allt er gert sem unnt er til að auðvelda mönnum utankjörfundarkosningu, auk þess sem kjördagar verða tveir og geta orðið fleiri. Heimilað verður að kjósa utan kjörfundar viku fyrir kjördag þótt menn verði heima í byggð sinni þann dag. Þessi viðbára er því út í hött.
Allt tal þessara flokka um að ekki hafi verið fullreynd myndun meirihlutastjórnar er einnig út í hött. Slíkt kom aldrei til greina af hálfu Sjálfstfl. Þar með var það útilokað, nema stjórnarflokkarnir þrír tækju saman að nýju. Þeir verða þá að svara því sjálfir hvort einhver slíkur möguleiki hafi verið fyrir hendi. Allt tal hv. þm. Steingríms Hermannssonar um að hér sé um samsteypustjórn að ræða er orðhengilsháttur og ekkert annað og þm. ekki sæmandi.
Spurningum hv, þm. Steingríms Hermannssonar um það, hvort Sjálfstfl. styðji þá dæmalausu löggjöf sem fyrrv. ríkisstj. stóð að, er auðsvarað. Auðvitað gerum við það ekki. En varla er vafi á þingmeirihl., ekki fer Framsókn að hlaupa frá þeim málum sem hún hefur haft forustu um, svo sem skattránslöggjöfinni allri, svo stolt sem hún er af framgöngu sinni í þeim efnum.
Mesta ábyrgðarleysið, sem sýnt hefur verið í þessari umr. allri, er einmitt að kosningum skuli fresta fram á næsta ár. Þann málflutning hafa þeir haft uppi framsóknarmenn og Alþb.-menn. Með því hafa þeir með ótvíræðum hætti sýnt að annars vegar þora þeir ekki í kosningar og hins vegar varðar þá ekkert um hvernig fer um efnahagsmál þjóðarinnar og annan vanda sem við búum nú víð. Það sýna þeir með því að ætla þjóðinni að búa áfram við þing, sem engu kemur fram, og stjórn, sem hefur sýnt sig gersamlega óhæfa til að stjórna. Sjálfstæðismenn vilja kosningar strax. Það vilja þeir vegna þess að kjósendur eiga rétt og kröfu til að segja álit sitt á athöfnum og athafnaleysi fráfarandi stjórnar.
Hverju breyta kosningar nú? spurði hv. þm. Ragnar Arnalds í útvarpsviðtali fyrir nokkrum dögum. Hann var þá enn ráðh. og vildi vera það áfram. Ég skal segja honum það. Þær munu breyta svo hlutföllum hér á hv. Alþ. að stjórn sem sú er var við völd s.l. ár verður ekki mynduð í bráð að nýju, hverjar svo sem óskir og þrár hv. þm. Steingríms Hermannssonar kunna að vera. En þær breyta sennilega ekki því hugarfari sem býr að baki spurningar hv. þm. Ragnars Arnalds, þ.e. að kosningar séu óþarfar, eins og er hjá fyrirmyndinni fyrir austan tjald. Og það er enn önnur ástæða fyrir því að Sjálfstfl. vill kosningar nú. Hann telur að nú hafi fólk fengið nóg af ríkisumsvifastefnunni sem hefur verið í hávegum höfð í öllum vinstri stjórnum. Hann veit að fólk mun nú kjósa þann flokkinn sem einn virðir einstaklingsfrelsið og hafnar ríkisafskiptum með tilheyrandi skattaáþján. Sjálfstfl. mun með ótvíræðum hætti gera grein fyrir þeirri stefnu sem hann hefur mótað í öllum hinum veigamiklu málaflokkum og leiða mun til endurreisnar í anda frjálshyggju.
Fall þessarar ríkisstj. var tímabært. Eftir ársreynslu sannfærðist Alþfl. um að þessi stjórn mundi ekki ráða við dýrtíðina, sagði hæstv. forsrh. í boðskap sínum í dag. Skyldu hinir flokkarnir, Alþb. og Framsókn, enn þá trúa að vinstri stjórn geti yfirleitt leyst það verkefni? Alþfl.menn deila skömminni með hinum að hafa tekið þátt í þeim gráa leik sem leikinn hefur verið undanfarin ár. En þeir mega eiga það, að þeir höfðu kjark til að koma stjórninni fyrir kattarnef. Í komandi kosningum mun það rækilega koma í ljós að kjósendur láta ekki blekkja sig aftur. Þeir munu fylkja sér um Sjálfstfl.