16.10.1979
Sameinað þing: 3. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í B-deild Alþingistíðinda. (63)
Tilkynning frá ríkisstjórninni og umræða um hana
Dómsmrh. (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Aðeins örfá orð.
Hv. þm. Jón G. Sólnes hefur fjallað um málavöxtu í máli sem nefnt var hér í dag. Ég tel að það sé beinlínis skylda framkvæmdavaldsins að sjá til þess að fyrir liggi allar upplýsingar um mál af þessu tagi í ljósi þess sem hv. þm. hefur lýst og að slík úttekt verði kynnt Alþingi eða send réttum aðilum.