21.02.1980
Neðri deild: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 906 í B-deild Alþingistíðinda. (1005)

Umræður utan dagskrár

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að vera langorður. Hv. 3. þm. Vestf. er búinn að tala sig dauðan í þessu máli og á því ekki tök á að svara. (Gripið fram í.) Hins vegar vil ég þakka honum það, að hann rengdi ekki þær upplýsingar sem ég kom hér með varðandi það, að í reynd hefur útsvar verið að lækka. (SighB: Þetta vita allir, Ólafur. Þú þarft ekkert að segja okkur um þetta. Við erum búnir að vita þetta miklu lengur en þú.) Mér þætti vænt um ef fréttaritarar kæmu því á framfæri, að Sighvatur lýsti því yfir hér, að útsvarið hefur verið að lækka og það er ekki verið að leggja til hækkun á því. Hitt geri ég ekki að deilumáli, hvar menn búa. En í Kríuhólahverfinu hef ég aldrei búið.