21.02.1980
Neðri deild: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (1008)

109. mál, tollskrá

Guðmundur G. Þórarinsson:

Herra forseti. Hér í deildinni var í gær til umr. heimild til lækkunar á gjöldum af bifreiðum til hreyfihamlaðra. Ég hygg að það hafi orðið fleirum en mér undrunarefni, þegar þetta sjálfsagða réttlætismál var til umr., að upp spratt hér hv. 7. landsk. þm., Halldór Blöndal — sem reyndar er nú ekki viðstaddur, en gaman hefði verið að hafa hér — og lýsti yfir feiknalegum áhyggjum sínum vegna fjárhags ríkissjóðs sérstaklega í sambandi við þetta mál. Umræðan var og er um lagfæringu á heimild í lögum. Umræðan er um lagfæringu vegna verðbólgu, lagfæringu fyrir fólk sem er hreyfihamlað og af ýmsum ástæðum má sín lítils í þjóðfélaginu, verður jafnvel, þrátt fyrir þær aðgerðir sem hér er verið að ræða um, að búa við önnur og lakari kjör og aðstæður en aðrir. Að umræða um slíka heimild skuli verða tilefni til slíkra ræðuhalda sem hv. þm. viðhafði hér í d. í gær um skattheimtu og hag ríkissjóðs er fullkomið undrunarefni. Það má vel vera, að viðkomandi þm. hafi einhverja löngun til þess að ræða fjárhag ríkissjóðs og jafnvel skattheimtu. Sjálfsagt er að gera það þegar fjárlög koma fram og menn hafa eitthvað meira til að standa á en nú í því sambandi. En að gera það á þennan hátt, í sambandi við umræður um sjálfsagt leiðréttingarmál á kjörum hreyfihamlaðra, það er Alþ. til vansæmdar.

Hér er m.a. verið að fjalla um fólk sem kemst jafnvel ekki milli húsa nema í sérstaklega úfbúnum bílum, — fólk sem ekki er fært um að komast milli staða eða njóta lífsins nema hafa eitthvert farartæki undir höndum. Þegar Alþ. fjallar um svo sjálfsagt leiðréttingarmál sem þetta, þá er komið við hjartað í þessum þm. — og ekki er það hjarta stórt. Þarna er um að ræða fólk sem að mörgu leyti býr við gjörsamlega lokaðan atvinnumarkað, fólk sem af ýmsum félagslegum og atvinnulegum ástæðum á erfitt uppdráttar. Það er undrunarefni að þm. Sjálfstfl., eins og hér gerðist í gær, skuli í tilefni af slíkum leiðréttingum gera hér sérstaklega að umræðuefni að skattakerfið megi ekki vera letjandi, von sé á halla á ríkissjóði o.s.frv. Það er erfitt að skilja í rauninni hvað menn eiga við, hvað menn eru að fara.

Í viðbót við það heilsuleysisböl, sem þetta fólk býr að mörgu leyti við, er það svo, að það af því, sem ekki getur unnið, verður að búa við tekjur sem eru lífeyrir og tekjutrygging, u.þ.b. 150 þús. kr. á mánuði, en getur komist upp í 170 þús. kr. á mánuði ef viðkomandi býr einn. Það er þetta fólk sem fær þessa kveðju frá viðkomandi þm., sem því miður er ekki viðstaddur hér í d. við framhald þessara umræðna, — kveðju þess efnis, að veruleg hætta sé á halla á ríkissjóði ef ekki komi til aukin skattheimta, — hér sé um að ræða gífurlega alvarlegt mál, nú verði að gera dæmið upp, nú þurfi menn að fara að reikna. En hvernig skyldi nú þetta dæmi snúa ef menn skoða það eins og það liggur fyrir? Einmitt hér á hæstv. Alþ. hefur áður verið varpað fram tölum varðandi þetta mál. Ég hygg að það muni vera heimild í lögum til niðurfellingar eða lækkunar á gjöldum á u.þ.b. 400 bifreiðum, en að auki um 25 til þeirra sem við sérstaklega mikil örkuml búa. Af þeim 400 bílum sem um er að ræða er heimild til að lækka gjöld um 1 millj., en um 2 millj. af þessum 25. Menn sjá því í hendi sér að hér er um að ræða heimild til lækkunar á gjöldum sem nemur einhvers staðar í kringum 450 millj. kr. Ef menn síðan hugleiða það, að líklegt er að hér á götum séu u.þ.b. 2000 öryrkjabílar, og líta síðan á þá gífurlegu skattheimtu sem ríkissjóður hefur uppi vegna bensíns og annars eldsneytis, þá er ekki fjarri lagi að álíta að hver bíll greiði u.þ.b. 200 þús. kr. einmitt til ríkissjóðs af sinni bensínnotkun. Það mundi þýða það, að þessir öryrkjabílar greiddu 400 – 450 millj. á ári í ríkissjóð í sköttum af bensíni, eða nálægt því þá sömu upphæð sem hæstv. Alþ. hafði veitt heimild til niðurfellingar á af þessum bílum á síðastliðnu ári. Hér er þess vegna ekki um neina niðurfellingu í sjálfu sér að ræða. Hér er eingöngu um það að ræða að gera ekki vandræði þessa fólks að tekjustofnum fyrir ríkissjóð. Þetta er nú allt dæmið sem gaf tilefni til þvílíkra umræðna sem nokkrir þm. Sjálfstfl. höfðu hér uppi á þinginu í gær.

Ég fullyrði það að áhyggjur hv. 7. landsk. þm., Halldórs Blöndals, af þessu máli eru óþarfar. Ég held að ástæða væri til þess, að þingið kæmi sér saman um að gera myndarlegt og sérstakt átak í málefnum fatlaðra í tilefni af alþjóðaári fatlaðra 1981. Það, sem hér er um að ræða, er eingöngu einföld og lítil leiðrétting. Hér er aðeins verið að færa til nokkrar steinvölur, þar sem ástæða væri til að velta björgum.

Hv. þm. gerði mikið að umræðuefni virðingu Alþingis, eins og menn gera gjarnan hér daglega. Ég held að óhætt sé að segja það, að þessi þm. gæti að eigin frumkvæði aukið virðingu Alþingis verulega með því að halda færri ræður sjálfur af því tagi sem hann gerði í gær.

Ég vil síðan segja það, að það mál, sem hér er um að ræða, er ágætt mál. Það er sjálfsagt mál, og ég tel ástæðu til þess að færa hv. 1. þm. Vesturl., Alexander Stefánssyni, sérstakar þakkir fyrir þá vöku sem hann hefur haldið varðandi málefni fatlaðra og hvað eftir annað fært hér inn í hæstv. Alþingi. Ég held að Alþ. eigi að samþykkja þetta frv. hið allrafyrsta, og ég held aðumræða af því tagi, sem hér fór fram í tengslum við þetta mál í gær, sé Alþingi til vanvirðu. Ég leyfi mér að fullyrða það, að það væri Sjálfstfl. til sóma svo lengi sem hann lifir, að fulltrúar hans héldu ekki á Alþingi fleiri slíkar ræður.