21.02.1980
Neðri deild: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 910 í B-deild Alþingistíðinda. (1010)
109. mál, tollskrá
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég styð hv. flm. frv. við afgreiðslu þess, og það mun þingflokkur Alþb. allur gera því að hér er um að ræða mikilsverða lagfæringu á málefnum öryrkja. Ég tel jafnframt að brtt. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur og Árna Gunnarssonar sé til bóta, og við styðjum hana einnig.
Hv. þm. Árni Gunnarsson minntist á það hér í gær, að meira aðhald mætti taka upp við úthlutun gjaldalækkunar á bifreiðum fyrir öryrkja. Ég held að rétt sé og þarft að minnast á það atriði hér. Mikilsvert er að allt sé gert sem unnt er til að létta öryrkjum bifreiðakaup, ef þeir mega raunverulega ekki án þeirra vera, en halda heldur í við hina sem ekki eru eins háðir bifreið.
Eitt atriði vil ég nefna sem fyrst og fremst á erindi til hæstv. fjmrh., sem því miður virðist ekki vera hér í augnablikinu. Eins og kunnugt er þurfa þeir, sem fá lækkun á bifreiðagjöldum, að eiga bifreiðar sínar í fimm ár. Öllum öryrkjum ber saman um að sá tími sé of langur. Bifreiðum þessum er mjög mikið ekið, eigendur geta lítt sem ekkert annast viðgerðir á þeim og þær verða þess vegna dýrar í rekstri. Þegar loks er leyfilegt að selja þær eru þær oft illa farnar og verðlitlar. Ég vil því leyfa mér að skora á hæstv. fjmrh. að stytta þennan tíma um tvö ár eða í þrjú ár fyrir þá sem mestir eru öryrkjar og í fjögur ár fyrir aðra öryrkja.
Nái þetta frv. fram að ganga með þeirri brtt., sem hér liggur fyrir munu margir öryrkjar kunna vel að meta hug Alþ. í þeirra garð. Ef hæstv. fjmrh. sæi sér fært að stytta jafnframt eignartímann hygg ég að þeir telji bifreiðamálum sínum mun betur borgið en áður.
Ég skora því á hv. Alþ. að hafa nú hröð handtök á afgreiðslu frv. í stað þess að tefja það með gagnslausu málþófi, eins og átti sér stað í gær. Þá fór raunar fyrir mér eins og fleiri hv. þm., sem sitja hér í fyrsta sinn, að okkur þótti lítið til um virðingu hins háa Alþingis. Ég hygg að hv. dm. megi telja sig heppna að fáir öryrkjar voru hér á pöllunum í gær til að fylgjast með þeim áhuga sem málum þeirra var sýndur.