21.02.1980
Neðri deild: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (1012)
109. mál, tollskrá
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það vill svo til að þau lög, sem verið er að breyta með þessu frv., heita lög um tollskrá o.fl. Ég kemst því ekki hjá því að ræða það mál sem á dagskránni er og heitir þetta. En ég ætla samt að hætta mér aðeins út í umr., sem hér hafa orðið undir þessum dagskrárlið, og það eingöngu að gefnu tilefni.
Mér þótti ræða hv. þm. Guðmundar G. Þórarinssonar vera eins konar örverpi úr umr. sem fóru fram í gær, og ég þykist þess fullviss, að hann hafi samið þá ræðu í gærdag þegar hér á Alþ. fóru fram umr. undir þessum dagskrárlið, en þó um óskyld málefni. Ástæðan var auðvitað sú, að það hafði frést að senda ætti Alþingi heim og þar með fresta störfum Alþingis jafnvel um hálfs mánaðar skeið. Við skulum hafa í huga að það er sent heim af sömu mönnum og efndu til stjórnarmeirihlutasamstarfs til að Alþ. yrði starfhæft. Mér þykir ekkert skrýtið þegar umr. verða á Alþ., jafnvel undir öðrum dagskrárliðum eða utan dagskrár, þegar svo háttar til. Ég vil því að menn íhugi málið með slíkum hætti.
Fyrr á fundinum var rætt utan dagskrár um mál sem varðaði líka frestun þingsins og ég kaus ekki að ræða efnislega og mun að sjálfsögðu ekki gera undir þessum dagskrárlið. En það, sem rak mig fyrst og fremst upp í ræðustólinn, voru þau ummæli sem hér voru höfð um sjálfstæðismenn. Það var látið að því liggja, þó ekki beinlínis sagt, að við værum á móti þessu máli. Það er afskaplega mikill misskilningur. Ég vona að það hafi ekki verið sagt í fullri alvöru, heldur eingöngu vegna þess að það hafi verið skrifað og fest á blað í hita þeirra umr. sem fóru fram um allt önnur atriði í gær.
Ég á sæti í þeirri hv. n. sem fær þetta mál til meðferðar. Ég lofa því fyrir mitt leyti, og ég vona að ég geti gert það enn fremur fyrir aðra sjálfstæðismenn sem sæti eiga í þeirri n. að mál þetta mun verða skoðað af fullum velvilja. Við munum að sjálfsögðu kappkosta að finna þá lausn á málinu sem hentugust er, hvort sem það verður samkv. till. hv. þm. Alexanders Stefánssonar, samkv. brtt. tveggja hv. þdm. eða eftir öðrum leiðum sem hentugri þykja þegar málið hefur verið skoðað þar.
Það voru þessi atriði sem ég taldi nauðsynlegt að kæmu hér fram. Ég vona að ekki gæti annars skilnings í huga þeirra manna sem hafa talað á þessum fundi og reyndar snúið máli sínu að sjálfstæðismönnum sem í dag eru ekki staddir á þingdeildarfundi og hafa fjarvistarleyfi.