10.03.1980
Efri deild: 44. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (1030)
111. mál, lántaka Framleiðsluráðs landbúnaðarins
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Þegar þetta frv. var til umr. í þessari hv. deild fyrir þetta tveggja vikna þinghlé urðu um það töluvert miklar umr. Af hálfu Alþfl. var skýrt tekið fram í þeim umr., að flokkurinn vildi beita sér fyrir því að þetta mál yrði afgreitt með eðlilegum hætti og eðlilegum umr. fyrir þinghlé og þá að sjálfsögðu með þeim brtt. sem gerð var grein fyrir af hálfu Alþfl. þegar málið kom úr nefnd.
Alþfl. ætlaði sér ekki með neinum hætti að tefja framgang þessa máls hér í þinginu, þótt segja megi að þetta mál þurfi töluverðrar athugunar við. Það var hins vegar annað sem varð til þess að tefja þetta mál. Það kom sem sé í ljós í þessu máli, að þótt ríkisstj. hefði ekki starfað lengi var ekkert samkomulag um það, hvernig ætti að afgreiða málið. Hér fór á síðasta degi fyrir þinghlé allt í háaloft, ef svo má segja, köpuryrðin og klögumálin gengu hér á víxl milli stjórnarliða og þar var engin samstaða um þetta mál fremur en annað. Það var, eins og þm. sjálfsagt muna, till. frá hæstv. viðskrh. sem olli þessu fjaðrafoki hér. Sú till. var, eins og hæstv. viðskrh. sagði úr þessum ræðustóli, dregin til baka að sinni. Nú kemur væntanlega í ljós hvort þessi hálfi mánuður hefur dugað ríkisstj. til að jafna þann ágreining sem þarna var risinn um það, hvort Byggðasjóði skyldi skylt að annast þetta lán að hluta eða hvort slíkt skyldi aðeins heimilt. Það verður fróðlegt að sjá hvert verður nú framhald þessa máls, hvort till. viðskrh., sem öllu þessu fjaðrafoki olli, verður hér sýnd að nýju eða hvort hæstv. viðskrh. hefur nú verið beygður undir ok stjórnarsamstarfsins.
Hæstv. viðskrh. Tómas Árnason, sem nú er ekki viðstaddur, því miður, sagði í umr. um þetta mál um daginn, að núverandi kerfi útflutningsbóta væri undan rifjum Alþfl. runnið. Þetta er ekki rétt, þó rétt sé að þetta kerfi hafi komist á þegar Alþfl. átti stjórnaraðild. En hér er ekki verið í rauninni að ræða um þetta kerfi sem slíkt, heldur er verið að ræða um það að ganga lengra en það kerfi, sem verið hefur, gerir ráð fyrir. Það er verið að ræða um það að ganga lengra en núgildandi lagareglur gera ráð fyrir. Og það er ekki allt og sumt, heldur er hér aðeins verið að stíga fyrsta skrefið. Sjálfsagt munu fleiri fylgja á eftir.
Hér er sem sé verið að ganga lengra en lög í rauninni heimila varðandi útflutningsbætur. Það er verið að leggja auknar greiðslubyrðar á almenning og það mætti spyrja sem svo: Hvernig ætla hæstv. landbrh. og fjmrh. að leysa þann vanda sem við blasir vegna útflutningsins á yfirstandandi verðlagsári? Hvernig ætlar hin nýja ríkisstj. að leysa þann 7 milljarða vanda sem þar blasir við? Fróðlegt væri að fá svör við því. Það má raunar segja að þessu hafi með nokkrum hætti verið þegar svarað í þeirri ræðu sem nefnd hefur verið dýrasta ræða á Íslandi, þegar hæstv. landbrh. ávarpaði Búnaðarþing á dögunum. Það á að greiða þá reikninga sem framvísað verður.
Nú hafa framsóknarmenn úr þremur stjórnmálaflokkum sameinast um að skattleggja almenning í landinu og það algjörlega án tillits til afkomu þeirrar atvinnugreinar sem hér er um að ræða.
Mér segir svo hugur um, að vandleg athugun á högum bænda mundi leiða það í ljós, að sums staðar, á stöku stað, væri ástæða til að rétta hjálparhönd, en annars staðar hins vegar ekki, og slík athugun mundi leiða í ljós að hagur bænda er langt frá því að vera jafnslæmur og þeir barlómsmenn vilja vera láta.
Það er hins vegar til þeir bændur sem finnst lítið til koma þegar í síauknum mæli er reynt að gera bændastéttina að eins konar ölmusumönnum á ríkisframfæri. Það á ekki við lengur sem eitt sinn var sagt, að það sé enginn bóndi sem ekki kunni að berja sér. Hins vegar gildir það kannske nú, að enginn kemst í forustu í samtökum bænda eða búnaðarsamtökum nema hann sé atvinnumaður í barlómi.
Í þessari deild sitja bændur og það fleiri en einn og fleiri en tveir. Það væri ekki ófróðlegt að heyra sjónarmið þeirra um það, hvort rétt sé sem forusta bændasamtaka og búnaðarfélaga halda fram, að þessi atvinnugrein hangi á horriminni og þar þurfi þá stórfelldu ríkisaðstoð sem nú er talað um. Það væri býsna fróðlegt ef þeir óðalsbændur, sem hér sitja t.d. í skrifarasætum, létu nú til sín heyra um það, hvernig háttar til í rauninni, hvort þetta er raunverulegur vandi eða hvort þetta er vandi, blásinn upp af forustumönnum landbúnaðarins, sem hafa velt sér upp úr fjölmiðlaljósinu og grátið framan í alþjóð.
Þetta mál snýst ekki eingöngu um tímabundna fyrirgreiðslu til landbúnaðarins heldur snýst það fyrst og fremst um það, að hér verður að eiga sér stað stefnubreyting. Núverandi stefna hefur leitt bændur og þjóðina alla í ógöngur, mestu ógöngur sem íslenskur landbúnaður hefur nokkurn tíma ratað í. Það er engin tilraun gerð til þess að breyta þessu, heldur á aðeins að halda áfram að borga og borga gagnrýnislaust og láta neytendur og skattborgara gjalda þess. Það er það sem þetta mál snýst um.
Því miður sýnist svo sem stefna hinnar nýju ríkisstj. í þessum málum lofi sannarlega ekki góðu. Þar á að halda áfram og herða á þeirri vitleysu sem verið hefur ríkjandi hér. Það er þetta sem þetta mál snýst um. Við Alþfl.menn höfum flutt hér till. um breytingar í tengslum við þetta frv. Við viljum að komið sé til móts við bændur að nokkru, en það sé gert með ákveðnum skilyrðum sem leiða okkur út úr þessum vítahring, en ekki að halda áfram stöðugt í sömu stigamyllunni. Það er hvorki bændum né neytendum til góðs. Þær till., sem við höfum hér lagt fram og verða bornar hér undir atkv., miða að því að breyta þessari stefnu bændum til hagsbóta og neytendum öllum, þeim sem ríkisstj. ætlar að borga þennan brúsa.